Mikið afskaplega á Brynjar Birgisson blaðamaður á Mannlífi bágt

Skrif Brynjars um Eld, formann Samtaka 22, eru orðin ansi pínleg, svo ekki sé meira sagt. Bloggari heldur að Brynjar elski Eld en þorir ekki að tjá hug sinn til hans og því bregðist hann svona við.

Kvennaþing er opið öllum

Nú reynir Brynjar að saka þann sem hann elskar, um að mæta óboðinn á Kvennaþing árið 2025. Til að bæta gráu ofan á svart segir blaðamaðurinn að Eldur hafi dreift áróðursmiðum. Sem sagt sannleikanum. Það kallar Brynjar blaðamaður Mannlífs áróður. Sannleikurinn er áróður. Lægra leggjast blaðamenn ekki eða?

Það sem stóð á umræddum miðum, sem aumingjans blaðamaðurinn kallar áróður, er:

Björgum STELPUSTRÁKUNUM og Björgum STRÁKASTELPUNUM.

Þetta eru kjörorð samkynhneigðra víða um heim til að vekja athygli á trans- væðingu barna sem eru hugsanlega samkynhneigð.

Á Kvennaþinginu, sem var öllum opið, var ekki þétt setinn bekkurinn. Rétt um 40 hræður mættu til að hlusta á áróður trans Samtaka 78. Ekki það, Brynjar á í ákveðnu ástarsambandi við þau samtök. Hann hefur sýnt það í öllum skrifum sínum. Nema karlinn sé á launum hjá þeim til að rægja aðra. Kann að vera, þekki það ekki. Málshátturinn segir; ,,Vér eplin með, sögðu hrossataðskögglarnir.“

Haturssamtök eru það ekki

Rétt hjá Brynjari, samtökin 22 hafa verið kölluð haturssamtök. Það er ekki sama og að vera það. Misgáfaðir einstaklingar sem þola ekki að heyra sannleikann um kynjaóreiðuna kalla samtökin þetta og fá svo menn, sem eru ekki skörpustu hnífarnir í skúffunni, til liðs við sig til að bera út óhróðurinn.

Samtökin 22 eiga ekkert skylt við haturssamtök. Bloggari skilur vel að Eldur hafi ekki viljað svara spurningum Brynjars sem á í ástar/haturs sambandi við hann. Fyrr má nú rota en dauðrota. Eldur er skynsamari en svo.

Brynjar gerir sig breiðan

Merkilegt að Brynjar gerir sig breiðan og þykist tala af þekkingu um Genspect. Á þeim ráðstefnum talar fólk sem hefur vit á því sem þau segja og hefur ekkert með ,,hatursorðræðu“ að gera eins og hann heldur fram, hvað þá áróður.  Enn ber hann vanþekkingu sína á borð fyrir alþjóð, alveg á silfurfati. Áhugaleysi Brynjars til að stunda rannsóknarblaðamennsku er algert.

Á ráðstefnum Genspect talar fagfólk sem þekkir málaflokkinn, en Brynjar Birgisson með alla sína visku kallar ,,hatursorðræðu“ og áróður.

Meðal þeirra sem tala á næstu ráðstefnu eru;

Lisa Littmann, Physician-Scientist

Lionel Shriver , Author and Jonurnalist

Dr. Stephen Levine, Clinical Proffesor og Psychaiatry

Dr. J.D. Haltigan, Developmental Psychogist and Researcer

Dr. Peter Boghossian, Philosopher and Dedagogue.

Shawn Thierry, Attorney and Child Wlfare Advocate

Dr. Eithvan Haim, Surgeon and Medical Whistleblower

og fleiri og fleiri.

 


Bloggfærslur 1. júní 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband