Bráðskemmtilegt

Alvöru kynskiptingar tapa á gervifólkinu

Færst hefur í vöxt að karlmenn setji á sig varalit, fari í kjól, punti sig með eyrnalokkum og hálsmeni. Þeir fara jafnvel í há hælaða skó og nota veski. Allt til að vera þykistu kona segir þáttastjórnandi.

Myndbandið í færslunni sýnir hversu kjánaleg þessi hugmyndafræði er orðin. Í myndbandinu má sjá karlmann, Josh, gera grín að alvöru kynskiptingum, því þeir finnast í alvöru. Maðurinn sem sýndur er í þættinum niðurlægir ekki bara konur heldur kynskiptinga líka.

Josh sá viðskiptatækifæri í að ,,breytast“ í konu og reyna að haga sér sem kona. Hann á sér milljónir fylgjenda og græðir á tá og fingri. Karlmaður sem talar fyrir öllum trans-hugmyndunum nær fólki. Menn eru tilbúnir til að borga fyrir að sjá þessa þvælu sem hann ber á borð fyrir okkur.

Bloggari veltir fyrir sér, hvenær rísa alvöru kynskiptingar upp gegn þessum eftirhermum sem eyðileggur málstað þeirra?

Hvet lesendur til að hlusta á þetta, veitir ykkur innsýn í hver þróun trans-málaflokksins er.


Bloggfærslur 13. október 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband