11.12.2022 | 11:00
Hvað er þétt vinna?
Ég skil stundum ekki orðanotkun sáttasemjara né blaðamanna. Hvað er þétt vinna? Get ekki með nokkru móti skilið það. Blaðamenn eiga að vera færir í starfi sínu og breyta orðalaginu noti viðmælandi þeirra orð sem eiga ekki við. Óþarfi að endurtaka þvæluna.
Ég skil að mikil vinna (ætli það sé þétt vinna) er skipulögð í dag í húsi sáttasemjara. Síðan ljúka menn kjarasamningi, binda endahnút á viðræður með samningi, ná samningi en menn landa ekki kjarasamningi samkvæmt íslensku málfari. Við þurfum að passa að svona þvæla festist ekki í tungumálinu.
![]() |
Búið að skipuleggja þétta vinnu í allan dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.