Karlmaður sem skilgreinir sig kynlausan tapar dómsmáli

Enn gerast kraftaverkin. Dómur á Spáni virðir orð konu, spænskan rithöfund, sem segir trans einstakling vera karlmann, sem hann er. Hann fór fram á 11 þúsund evra bætur. Taldi sig hafa orðið fyrir sársauka og þjáningu. Hvenær stoppar þessi endalausu málsóknir gagnvart málfrelsinu og sannleikanum, spyr sá sem ekki veit. Virðist vera eins og vírus um allan heim. Líka á Íslandi.

Dómarinn taldi að trans einstaklingurinn, karlmaðurinn, væri það karlmannlegur í útliti og líkamlegum einkennum að hægt væri að kalla hann karlkyn. Því hafi rithöfundurinn verið í fullum rétti að tala um viðkomandi sem karlmann.

Karlinn vildi ekki sættir. Hann sat uppi með allan málskostnað, sinn og rithöfundarins.

Lögfræðingurinn sem vann málið segir þetta góðan dóm þó búið sé að áfrýja honum. Dómurinn er rétt skref í að verja tjáningarfrelsið og gegn þeim sem vilja beita ritskoðun vegna eigin vandamála með sjálfsmyndina. Dómurinn er líka góður, hann er fordæmisgefandi.

Lögfræðingurinn bendir á að hugmyndafræði er ætlað að þjóna tvennum tilgangi. Eyðileggja kjaraviðhorf íbúanna til að auðveldara sé að yfirbuga þá. Og, til að að gaslýsa fólk.

Hér má lesa um dóminn.


Bloggfærslur 19. maí 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband