13.1.2025 | 09:33
Danska ríkissjónvarpið líkt og það íslenska dregur dám trans-hreyfinga
Þegar ræða átti hvort karlmönnum, sem skilgreina sig sem konur, á þingi DBU-Jótlandi í fyrradag, fái að spila í kvennafótbolta sagði danska ríkissjónvarpið frá málinu. Það var ekki hlutlaust í málflutningi sínum og minnir á fréttaflutning Ruv.
Í tilefni fréttarinnar var rætt við tvo karlmenn sem vilja spila í kvennaflokki. Ekki rætt við eina einustu konu um af hverju þær vilja ekki karlmenn í liðin sín. Til að tryggja að þessi aðgerðasinna fréttaflutningur kæmist til fólks þá leyfðu þeir ekki athugasemdir við fréttina. Það gerði hins vegar TV2, menn lágu ekki á skoðunum sínum. Karlmenn, sem skilgreina sig sem konur, eiga ekkert erindi í kvennaíþróttir, baðklefa eða salerni. Mjög skýrt.
DR hefur líka talað um rétt ,,trans-barna til að spila fótbolta, sá réttur byggist á að traðka á réttindum annarra barna segir Ulf. Bloggari getur ekki sagt annað, hér er um forréttindi að ræða. Miðillinn ræðir ekkert um rétt stúlkna og kvenna til að spila fótbolta án karlmanna.
Ulf hefur fjallað um málið á síðunni sinni.
Bandaríkin felldu lög úr gildi um að kynvitund ráði frekar en kyn þegar kemur að íþróttum. Loksins er einhver með viti við völd þarna ytra. Konur eiga að fagna þessari niðurstöðu, og það vel. Heimskan á sér engin takmörk þegar taka á mið af upplifun einstaklings fram yfir líffræðilegt kyn þegar íþróttir eru annars vegar og lagasetningar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)