Jú það kemur málinu við

því trans-kona er ekki kona og verður aldrei. Hefur ekki líffræðilega litninga til þess. Trans-kona er tegund af karlmanni (xy-litninga) og verði falli dómur yfir Þórhildi Sunnu ber að skrá brotið sem trans-kona eða karlmaður, ekki kona. 

Álfur velur að vega að fólki, sérstaklega þeim sem hafa bent á að trans-kona er ekki kona, og það er miður. Þegar maður er dæmdur fyrir brot er talað um karlmann, þegar kona er dæmd er talað um konu og því er sjálfsagt að tala um trans-einstakling þegar hann brýtur af sér, því hann skilgreinir sig sem slíkan.

Því miður er vegið að réttindum kvenna í nafni örhóps og alltof margar konur þegja yfir því.

Úti í hinum stóra heimi eru það einkarými kvenna, búningsklefar, íþróttir og nú síðast háskólar í Noregi. Vitundarvakning er meðal kvenna um vandann. Konur verða að berjast til að halda réttindum sínum og þegar þær koma saman á opnum svæðum til að ræða málin mæta trans-aðgerðarsinnar, stundum með ofbeldi í huga, og ráðast gegn konum. Réttindum kvenna til að tala. Meira að segja lesbíur fá ekki að halda opna fundi án truflunar trans-aðgerðasinna.

Nei Álfur...það er ekki verið að rægja ykkur á nokkurn hátt. Því miður leyfa fjölmiðlar ykkur endalaust að setja ofan í við fólk sem deildir ekki lífsskoðunum ykkar í trans-hreyfingunum og það um allan heim. Hins vegar er reynt að þagga niður í því fólki og fjölmiðlar tala aldrei um þá hlið sem ég hef talað um, réttindi kvenna. Sem betur fer sjáum við örlitla breytingu á því, en ekki hér á landi.

Konur eru bandamenn trans-kvenna sem virða réttindi kvenna.


mbl.is Látin fara samdægurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. júlí 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband