Arna Magnea Danks hefur óheftan aðgang að fjölmiðlum til að dreifa skoðunum sínum

sem hylla trans-málaflokkinn. Nú síðast í grein á Vísi.is frá 24. Júlí. Sá sem veitir henni andsvar hefur ekki sama aðgang að fjölmiðlum og þá setur niður við það. Ein grein hefur birst, mörgum hafnað. 

Arna Magnea Danks hefur sömu réttindi og allir menn á þessu skeri. Arna hefur aðgang að heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu, sundlaugum, ríkisstofnunum, samgögnutækjum, getur kosið og svo framvegis. Arna getur ekki bent á nein réttindi sem aðrir hafa umfram eigin réttindi.

Konur eru bandamenn trans-kvenna sem virða réttindi kvenna. Það gerir Arna ekki og hefur skrifað það í athugasemdarkerfum. Arna ber ekki virðingu fyrir öðrum sem hafa annars konar skoðun. Það sést bæði í ræðu og riti. Fólk sem er ekki sömu skoðunar á transhugmyndafræðinni og Arna Magnea eru fordómafullir, óhæfir til ýmissa starfa og stunda haturrorðræðu.

Örnu finnst sjálfsagt að orð kvenna séu skrumskæld. Örnu finnst sjálfsagt að niðurlægja konur og segja sís um gagnkynhneigðar konur. Örnu finnst sjálfsagt að karlmenn sem skilgreina sig sem konu taki þátt í íþróttum. Örnu finnst sjálfsagt að karlmenn sem skilgreinir sig sem konu hafi aðgang að búningsklefum kvenna, þar sem ungar stúlkur eru.

Örnu finnst sjálfsagt að karlmenn sem skilgreina sig sem konu hafi aðgang að öllum kvennarýmum, fangelsi, stofnunum eins og Stígamót, sjúkrahúsum. Sem betur fer eru trans-konur ekki lagðar inn á kvennadeild eða fæðingardeild því allt sem kemur að líffræði kvenna hafa trans-konur ekki. Hér má sjá vel valin orð um þetta ástand.

Það bera allir virðingu fyrir Örnu þó þeir séu ekki sammála málflutningi hennar. Fólk ber ekki virðingu fyrir lífsskoðun hennar að karlmenn sem skilgreina sig sem konur hafi aðgang að kvennarýmum. Arna ber hins vegar ekki virðingu fyrir þeim konum sem kæra sig ekki um slíkt. Örnu finnst í lagi að fórna réttindum kvenna til að örhópurinn sé sáttur við lífið og tilveruna. Á kostnað kvenna. Það er öll virðingin sem konur fá frá Örnu Magneu Danks.

Hvað aðgerðir barna varðar þá hafa Íslendingar vonandi vit á að halda skurðhnífnum í slíðrinu, beita honum ekki á börn. Hvað lyfjagjafir varðar þá hafa íslensk börn verið á hormóna og krosshormónalyfjum. En heimurinn er stærri en Ísland og víða orðið viðsnúningur til hins betra.

Á þingi Kennarasambandsins lét ég í ljós skoðun mína. Hlaut bágt fyrir. Hefur ekki áhrif á mig því barátta mín fyrir börnin er meira virði en skoðun nokkurra kennara. Á þinginu kom kennari að orði við mig og staðhæfði að lyfjagjafir hafi ekki aukaverkanir á börn, því hún ætti ömmubarn sem hún vildi endilega að færi í lyfjagjöf. Guð minn góður, segi ekki meir. Sé þetta hugsun fólks án þess að kynna sér málið þá er ekkert annað hægt að segja. Hér má sjá sænskan þátt, á ensku, skelfilegar afleiðingar lyfjagjafar á börn. Ekki einsdæmi.

Kona er fullorðin kvenkyns einstaklingur með XX- litninga og enginn getur breytt því. Líffræðin er þannig. Hins vegar það sem fer fram í kolli fólks er kannski allt annað. Þegar þær væringar byrja hjá börnum á að aðstoða þau hjá sálfræðingi. Þar stendur samfélagið sig illa. Þessum börnum og ungmennum er kastað í gin Samtaka 78.

Lýk þessu með orðum J.K. Rowling en hún hefur mætt fordómum og hatri frá fólki eins og Örnu Magneu Danks.

rowling 1


Bloggfærslur 2. ágúst 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband