29.8.2024 | 08:03
Talibanar og Ástralar þagga niður í konum
Þegar konur tala opinberlega reyna ofbeldisfullir karlar að þagga niður í þeim. Fyrir tveimur vikum Í Melbourne þurftu 100 lögreglumenn til að vernda 20 konur gegn árásum karla og í Brisbane þurftu 60 lögreglumenn til að vernda konur svo þær gætu talað opinberlega.
Ríkisstjórnir vilja koma í veg fyrir að konur tali og setja lög í Ástralíu til að loka á þær. Það er sameiginlegt milli Talíbana og áströlsku ríkisstjórnarinnar, og allra annarra ríkisstjórna í Ástralíu, til að sýna hatur sitt á konum.
Vissulega eru ástæður þöggunar ólíkar en engu að síður, þagga á niður í konum. Tjáningarfrelsið er í hættu víða um heim. Ekki bara hjá Talibönum. Ef vestrænu þjóðirnar hætta ekki árásum á tjáningarfrelsið, staðreyndir og sannleikann endum við eins og Talibanarnir.
Trans-aðgerðasinnar og ákveðinn hópur trans-kvenna vilja líka þagga niður í konum. Það er gert með ofbeldishegðun á kvennafundum, dómsmálum og kærum um hatursorðræðu þegar sannleikurinn er sagður. Sumir ganga svo langt að óska eftir atvinnumissi kvenna sem segja sannleikann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)