Nauðgunin í Gleðigöngunni

Getur þú verið ,,karl“ í þjóðskrá en ,,kona“ í réttarsal, ,,karl“ í fjölmiðlum og svo ,,kona“ í fangelsi. Allt er mögulegt á tímum sem einkennist af kynjarugli og afneitun staðreynda.

Gerendur skiptu um kyn ári áður en þeir nauðguðu stúlkunni sem var í umsjá barnaverndar.

Rifjum aðeins upp. Í Gleðigöngunni í Bergen 2024 nauðguðu tveir kvengervlar, karlar sem skilgreina sig sem konu, ítrekað 14 ára stúlku og beittu hana grófu kynferðisofbeldi eftir að hafa hellt hana fulla. Sá elsti nauðgaði henni þegar hún var 12 ára, en káfaði bara á henni 14 ára.

Í báðum tilfellum hafði stúlkan strokið af barnaverndarstofnun. Barn í mjög viðkvæmum hópi.

,,Þetta er það grófasta sem ég hef nokkurn tímann lesið“ skrifaði Mahmoud Farahmand, þingmaður Íhaldsflokksins:

,,Það fáránlegast er að tveir líffræðilegir karlmenn sem nauðguðu stúku undir lögaldri í nánast varnarlausu ástandi ætla að afplána nauðgunardóm sinn í kvennafangelsi. Þetta er óforsvaranlegt og stuðlar að vantrausti á ríkið.“

Fjölmiðlafræðingur spyr hvenær fjölmiðlar fari í alvöru rannsóknarvinnu þegar svona óhugnaður kemur upp, til að miðla réttmætum upplýsingum til almennings sem ættu að vega þungt í fréttaflutningi.

Vantar lagalegan grundvöll

Noregur var eitt af fyrstu löndunum til að taka upp lög um kynrænt sjálfræði. En í þessu tilviki skortir lagalegan grundvöll. Það eina sem er til staðar er munnleg sjálfsauðkenning nauðgarana.

Mikilvægar stofnanir í samfélaginu virðast sætta sig við kyn einstaklings út frá óskum þeirra. Jafnvel þegar kemur að fólki sem notar karlkyns kynfæri sín til að beita ofbeldi. Jafnvel þegar það þóknast þeim í dómsferlinu og eftir það.

Velta má fyrir sér: Eiga nauðgarar að fá að skilgreina sig og breyta kyni sínu eins og þeir vilja, til að komast eins ódýrt frá glæpnum og mögulegt er?

Frjálst val á kyni í réttarsal

,,Hann hefur endurteknar samfarir í leggöng…“ má lesa í ákærunni. Um einstakling sem kallar sig Desiree (skáldað nafn sem líkist nafni sakborningsins).

Síðar í dómnum má lesa um sama einstakling: ,,hún var aum eftir fyrri kynmök.“ Og um glæpafélagann, Enya, komumst við að því að ,,hún missti stinninguna.“

Saksóknari notar ,,hann“ um sakborning en Héraðsdómur Hordaland notar ,,hún“ og vísar til þess að þær séu karlmenn og skilgreina sig sem konur, kvengervlar.

Talið var að vísað væri til lagalegs kyn einstaklinganna. En á hverju byggði ákæruvaldið þegar þeir kölluðu þá karlmenn? Líffræðilegt kyn? Í því tilviki væri það vísindalega rétt.

Leitað eftir upplýsingum

Tölvupóstur var sendur til lögreglusaksóknara. Hún svarar:

,,Við gerð ákærunnar hefur ákæruvaldið tekið tillit til þess kyns sem skráð er í kerfi lögreglunnar sem samsvarar skráningu í þjóðskrá.“

Í Noregi er lagalegt kyn það sem einstaklingur er skráður í þjóðskrá. Desiree og Enya hafa þar af leiðandi ekki breytt lagalegu kyni sínu.

Fjölmiðlar hylma yfir með transinu

Þegar fjölmiðlamenn sem voru viðstaddir réttarhöldin spurðu þeir nauðgarana hvernig þeir vildu láta tala um sig. Þeir sögðu, karlmenn. Þegar innt var eftir því hjá fjölmiðlunum af hverju sannleikurinn væri ekki sagður, að um trans-einstaklinga væri að ræða,  var svarið að þeir vilji ekki ræða málið í smáatriðum.

Skýringin er frekar að menn vilja ekki stimpla trans-fólk, kyngervla. Á sama hátt og maður gefur ekki upp þjóðernisvitund eða upprunaland geranda í sakamálum.

Fáeinir fjölmiðlar hafa fjallað um málið eins og það kemur fyrir, kvengervlar nauðguðu stúlkunni. Sumir gengu svo langt og kölluðu það fáránlegt og hættulegt trans-umburðalyndi.

Þessir ofbeldismenn vildu vera konur fyrir dómstólum vegna þess að það gagnaðist málstað þeirra. En vildu svo vera karlmenn í fjölmiðlum, því það lítur betur út að karlmaður nauðgi frekar en kvengervill.

Karlar í kvennafangelsum

Fáir gera sér grein fyrir, að í Noregi afplána karlmenn í kvennafangelsum. Það gera þeir án þess að hafa breytt lagalegu kyni sínu. Þar af leiðandi munu þessi tveir nauðgarar fara í kvennafangelsi. Þeir eru ekki í hættu sjálfir en skapa hættu fyrir aðra fanga, sem eru konur.

Tveir þingmenn eru í uppnámi vegna málsins á meðan vinstrisinnaður lagaprófessor telur ekki að maður þurfi að hafa áhyggjur af konunum í fangelsinu þó þessir nauðgarar séu vistaðir þar.

Þrjár kvenhetjur

Það er þremur stúlkum að þakka að ódæðismennirnir náðust. Þær tóku eftir að karlmaður þreifaði á ofurölvi stúlkunni. Þær hringdu í lögregluna og hófu upptöku á símana sína. Þær eltu fólkið og fundu íbúðina sem notuð var. Þær spurðu gagnrýnna spurninga þegar lögreglan kom og tók við. Þær ættu að fá verðlaun fyrir hugrekki.

Ef stúlkurnar hefðu sé séð karlinn þreifa á stúlkunni er ekki víst að þær hefðu áttað sig á hvað væri í gangi. En af því vinur kvengervlanna, þriðji karlmaðurinn, átti við stúlkuna kveiktu þær á perunni.

Heimild


Bloggfærslur 12. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband