Búið að gjaldfella hugtakið trans-fóbía

Þegar menn grípa til hugtaksins, trans-fóbía, í tíma og ótíma, yfir allt og ekkert þá gjaldfellur hugtakið og meiningin á bak við það. Það hefur gerst bæði hér á landi og í útlöndum.

Þegar stúlkur segja upphátt að þær vilji ekki karlmenn í kvennaíþróttir – trans-fóbía.

Skynsamt fólk sem heldur sannleikanum á lofti um tvö kyn- trans-fóbía.

Þegar menn hafna hormónalyfjagjöfum fyrir börn, sem skemma líkama þeirra – trans-fóbía.

Ef fólk segir fornöfn trans-hreyfinga séu ekki fornöfn og nota þau ekki – trans-fóbía.

Séu menn ekki sammála að trans-hreyfingar fái að mata börn á röngum upplýsingum um líffræðina – trans-fóbía.

Vilji fólk vernda börn fyrir svokölluðum trans-áhrifavöldum (sem eru gífurlega margir) – trans-fóbía.

Hafi fólk þá skoðun að trans-fáninn eigi ekki að hanga uppi við skóla og stofnanir – trans-fóbía.

Foreldrar sem vilja hugmyndir trans-hreyfinga út úr skólakerfinu og námsefni – trans-fóbía.

Stjórnmálamenn sem benda á að kyni sé ekki úthlutað við fæðingu -trans-fóbía.

Fólk sem bendir á að karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, er ekki kona- trans-fóbía.

Svona er hægt að halda áfram. Ekkert af þessu er trans-fóbía.

Sannleikurinn er sagður. Mjög margir hafa aðra skoðun en trans-hreyfingar og aðgerðasinnar. Það er leyfilegt, í ræðu og riti.

Áhugavert spjall manna á milli hér.

Trans-aðgerðasinnar töpuðu í Ameríku segir hann, vonum að þjóðin láta þetta aldrei yfir sig ganga aftur. Góð greining á ákvörðun Trump sem ákvað á dögunum að sannleikurinn lifir, kynin eru tvö.

469552530_1019745543515550_9130523348543648959_n

 


Bloggfærslur 28. janúar 2025

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband