8.6.2025 | 07:57
Imane Khelif boxari er karlmaður- hverjum datt það í hug!
Svik komast upp um síðir. Að sjálfsögðu er hann karlmaður. Hefur aldrei verið neitt annað. Í hvaða hugsana- og skynsemisrofi var fólk sem hélt öðru fram. Það sést langar leiðir að hann er karlmaður.
Margir fengu orð í eyra fyrir að halda sannleikanum fram. Fjölmiðlar fóru á flug með lygina og sökuðu mann og annan fyrir fordóma. Hér á landi gerðist slíkt hið sama. Þingmaður Viðreisnar Sigmar Guðmundsson og Jóhannes Þór lögðust á árina sem og aðrir sem telja sig ,,gott fólk. Margir fréttamenn töluðu um ,,hana en ekki hann eins og var og er viðeigandi.
Hann er bannaður frá kvennaflokki- að sjálfsöðgu
Fyrr í vikunni bannaði World Boxing Khelif að berjast gegn konum á heimsmeistaramótinu í Eindhoven, nema meistarinn gengist undir kynjapróf, hann neitað. Kemur ekki á óvart!
Margir fjölmiðlar földu athugasemdir fólks á samfélagsmiðlum sem þeim líkaði ekki. Notendur sem sögðu boxarann karlkyns féllu ekki í kramið. En þeir geta ekki eytt athugasemdunum og fylgjendur geta skoðað falin svör ef þeir kjósa.
Tugir annarra athugasemda voru faldar, allar fyrir að fullyrða að hnefaleikakappinn væri karlkyns.
Einn þeirra, Hatkeshiator, sagði: ,,Það er varla verra en að þykjast vera stelpa svo þú getir barið gellur á meðan þær óttast bann ef þær kvarta. Náðu tökum á þér."
Kyle Reese, annar X notandi, skrifaði: ,,Ég held að skaðinn sem geðsjúkur maður hans olli konum hafi verið miklu meiri."
Florence Jeffries sagði: ,,Hann kýlir konur. Hvað með skaðann, líkamlegan og andlegan, sem þeir urðu fyrir? Hann veit að próf hafa sýnt að hann er með XY litninga."
Einn var falinn fyrir að endurtísta ummælum JK Rowling, sem sagði: ,,Fjölmiðlar höfðu allar þær sannanir sem þeir þurftu, en kusu að afbaka, hylja og afvegaleiða vegna þess að raunveruleikinn var pólitískt óþægilegur. Þeir sögðu að Khelif væri kvenkyns. Þeir höfðu rangt fyrir sér. Þeir sögðu áhyggjusama einstaklinga þröngsýna. Þeir höfðu rangt fyrir sér."
Hér á landi kepptust menn við, Sigmar og Jóhannes
Já þeir vaða ekki í vitinu þessir einstaklingar. Kristinn H. Guðnason sá aumi blaðamður á Dv lét sitt ekki eftir liggja. Óhuggulegt er að fylgjast með fólki níðast á þessari konu er ein fyrirsögnin hans.
Sigmar Guðmundsson þingmaður
Það er algerlega ömurlegt að lesa sum kommentin. Fólk nennir ekki að lesa sér til heldur ryðst fram með sleggjudómana og fullyrðingar sem eru auðhraktar. Heldur svo áfram þrátt fyrir leiðréttingar, segir Sigmar.
Nefnir Sigmar að faðir Khelif hafi ekki vilja að hún færi í hnefaleika, það væri ekki kvennaíþrótt.
Sumt sem sagt er um hana er bara pjúra mannvonska og ekkert annað. Andstæðingur hennar í hringnum síðast á talsverða sök á þessu fári miðað við lýsingarnar, segir Sigmar.
Jóhannes Þór lét ekki tækifærið fram hjá sér fara
Annar sem lætur í sér heyra er Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og stjórnarmaður í trans Samtökunum 78.
Á samfélagsmiðlum vísar hann í grein þar sem fjallað er um málið og hina ímynduðu transkonu J.K. Rowling.
Það skynsamlegasta sem ég las á internetinu í dag um hnefaleika kvenna á Ólympíuleikunum. Þetta upphlaup snýst nefnilega ekki um íþróttirnar. Mæli með að fb vinir mínir sem lásu fyrirsagnir í dag og hoppuðu á vagninn renni í gegn um þetta, segir Jóhannes.
Ruv- vókfréttastofan sömuleiðis
Ekki lágu þeir á lyginni. Reyndu að blekkja skynsamt fólk um að boxarinn væri kona. Menn áttu sem sagt ekki að trúa sínum eigin augum samkvæmt fréttamönnum Ruv. Þeir gengu svo langt að kalla hann hnefaleikakonu. Hvílík niðurlæging fyrir konur almennt og ekki síður þær sem hann barði í hringnum.
Ágúst Orri á Vísi
Blaðamaðurinn talar um að hann hafi orðið fyrir aðkasti eftir að hafa barið konu í hringnum. Ágúst Orri talar ekki um lélegt siðferði stráksins að berja konur. Keppinautur hans var kona og nei Ágúst Orri, Angela Carini sakaði hann ekki um að vera karlmann, hann er karlmaður og það vissi hún. Hún sagði bara sannleikann.
Nei vókisminn tröllríður fjölmiðlamönnum á Íslandi. Enginn þorir að segja sannleikann, bara lepja þvæluna upp eftir öðrum. Svona fréttamönnum er ekki viðbjargandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)