Missir lífsviðurværi vegna árása

kvenna sem hafa þegið bætur og kúgað fé til styrktar Stígamótum. Konurnar vinna eins og vírus í tölvu. Afleiðingar af svona vírus eru miklar fyrir einstakling sem verður fyrir barðinu á honum. Hvergi hægt að fá bætur. Þórhildur og vinkonan mun ábyggilega ekki borga Kolbeini bætur vegna umfjöllunarinnar um óviðeiganda hegðun hans. Þeim fer betur að geysast eins og stormsveipur í fjölmiðlum sem kokgleypa allt sem sagt er. Hjarðhegðun er vel þegin en þeir sem vilja skera sig úr fá ekki rými í fjölmiðlum.

Las á snjáldursíðu: ,, Núna er kominn tími á að krefja þessar konur sem eru að hópast um að koma með margra ára gamlar ásakanir um einhvern ætlaðan verknað, að koma með sannanir fyrir þessum kjaftasögum! Ellegar þegja héðan í frá!“ Hanna Björg Vilhjálmsdóttir spúir eitri sínu víða og eflist eftir því sem fleiri liggja í valnum. Hún minnir mig á stríðsmenn Talibana sem valta yfir allt og alla, í nafni kynjafræðinnar. Sama má segja um öfgahópa sem vilja ekki réttlæti heldur valta yfir samfélagið. Gerir lýðurinn ekki eins og hópurinn segir og vill eru þeir úthrópaðir. Eftir höfðinu danska limirnir og margir fjölmiðlar dansa eins og öfgahópar vilja. Skömm að því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband