29.5.2025 | 10:11
Nauðgarar vilja láta meðhöndla sig sem konur
Það er ókeypis og skapar algjöra ringulreið. Allir karlar sem vilja ,,eru" konur.
Loks þröngvar sannleikurinn sér fram, þrátt fyrir vísvitandi villandi greinar í Bergensavisen, Bergens Tidende, NRK og TV 2 Nyheter.
Þakkir til Vebjørn Selbekk og Nettavisen. Ef ekki væri fyrir fréttaflutning þeirra af dómsmálinu, þar sem tveir kvengervlar nauðguðu barni, hefði fréttin farið undir radarinn.
Enginn veit hvort, og hugsanlega hversu mörgum slíkum málum hefur verið haldið leyndum fyrir almenningi, og hvar virðist sem konur hafi framið morð, nauðganir eða líkamsárásir á meðan það eru í raun karlar sem standa að baki misgjörðunum.
Við vitum það einfaldlega ekki.
Það eina sem hægt er að staðfesta með vissu er að maður getur ekki treyst lögreglu, dómstólum eða fjölmiðlum þegar þeir fullyrða að það sé ,,kona" sem sótt var til saka eða sakfelld.
Allir karlmenn sem vilja ,,eru" konur! Það er ókeypis og skapar algjöra ringulreið. Og það er vísvitandi hjá stjórnmálamönnum.
Karlarnir vilja afplána í kvennafangelsum
Barnaverndarbarni á aldrinum 12 til 14 ára, (alvöru) stúlka, var nauðgað og misnotað af fyrst tveimur og síðan þremur fullorðnum körlum, sem eru nokkrum tugum eldri en stúlkan. Tveir yngri mennirnir eru svokallaðar ,,trans-konur", þ.e. karlar sem vísað er til með fornafninu hún/þær í dómnum.
Seinna brotið á stúlkunni átti sér stað í Bergen í Pride-göngunni árið 2024. Marit Warncke, borgarstjóri Íhaldsflokksins, og Lubna Jaffery ráðherra, yfirmaður menningar- og jafnréttismálaráðuneytisins, tóku þátt í skrúðgöngunni og fögnuðu með transfána í hönd, þar sem ráðamennirnir stóðu fyrir framan veggspjaldið ,,FUCK RIKSEN".
Mennirnir tveir munu afplána í kvennafangelsum. Þetta er alveg hræðilegt. Það verður að ræða það ,,af einhverri alvöru" og horfast í augu við þá sem bera pólitíska ábyrgð.
Ég er ekki eins viss og Vebjørn Selbekk þega hann kemst að þeirri niðurstöðu, að Tone Raaen héraðsdómara skuli ,,slátrað".
Að mati Elinar hefur hún dregið fram brjálæði norskrar löggjafar á fræðandi og skýran hátt. Það gæti hafa verið ætlunin. Hún er hugsi yfir málinu.
Trans aðgerðarsamfélagið bregst við
Í samfélagi trans-aðgerðasinna bregðast karlar nú við. Ekki fyrir hönd stúlkna og skorts á lagalegri vernd kvenna, heldur fyrir hönd ,,trans kvenna", þ.e. karla sem þykjast vera konur.
Nokkrir þeirra eru frá norska húmanistafélaginu. Það er annað efni sem ætti að vekja athygli á. Hversu miklu fjármagni samfélagsins er í raun varið í að koma á framfæri hugmyndafræði sem minnir á ruglingslega samsæriskenningu?
Vegna þess, að það er sama hversu heitt maður óskar þess að satt væri, karlmenn geta aldrei verið konur né liðið eins og konu.
Þannig er það bara.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)