7.9.2021 | 07:50
Batnandi fólki er best að lifa
segir máltækið. Held að fleiri ættu að fylgja í fótspor hans. Páll Vihljálmsson rýndi í tölur, þetta er á blogginu hans.
Sé gert ráð fyrir að karlar fremji öll kynferðisbrot í landinu, þ.m.t. vændisbrot, eru 99,7 prósent karla saklausir af árlegum kynferðisbrotum.
Samkvæmt afbrotaskýrslu lögreglunnar voru framin 658 kynferðisbrot á Íslandi árið 2019. Karlar á Íslandi eru skv. Hagstofunni 189 þúsund. Ef gert er ráð fyrir að einn karl sé um hvert kynferðisbrot er árlegt hlutfall karla sem fremur kynferðisbrot 0,3 prósent.
Ef sama hlutfall karla fremur sama fjölda afbrota í tíu ár fáum við að þrjú prósent karla eru sekir um kynferðisbrot. En það þýðir að 97 prósent karla eru saklausir. Hlutfall saklausra karla er líklega hærra. Konur eru brotamenn í sumum tilfellum, mál eru felld niður og einn karl getur staðið að fleiri en einu afbroti.
Í öllu falli eru þeir örfáir karlarnir sem eru kynferðisbrotamenn, minna en 0,3 prósent árlega og yfir áratug kannski um tvö prósent. Einstakir síbrotamenn lækka hlutfallið."
Tjón KSÍ og fótboltastrákum af málinu er mikið, verður ekki mælt því andlegt ofbeldi er erfitt að verðleggja. Bara það að lýðnum dirfist að kalla unga fótboltamenn ,,nauðgara" er dæmi um kostnað. Fjölmiðlar eiga sinn þátt í þessu ofstæki.
Áfram heldur Páll
,,Tjónið er ómælt sem öfgafemínistar valda samfélaginu með fáheyrðum málflutningi. Þar tröllríður drengjaskömm. Ungum piltum er kennd sjálfsfyrirlitning. Í stað þess að byggja upp heilbrigt lífsviðhorf ungra manna er orðræðan að í hverjum strák búi nauðgari. Ekki mannbætandi uppeldi, svo vægt sé til orða tekið."
Tímabært er að öfgunum linni. Löngu tímabært."
Sendi fráfarandi stjórn KSÍ afsökunarbeiðni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.