29.10.2023 | 21:31
,,Hlutverk kennara er jú ekki að kenna gagnrýna hugsun, að vega og meta, rannsaka og leita sannleikans. Nei, þeirra hlutverk er að mata, heilaþvo og hræða til hlýðni."
Um daginn tókst hópi félagsmanna í Bandalagi kennara á Norðausturlandi, BKNE, að losa sig við formann sinn. Í heiðarlegri frétt DV er réttilega komið auga á að ástæðan eru skrif og afstaða formannsins fráfarandi til heilaþvottar á börnum, í boði kennara. Ekkert um vanrækslu, nema síður sé:
Helga Dögg gerði margt gott í sínu starfi fyrir BKNE en ...
Lögfræðiálit gengu á milli en að lokum úrskurðað að allskyns lagatækni eins og fyrirvarar og fundarsköp skipti minni máli en að rétta manneskjan sé formaður á hverjum tíma. Og vissara að stytta kjörtímabilið úr tveimur árum í eitt til að tryggja að rétt manneskja sé formaður á hverjum tíma, að mati háværasta þrýstihópsins.
Hughreystandi væntanlega fyrir félagsstarfið í framtíðinni.
Foreldrar ættu líka að vera alsælir. Þeir sjá nú minnkandi varnir gegn því að kennarar geti hreinlega rústað tilfinningalífi barnanna í þeirra umsjón. Kennarar sem láta sér ekki duga að hunsa klámfræðslu ríkisvaldsins og byrja hreinlega að tjá sig opinberlega mega von á miklum vandræðum. Hlutverk kennara er jú ekki að kenna gagnrýna hugsun, að vega og meta, rannsaka og leita sannleikans. Nei, þeirra hlutverk er að mata, heilaþvo og hræða til hlýðni.
Engin lögfræðiálit eða aðrar lagatæknilegar flækjur geta stöðvað þessa flóðbylgju. Ef sonur þinn kemur heim úr skólanum á morgun og vill kalla sig Guðrúnu og fá hormóna til að handtaka kynþroska sinn þá skaltu gjöra svo vel og dansa í takt. Ef þú mætir unglingi þínum eða náfrænda af andstæðu kyni í sundklefa almenningslaugarinnar þá skaltu bara þegja og láta eins og ekkert sé. Eða flýja, með handklæðið í hraði vafið yfir kynfæri þín.
Ég er ekki að segja að við séum komin á háskabraut. Ég segi að skaðinn er nú þegar skeður og að verkefni framtíðarinnar verður að reyna lagfæra hann ef það er þá mögulegt úr þessu.
Þér er kannski alveg sama hvað eitthvað kennarasamband gerir til að þagga niður í kennurum, en vertu viss um að á þeim þunna ís drukkna fleiri en bara þú þegar hann brotnar.
Birt með leyfi höfundar, Geirs Ágústssonar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2023 | 16:33
Hip, hip húrra, nú er hugsað um stelpurnar
Bloggari gladdist við lestur fréttarinnar. Konur, stúlkur, mæður, frænkur og ömmur, reyndar karlkynið líka, ættu að gleðjast stúlknanna vegna. Nú geta þær keppt í sundi án þess að eiga á hættu að trans-kona, með líkamsstyrk karlmanns og kynfæri, komi við sögu. Þrautarganga að fá þessu breytt í Bandaríkjunum en sem betur fer gáðu menn að sér. Betra seint en aldrei.
Mesta hneykslið var að sundstúlkum var boðin sálfræðihjálp til að geta afklæðst með trans-konu (með typpi) sér við hlið á sama aldri. Lia Thomas hirti öll verðlaun vegna líkamsstyrks sem hann öðlaðist sem karlmaður.
Nú keppir þetta unga fólk á jafnréttisgrundvelli eftir að lögunum var breytt. Stelpur við stelpur. Strákar við stráka. Trans-fólk við trans-fólk. Svona á þetta að vera. Reyndar hefur körfuboltasamband Dana ákveðið að trans-fólk megi keppa í karlaflokki enda algengara að trans-kona vilji keppa meðal kvenna en öfugt.
Í fréttinni segir; ,,Við verðum að standa vörð um réttindi íþróttafólks, en við verðum líka að standa vörð um sanngjarna keppni, sérstaklega í kvennaflokki. Vel sagt, satt og rétt.
Vonandi fylgja önnur alþjóðasambönd í kjölfarið. Skáksambandið hefur gert slíkt hið sama. Þetta er það eina rétta.
Hér má hlusta á konu sem hafnar trans-konum í íþróttir kvenna.
Nú geta kennarar og aðrir sem hafa talið nemendum sínum trú um að trans-kona, með kynfæri karlmanns, eigi erindi í kvennaíþróttir dregið það til baka, leiðrétt þvæluna eins og ég segi. Líður vonandi ekki á löngu þar til allsherjar bann verður við þessari mismunun, að stúlkur þurfi að keppa við trans-konur með vöxt og styrk karlmanns.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)