6.8.2021 | 13:04
Aumingjalegt
útspil ríkisstjórnarinnar. Til skammar. Þau þora ekki. Nú er ekki hægt að benda á sóttvarnalækni. Skólastarf í hættu. Ráðherra menntamála sama gungan sem fyrr. Allt fyrir atkvæðin. Fólk sem kemur til landsins getur gert margt og farið víða á 48 klst. Skömm að þessu. ,,Ákvörðunin tekur gildi 16. ágúst. Bólusettir með tengsl hér á landi verða þá skyldaðir til þess að fara í sýnatöku innan 48 klukkustunda frá komunni til landsins."
Auðvitað á að setja 2 m reglu á. Auðvitað á að fækka þeim sem koma mega saman. Auðvitað á að gera allt til að minnka álag á heilbrigðisstarfsfólk. Ríkisstjórnin gefur lítið fyrir aðvörunarorð þeirra. Auðvitað á heilbrigðisstarfsfólk að halda fríi sínu til streitu, hætta að taka aukavaktir og vera alltaf viðbúið þegar kallið kemur. Ríkisstjórnin verður að bera ábyrgð á því sem framundan er.
Bólusettir með tengsl við Ísland verða skimaðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.