31.5.2025 | 08:05
Hólmkell Hreinsson forstöðumaður á Amtsbókasafninu líkir konu við nauðgara, rasista og morðingja
Starfsmaður Akureyrarbæjar, yfirmaður bókasafnsins, líkir konu í sjálfboðnu starfi við nauðgara, rasista og morðingja. Vá, menn missa andlitið.
Sá sem fer fyrir bókasafninu, Hólmkell, lætur þetta út úr sér. Það voru skilaboð frá trans Samtökunum 78 sem ýttu honum út í þessa umræðu við heimavinnandi húsmæður. Hann varð full ágengur í að ganga erinda trans-hugmyndanna.
Hvort Hólmkell tengist trans samtökunum á einhvern hátt skal ósagt látið. Allavega þá finnst honum mikilvægara að trans Samtökin 78 hafi ítök á Akureyri en að heimavinnandi húsmæður fái að vera í friði á bókasafninu.
Framkoma hans er með ólíkindum. Konur sem blanda ekki kynjaóreiðunni inn í sjálfboðið starf sitt, annað en Hólmkell sem er launþegi hjá Akureyrarbæ.
Heilaþvotturinn alger
Það er ljóst að starfsmenn Akureyrarbæjar hafa tekið vel við heilaþvottinum frá trans Samtökunum 78 með samþykki stjórnarmanna bæjarfélagsins. Það sýnir Hólmkell með hegðun sinni.
Og skólastjórar á Akureyri sem flagga trans fánanum fyrir andlega óstöðug börn. Fagna veikindum barna með hugmyndafræði í farteskinu sem hefur hvorki sannleik, vísindi eða fræði á bak við sig. Í mínu ungdæmi og námi taldist það löstur að leggjast á óstöðug börn.
Sveitarfélögin leggja fjármagn í þessi trans-samtök sem áreita borgara með þessum hætti. Er ekki tímabært að stoppa fjárausturinn?
Hafi menn skoðað skjáskotin sem trans Samtökin 78 söfnuðu saman og kvörtuðu yfir er ekkert í þeim sem minnir á ,,hatursorðræðu eða illt umtal um kvengervla, heldur sannleik. Heilagan sannleik og ekkert annað.
Hólmkell þarf að leita sér að nýrri vinnu segir hér í spjallinu um aðdraganda málsins.
Hér má lesa umfjöllun um málið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)