Tímabært að rifja upp

Það eru rúm þrjú ár síðan ég birti grein í mogganum og Fréttin endurbirti. Greinin á enn fullan rétt á sér. Frá því hún var skrifuð hefur margt komið í ljós í heiminum um kynjaóreiðuna sem þingmenn, heilbrigðiskerfið, skólayfirvöld, skólastjórnendur, forysta Kennarasambandsins og kennarar láta viðgangast hér á landi.

Þessir aðilar hafa meira að segja tekið þátt í að gera lítið úr börnum sem líður illa í eigin skinni. Sem dæmi með því að flagga fyrir andlega óstöðugum börnum. Með því að telja þeim trú um að kynin geti verið fleiri en tvö. Með því að ljúga í skólabókum svo fátt eitt sé nefnt.

Í greininni sagði ég; ,,Ég tel það sær­andi og móðgandi að segja barni að það sé kannski í öðrum lík­ama. Sé ekki það kyn sem það fædd­ist. Að barnið sé strák­ur, án lims, en ekki stelpa sem er þvert á líf­fræðilega staðreynd. Barn hef­ur ekki þroska, getu eða þor til að mót­mæla slíku. Senni­lega á það við í gegn­um leik- og grunn­skól­ann.“

Nú hefur Hæstiréttur Bretlands úrskurðað að kona sé líffræðilegt kyn og að kynin séu tvö.   

Trans-kona er því ekki til í lagalegum skilningi eða trans-barn. Hins vegar er það í kollinum á þessum einstaklingum sem er í fullkomnu lagi. Þvingið okkur hin ekki til að viðurkenna það.

Lyfin

Ég skrifaði; ,,Hef lesið að Sam­tök­in 78 bendi á að horm­óna­blokk­andi lyf séu nán­ast skaðlaus, þvert á vitn­eskju sér­fræðinga sem hafa hver á fæt­ur öðrum stigið fram. Fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna 78 skrifaði það í grein sem Vís­ir.is birti. Horm­óna­blokk­andi lyf hafa veru­leg­ar af­leiðing­ar fyr­ir börn, skemma þau til lífstíðar. Með mál­flutn­ingi sín­um finnst mér allt benda til að Sam­tök­in ger­ist brot­leg við „... stefn­ir heilsu barns­ins og þroska í hættu“ boði þau þenn­an boðskap í fræðslu sinni til skóla­barna.“

Nú hefur komið í ljós, eins og ég benti á, lyfin eru skaðræði og stórhættuleg börnum. Gera þau heilsuveil til framtíðar og ófrjó. Víðs vegar um heiminn hafa menn vaknað upp við vondan draum og banna nú hormónablokka fyrir börn yngri en 18 ára sem er sjálfræðisaldurinn.

Fjölmiðlar

Ég skrifaði; ,,Vand­inn í dag er vilja­leysi fjöl­miðla til að ræða trans­mála­flokk­inn frá fleiri hliðum en Sam­tök­in 78 sýna. Víða um heim hef­ur umræðan um mála­flokk­inn breyst. Marg­ir hafa stigið fram og sagt miður góðar reynslu­sög­ur og sér­fræðing­ar benda á margt fróðlegt sem á er­indi við al­menn­ing. Ný­verið kom út norsk skýrsla sem fer hörðum orðum um þann iðnað sem er í gangi. Ekki orð um það hér á landi.“

Fjölmiðlar hér á landi (fyrir utan Fréttina og Nútímann) eru enn við sama heygarðshornið. Fjölmiðlar víða um heim hafa látið af heimsku sinni og þegja ekki lengur um trans-málaflokkinn. Kannski þurfum við að bíða í áratug áður en fjölmiðlamenn fletta ofan af lygum sem opinberir aðilar halda að börnum.

Greinin sem ég skrifaði á sínum tíma kölluð fram þessi viðbrögð og þessi, svo ekki sé talað um þessi.

Hægt að bæta þessum við og þessum.

Kyn verður aldrei dregið í efa nema í svo sára­fá­um til­fell­um og þá vita menn að eitt­hvað hef­ur farið úr­skeiðis.

Greinin


Bloggfærslur 13. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband