Ætli fjölmiðlar fylgist með málinu

Þegar stórt er spurt er fátt um svör. Danskir fjölmiðlar (fyrir utan einn) eru eins og þeir íslensku, hefja trans-málaflokkinn til skýjanna en þegja þunnu hljóði þegar málaflokkurinn er gagnrýndur. Réttilega gagnrýndur. Hef ekki séð eina frétt um málið hér á landi, frumvarp sem bannar kynskipti á börnum. Mikilvægt málefni þar sem börn eru undir, ekki bara nokkur heldur fleiri hundruð.

Ulf deildi innleggi Søs sem sýnir að fleiri undra sig á þögn fjölmiðla.

,,Þann 9. maí mun [danska] þingið taka afstöðu til þingfrumvarps sem bannar kynskipti fyrir börn- hvers vegna þegja allir fjölmiðlar um málið?

Fjölmiðlar hafa mikið að gera þegar þeir hylla transhugmyndafræðina en þegar gagnrýnisraddir heyrast eru þeir þöglir sem gröfin.

Hvers vegna?”

Færsla Ulfs...

,,Ulf segir það spennandi að fylgjast með hvort nokkur [fjölmiðill] fjalli almennilega um umræðuna [á þingi Dana] um kynskipti á börnum- í fyrsta skiptið síðan meðhöndlun var leyfð árið 2016. Meðhöndlunin var leyfð án stjórnmálalegrar umræðu þrátt fyrir að það hafi verið og er enn hugmyndafræðilegt meðferðartilboð án heilbrigðisvísindalegar og læknisfræðilegrar þekkingar á meðferðinni, sem hefur ofbeldisfullar og neikvæðar afleiðingar fyrir þá sem fara í hana. Kynþroskinn er stoppaður og hormón notuð til að breyta líkamanum sem gera börnin m.a. ófrjó.”

Hér má lesa færsluna.


Félag einhverfra og fölsku vandamálin

,,Hver mun líða mest og lengst ef börnin fá ekki læknisfræðilega meðhöndlun” spyr Danska regnbogaráðið.

Samkvæmt formanni einhverfusamtakana í Danaveldi er erfitt að meta hvort betra sé að meðhöndla of fá eða of mörg börn þegar kemur að kynskiptiaðgerðum: ,,það mun einhver gjalda alveg sama hvað maður velur” sagði hann í viðtalið við fjölmiðil. En reikningsdæmið gengur bara ekki upp.

Rökin að fórnarkostnaðurinn sé sami við að meðhöndla EKKI börn með lyfjum og að að gefa þeim lyf, halda ekki.

Skoðið vinsamlegast eftirfarandi:

  1. Fórnarkostnaður við að gefa EKKI lyf vegna kynáttunar áður en kynþroskaskeiði lýkur, er sálrænt og varir í ákveðinn tíma þar til barnið hefur náð þroska og getur farið í meðferð, ef vandinn er til staðar eftir kynþroskann. Fórnarkostnaðinn á að meðhöndla á annan hátt þar til kynþroskanum er náð.
  2. Fórnarkostnaðurinn við að meðhöndla börn með lyfjagjöfum vegna kynáttunarvanda er líkamlegur og óafturkræfur og veldur m.a. beinþynningu, auknar líkur á krabbameini, útlit sem samræmist ekki eigin kyni, vöntun eða vanskapnaður á kynfærum, brjóst vantar, vangeta til að fá fullnægingu og ófrjósemi.
  3. Þessi fórnarkostnaður er fyrir lífstíð.

 

Það er á engan hátt sama áhætta fyrir börn að vera meðhöndluð eða ekki. Kostnaðurinn er mun meiri að meðhöndla börn læknisfræðilega vegna kynáttunarvanda.

Það ætti hver maður að skilja, líka formaður einhverfufélagsins sem ætti að passa betur upp á félagsmenn sína með því að setja sig inn í málin og nota einfalda rökfræði eins og að ofan greinir.

Hér má lesa um málið.

 

 


Bloggfærslur 7. maí 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband