Færsluflokkur: Bloggar
23.4.2025 | 06:31
Konunum hótað lífláti
Konurnar sem fengu úr því skorið hvað kona er samkvæmt lögum fá nú líflátshótanir og önnur hatursfull skilaboð. Kvenhatrið er þvílíkt í hinum friðelskandi örhópi kyngervla og meðreiðarsveinum þeirra að venjulegum manni blöskrar. Nú hafa þeir sýnt sitt rétta andlit.
Fimm dómarar tóku afstöðu með baráttuhópnum For Woman Scotland (FWS) um að vernda ætti einkynja rými og verndin gildir um kvenkynið. Þessi ákvörðun markaði endalok á langvarandi lagadeilu sem mun hafa áhrif á hvernig tekið verður á málefnum kyngervla og kynbundinna réttinda í Bretlandi.
Það sem hinn heilviti maður vonar, er að keðjuverkun verði af dómnum í öðrum löndum. Að sannleikurinn og raunveruleikinn nái til allra í heiminum, kynin eru tvö.
Borið hefur á mikill skautun í viðbrögðunum eftir að dómur féll. Konurnar sem stóðu fyrir dómsmálinu hafa fengið gífurlegt hatur yfir sig á netinu. Það skal tekið fram, að það er frá fólkinu sem vill að konur sætti sig við að missa réttindi sín. Þetta er hópurinn sem á að taka tillit til því hann er örhópur og á svo bágt. Hópurinn á ekki meira bágt en svo að þeir geta sent frá sér haturfull ummæli, morðhótanir og hótanir um kynferðislegt ofbeldi.
Hótanir í garð kvenna
Ein skilaboðin hljóma svo; ,,Þið eruð hópur ógeðslegra morðingja og eigið skilið að deyja. Guð mun rífa þig frá fjölskyldu þinni einn daginn og enginn mun syrgja þig.
Önnu skilaboð hljóma svo; ,,Ómennska þín fær mig til að æla. Þið heimsku konurnar ættuð að skammast ykkar fyrir að vera svona heimskar. Það má spyrja, af hverju vill kvengervill vera kona úr því álit hans á konum er þetta!
Susan Smith, ein af baráttukonunum sagði ,,Það myndi aldrei hvarfla að okkur að senda svona orðljót skilaboð eins og þessi eða kalla andstæðinga okkar ljóta. En við fáum þetta á hverjum degi.
Marion Calder bætir við; ,,Því miður er nánast óhjákvæmilegt að konur tali fyrir réttindum sínum og sé ógnað af reiðum körlum. Þetta er gömul saga og ný.
Það er kaldhæðnislegt að þessi hópur haldi að þeir séu hliðhollir ,,framförum ,,góðvild og ,,mannréttindum, en þeir eiga ekki í neinum vandræðum með að beita ómannúðlegu kynferðislegu ofbeldi og hóta grófu ofbeldi.
Síðastliðinn laugardag söfnuðust nokkur þúsund mótmælendur í miðborg London til að mótmæla úrskurði dómstólsins. Margir veifuðu Pride fánanum og héldu á handgerðum spjöldum til að mótmæla stjórnvöldum og sérstaklega heilbrigðisráðherranum Wes Streeting sem einn fárra þingmanna hefur talað máli sannleikans um kynin.
Pissuðu utan í styttur, standandi
Kvengervlar pissuðu standandi utan í styttur á mótmælafundinum, en þeir þykjast vera konur. Það vita allir að engin kona pissar standandi á þann hátt sem karlmaður gerir.
Stytturnar sem karlarnir pissuðu utan í, eins og hverjir aðrir hundar, eru af Winston Churchill og Millicent Fawcett sem að auki var skemmd með slagorði frá trans-aðgerðasinnum.
Lögreglan gerði ekki tilraun til að stoppa lýðinn sem gekk óhindraður að Parliament Square og Green Park. Lýðurinn hrópaði slagorð ,,Wes Streeting, blóð á höndum þinum og ,, F*** dómurunum, brennið dómstólana. Aðrir hrópuðu ,,Trans-frelsun, engin aðlögun.
Kúgun vegna sannleikans
Stofnandi Mumsnet heldur fram að síðan hafi verið sett á ,,svartan lista eftir að þeir hýstu auglýsingar stjórnvalda um málefni trans-fólks.
Justine Roberts sagði fyrirtækið hafa uppgötvað árið 2022 að fjölmiðlastofan sem keypti auglýsingar fyrir stjórnvöld setti þær ekki á síðuna. Roberts telur að embættismenn sem unnu fyrir Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra, hafi snúið þessu við og sögðu; ,,Við erum ekki á móti trans. En við teljum að konur hafi rétt á að vekja athygli á kynbundnum réttindum sínum.
Trans-aðgerðasinnar beindu spjótum sínum að vörumerkjum á samfélagsmiðlum og sögðu þeim að auglýsa ekki hjá Mumsnet og reyndu að loka á umræðuna um verndun einkynja rýma.
Eftir Covid urðu hlutirnir verulega erfiðir. Við þurftum að taka erfiðar ákvarðanir, þar á meðal uppsagnir sagði Roberts. Við höfum farið, á nánast einni nóttu, frá heimi þar sem sannleikurinn um kynin tvö var raunveruleikinn í það að slíkt var talið hatursfullt. Svona umhverfi gerðu fyrirtækjum erfitt fyrir. Þessa dagana vekja auglýsendur sjaldan athygli á málaefninu.
Bloggar | Breytt 24.4.2025 kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2025 | 06:35
Dóttir mín fór í ríkisstyrkta umbreytingarmeðferð
Þetta er þriðja greinin af fimm sem mæður skrifa vegna árs afmælis Cass skýrslunnar. Allar mæðurnar misstu börn sín í trans-hugmyndafræðina og hafa ákveðið að segja sögu sína. Feitletrun og milli fyrirsagnir er þýðanda.
Trans-áhrifavaldar fengu dóttur mína til að halda að hún væri strákur. Til að skilja ástand hennar varð ég að kafa ofan í trans-heiminn á netinu sem hún var svo upptekin af.
Dóttir mín er greind, kvenleg og viðkvæm stúlka Hún átti erfitt í skólanum á kynþroskaskeiðinu. Hún einangraði sig frá vinum og eyddi miklum tíma á netinu. Trans-áhrifavaldar áttu hug hennar allan. Hún hreifst líka að efni um félagsleg réttindi eins og Black Lives Matter og Pride. Hún eignaðist vin á netinu sem reyndist kyngervill /trans.
Þegar samfélagið lokaðist á Covid tímanum fór allt úrskeiðis og félagsmótun hennar færðist á netið.
Ég talaði við sálfræðing og hinsegin ráðgjafa sem báðar töldu þetta áfanga: Hún var unglingur og þau gera tilraunir. Okkur var ráðlegt að staðfesta kynsegin sjálfsmynd hennar og nota þar til gerð fornöfn í stað ,,hún og ,,hana. Ég sætti mig við það.
Leitaði ráða
Ég leitaði samt ráða og leiðsagnar sem allar enduðu hjá LGBT+ Danmörku. Hér hló ég að orðabókinni með 72 kynjum, sem var fáránlegt í mínum augum. Ég hafði lesið Judith Butler á námsárunum, þannig á fullorðinsaldri sá ég allar leiðbeiningarnar og ráðin sem voru byggð á hinsegin kenningum, jafnvel sett fram sem almenn þekking. Hinsegin fræði er fræðileg og heimspekileg nálgun sem á uppruna sinn í Bandaríkjunum þar sem kyn er talið vera félagsleg uppbygging. Það er að segja karl sem segist líða eins og kona sé kona, alveg jafn mikið og kona.
Fyrir 13 ára dóttur mína var erfitt að skilja blæbrigði kynjamálsins. Kennarar hennar og sálfræðingar fóru að vísa til hennar sem ,,þeir og við fylgdum eftir. Við gengum svo langt að panta bindi. Bindin eru notuð til að fletja út brjóstin til að láta líta út sem stúlka sé ekki með brjóst. Vegna þrýstings á rifbeinin getur það haft áhrif á öndun, rifbein, vöðva, lungu og bak og það má ekki nota bindið meira en 6-8 tíma á dag. Þrátt fyrir þetta urðu samskiptin lítil og hún einangraði sig á herberginu.
Notaði netið til að afla sér þekkingar
ÉG leitaði á netinu til að öðlast þekkingu um kynvitund og uppgötvaði heim hugmyndafræðilega hinsegin fræðsluefni. Á TIKTOK og Youtube voru myndbönd af áhrifavöldum, læknum, sálfræðingum og frægu fólki sem talar um hversu gott, hugrakkt og lífsstaðfestandi það væri að vera kyngervill.
Sérstaklega má geta Dr. Sidhdh Gallagherer lýtalæknis sem sýndi sig með stolta sjúklinga sína, allt ungar stúlkur og konur sem höfðu farið í brjóstnám af því þær skilgreindu sig karlgervil eða kynsegin. Aðgerð sem þeir kölluðu skammstöfun og toppskurðaðgerð, en ekki það sem það er í reynd; brjóstnám eða aflimun bjrósta.
Áhrifavaldarnir
Ég er nokkuð viss um að dóttir mín hafi orðið fyrir áhrifum af myndböndum læknisins eða sumra sjúklinga hennar.
Ég rakst líka á unga áhrifavalda sem deildu trans-ferðalagi sínu með hormónum og skurðaðgerðum í leit að því að vera ,,ekta sjálf og veittu á sama tíma mikla ,,þekkingu. Einn þeirra Jamie Dodger; Samúðarfullur og heillandi karlgervill (kona sem vill vera karl) sem að mínu mati, talar eyrun af fólki.
Sem fullorðin og trúlaus kona þvertók ég fyrir skýringar hans um kynvitund, sem voru annað hvort bundnar við töfra hugsun, hugmyndina um kynbundna sál eða staðalímyndir kynhlutverka.
Nú er ég ekki ung og rugluð stelpa, heldur fullorðin kona og móðir sem barðist sjálf við staðalímyndir kynjanna, svo ég keypti ekki hinsegin fræðilegu skilaboðin og leitaði frekar.
Í trans-samfélaginu var höfundur Harry Potter, J.K. Rowling einn stærsti óvinurinn (ef ekki sá stærsti) og allir segja að hún sé trans-fóbísk og maður eigi ekki að hlusta á hana. Ég las eftir hana og ég sá enga trans-fóbíu í því.
Reyndar var ég sammála öllu sem hún skrifaði.
Stærsta opinberunum sem ég hins vegar fékk var þegar ég rakst á Lisu Kittmann og fyrirbærið sem hún lýstir ROGD, Rapid Onset Gender Dysphoria. Þá fyrst skildi ég þroska dóttur minnar. Nafnið þýðir nefnilega ,,skyndilegt upphaf kynama og það lýsir fyrirbæri þar sem ungt fólk (sérstaklega stúlkur/konur) fá skyndilega ónot í eigin skinni, oft á kynþroska aldri án einkenna í æsku og oft vegna félagslegs smits.
Það passaði nákvæmlega við dóttur okkar, sem var ógnvekjandi.
LGBT+ Danmörk og vonbrigðin
Í leit minni að leiðsögn hef ég orðið fyrir miklum vonbrigðum með hversu litað LGBT+ Danmörk var í nálgun sinni á kyni og kynhneigð. Þeir þegja þegar kemur að ,,detransitions (þ.e. þeim sem sjá eftir kynskiptum) og ROGD.
Ég er líka vonsvikin með danska fjölmiðla. Það eru til óteljandi þættir um trans-fólk en ekkert um ROGD, ekkert um þá sem sjá eftir og ekkert um félagslegt smit.
Barnarás Danska ríkissjónvarpsins, Ultra, hefur t.d. framleitt myndband þar sem ljúf ung kona útskýrir kynvitund sem staðreynd og vísar rugluðum börnum og ungmennum til LGBT+ Danmörk. Þeim er líka vísað til Félags um stuðning við trans-börn (FSTB) og á samtökin Kyn og kynlíf sem ég tel mjög hugmyndafræðileg, öll með tölu.
Sem dæmi skrifa samtökin Kyn og kynlíf: ,,Hvað þýðir að vera trans? Sumt fólk er ekki og vill ekki vera það kyn sem þeim er úthlutað við fæðingu. Og FSTB trúir því að börn geti verið kyngervill og að jafnvel ung börn ,,viti að þau fæddust í ,,röngum líkama.
Fullorðins útskýringar fyrir börn
Þetta eru hinsegin fræðilegar fullyrðingar hjá fullorðnum og það kemur mér á óvart að DR, sem greitt er af samfélaginu, vísar börnum og ungmennum til þessa stofnana. Allt trans-efni sem DR framleiðir sé ég sem ríkisstyrktan hinsegin áróður.
Sama má segja um LGBT+ Danmörku, Kyn og kynlíf og FTSB sem öll eru ríkisstyrkt, en án þess að við sem samfélag gerum kröfur um sönnunargögn og hlutleysi í starfi.
Opinberir sjóðir styðja upplýsingaherferð sem gefur börnum, ungmennum og okkur foreldrum þá tilfinningu að ónot í eigin skinni stafi af því maður er ,,fæddur í röngum líkama og að hamingjan bíði handan við kynskipti. Mér finnst það algjörlega óábyrgt þegar rannsóknir benda til þess að flestir muni í raun vaxa upp úr ónotunum í eigin líkama og að hér sé um félagslegt smit að ræða.
Fjölskyldumeðferð
Að lokum fórum við í fjölskyldumeðferð þar sem dóttir okkar fékk aðstoð við að koma tilfinningum sínum í orð. Á þessu tímabili var hún skoðuð frekar og fékk einhverfu greiningu sem skýrði margt.
Þegar kyn bar á góma hættu öll samskipti. Einhverfan veldur að ágreiningur er oft álitinn skortur á samþykki og hatri, og af þeirri ástæðu var erfiðara að eiga samskipti við hana. Það hefur ekki hjálpað að margir trans-áhrifavaldar segja hiklaust að ,,Ef foreldrar þínir samþykkja ekki (í blindni) trans-sjálfsmynd þína, hata þeir þig. Þeir ljúka máli sínu á; ,,En við erum fjölskyldan þín núna- glimmerfjölskyldan þín.
Hvarf smá saman
Dóttir okkar sökkti sér æ meira ofan í þessa áhrifamenn á netinu. Henni versnaði; Svaf á daginn og vakti á næturnar.
Einn daginn tilkynnti hún okkur að hún væri strákur.
Þar hætti ég að styðja þetta og nota ekki fornöfnin sem hún óskaði eftir. Eiginmaður minn hafði líka áhyggjur. Við sögðum henni að hún fengi ekki hormón.
Dóttir mín var reið allan tíma. Kannski hélt hún að við hötuðum hana. Við foreldrarnir gengum á eggjaskurn. Ég vaknaði oft með dúndrandi hjartslátt og grét mig í svefn eftir seinni daginn sem hún sagðist vilja í ,,toppaðgerð snip snip! og vildi hormóna.
Hún var ekki hún sjálf og hegðun hennar breytt. Hún þuldi sömu möntrurnar sem ég hafði heyrt frá trans-áhrifavöldum. Það var heilt handrit og sem góður nemandi kunni hún það utanbókar.
Þegar ég deildi áhyggjum mínum í skólanum afhentu þeir mér engu að síður bækling frá FSTB (hvaðan fengu þeir hann?).
Leitaði til fagaðila, bent á hugmyndafræði félög
Þegar ég leitaði til einhverfu sálfræðinga sá ég að þeir notuðu Normstomerne (hugmyndafræðilegt félag sem býr til fræðsluefni) til að kenna um kynhneigð og kynvitund einhverfra, eða tjáðu sig mjög hugmyndafræðilega sjálfir.
Það var ómögulegt að vera vísað annað er til félaga og samtaka sem kynntu hinsegin kenningar gagnrýnislaust í ,,ráðgjöf sinni. Svekkt með tilfinninguna að vera ein í heiminum fór ég aftur á netið og fann loks stuðning hjá sálfræðingnum Sasha Ayad, samtökunum Genspect og öðrum foreldrum í sömu sporum.
Sértrúarsöfnuður
Undanfarin ár hefur okkur tekist að halda samskiptunum við dóttur okkar opnum. Það er erfitt þegar barnið þitt endaði í ,,sértrúarsöfnuði sem getur náð til hennar á netinu og utan þess. Eftir því sem hún þroskast höfum við getað deilt meira af hugsunum okkar um kynvitund í rólegheitunum.
Við sjáum að líðan hennar batnar hægt og rólega í tengslum við kyn sitt og líkama. Og við höldum í vonina um framtíðina og að hún eyðileggi ekki líkama sinn.
En trans-sjálfsmyndin er enn stór hluti af lífi hennar og það verður ekki auðvelt fyrir hana að brjótast undan líkamsbreytingarmenningunni. Félagsleg umskipti er ekki hlutlaus athöfn án afleiðinga.
Ég veit þetta nú af reynslu, ekki bara tilfinning.
Þess vegna er það líka ótrúlegt að LGBT+ Danmörk þrýsti á um að banna ,,umbreytingarmeðferð gegn trans-fólki þegar það sjálft stundar það á svo háu stigi sem raun ber vitni. Þau kenna börnum og ungmennum sem eiga í erfiðleikum að kynskipti séu möguleg og að vanlíðan þeirra geti horfið ef þau ,,breyta og verða hitt kynið.
Trans-Samtök misnotað hugtakið, dóttir mín fórnarlamb þeirra
Þeir misnota hugtakið algerlega og nýta sér þá staðreynd að flestir Danir þekkja aðeins trúarlega ,,meðferð gegn samkynhneigðum og auðvitað eru þeir á móti slíkri misnotkun. En þetta er tvennt ólíkt. Það er ekki ,,umbreytingarmeðferð að rannsaka rót ,,kynflótta barns eða ungmennis eða bjóða upp á hópsamtöl eða meðferð fyrir þá sem glíma við ónot í eigin líkama, og hjálpa þeim að sættast við hann, án hormóna. Sem foreldrar, meðferðaraðilar og samfélag þurfum við að geta spurt spurninga þegar einhver hafnar líffræðilegu kyni sínu, sérstaklega þegar það felur í sér læknismeðferð og skurðaðgerð. Þetta er eðlileg rannsókn.
Dóttir mín er eitt af fórnarlömbum þeirra og ég fyrirgef þeim aldrei. Þó svo hún forðist læknismeðferð þá hefur hún eytt æsku sinni í hugmyndafræði sem hefur ekki gert henni neitt gott og sem ég tel vera djúpstætt kvenhatur.
Þegar Cass skýrslan kom út þýddi það heilmikið fyrir mig sem foreldri. Að hlusta á fagfólk koma með svona þýðingarmikið efni sem er faglega unnið, og segir að það sem við höfum alltaf hugsað og óttast, var mikill léttir.
Það hefur valdið miklum vonbrigðum að sjá hvernig danskir fjölmiðlar og stofnanir hafa hundsað skýrsluna. En eftir allt, er nokkuð við öðru að búast af þeim
Móðir sem styður vinstrið skrifaði þetta og hér má lesa greinina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hér má hlusta á viðtal við Sall í tengslum við dóm Hæstaréttar Bretlands, sem kvað skýrt á um að lagaleg kona er kvenkyns fullorðinn einstaklingur.
Þegar æðri dómstóll Ástralíu tekur málið hennar fyrir í upphafi ágúst mánaðar verður vonandi úrskurður Hæstaréttar Bretlands hafður til hliðsjónar. Kvengervill höfðaði mál gegn henni.
Sama má vona um mál Lotte Ingerslev, en hennar mál verður tekið fyrir í Danaveldi 12. ágúst, nánar tiltekið í Lyngby. Kvengervill höfðaði einkamál á hendur henni því lögreglan vildi ekkert með málið gera.
Með því að skýra lögin í Hæstarétti Bretlands eru kvengervlum bannað að taka þátt í kvennaíþróttum, fara inn í einkarými kvenna, kvennafangelsi og kvennaathvörf. Mikil sigur fyrir konur og baráttu þeirra fyrir réttindum sínum, réttindum sem þær höfðu áunnið sér en misstu í trans-æðinu.
Koma þarf orðinu trans-kona út úr íslenskri tungu þannig að karlmönnum sé ekki bendlað við orðið kona á nokkurn hátt.
Sall Grover bendir á að hún geti ekki orðið kvengervill/ trans-kona, því það byggist á líffræðilegu kyni, karlmaður getur bara orðið kvengervill/trans-kona af því hann er líffræðilegur karlmaður.
Kyngervlar geta haldið áfram að lifa eins og þeir gerðu. Engin ástæða til annars. Þessi dómur eru engin hatursskilaboð til kyngervla, nú þarf bara að fara að lögum þegar líffræðilegu kynin eru annars vegar. Sem að sjálfsögðu átti að gera þrátt fyrir trans-æðið.
Það hafa allir kyn, annað hvort karl-eða kvenkyn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2025 | 07:53
Konur eru enn reiðar þrátt fyrir dóminn
Konur misstu vinnuna. Konur voru lagðar í einelti. Konur voru kallaðar ýmsum nöfnum. Konur fengu hótanir. Konur töpuðu fyrir kvengervlum í íþróttum. Konur notuðu þúsunda punda til að fara í mál. Konur voru fordæmdar. Það vantaði bara að konur væru brenndar á báli. Fyrir hvað; SANNLEIKANN.
Konur og börn eru fórnarlömb þessarar hugmyndafræði. Nú verða stjórnmálamenn að stíga fram og segja sannleikann, kona er fullorðin kvenkyns einstaklingur og það ber að virða í orði og á borði og í öllum lögum.
Lögin voru og eru skýr. Kvengervlar áttu ekkert erindi í kvennaíþróttir eða einkarými kvenna. Menn fóru á svig við lögin til að þóknast örhóp og nú ber að stoppa það.
Enn er beðið eftir ráðherra Bretlands.
Hlustið; "It's An INSULT!" | Supreme Court Rules The Definition Of A 'Woman' Is Biological Sex
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2025 | 06:53
Ljóstýran á kertinu breyttist í flóðljós þegar Hæstiréttur Bretlands kvað upp dóm sinn um daginn.
Færslan í dag er tekin af Nútímanum en þar birtist grein eftir mig.
Mikil blessun var það að dómari í Bretlandi skyldi sjá sannleikann og ekki síður lögin. Hann lét ekki plata sig til að hverfa frá raunveruleikanum.
Slóðina má líka finna hér; Hjartað mitt slær, það slær með konum og nemendum - Í fókus
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.4.2025 | 07:53
Lögfræðingarnir á Alþingi Íslendinga
Margir lögfræðingar eru þingmenn. Þeir hafa betri yfirsýn um lög en aðrir, skyldi maður halda. Nú hefur Hæstiréttur Bretlands dæmt, kona er líffræðilegt fullorðið kvekyn.
Þegar þessi dómur liggur fyrir en kýrskýrt, laga þarf lög Íslendinga. Fella þarf lög um kynrænt sjálfræði úr gildi, þau stangast á við dóminn sem féll s.l. miðvikudag. Þó að trans-fólk segi að lögin hafi ekki áhrif hér þá ættum við að láta það gera það. Dómurinn var svo skýr að engin þjóð á að velkjast í vafa um að þetta er hið eina rétta. Skorum á lögfræðingana á þinginu að taka höndum saman og breyta lögum í samræmi við dóm Breta.
Umfjöllun fjölmiðla hér á landi er til skammar. Sýnir hversu djúpt þeir eru sokknir í trans- áróðurinn. Stóru fjölmiðlarnir tala ekki um réttindi kvenna sem nú eru tryggð. Konur eru konur, ekki karlgervill.
Forsætisráðherra Íslands hefur ekkert tjáð sig um dóminn né heldur dómsmálaráðherra, af hverju ekki. Þetta er tímamótadómur fyrir konur um allan heim. Rétturinn til einkarýma, íþrótta, kvennaathvarfa, fangelsa og orða er tryggður.
Dómurinn er Bretum til sóma og Íslendingar eiga að fylgja í kjölfar þeirra varðandi lagasetningu. Taka út orðin leghafi sem Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, kom inn og fleiri kjánar á þinginu samþykktu.
Bloggar | Breytt 19.4.2025 kl. 06:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.4.2025 | 07:36
Kjartan Kjartansson fréttamaður á Vísi.is virðist hallur undir sína líka, sem skilgreina sig sem konur
Las gleðifrétt í Vísi um að konur væru konur og karlar eru karlar. Víða má finna fréttaflutning af máli Hæstaréttar Bretlands að konur eru skilgreindar fullorðin kvenkyns einstaklingur. Skilgreiningin kom ekki á óvart, enda hefur kona í orði og á borði ekki breyst og mun ekki. Örhópur hefur reynt að ljúga að samfélögum víða um heim að konur geti haft pung og typpi.
Nú á það fólk í basli með sjálft sig og kallar það aðför að trans. Að sjálfsögðu er sannleikurinn aldrei aðför að fólki, en lygin er það hins vegar.
Þetta orðalag vakti forvitni mína í fréttinni sem Kjartan Kjartansson skrifaði ,,Hópur andstæðinga trans fólks háði áralanga baráttu fyrir dómstólum til þess að fá þá niðurstöðu fram." Þetta er rangt hjá Kjartani og ber lit áróðurs. Konur hafa barist fyrir að halda réttindum sínum og um það talar blaðamaðurinn ekki. Því væri áhugavert að Kjartan svaraði eftirfarandi spurningum.
Af hverju heldur þú, Kjartan, að karlmaður, sem skilgreinir sig sem kona, sé kvenkyns fullorðin einstaklingur?
Af hverju þú telur lesbíur andstæðinga trans-fólks?
Af hverju þú telur íþróttakonur sem vilja spila á jafnréttisgrundvelli andstæðinga trans-fólks?
Af hverju þú telur konur sem vilja að einkarými sín séu fyrir konur og stelpur séu andstæðingar trans-fólks?
Telur þú konur ekki vera að berjast fyrir réttindum sínum þegar þær vilja frá viðurkenningu á kyni sínu?
Bloggar | Breytt 19.4.2025 kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2025 | 08:26
Fréttamaður á Ruv spyr ekki hvaða mannréttindi eru skert
Það var í reynd fyndið, eina ferðina enn, að lesa trans áróður Ruv með viðtali við Þorbjörgu sem titluð er kynningarstjóri trans Samtakanna 78.
Hún fær að halda fram þvílíkum málflutningi að maður finnur til með henni. Mannréttindi trans fólks skert. Bakslag í baráttu trans fólks. Nei það kallast ekki bakslag að fölsuð vegabréf séu leiðrétt. Það kallast ekki bakslag að konur vakni upp úr Þyrnirósarsvefni og átti sig á að mannréttindi voru höfð af þeim, af trans fólki. Það kallast ekki bakslag að foreldrar rísi upp og hafni trans hugmyndafræðinni inn í leik- og grunnskóla.
Þorbjörg kynningastjóri trans Samtakanna 78 fær að rægja önnur samtök og fréttamaðurinn vandar ekki fréttaflutning sinn og ræðir við forsvarsmann þess samtaka, Samtökin 22. Enn og aftur fá fréttamenn falleinkunn líka og Bergsteinn Sigurðsson fékk þegar hann réðist að frambjóðanda Lýðræðisflokksins í stjórnmálaþætti. Vinnubrögð fréttamanna Ruv eru ámælisverð og sýnir hvernig trans aðgerðasinnar vinna. Því miður lætur ríkisfjölmiðill þátt í þessu.
Fréttamaður Ruv gleymir við hvað hann starfar og spyr einskis. Af hverju spurði fréttamaður Ruv kynningastjóri trans Samtakanna 78 ekki eftirfarandi spurninga, rétt eins og við eigum að spyrja biskupinn?
- Er í lagi að karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, taki þátt í kvennaíþróttum?
- Er ásættanlegt að karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, baði sig með stúlkum og konum í baðklefum?
- Ertu sátt við að karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, noti sama salerni og stúlkur og konur, t.d. á skemmtistöðum, skólum og víðar?
- Er í lagi að afmá orð kvenna, s.s. leg, ófrísk, í þeim tilgangi að þóknast trans orðaforðanum?
- Er í lagi að halda fram að karlmaður hafi á klæðum?
- Er í lagi að halda fram að karlmaður fæði barn?
- Er í lagi að halda fram að karlmaður geti gefið barn brjóst?
- Er eðlilegt að börn fái hormónalyf í trássi við rannsóknir sérfræðinga sem sýna hve skaðleg slík lyf eru börnum?
- Er eðlilegt að tala fyrir hormónalyfjagjöfum til barna vitandi um skelfilegar aukaverkanir sem börn glíma við af lyfjunum og gerir þau að sjúklingum ævilangt?
- Er eðlilegt að karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, geti þóst vera lesbía?
- Er það í lagi að ungar lesbíur fari aftur undir jörðina vegna karlmanna, sem kalla sig konur og lesbíur?
- Er í lagi að konum sé refsað fyrir að treysta eigin augum, vegna tilfinningu karlmanns að hann sé kona?
- Er eðlilegt að réttindi kvenna séu skert til að auka réttindin trans fólks?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2025 | 07:59
Sonur minn laðaðist að trans-heiminum á netinu sem hvatti hann til að slíta sambandinu
Hér kemur önnur grein frá foreldri barns sem lenti í transinu og nú var það netið sem hafði áhrif. Heilbrigðisstarfsfólk í þessum geira virðast ekki vakandi þegar kemur að einhverfum og geðveilum börnum og ungmennum. Finnst mönnum það ekki ámælisvert?
Gefum móðurinni orðið, feitletrun er ekki hennar.
Í skjölunum hans kemur fram að hann ,,geti ekki borið ábyrgð á eigin heilsu og öryggi og sé ekki hæfur sökum aldurs. Engu að síður er hann nú í hormónameðferð á vegum CKI kynstofunni.
Ég er móður ungmennis, manns með einhverfu sem fær skyndilega þá hugdettu, upp úr þurru, að hann vilji skipta um kyn.
Fram að því hafði hann verið ósköp venjulegur strákur.
Ég segi sögu mína nafnlaust, því samband mitt við soninn er afar viðkvæmt og ég vil ekki missa það.
Ég er sannfærð um að löngun hans til að skipta um kyn stafi af einhverfunni því þeim finnst oft að þeir séu öðruvísi. Einhverfu og meðfylgjandi tilfinningar er ekki hægt að ,,lækna með því að skipta um kyn eða fara í óafturkræfa hormónameðferð eða að mínu mati limlestingaraðgerðir.
Hefur áhyggjur af öðrum
Móðirin segist hafa áhyggjur af öðrum, börnum og ungmennum, eins og syni sínum. Hún hefur áhyggjur af að þau séu afvegaleidd af ýmsum hópnum á netinu í leit sinni að samfélagi sem þau tilheyra. Margt einhverft ungt fólk finnur samfélag á Reddit, í LGBTQ+ hópum eða í aðdáendamenningunni í kringum málaflokkinn. Í þessu umhverfi er komið á móts við að þau séu öðruvísi og einstaklingarnir finna samfélag sem þeir sakna.
En vandamálið er, þetta eru ekki heilbrigð samfélög. Hér staðfesta þau, að líklega séu þau ,,trans út frá eigin sögum. Þau gefa hvort öðru ráð og leiðbeiningar um hvernig eigi að hefja kynskipti eða hvernig á að bregðast við þeim sem staðfesta þau ekki.
Áhrifavaldar á netinu
Finna má mismunandi áhrifavalda á netinu sem hefur áhrif á þessa einstaklinga. Til dæmis Jeffrey Marsh, líffræðilegur karlmaður sem segist vera kynsegin. Hann hvetur ungt fólk til að slíta sambandi við foreldra sína.
Ungt fólk festist í orðræðu um að það eigi að fjarlægja sig frá hverjum þeim sem sýnir efasemdir eða varkárni- jafnvel eigin foreldra.
Samkynhneigður og án föðurímyndunar
Sonur minn er samkynhneigður og hefur ekki haft föðurímynd í lífi sínu, svo það eru margir þættir sem koma við sögu. Í rannsóknarskjölunum hans kemur fram að hann ,,geti ekki borið ábyrgð á eigin heilsu og öryggi og sé ekki hæfur sökum aldurs.
Hann er nú í hormónameðferð á einni af þremur kynfræðistofum (CKI) í Danmörku. Ég upplifi þau sem mjög hugmyndafræðilega drifin og fólkið þar sýnir ekki umburðarlyndi gagnvart foreldrum. Sonur minn er lögráða, hvað get ég gert?
Vantar varkárni hjá CKI
Það truflar mig að kynfræðistofan CKI sé ekki varkárari þegar sjúklingum með einhverfu og geðraskanir er boðin hormónameðferð og skurðaðgerðir. Ég skil ekki hvers vegna læknar sem starfa samkvæmt lögum geti gefið svona viðkvæmri manneskju, eins og syni mínum, krosshormóna.
Kynfræðistofurnar eru þrjár og þær vinna á mismunandi hátt þegar kemur að hormónagjöfum. Hver fær og hver ekki. Á spjallborðinu Transnord skrifa notendur að það sé mun auðveldara að fá hormón hjá CKI Álaborg en hinum tveimur og menn ættu að óska eftir tilvísun þangað.
Í nýbirtum samráðssvörum við nýjum leiðbeiningum um ,,kynleiðréttingu má sjá mjög ólíkar skoðanir hjá CKI stofunum. Stofan í Álaborg sker sig þar úr, nánast engar áhyggjur er að finna hjá stofunni. Á stofunum í Óðinsvéum og Kaupmannahöfn lýsa menn áhyggjum yfir gildrunni sem einhverfa er. Samtök einhverfra og Asperger hafa hringt viðvörunarbjöllum.
En á meðan blæðir móðurhjartað. Í fjögur ár hafa martraðirnar haldið áfram um að missa son minn í þessari tilraun. Ég verð aldrei heil aftur eða systkini hans.
Ég vildi að ég gæti varað son minn við. Að ég gæti talað við hann, hjálpað og stutt á annan hátt, en því miður hoppaði hann á ,,no contact hugmyndina. Hann lítur ekki á mig sem einhvern sem getur stutt hann því ég hef verið gagnrýnin og bent á að þetta sé ekki rétt leið fyrir hann. Ég hef líka sagt honum að einhverfan sé með í spilinu og að það sé óhollt að vera í nethópum.
Vinalaus, nema á netinu
Hann hefur ýtt öllum gömlum vinum í burt og á í dag enga aðra vini en þá sem hann hefur hitt á netinu.
Mér hefur tekist að halda smá sambandi, en aðeins vegna þess að við vorum náin áður. En ég þori ekki lengur að sýna efasemdir mínar svo ég neyðist til að virða án samþykkis og vona að hann fari ekki í aðgerð.
Ég er sannfærð um að sonur minn sjái eftir þessu einn daginn.
Sá dagur mun renna upp að menn þurfi að svara fyrir sig; Stjórnmálamenn, læknar, geðlæknar, sálfræðingar, kennarar, málstjórar og aðrir. Heilbrigðisráðuneytið, sjúklingavernd og fjölmiðlar og aðrir sem hafa leitt son minn í þessa blekkingu með því að játast hugmyndum hans í blindni.
Liðhlaupi, hver tekur þá við honum
En hver tekur við honum þegar hann verður einn af ,,liðhlaupunum, hinum svokölluðu afskiptu sem hafa sett líkama sinn og líf í tilraunameðferð án nokkurra sönnunargagna á bak við tilraunina? Svarið er ég; móðir hans! Allir aðrir standa í biðröð við vaskinn! Þegar það gerist munu ,,vinir hans á netinu gufa upp eins og dögg fyrir sólu.
Ég hefði aldrei lifað þessa martröð af ef ég hefði ekki fundið stuðningsnet foreldra í sömu stöðu. Ég hef daglegt samband við þau. Við rífum hvort annað upp þegar málin verða of erfið eða óviðráðanleg.
Mín von er, að við hættum að bjóða ungu fólki með heilbrigðan líkama hormónameðferð og skurðaðgerðir og að í staðinn hjálpum við þeim að skilja sjálfa sig. Ég vona líka að við getum brotið upp staðalímyndir samfélagsins þannig að það sé pláss til að vera sá sem þú ert- án þess að þurfa að vera á lyfjum eða skera í líkamann.
Hér má lesa grein móðurinnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2025 | 07:23
Transfólk og meðfylgjendur þeirra kúga konur- Andri Sigurðsson
Áhugavert var að lesa þessi orð í grein Andra á Vísi í gær ,,Þetta þýðir ekki að við eigum að hunsa þá kúgun sem konur, hinsegin fólk eða aðrir hópar upplifa. Þvert á móti þurfum við að skilja hvernig kapítalisminn notar og viðheldur þessari kúgun til að viðhalda stéttaskiptingu.
Það er nákvæmlega það sem hefur gerst, kúgun kvenna í íþróttum er hundsuð af því örhópur (hinsegin) kúgar þær. Hvers konar kúgun búa íþróttakonur við. Jú karlmaður sem nær ekki góðum árangri í karlaflokki fær hugmynd, hrindir henni í framkvæmd og ákveður að skilgreina sig sem konu, en heldur typpi og pung, og keppir með og við konur. Þannig sigrar hann og hleypur af stað með gullverðlaun sem tilheyrir konu.
Það er ekki kapítalisminn sem kúgar íþróttakonurnar, nei það eru svokallaðar trans-konur. Ekki nóg með að konur séu kúgaðar af þessum körlum, sem skilgreina sig sem konur, heldur hafa þeir náð ákveðinni samúð með vók-tali og þess vegna ná þeir í mark. Þessum körlum á að vera vorkunn af því þeir tilheyra minnihlutahópi. Minnihlutahópi sem kúgar konur!
Andri segir líka í grein sinni Vókismi er tengdur þeirri hugmynd að ef þú ert ósammála okkur, hafir þú ekki aðeins rangt fyrir þér, heldur sér þú vond persóna. Vivek Chibber
Þetta er nákvæmlega meðferðin sem fólk fær sem hafnar körlum í kvennaíþróttir og inn í einkarými kvenna. Íþróttakonurnar sjálfar hafa orðið fyrir barðinu á vókisma.
Orðið TERF var búið til um fólkið sem stendur með konum sem vilja vernda réttindi sín, engin forréttindi eins og hinsegin hópurinn fær. Ekki nóg með það, refsivöndurinn óspart notaður af þessum minnihlutahópi til að kúga konur enn frekar. Og merkilegt nokk, þá eru það alltaf karlarnir sem kúga konurnar.
Bloggar | Breytt 14.4.2025 kl. 07:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)