Barátta XX kvenna fyrir öryggi svarar vélstjóranum á Tene

Bloggritari fékk leyfi hópsins til að birta svar þeirra á bloggsíðunni. Hópurinn er merkilegur fyrir þær sakir að hann lætur sig réttindi kvenna og stúlkna varða. Neðst er svo sorgleg ummæli konu um hópinn. Snjáldursíðu þeirra má sjá hér.

,,Okkur þykir mjög leitt að ein af fáum trans-konum sem við höfum borið mikla virðingu fyrir skuli líta hlutina sömu augum og þær sem eru að koma fram á sviðið í dag.

Við höfum sagt það aftur og aftur, við hötum engan en við áskiljum okkur rétt sem konur sem er protected sexclass að setja þeim mörk sem kjósa að vera með typpi áfram. Við förum ekki ofan af því að typpi hafa ekkert inn á kvennastaði að gera, þau eru ekki kvenleg og verða aldrei kvenleg eða partur af konum sama hvað meðvirkum konum finnst sem hætta ekki að sleikja typpin upp og gefa skít í kynsystur sínar sem eru ósáttar við að vera neyddar til að samþykkja þau alls staðar.

Ef Anna hefur ekki tekið eftir því þá á frekjan sér engin takmörk í dag, við konur eru kallaðar öllum niðrandi nöfnum í heiminum eins og leghafar, píku-eigendur, blæðarar og svo auðvitað nafnskrýpið og niðrandi viðbótin Cis-konur af því að við eigum að vera einhver undirflokkur af konum til að láta þessum örfáum trans-konum í heiminum líða betur.

Það hefur vakið furðu okkar að fylgjast með frægum femínistum gefa skít í stöðu kvenna og fundist þær vera í rétti með að gefa réttindi okkar og stöðu upp á bátinn en við erum margar ósammála og lítum svo á að það er réttur kvenna að segja hingað og ekki lengra, það er réttur kvenna að ákveða hvaða tungumál er notað um þær, skiptir engu þó sumar séu svo meðvirkar að þær væru jafnvel til í að sleppa því að taka þátt í íþróttum eða þiggja störf sem trans-konur sækjast líka eftir.

Við erum konur með sjálfsvirðingu sem stöndum með kynsystrum okkar sem margar þjást af áfallastreitu eftir ofbeldi af völdum typpa og viljum því eðlilega geta sett þeim mörk.

Þegar í ljós kom að fæstar trans-konur ætli sér í aðgerð og að þær eru farnar að krefjast þess að vera kallaðar konur og kvenkyns og við cis-konur ákváðum við að segja hingað og ekki lengra. Það væri engin kona á móti trans-konum í dag ef þeir karlkyns manneskjunnar með typpin sín myndu sína konum bara brotabrot af þeirri virðingu sem þeir krefja konur um!

Fyrir utan þetta þá er margt við transferlið að athuga í dag, þann skaði sem er verið að vinna á börnum og sem verið er að vinna á ungum konum sem í hrönnum segjast vera transmenn er eitthvað sem þarf að staldra við og spyrja sig erum við í alvöru á réttri leið. Flestar þessar stelpur glíma við aðra alvarlega fylgikvilla eins og kvíða og þunglyndi, margar eru þolendur kynferðisofbeldis og hvað er betra í huga okkar sem höfum verið beittar ofbeldi af karlmönnum en að ákveða að verða karlmaður svo ekki verði brotið á manni aftur, þessar aðgerðir sem verið er að framkvæma á þeim stúlkunum eru hryllilegar og ekkert annað en tilraunameðferðir og sama má segja um trans-konur, fjöldi trans-kvenna þjáist í dag út af þessum tilraunaskurð-aðgerðum og það verður að mega að ræða það án þess að spyrða því saman við nasisma eins og Anna gerir núna.

Það er til dæmis aðferðafræði sem nasistar voru frægir fyrir að gera lítið úr gyðingum með því að kalla þá kakkalakka og pöddur og annað niðrandi og uppnefna þá jews eins og trans-hópurinn gerir núna við konur sem voga sér að setja spurningamerki við þetta, við erum kallaðar TERFS, við erum kallaðar fasistar og svo auðvitað líka nasistar en samt höfum við hvergi sagt að við hötum trans né kvatt til ofbeldi gegn þeim sem er ekki hægt að segja um transhópinn sem hefur beitt konur miklu ofbeldi sem voga sér að koma fram á sjónvarsviðið og tala um það hvernig þeim líður með þróunina. Ég hvet transfólk að líta í eigin barm og spyrja sig er eitthvað í okkar hegðun sem er að kalla á þessi viðbrögð út um allan heim? Því þessi viðbrögð eru ekki úr lausu lofti gripin! 

Síðan það síðasta til að upplýsa Önnu og fleiri um þá nei við höfum aldrei kosið til hægri, við höfum hingað til talið okkur á vinstri vængnum en eftir framkomu margra á þeim væng erum við eiginlega týndar pólitískt séð. Og nei Eldur er með sín eigin samtök og síðu og er því ekki með þessa líka og ef þið hafið ekki tekið eftir því hræðist hann ekki að tjá sig opinberlega eins og margar okkar gera.”

 

eydís hrönn

 


Bloggfærslur 13. ágúst 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband