3.8.2021 | 19:32
Getur reynst öldungum erfitt
að halda sig í sóttkví á herbergi sínu. Margir þjást af heilabilun og skilja ekki ástandið. Margir heilabilaðir eru órólegir sem gæti krafist meiri mannafla þegar smit á deilum aukast. Öldungar sem þjást af heilabilun vilja oft vera á ferðinni og því er herbergi afskaplega lítið pláss fyrir þann sem áttar sig ekki á ástandinu. Mjög slæmt að fá veiruna inn á slíkar deildir.
![]() |
Heimilismaður og starfsmaður á Grund smitaðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2021 | 10:21
Um mig fer hrollur,
við lesningu fréttarinnar. Hólfað skólastarf. Hörmung. Stjórnendur skóla áttu margs konar skipulagt, allt eftir hvar við vorum stödd í faraldrinum. Nú er eitthvað nýtt. Afbrigði sem börn fá og smita. Grunnskólakennarar hafa farið í einu og öllu eftir sóttvarnalækni og staðið sína vakt. Ljóst að nú þarf að skoða skólastarf frá öðru sjónarhorni- börnunum sem smita, smitast og veikjast.
Hólfað skólastarf hljómar ekki flókið en reynir vissulega á. Grunnskólakennarar breyta að mestu sínu vinnulagi og sumir vinnutíma. Koma tímar, koma ráð.
![]() |
Bólusetning skólabarna í skoðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)