17.8.2023 | 07:26
Trans-fólk sem hatar samkynhneigða
Hatrið kom berlega í ljós þegar halda átti málþingi 12. ágúst s.l. Trans-fólkið, fæddir karlmenn, gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir að hommar og lesbíur ásamt öðru áhugafólki um réttindamál þeirra yrðu rædd. Af hverju trans-fólki er uppsigað við samkynhneigða er stór spurning. Það virðist líka óttist málflutning annarra en viðhlæjenda.
Fréttin sagði frá þessu og líka að Miðflokkurinn hefði skotið skjólshúsi yfir málþingið þegar ríkisstofnanir létu trans-fólkið kúga sig til hlýðni. Hinsegin samfélagið lagðist á eitt til að eyðileggja fyrir samkynhneigðu fólki.
Hvort þetta fólk sé skarpasti hnífurinn í skúffunni skal ósagt látið en annar þeirra skrifar:
Ugla Stefanía Kristjönudóttir skrifar:
Þið hafið eflaust mörg séð að ákveðin samtök hyggjast halda eitthvert anti-trans málþing á Hinsegin dögum í miðborg Reykjavíkur, og hafa boðið nokkrum vel þekktum anti-trans aktivístum, m.a. frá Bretlandi.
Ég mæli endregið með því að fólk hundsi þessa samkomu algjörlega, og hvet eindregið gegn því að fólk fari og mótmæli eða reyni að hafa samband við staðinn sem þetta er haldið á til að fá þau til að hætta við. Slíkt mun eingöngu verða vopn í þeirra höndum, og vekja frekari athygli á þeirra málstað.
Auðvitað eru svona samkomur í eðli sínu fordómafullar og skil ég því vel að fólk vilji mótmæla eða reyna að fá þeim til að vera aflýst - enda full ástæða til. Þetta er auðvitað óþolandi og á ekki að líðast.
Hinn lítt skárri segir:
Ormur Guðjóns skrifar:
Mér finnst merkilegt að þessi mannvitsbrekka sem Eldur er dettur ekki í hug að samkynhneigt trans fólk sé til.
Ég er hrifinn af karlmönnum, hef alltaf verið hrifinn af karlmönnum, og ég er sjálfur trans karlmaður. Er þá hér verið að bæla mína gagnkynhneigð?
Svo náttúrulega þekki ég fleira trans fólk en hann og ég myndi segja í grófu áliti að flest trans fólk sem ég þekki er tví eða pankynhneigt. Hvernig er verið að bæla þeirra kynhneigðir?
Það kemur mér ekki á óvart að Frosti bjóði þessu smámælta smáhuga smámenni í þáttinn hjá sér, enda er Frosti prinsipplaus grifter sem gerir bara það sem hann veit mun koma aur í vasa sína.
Samtökin 78 hafa ekki tekið afstöðu gegn verknaði þeirra og hvað þá að forsvarsmenn þeirra vildu svara hvaða hatursorðum væri verið að andmæla með þessum gjörningi. Blaðamaður Fréttarinnar heyrði í þeim.
Hér má sjá mynd af trans-fólkinu, fylgir fréttinni. Fæddir karlmenn.
Athugasemdir
Fólk sem hatar sjálft sig, varpar (Projects) hatri sínu yfirleitt á aðra, sé sjálfhöturum hampað af [ríkis]valdinu og/eða fjölmiðlum, og þeim sagt að allt sem þeim dettur í hug sé sjálfsagt[, náttúrulegt] og heilagt, þykir þeim sjálfsagt að ráðast á hvern þann sem ekki tekur undir með þeim.
Einföld sálfræðí sem Marxistaklúbbar nota þessa dagana til að valda sundrungu á Vesturlöndum, með ótrúlega [g]óðum árangri.
Guðjón E. Hreinberg, 17.8.2023 kl. 08:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.