26.3.2022 | 11:01
Vitleysan með trans-réttindin er komin
út fyrir öll skynsamleg mörk. Ríkisstjórn sem hleypur eftir tilfinningum 0.002% þjóðarinnar á kostnað hinna er ekki traustsins verð. Hér má sjá góða umfjöllun um málið Morgunblaðið - Textaútgáfa - Innskráning (mbl.is)
Hér kemur grein Írisar:
Siðræna transgátan
Lyfjafyrirtæki er að prófa lyf við blöðruhálskrabbameini og býður karlmönnum að skrá sig í lyfjarannsóknina. Ég læt skrá mig sem karlmann, því ég er trans og skilgreini mig sem karlmann. Lyfjafyrirtækið gerir enga athugasemd; löggjafinn hefur lögfest að kynvitund ræður ríkjum. Sá sem skilgreinir sig sem karlmann er karlmaður. Ekki skiptir máli að líkami minn er kvenkyns og ég er því ekki með blöðruhálskirtil. Lyfjafyrirtækið sendir niðurstöðurnar til Lyfjaeftirlitsins. Þeir minnast ekki á að einn eða fleiri þátttakendur í rannsókninni voru kvenkyns. Lyfjaeftirlitið samþykkir lyfið og heimilar fyrirtækinu að markaðssetja það. Eiga karlmenn sem svo í góðri trú taka lyfið við blöðruhálskirtilskrabbameini rétt á að vita að a.m.k. einn þátttakenda í lyfjaprófununum var kvenkyns og því ekki með blöðruhálskirtil?
Við vitum hvernig forsætisráðherra og meirihluti Alþingis, sem bera ábyrgð á gender-gremlensku nýlenskulöggjöfinni nr. 80/â2019 um kynrænt sjálfræði, myndu svara. Samkvæmt trans-biblíunni þeirra er það í verkahring ríkisvaldsins að framleiða gervi-raunveruleika fyrir þá sem þjást af vanlíðan gagnvart eigin kyneinkennum og kyngervi sem [þeir telja] vera í andstöðu við persónuleika sinn. Alþingi hefur ákveðið að þar sem raunveruleikinn skapar ... óþægindi fyrir trans einstaklinga verður löggjöfin að vera í samræmi við tilfinningar þeirra.
Ljóst má vera að langtum meiri fjölbreytni ríkir varðandi kyn og kynvitund en hin hefðbundna tvískipting í karlkyn og kvenkyn gefur til kynna, segir í lagafrumvarpinu.
Þetta er alrangt. Það er engin fjölbreytni varðandi kyn mannvera og að hrista saman kyn og kynvitund, sem ekki er mögulegt að mæla á hlutlægan hátt, í kynferðiskokkteil skapar rugling og misskilning varðandi þá einföldu staðreynd að aðeins tvær tegundir mannvera karlkyns og kvenkyns hafa gengið á þessari jarðarkringlu.
Orðið kyn hefur sömu merkingu í líffræði og í íslensku: líffræðileg flokkun einstaklinga sem karlkyns eða kvenkyns. Í gender-gremlensku er kyn hins vegar safnhugtak sem nær ... yfir kyneinkenni, kyngervi, kynvitund og kyntjáningu. Orðið trans, sem er notað 102 sinnum í frumvarpinu, er hvergi skilgreint. Kynvitund trans fólks er að einhverju eða öllu leyti á skjön við það kyn sem þeim var úthlutað við fæðingu ... Þessi ritningarorð úr trans-biblíunni eiga betur heima í 16. aldar galdraþulu en 21. aldar lagafrumvarpi. Við vitum öll að kyni er ekki úthlutað við fæðingu fremur en hæð/âlengd eða þyngd. Kyn er séð (observed) og skráð.
Trans eða transgender er ekki nýuppgötvað, glænýtt og glansandi þriðja kyn. Allir sem einkenna sig trans eru annaðhvort karlkyns eða kvenkyns. Í meira en 99,982% tilvika er einstaklingur annaðhvort ótvírætt karlkyns eða kvenkyns. Kynflokkun byggist á kynfrumutegundunum sæði og eggfrumu. Engin þriðja kynfruma er til og því er ekkert þriðja kyn til. Tilvist einungis tveggja kynja þýðir þó ekki að kyn geti aldrei verið óljóst, eins og intersex einstaklingar (0,018% einstaklinga fæðast með ódæmigerð kyneinkenni) sýna. En tilvist intersex mannvera sannar ekki að kyn sé fjölbreytilegt frekar en fæðing einfættrar mannveru afsannar að mannverur séu tvífættar (bipedal).
Frumvarpið miðast að því að bæta réttarstöðu trans og intersex fólks og færa hana til nútímahorfs. Nútímahorf frumvarpsins er sennilega af facebook- og tiktok-taginu, með 60-100 kyngervi. Eða wikipedia, sem nú er öll á gender-gremlensku. Lögin eiga að standa vörð um líkamlega friðhelgi einstaklinga. Álítur meirihluti Alþingis ákvæði XXII.-XXIV. kafla almennra hegningarlaga ekki fullnægjandi til að verja líkamlega friðhelgi borgaranna?
Mér er ekki kunnugt um að ég eða aðrir borgarar sem ekki einkenna sig trans (eða intersex) hafi notið sérstakrar réttarstöðu umfram transfólk. Fjöldi fólks þjáist eflaust af vanlíðan gagnvart ýmsum líkamseinkennum sem það telur vera í andstöðu við persónuleika sinn. En flestir verða bara að láta sig hafa það. Nema þeir séu trans. Löggjafinn hefur skapað sérstakan lúxus-trans-ríkisborgararétt sem felur í sér rétt til að láta skattgreiðendur kosta útlitsbreytandi skurðaðgerðir og ríkið breyta afturvirkt lagalegum skjölum þar til árangurinn er í samræmi við persónuleika og tilfinningar trans-ríkisborgaranna.
Meira er í húfi en tilfinningar transfólks. Lögfesting transritningarorðanna er ósamrýmanleg kynbundnum réttindum. Nauðgarar og morðingjar sem einkenna sig sem konur eru í kvennafangelsum. Karlar keppa í kvennaíþróttum þar sem munur á körlum og konum er svo augljós að keisarinn er á tippinu eins og börnin segja. Kyn er grundvallarforspárþáttur í upplýsingaöflun og greiningu um alla samfélagsþætti, þ.ám. heilsu, menntun, atvinnu og glæpi.
Hvaða heilvita samfélag telur eðlilegt hvað þá þjóðþrifaverk að löggjafinn leyfi borgurunum að breyta afturvirkt opinberum lagalegum upplýsingum og skjölum í samræmi við tilfinningar sínar?
Ríkisvaldið á ekki að styðja ranghugmyndir fólks. Hvað þá að lögfesta þær á kostnað almennings(feitletrun mín).
Colin Wright, evolutionary biologist:
https://âwww.realityslaststand.com/âp/âintersex-is-not-as-common-as-red?s=r
https://âwww.realityslaststand.com/âp/âsex-is-not-a-spectrum?s=r
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.