Starmer undir þrýstingi, rannsakar nauðgunargengin

Eftir gríðarlegan þrýsting hefur Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, tekið U-beygju og mun nú láta rannsaka glæpagengin sem hafa misnotað ungar stúlkur um árabil.

Lengi vel lokaði lögregla og yfirvöld augunum fyrir vandamálinu. Niðurstaðan var sú að ofbeldisgengi störfuðu óhindrað í breskum borgum í mörg ár.

Skýrsla sem sýnir hversu hrikalegt þetta var þrýstir á stjórnvöld að bregðast við.

Lögreglan óttaðist kynþáttafordóma

Louise Casey var fengin til að kortleggja og skoða umfang og eðli barnaníðs á grundvelli þessara hópa. Skýrslan var kynnt. Þar segir að lögreglan hafi forðast að rannsaka ofbeldisgengin af ótta við að vera álitin kynþáttahatarar.

Vegna hræðslu ríkisstjórna um ólgu í samfélaginu var upplýsingum og sönnunargöngum haldið leyndum. Þær upplýsingar voru að gerendur væri af asískum uppruna.

Spurningar um þjóðerni voru spurðar, en forðast að svara því í mörg ár. Kynferðisleg misnotkun á börnum er hræðileg, sama hver fremur hana. Gnótt af sakfellingum um allt land réttlætir frekari rannsókn á þessum asísku karlahópum, segir Casey í skýrslunni.

Í stað rannsókna höfum við séð yfirhylmingu. Í tómarúmi eru ófullnægjandi og óáreiðanleg gögn notuð til að þóknast tilgangi þeirra sem setja þau fram. Kerfið heldur því fram að vandamálið með hvíta gerendur sé yfirþyrmandi þegar ekki er hægt að sanna það, heldur hún áfram.

Krefst þess að lögreglan verði rannsökuð

Sammy Woodhouse lifði sjálf af misnotkun nauðgunargengis í Rotherham og berst nú fyrir réttindum fórnarlambanna.

Hún segist hafa heyrt þetta allt áður, að rannsaka eigi málið en ekkert gerist.

Þegar hún var 14 ára var hún misnotuð kynferðislega af Arshid Hussain, sem var tilnefndur sem leiðtogi ofbeldisgengis.

Hún varð fyrir ofbeldi, þar á meðal nauðgun, líkamsárás og þvingun með hótunum um að fjölskylda hennar yrði drepin. Hún varð ólétt af barni Hussain árið 1999 þegar hún var aðeins 15 ára gömul. Hún segist ekki una sér hvíldar fyrr en allir lögreglu- og embættismenn sem hylmdu yfir þessum óhugnaði verði rannsakaðir fyrir þátttöku sína.

Þrýstingur á Starmer hafi áhrif á U- beygjuna

Starmer forsætisráðherra hefur áður hafnað kröfum um rannsókn á landsvísu og haldið því fram að búið væri að rannsaka málin. Þau hefðu verið rannsökuð í sjö ára rannsókn undir forystu prófessors Alexis Jay. Rannsókninni lauk árið 2022. Nú hefur honum snúist hugur.

Ríkisstjórnin hóf endurskoðun undir forystu Casey og skipulagði fimm staðbundnar rannsóknir - eina í Oldham og fjórar á svæðum sem enn hafa ekki verið nafngreind.

Casey telur að rannsókn á landsvísu sé enn nauðsynleg.

Nokkur sveitarfélögum neituðu að rannsaka málið og sum samtök neituðu að tala við rannsakendur hennar skrifar BBC.

Gagnrýni á ráðherrann

Starmer var gagnrýndur fyrir að vera tregur til að framkvæma rannsókn á landsvísu. Íhaldsmenn telja að hann hafi verið beittur þrýstingi til að snúa skoðun sinni við.

Elon Musk hefur einnig gagnrýnt Starmer.

Samkvæmt Le Monde taldi Musk að Starmer væri ,, samsekur í fjöldanauðgunum" eftir að hafa heyrt um virk ofbeldisgengi í borgum í norður- og miðhluta Englands í áratugi.

Vill breyta lögum

Í skýrslunni er mælt með því að herða lögin í Englandi og Wales þannig að fullorðnir séu alltaf ákærðir fyrir nauðgun ef þeir stunda kynlíf með börnum yngri en 16 ára.

Þrátt fyrir að sjálfræðisaldur sé 16 ár bendir skýrslan á mörg dæmi þar sem kynferðislegri misnotkun er vísað frá eða refsing lækkuð.

Yvette Cooper innanríkisráðherra hefur lofað að fylgja tilmælunum og breyta lögunum. Hún segir einnig að stjórnvöld muni vinna með lögreglu og saksóknara til að tryggja vernd í samskiptum unglinga þar sem samþykki er fyrir hendi.

Heimild

 


Bloggfærslur 18. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband