5.10.2020 | 14:45
Fæ velgju í hvert sinn sem Lilja Dögg tjáir sig
Til hamingju með daginn kennarar. Alþjóðadagur kennara í dag.
Ráðherra menntamála sá ástæðu til að tjá sig. Einhverra hluta vegna fæ ég velgju í hvert sinn sem hún tjáir sig.
Hún tjáir sig í læstri grein hér.
Ráðherra er yfirborðsleg og ég hef alltaf á tilfinningunni að hún tali aldrei frá hjartanu. Hún þylur upp rullu sem hún hefur lært utanbókar. Sjaldan svarar hún spurningum, fer í kringum þær eins og köttur í kringum heitan graut.