30.10.2019 | 16:21
Engin óvissa- þið takið afstöðu
Gott að Atli vann málið. Ekki hægt að bera fólk svona þungum sökum án þess að það geti varið sig. Gott fyrir launamenn alla.
Þetta er meira bullið og sýnir að stjórn leikfélagsins er óhæf. Það á nefnilega að hugsa um alla starfsmenn ekki suma. Engin óvissa um túlkun laganna. Hefðu huldukonurnar stigið fram og málið unnið eftir réttum verkferlum væri staðan væntanlega önnur. ,,Stjórn Leikfélags Reykjavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem kemur fram að hún líti svo á að með dómnum sé komin upp óvissa um túlkun laga sem tryggja eiga vellíðan og öryggi starfsfólks." Einhver þarf að koma þeim um skilning um að engin óvissa ríki um lögin, menn geta ekki verið með hentistefnu eins og Leikfélagið.
Hefði mátt afstýra þessum harmleik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.