4.6.2025 | 09:12
Höfðar mál gegn stéttarfélagi hjúkrunarfræðinga
Mál hjúkrunarfræðingsins sem er í málaferlum við vinnuveitanda sinn og kvengervil, sem er læknir, hefur höfðað mál gegn stéttarfélaginu sínu. Félag hjúkrunarfræðinga studdi hana ekki þegar hún leitaði eftir stuðningi.
Eftir 30 ára aðild gekk Sandie Peggie að því vísu að hjúkrunarfélagið myndi styðja hana. Hún vildi aðstoð þegar vinnuveitendur höfnuðu því að vísa kvengervli, með kynfæri karlmanns, út úr einkarými sem ætlað er konum sem starfa á sjúkrahúsinu.
Kvörtun hennar hafði víðtækari afleiðingar, hún var send í leyfi því hún móðgaði kvengervilinn og stjórnendur sjúkrahússins tóku mark á því.
Sandie óskaði eftir lögfræðiaðstoð en fékk ekki. Það er athyglisvert því um allan heim eru kvenkyns hjúkrunarfræðingar um 95-98% af stétt hjúkrunarfræðinga.
Stéttarfélög hafa litið í hina áttina
Í öllu kynjaköltinu sem á sér stað víða um heim hafa stéttarfélög verið meðvirk, líka á Íslandi, með þeirri ranghugmynd að karlmaður geti verið kona og öfugt.
Helen Joyce forstöðumaður Sex Matters segir að stéttarfélög hafni blygðunarlaust félagsmönnum sínum þegar þeir berjast fyrir einkynja rýmum. Forsvarsmenn stéttarfélaga hafi staðið aðgerðalausir hjá meðan konur voru reknar úr vinnu fyrir það eitt að segja að kynin séu tvö.
Sigríður Svanborgardóttir orðaði það réttilega í grein á Visi; ,, Þegar stéttarfélag bregst og þá sérstaklega við brotum sem eru endurtekin, skipulögð og koma frá yfirmönnum sem njóta verndar yfirvalda þá verður það að pólitísku máli. Þá snýst það ekki lengur um eitt afmarkað mál heldur um grundvallarspurningar um vald, réttlæti og hverjum við treystum til að verja okkur gegn óréttlæti. Þegar Sameyki kaus að gera ekkert, varð það hluti af vandanum ekki lausninni. Nú á það sama við um Félag hjúkrunarfræðina í Bretlandi.
Búast má við röð málaferla
Búast má við, að málið hrindi af stað lögsóknum á hendur stéttarfélögum sem hafa látið félagsmenn sína róa fyrir trans-hugmyndafræðina.
Mörg stéttarfélög styðja ekki einkynja rými eða gagnrýnar skoðanir á kynjaóreiðuna, sem í sjálfu sér er hugmyndafræði ekki vísindi né sannleikur.
Hópur hjúkrunarfærðinga á Darlington sjúkrahúsinu bíða áteka, en þær höfnuðu kvengervli inn í eikarými kvenna.
Meðvirk stéttarfélög finnast víða um heim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)