Kennaraforystan talar ekki á þessum nótum

Áhugaverð lesning. Eftir situr að þeir sem hafa fjallað um menntamál á síðum Morgunblaðsins tala í allt aðra átt en formaður KÍ, Magnús Þór Jónsson og formaður Félags grunnskólakennara Mjöll Matthíasdóttir. 

Formaður Fg er svona hrifin af því sem ráðherra menntamála er að gera að hún virðist ekki halda vatni yfir því. Lesa má umsögn hennar í Samráðsgátt. Mjög líklegt er þau bæði hafi haft puttana í því sem ráðherra leggur fram.

Hermundur hefur mikið til síns máls þegar hann talar. Hann hefur rannsakað menntamál lengi. Velta má upp þeirri spurningu af hverju sauðirnir í Kennarahúsinu hlusti ekki meira á hann.

Hér má sjá brot af því sem sagt hefur verið um menntamálin.

„Málskiln­ing­ur og orðaforði er hlut­ur sem þarf að vinna með allt frá fæðingu og þar til barnið fer út úr fram­halds­skóla. Það virðist líka vera ábóta­vant, þessi orðaforði og skiln­ing­ur.“

„Við erum eina landið fyr­ir utan Portúgal sem hef­ur fimm ára kröfu um leik­skóla­kenn­ara­nám. Við verðum að minnka aft­ur námið niður í þrjú ár. Við verðum að setja kröfu um ís­lenskukunn­áttu fyr­ir þá sem vinna í leik­skól­um lands­ins.“

,,Á sama tíma og Bryn­hild­ur kall­ar eft­ir því að tekið verði á síma­notk­un í kennslu­stund­um, legg­ur hún til að sam­dæmdu próf­in verði aft­ur lögð fyr­ir nem­end­ur. Hún seg­ir mik­il­vægt að hafa mæliein­ing­ar til að meta ár­ang­ur milli ára og sjá hvað þarf að bæta."

Að mati bloggara var það mikil afturför að lengja kennaranámið enda kemur það á daginn að fáir sæki inn í það. Fimm ár er langur tími fyrir ekki meiri laun en raun ber vitni. Að auki bætist sjaldan í sérhæfingu kennara með meistaragráðunni.

Öðruvísi kennaramenntaðir einstaklingar koma inn í skólakerfið. Nú koma þeir með bakkalárnám í öðru fagi, taka M.Ed. og verða kennara. Þá vantar alla undirstöðu í því sem kennaranámið (B.Ed.) býður upp á. Þetta er ekki sama kennaramenntunin og ef fólk fer í B.Ed. og síðan M.Ed. Það vantar undirstöðurnar í menntunina hjá þessum einstaklingum.

 


mbl.is Börnin kunna jafnvel enga bókstafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. september 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband