Skyldi blaðamaðurinn Kristinn Guðnason á Dv spyrja stjórnendur skóla

hvort börn foreldra sem vilja ekki trans-fræðslu á yngri stigum skóla og í leikskóla megi frávelja  fræðsluna? Held að blaðamaðurinn hafi ekki einurð til þess. Kannski þarf hann að hafa fyrir því og þá er betur heima setið en af stað farið.

Hefur Kristinn Guðnason velt vöngum yfir að kannski er ungt fólk og þeir sem eldri eru komnir með upp í kok af þeim áróðri sem dynur á því. Líka frá honum. Skörpustu hnífana í skúffunni þarf stundum að brýna. Horfðu hér Kristinn, þú fræðist.

Fólk þegir frekar en að segja vegna viðbragða fólks og blaðamanna eins og Kristins Guðnasonar. Höggin látin dynja á fólki fyrir skoðanir sem fela hvorki í sér fordóma eða hatur. Bara sannleik. Velti fyrir mér af hverju blaðamaðurinn þekki ekki sannleikann í trans- málaflokknum. Skyldi afbökun á sannleikanum vera honum mikilvægari en staðreyndir. Hallast að því.

Hópurinn Barátta XX-kvenna fyrir öryggi varð til af nauðsyn. Kristinn hefur ekki fjallað um réttindi kvenna sem hafa glatast eftir að lög um kynrænt sjálfræði varð að veruleika, heldur ekki í allri trans-umræðunni. Kristinn stundar einhliða fréttaflutning. Blaðamaðurinn ætti að kynna sér hvað þessar konur hafa að segja, gæti búið til áhugaverða frétt. Þá er Bleik brugðið.

Hér má hlusta á umræðu fréttamanns um sameiginlega klósettnotkun kynjanna sem mjög margar konur kæra sig ekki um Kristinn Guðnason.

Með því að hlusta á þetta gætir þú búið til alvöru frétt ekki síbylju.  

Blaðamaður Dv ætti að hlusta á þetta viðtal, áhugavert.

Einn snjáldurvinur minn sagði um síðasta innlegg vegna fréttamanns Dv, ,, Ég veit ekki hvort sé við hæfi að gera kröfur til DV og meintra blaðamanna þar á bæ.“ Oft ratast kjöftugum satt orð á munn!

Ég stilli kröfur mína í hóf gagnvart liðleskjum, eða gerir reyndar engar kröfur.


Bloggfærslur 15. október 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband