16.1.2022 | 10:38
Þið sækið ekki í hjúkrunarstörfin
ágætu nemendur og hafið ekki undanfarin ár. Ekkert í augnsýn að það batni. ,,Hann gagnrýnir að heilbrigðiskerfið hafi ekki verið bætt þannig að hægt sé að taka á móti fleiri Covid-sjúklingum á spítala en undanfarna daga hefur þeim fjölgað hratt á Landspítalanum. Það er eiginlega ekkert búið að gera þannig að hægt sé að taka á móti fleiri, segir Ísak." Þessi ágæti nemandi virðist ekki átta sig á að mönnunarvandinn er vandamálið og hefur verið til fjölda ár. Til viðbótar leggst veiran á heilbrigðisstarfsmenn líka og þeir sendir í sóttkví.
Nemendur eins og Ísak sækjast ekki eftir að mennta sig innan heilbrigðisgeirans. Varla er hægt að töfra fram fólk? Sami vandi víða um heim. Störfin þykja hvorki vel launuð né heillandi. Vaktavinna er ekki á óskalista unga fólksins. Annað og meira er í forgangi hjá unga fólkinu.
Sammála þeim, synd að framhaldsskólaárin hafi farið svona. Vonandi verður það versta sem þau upplifa á ævinni.
Bestu árunum eytt fyrir framan skjá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.