London, England. Trans-aðgerðasinnar slepptu kakkalökkum, engisprettum og mjölormum á ráðstefnu LGB Alliance UK

Þetta segir Katrine Brøgger í færslu á snjáldursíðu sinni. Þeir sem voru til staðar sendu á samfélagsmiðlana hvað var í gangi. Fréttin barst fljótt út og skemmdarvargarnir náðust.

Katrine heldur áfrma, LGB Alliance UK eru fyrstu LGB samtökin sem stofnuð voru til að berjast fyrir mannréttindum lesbía, homma og tvíkynhneigðra á grundvelli líffræðilegs kyns. Samtökin voru stofnuð árið 2019 og eru meðlimir þeirra kerfisbundið og viðvarandi beittir markvissu áreiti af hálfu öfgafullra trans- aðgerðasinna.

Á dögunum hélt LGB Alliance UK ráðstefnu í Queen Elizabeth II Center í London. Þegar fyrsti ræðumaðurinn átti að tala komu sjö trans aðgerðasinnar inn í salinn með poka af kakkalökkum, engisprettum og mjölormum sem þeir slepptu inn í herbergið.

Sú staðreynd að trans- aðgerðasinnar hafa valið að nota skordýr sem eru meindýr, sérstaklega kakkalakka, til að reyna að eyða og koma í veg fyrir að lesbíur, hommar og tvíkynhneigðir safnist saman, er verulegt áhyggjuefni, þar sem samanburður við meindýr er regluleg notkun í afmennsku ferli átakanna. Hútúar kölluðu Tútsa reglulega kakkalakka fram að og meðan á þjóðarmorðinu í Rúanda stóð.

Ásamt stöðugum söngvum trans-aðgerðasinna eins og ,,Kill a TERF*" - beint að kvenréttindafrömuðum - sem og líkamlegum árásum á kvenréttindafrömuði á mótmælum í London, Nýja Sjálandi og Ástralíu - verður enn og aftur að hafa í huga að öfgafullir trans-aðgerðasinnar eiga jafnvel mjög erfitt með að skilja grundvallar lýðræðisreglur.

*TERF er svívirðingarorð sem trans-aðgerðasinnar fundu upp í tilraun til að þagga niður í kvenréttindasinnum sem halda því fram að réttindi kvenna eigi aðeins við um konur, ekki karla sem skilgreina sig sem konur.

Á árunum 2022, 2023 og 2024 hefur sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna um kynbundið ofbeldi gegn stúlkum og konum, Reem Alsalem, lagt mikla áherslu á að kvenréttindi Sameinuðu þjóðanna nái til líffræðilegra kvenna, ekki karla sem skilgreina sig sjálfa sem konur, þar sem skortur á þessum greinarmun muni styrkja og auka kynbundið ofbeldi gegn stúlkum og konum segir Katrine.

Sjá mátti umfjöllun breskra fjölmiðla um ofbeldið. Euronews lýsir trans aðgerðasinnum sem ,Anti- LGB. Hér má lesa um skemmdarverk og önnur umfjöllun hér.

Það eru margir meðlimir LGB bandalagsins ungir. Þetta eru ekki kynslóðaátök. Þetta er mannréttindabarátta.

Engin samúð


Bloggfærslur 14. október 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband