3.11.2019 | 12:57
Bótagreiðslur til þolenda- Eva skoðar málið.
Hér verða skrif Evu gerð skil um bótagreiðslur o.fl. Neðar er krækja á pistilinn.
,,Ástæðan fyrir því að mál Atla Rafns gegn Leikfélagi Reykjavíkur vekur svo sterk viðbrögð með tilheyrandi rangfærslum um bætur til þolenda í nauðgunarmálum er sennilega sú að hávær hópur réttlætisriddara vill helst að hugmyndafræðin á bak við #metoo hreyfinguna fái stöðu réttarheimildar. Að vinnuveitendur fái frelsi til þess að losa sig við starfsmenn að eigin geðþótta án þess að skeyta hið minnsta um grundvallarsjónarmið réttarríkisins, án þess að virða rétt starfsmanns til æruverndar, án þess að gefa starfsmanni sjálfsagðar upplýsingar um það hvað honum er gefið að sök, hvað þá tækifæri til að svara fyrir sig."
,,[Uppfært: Mér var bent á dóminn í máli 17 ára stúlkunnar, sem ÞEÞ vísar til. Þetta er dómur frá 2001. Stúlkunni var dæmd milljón í miskabætur og Hæstiréttur staðfesti þá fjárhæð og þyngdi dóminn yfir nauðgaranum. Framreiknuð til dagsins í dag er þessi bótafjárhæð 2,2 milljónir. Það er ekki mikið fyrir aðra eins meðferð. Vonandi fengi hún meira í dag en þetta er þó augljóslega meira en sú miskabótafjárhæð sem Atla Rafni var dæmd í vikunni.]"
Krækjan:http://www.norn.is/laganornin/
Athugasemdir
Kristín og LR voru í héraðsdómi dæmd til að greiða Atla 1,5 milljónir í miskabætur. Stúlkunni var dæmd milljón í miskabætur, 2,2 milljónir framreiknað til dagsins í dag. Kristín og LR voru í héraðsdómi einnig dæmd til að greiða Atla fjórar milljónir í skaðabætur. Skaðabæturnar eru eginlega vangreidd laun, tekjutap, vegna ólögmætrar uppsagnar og miðast við umsamin kjör, bankastjóri hefði fengið meira og götusópari minna.
Vagn (IP-tala skráð) 3.11.2019 kl. 16:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.