Skákar þessi bók karl-femínistans Þorsteins V

Netverjar hafa gert grín að frekjukasti Þorsteins V vegna bókarsölu hans þessi jólin. Maðurinn hélt víst að öll heimili landsins litist vel á skrif hans út frá eigin hjónabandi og lélegrar verkefnaskipan á heimili þeirra hjóna. Hef ekki horft á bókina öðruvísi en sjálfshjálparbók fyrir þau hjónin. Að þau yfirfæri vandann á aðra er í sjálfu sér brandari. 

Geti hjón ekki fundið út hvernig þau skipta á milli í sín skipulagi og verkefnum heimilisins er Bleik brugðið. Að mínu mati þarf karl-femínista ekki til að rugla og þvæla í fólki til að það átti sig skipulaginu. Allir hafa sitt skipulag.

Myndirnar hér að neðan eru úr gamansömum skrifum, á snjáldursíðum landsmanna, um frekjukast Þorsteins V. Maðurinn er ríkisstyrktur til að boða landsmönnum þvælu um karlmennsku eins og hann upplifir hana og nokkrar kerlingar í kringum hann. Auðvitað hoppar alltaf ákveðinn hópur á svona vitleysu, eins og þriðju vaktina.

Verst er að Þorsteinn V, bað fylgjendur sína að stunda netofbeldi gagnvart starfsmanni Bónus sem vann sér það til saka að sinna starfi sínu, það er grafalvarlegt. Ríkisstyrktur maðurinn!

bókin 

    Bókin nær ekki að koma út fyrir jólin skilst mér!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

     ester myndEster er ekki kona til að leika sér að. 

 

 


Bloggfærslur 17. desember 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband