Andrés Ingi og bullorðin

í  þágu transhópsins sem telur 0.05 % þjóðarinnar. Hann vill mismuna fólki með gjaldfrjálsu vegabréfi. Stenst það lög? Andrés Ingi býr til bullorð sem hann vill að Alþingi samþykki. Vissi ég ekki betur héldi ég að hann væri á síðasta ári leikskóla eða upphafi grunnskólagöngu og verkefnið væri að búa til bullorð. En því miður kæra þjóð, þetta er þingmaður. Bullorðin er kvár og stálp. Svo bætir hann um betur og vill taka góð og falleg orð úr tungumálinu amma og afi. Leggur til að tala um foreldri foreldris- hann á sér ekki viðreisnar von þessi maður. Hvílík tillaga. Ég kalla aðra þingmenn til ábyrgðar, látið þingmanninn ekki einu sinni komast í ræðustól með þetta bull.

Er nokkur undra að umrætt bakslag sé komið í baráttu trans fólks. Margt minnir á forréttindahóp. Það veður uppi, vill stjórna og ráða hvernig aðrir haga tungumáli sínu. Breyta á tungumálinu til að þóknast 0.05% landsmanna. Málefni trans fólks má ekki ræða. Allir eiga að vera sammála. Segja já og amen við kvenréttindahópum og öfgahópum sem hafa tekið málefnið undir sinn verndarvæg. Skynsöm umræða- nei takk segja þessir einstaklingar.

Fullt af fólki er komið með upp í kok af frekjunni og sýndarmennsku þingmanna eins og Andrésar Inga. Ég ætla nú ekki að tala um forsætisráðherrann þegar hann byrjar á kynjaræðunni til að þóknast kvennahópum, öfgahópum og Samtökum 78.

Í Danmörku eru til samtök, Dansk regnbueråd, sem vilja spyrna við fótum gagnvart transumræðunni sem er á villigötum og lyfjagjöfum barna. Því miður hafa Danir ekki bannað lyfjagjafir en vonandi þegar þingmenn þar sjá skemmdirnar sem verða á börnum við lyfjagjafirnar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Heyrði í honum í dag vera dásama það að lýsa hér yfir neyðarástandi í loftslagsmálum
Líkt og við kynntumst í Covid þá má gera ýmislegt í neyðarástandi
t.d. banna með lagasetningu að skyrdós fylgi nothæfar skeiðar

Grímur Kjartansson, 12.10.2022 kl. 19:47

2 Smámynd: Loncexter

Hvernig væri að þingmenn og stjórnmálamenn verðu tíma sínum til að ræða um fæðuöryggi, offjölgun flóttamanna og hælisleitenda, og fl. sem skiptir hag íslands virkilega máli.

Kynvillu-forréttindamál og orðskrípa-uppfinningar er ekki það sem gerir þjóðarhag betri eða skynsamlegri.

Loncexter, 13.10.2022 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband