Kjartan Kjartansson fréttamaður á Vísi.is virðist hallur undir sína líka, sem skilgreina sig sem konur

Las gleðifrétt í Vísi um að konur væru konur og karlar eru karlar. Víða má finna fréttaflutning af máli Hæstaréttar Bretlands að konur eru skilgreindar fullorðin kvenkyns einstaklingur. Skilgreiningin kom ekki á óvart, enda hefur kona í orði og á borði ekki breyst og mun ekki. Örhópur hefur reynt að ljúga að samfélögum víða um heim að konur geti haft pung og typpi.

Nú á það fólk í basli með sjálft sig og kallar það aðför að trans. Að sjálfsögðu er sannleikurinn aldrei aðför að fólki, en lygin er það hins vegar.

Þetta orðalag vakti forvitni mína í fréttinni sem Kjartan Kjartansson skrifaði ,,Hópur andstæðinga trans fólks háði áralanga baráttu fyrir dómstólum til þess að fá þá niðurstöðu fram." Þetta er rangt hjá Kjartani og ber lit áróðurs. Konur hafa barist fyrir að halda réttindum sínum og um það talar blaðamaðurinn ekki. Því væri áhugavert að Kjartan svaraði eftirfarandi spurningum.

Af hverju heldur þú, Kjartan, að karlmaður, sem skilgreinir sig sem kona, sé kvenkyns fullorðin einstaklingur?

Af hverju þú telur lesbíur andstæðinga trans-fólks?

Af hverju þú telur íþróttakonur sem vilja spila á jafnréttisgrundvelli andstæðinga trans-fólks?

Af hverju þú telur konur sem vilja að einkarými sín séu fyrir konur og stelpur séu andstæðingar trans-fólks?

Telur þú konur ekki vera að berjast fyrir réttindum sínum þegar þær vilja frá viðurkenningu á kyni sínu?

469226689_2127288014396276_2113040609818382779_n


Bloggfærslur 17. apríl 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband