23.10.2023 | 19:16
Skiljanlega sárnar börnum þegar þau lesa sannleikann
Í kjölfar umræðunnar að móðir geti ekki verið pabbi eða ,,pabbinn sem var óléttur fjölluðu fjölmiðlamenn um trans-málaflokkinn. Fjölmiðlamenn virðast gera þetta af og til og eru svo sannarlega ekki hlutlausir. Þeir virðast ekki hafa meiri hæfni og færni en svo að þeir geta ekki fjallað um málaflokkinn án þess að draga einstaka barn/fjölskyldu inn í umfjöllunina, þó rætt sé almennt um málaflokkinn. Í víðu samhengi meira að segja. Best þykir fjölmiðlamönnum og viðmælendum þeirra að draga einhvern í drullupollinn. Þeir sem fara verst út úr því eru viðmælendurnir sjálfir. Rökstyðja ekkert, gaspra bara.
Fjölmiðlamenn sækjast ekki eftir staðreyndum þegar fjallað er um málaflokkinn. Enginn fjölmiðlamaður talaði um dóm Mannréttindadómstólsins í tengslum við umræðuna. Óskir og langanir foreldrar til að vera annað en þau eru standast ekki mannréttindalög.
Fjölmiðlamenn hafa ekki velt öllum steinum. Hvað er verið að gera börnum sem búa við lífsskoðun þar sem trans-hugmyndafræðin passar ekki inn? Hvernig líður þeim? Hvers eiga börn að gjalda í kennslu þegar hugmyndafræðin er rædd og jafnvel kennd? Munur á kynningu og kennslu. Hafa fjölmiðlar rætt um og við þá foreldra sem hafa frábeðið sig, fyrir hönd barna sinni, kennslu trans-hugmyndafræðinnar? Hafa fjölmiðlar rætt við skólastjóra um þá kennara sem hafnað er, af foreldrum, vegna ofuráherslu á trans-hugmyndafræðina? Hafa fjölmiðlamenn leitað til fræðslunefndar Samband íslenskra sveitarfélaga og spurt þá hvernig þeir sem regnhlífasamtök takist á við þessa hlið málsins?
Nóg um það. Deigir fjölmiðlamenn.
Ljóst er, að ef foreldrar, stjórnmálamenn, hagsmunasamtök og starfsmenn skólastofnana segja barni ósatt t.d. um að líffræðilegu kynin séu fleiri en tvö og barn les það svo annars staðar að svo er ekki þá hlýtur því að sárna. Það er ekki hægt að rökstyðja fullyrðinguna að kynin séu fleiri en tvö, XX og XY-litningaberar. Meira að segja sumir þjónar kirkjunnar taka þátt í að segja börnum ósatt um kynin tvö.
Sé barni sagt að það sé fætt í röngum líkama af foreldrum, hagsmunasamtökum og starfsmönnum skólastofnana og það les síðar að ekki sé hægt að fæðast í röngum líkama hlýtur barninu að sárna. Líkama er ekki hægt að skipta út.
Sé barni sagt að hormóna- og krosshormónalyfjagjafir hafi ekki áhrif á líkamann og les síðar að svo sé er skiljanlegt að því sárni. Það uppgötvar jafnvel að foreldrar, hagsmunasamtök og starfsmenn skólastofnunar hafa ekki sagt satt og rétt frá.
Svona væri hægt að telja upp nokkra þætti þar sem barni er kannski ekki sagt satt í tengslum við málaflokkinn. Er von að barni sárni! Hvort það sé þeim að kenna sem segja sannleikann get ég fullyrt að svo er ekki. Þeir sem fylla barn af ranghugmyndum verða að bera ábyrgðina sjálfir. Þeir hafa sært barnið.
Hjá því verður ekki komist að staðreyndin um að kynin séu tvö fer fyrir brjóstið á þeim sem eru því ósammála. Vera kann að börnum víða um land þyki óþægilegt að til sé fólk sem tjáir skoðanir sínar og sannleikann um að líffræðilegu kynin séu tvö, ekki sé hægt að skipta um líkama, að lyfjagjafir hafi afleiðingar og sér í lagi hafi þeim verið sagt annað og það jafnvel af foreldrum, skólafólki og stjórnmálamönnum.
Hvað gerist svo í huga barna, eirðaleysi í sálinni sem þarf að sefa, er allt önnur Ella. Eirðarleysið getur stangast á við hið líkamlega og líffræðina.
Foreldrar barna sem líður ekki vel í eigin skinni hafa stofnað foreldrafélög í Svíþjóð og Noregi. Þau telja að börnunum sé ekki sagður allur sannleikurinn hjá trans-hagsmunasamtökum og víða í skólakerfinu. Hér má sjá síðuna þeirra í Svíþjóð. Því miður hefur foreldrafélagið á Íslandi runnið inn í trans-hagsmunasamtökin. Starf þess og málflutningur litast af því og hugmyndafræðinni sem þar ríkir.
Hlutverk foreldrafélagsins í Svíþjóð er m.a. ,,þau vilja styðja börnin sín í leit sinni að persónuleika sínum og lífsháttum án að þess að þau stjórnist af kynhlutverki og viðmiðum. Þau eru miður sín yfir vanlíðan barna sinna í líkama sínum. Foreldrarnir vilja að ungu fólki sem líður ekki vel í eigin skinni sé mætt með hreinskilni, varúð og rannsóknartengdri umönnun. Verðug markmið.
Leyfi fyrsta erindinu að fljóta með:
Ef ætlarðu að svívirða saklausan mann,
þá segðu aldrei ákveðnar skammir um hann,
en láttu það svona í veðrinu vaka,
þú vitir, að hann hafi unnið til saka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2023 | 18:44
Konan sem ég sagði frá um daginn er grunnskólakennari
Hanne Hjort vinnur með börn í veikri stöðu, andlega. Hún varð stjórnarmeðlimur í Dansk Regnbueråd s.l. sumar og berst fyrir réttindum kvenna og þann vanda sem trans-hugmyndafræðin veldur. Hún lætur m.a. í sér heyra á samfélagsmiðlum.
Hanne hefur bent á rétt kvenna til einkarýma, s.s. kvennaathvörfum og salernum. Vegna málsins hefur hún eignast óvini. Menn ganga svo langt að óska eftir að hún verði rekin. Sá sem eys úr viskubrunni sínum er almennur borgari í Danamörku og heldur fram að kennarinn sé hatursfullur og trans-fóbískur. Að auki segir borgarinn að trans-börnum geti stafað hætta af kennaranum og fjölskyldum þeirra. Svona bréf hafa atvinnurekendur Hönnu Hjört fengið, ekki einn heldur fleiri (bloggari: hóst, hóst, hóst).
Sá sem sendir bréfið bendir á að kennarinn vilji að trans-konur (með typpi) afpláni í karlafangelsi, ekki meðal kvennafanga svo fátt eitt sé nefnt. Fleira er tínt til og sýnir hversu heimskt fólk getur verið og þröngsýnt. Auðvitað á Hanne og má hafa skoðun á samfélagsmálum án þess að það komi vinnuveitanda hennar við. Enda gerðu þeir ekkert með þessi bréf. Að kennarinn sé ekki sömu skoðunar og trans-aðgerðasinnar gerir hann hvorki óhæfan né trans-fóbískan. Hvað þá óhæfan til að vinna með börnum. Í bréfinu segir að skólastjórinn ætti í alvöru að skoða hvort slíkur kennari eigi að starfa í skólanum (bloggari: hóst, hóst, hóst).
Hanne bendir á að það sem hún gerist sek um, samkvæmt borgaranum, er að henni finnst rangt að menn sem skilgreina sig sem konur hafi aðgang að einkarýmum kvenna, kvennaathvörfum og fangelsum. Að auki finnst henni mjög óréttlátt að menn, bara við það að kalla sig konur, fái að taka þátt í kvennaíþróttum því þeir keppi ekki á jafnréttisgrundvelli.
Ég hef líka verulegar áhyggjur af þeim mikla fjölda stúlkna sem allt í einu segjast upplifa sig í röngum líkama, frá 2014 til 2020 hefur tilvísinum fjölgað úr 3 í 135 á hverju ári. Prósentutalan gífurlega há segir Hanne Hjort.
Það er galið að nokkrum manni detti í hug að taka eigi lífsviðurværi af mér vegna skoðana minna segir Hanne (bloggari: hóst, hóst, hóst).
Innleggið má sjá hér, en það var birt 19. október á snjáldursíðu Dansk Regnbueråd. Lausleg þýðing er bloggara.
Mynd af grein Hanne.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2023 | 17:49
Kona getur ekki verið faðir barns samkvæmt dómi Mannréttindadómstóls Evrópu
Fyrr á árinu féllu tveir dómar hjá ME. Þar sem málavextir voru nokkuð svipaðir dæmdu þeir í báðum málunum á sama tíma.
Það sem ég undrast er að fjölmiðlar hafa ekki fjallað um þennan dóm, ekki einu sinni þegar blaðamaður á Visi flutti þjóðinni fréttir af ,,ég er ólétti pabbinn. Hefði blaðamaðurinn haft snefil af áhuga og nennu til að kynna sér málaflokkinn hefðu hún kannski geta sagt frá dómum ME í leiðinni og bent á að um tvískinnung sé að ræða.
Hafi heilbrigðisyfirvöld skráð annað en móðir eða faðir á fæðingarvottorð barns er um skjalafals að ræða eftir því sem ég fæ best séð. Reyndar er ég ekki lögfræðimenntuð en slík skráning virðist í andstöðu við dóm Mannréttindadómstólsins.
Tveir einstaklingar, í jafnmörgum málum, vísuðu máli sínu til ME þar sem þeir voru ósáttir við æðsta dómsvald í Þýskalandi.
Dómarnir fjalla um:
A) Tveir einstaklingar eignuðust barn og báðir kröfðust að vera skráð móðir. Ástæðan er að sá sem frjóvgaði egg konunnar með sæði sínu skilgreinir sig sem konu.
B) Í þessu tilfelli varð viðkomandi ófrísk eftir sæðisgjafa, bar barnið undir belti og fæddi. Þar sem viðkomandi skilgreinir sig sem trans-karl vildi viðkomandi vera skráður faðir.
Þjóðverjar sögðu að sá sem leggur til sæði er faðir og skráður sem slíkur. Þeir sögðu líka að kona sem gengur með barn og fæðir er móðir þess og verður skráð sem slík.
Mannréttindadómstólinn tók undir þýsku dómana. Að auki leggur ME áherslu á að vega þurfi mannréttindaákvæði á móti hvort öðru í svona málum og í þessum tilfellum er réttur barnsins til að þekkja líffræðilegan bakgrunn sinn rétthærri en foreldrana til að fá viðurkenningu á hlutverki sem þeir óska sér
ME lýkur dómum á orðunum ,,motherhood and fatherhood, as legal categories, were not interchangeable and were to be distinguished both by the preconditions attached to their respective justification and by the legal consequences which arose therefrom.
Í Noregi var skrifað um dóminn, sjá hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2023 | 16:19
Valdamiklir aðgerðasinnar krefjast að valið kyn sé líffræðilega kyninu æðra
Hvað segir þú við þessari tillögu? Ekki þarf að skrá kyn nýfæddra barna á fæðingarvottorð. Skilaboðin eru skína í gegn: barnið sjálft mun vita best eftir nokkur ár.
Hvað segir þú við að bara foreldrar ákveði kynið á fæðingarvottorði barns ef kynið aðskilur sig frá skráðu kyni, t.d. mamma skráð sem pabbi
Hvað segir þú um þá staðreynd að einungis kyn foreldra sem þau ákveða sjálf er skráð á fæðingarvottorð barnsins ef það kyn er annað en það líffræðilega - til dæmis þarf móðirin að vera skráð sem faðir ef sjálfákvarðað kyn fæðandi móður er karlkyn.
Hvað segir þú að einhver sem skilgreinir sig sem hitt kynið hefur rétt á að breyta fæðingar- og skírnarvottorði.
Fyrir einhverja þykir það sjálfsagt, en flestum þykir það langsótt og jarðvegur fyrir villtan kynjarugling í lögum, leiðbeiningum og tölfræði.
Krafan kemur frá valdamiklum aðgerðasinnum en kröfulisti hópsins heitir ,,The yogyakarta principles.
Hópurinn hefur sterka stöðu hjá Sameinuðu þjóðunum og helstu mannréttindasamtökum auk þess sem hann nýtur stuðnings LGBT-samtaka á öllum vígstöðvum. Saman hafa talsmennirnir náð árangri í að fá fleiri tillögur þýddar í lög og reglugerðir, sérstaklega í löndum eins og Kanada, Bretlandi og Bandaríkjunum.
Fyrir nokkrum árum þrýsti hópurinn helst á löggjöf um öryggi samkynhneigðra og jöfn lífsskilyrði. Hópurinn lagðist gegn umskurði stúlkna en nú er þrýstingurinn lagður í auknu mæli á Vesturlöndin að útrýma líffræðilegu kyni sem mikilvægu í kynbundnu samhengi, ekki síst kvenna.
Dorte bendir á færslu í greininni og segir ,,...eins og þú sérð hér að ofan, er orðið ,,konur" orðið hugtakið konur í öllum sínum fjölbreytileika. Hugtakið er ekki útskýrt, en getur aðeins endurspeglað þrýsting frá aðgerðarsinna. Samkvæmt hópnum eru karlar sem ,,skipta um kyn" konur í öllu samhengi, þar á meðal athvörf fyrir konur sem hafa mátt þola ofbeldi og misþyrmingar.
Meðal þess sem hópurinn berst fyrir, en finna má langan lista í grein Dorte, er að fólk skal fá að taka þátt í íþróttum þess kyns sem það skilgreinir sig séu ekki rök gegn því (engin skýring á hver slík rök geta verið).
Hópurinn fer fram á að heilbrigðiskerfið og sjúkratryggingar láti fólki í té það sem til þarf til kynskipta, þar með hormóna, krosshormóna, skurðaðgerðir til að fjarlægja brjóst, typpi o.fl. Kerfið á líka að sjá til að gervi kynlíffærum. Fangar eigi rétt á sömu meðferð meðan þeir afplána.
Læt upptalninguna duga, áhugasamir geta seð færslu Lotte Ingerslev þar sem hún segir frá málinu og grein Dorte Toft.
Hér má finna áhugaverða grein sem Dorte vísar til í grein sinni, þessi er á ensku og hér er sú danska.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.10.2023 | 21:04
Félag einhverfra og fölsku vandamálin
,,Hver mun líða mest og lengst ef börnin fá ekki læknisfræðilega meðhöndlun spyr Danska regnbogaráðið.
Samkvæmt formanni einhverfusamtakana í Danaveldi er erfitt að meta hvort betra sé að meðhöndla of fá eða of mörg börn þegar kemur að kynskiptiaðgerðum: ,,það mun einhver gjalda alveg sama hvað maður velur sagði hann í viðtalið við fjölmiðil. En reikningsdæmið gengur bara ekki upp.
Rökin að fórnarkostnaðurinn sé sami við að meðhöndla EKKI börn með lyfjum og að að gefa þeim lyf, halda ekki.
Skoðið vinsamlegast eftirfarandi:
- Fórnarkostnaður við að gefa EKKI lyf vegna kynama áður en kynþroskaskeiðið lýkur, er sálrænt og varir í ákveðinn tíma þar til barnið hefur náð þroska og getur farið í meðferð, ef vandinn er til staðar eftir kynþroskann. Fórnarkostnaðinn á að meðhöndla á annan hátt þar til kynþroskanum er náð.
- Fórnarkostnaðurinn við að meðhöndla börn með lyfjagjöfum vegna kynama er líkamlegur og óafturkræfur og veldur m.a. beinþynningu, auknar líkur á krabbameini, útlit sem samræmist ekki eigin kyni, vöntun eða vanskapnaður á kynfærum, brjóst vantar, vangeta til að fá fullnægingu og ófrjósemi.
- Þessi fórnarkostnaður er fyrir lífstíð.
Það er á engan hátt sama áhætta fyrir börn að vera meðhöndluð eða ekki. Kostnaðurinn er mun meiri að meðhöndla börn læknisfræðilega vegna kynama.
Það ætti hver maður að skilja, líka formaður einhverfufélagsins sem á að passa betur upp á félagsmenn sína með því að setja sig inn í málin og nota einfalda rökfræði eins og að ofan greinir.
Hér má lesa frétt um málið.
Lotte Ingerslev skrifaði um málið á snjáldursíðu sinni fyrir nokkru.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2023 | 21:54
Transaðgerðasinnar tala ekki fyrir okkur
segja einstaklingar sem glímt hafa við kynmisræmi og þeir geta ekki troðið skoðunum sínum á alla aðra. Ég lofa segir Maria Zähler í grein sem hún skrifaði 2021.
Ég er leið yfir að trans-aðgerðasinnar telji sig talsmenn fyrir alla með kynmisræmi og reyni að koma málunum á dagskrá.
Málefnin fela í sér afneitun á grunvallaratriðum. Nú síðast er það umræða um hvort karlmaður geti fætt barn. Þetta er svo leiðinleg og galin umræða að ég hefði aldrei, sjálfviljug, valið hana.
En þegar þröngur hópur fólk kemur fram með svona fullyrðingar og telur sig tala fyrir hópinn er ég neydd til að stíga fram.
Við getum ekki látið svona fullyrðingar óáreittar. Það er árið 2021 og rökræður um hvort karlmaður geti eignast barn er mikil afneitun á augljósum staðreyndum.
Trans-maður er líffræðileg kona, trans-kona er líffræðilegur karlmaður. Þú getur breytt útliti þínu, hægt á kynþroskanum, lifað og starfað eins og það kyn sem þú telur þig vera og fengið viðurkenningu á því. Litningunum getur þú ekki breytt.
Sum okkar gerum ekki kröfu á að samfélagið aðlagist örhóp. Sum okkar gangast ekki upp í fornöfnum og auglýsum það út um allt.
Lausleg þýðing er bloggara en þetta er brot úr greininni.
Lesa má greinina hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2023 | 18:23
Víða berjast menn fyrir einkarýmum kvenna
en gengur misvel. Kona sem skrifaði um að trans-konur eigi ekkert erindi í kvennaathvörf fékk að vita frá yfirmanni sínum að hann hafi fengið bréf. Í því bréfi er hann hvattur til að reka hafa af því hún skrifaði þetta. Guð minn góður! Hvert eru samfélögin komin, spyr bara. Mynd af greininni er neðar.
Konur sem berjast fyrir konur, einkarýmum kvenna, s.s. búningsklefum, kvennaathvörfum, íþróttum og fangelsum eiga að missa starf sitt vegna trans-hugmyndafræðinnar. Þetta er svo galið að mér er óskiljanlegt að nokkur kona taki þátt í þessu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2023 | 21:30
Lovísa Arnardóttir blaðamaður á Visi.is hikar ekki við að flytja þóðinni falsfréttir
Ótrúlega vitlaus frétt birtist á Vísi.is um konu sem varð ófrísk, gekk með barn og fæddi undir fyrirsögninni, ég er pabbinn sem var óléttur. Nei Lovísa það er ekki hægt. Karlmaður verður ekki óléttur, gengur með barn eða fæðir. Að bera svona þvæla á borð fyrir þjóðina á að vera refsivert. Falsfréttir í sínum versta búning.
Mannréttindadómstóllinn hefur dæmt í málum sem er eins og þetta. Lesið hér. Lovísa ætti að kynna sér dóminn.
Það má vel vera að konan sem fæddi barnið skilgreini sig sem karlmann, ekkert að því. En sem skilgreindur karlmaður gengur hún ekki með eða elur barn. Hvað þá að vera með barn á brjósti.
Kona sem vill vera ófrísk, ganga með barn og fæða er kona, ekki karlmaður. Hefði viðkomandi ekki fæðst með kvennamanns líffæri og xx-litninga hefði þetta ekki gerst. Kona þarf að verða sér út um xy-litninga frá karlmanni til að úr verði barn.
Við hljótum að gera kröfu á að satt og rétt sé farið með þegar líffræðin og staðreyndir eru annars vegar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2023 | 20:00
Skyldi blaðamaðurinn Kristinn Guðnason á Dv spyrja stjórnendur skóla
hvort börn foreldra sem vilja ekki trans-fræðslu á yngri stigum skóla og í leikskóla megi frávelja fræðsluna? Held að blaðamaðurinn hafi ekki einurð til þess. Kannski þarf hann að hafa fyrir því og þá er betur heima setið en af stað farið.
Hefur Kristinn Guðnason velt vöngum yfir að kannski er ungt fólk og þeir sem eldri eru komnir með upp í kok af þeim áróðri sem dynur á því. Líka frá honum. Skörpustu hnífana í skúffunni þarf stundum að brýna. Horfðu hér Kristinn, þú fræðist.
Fólk þegir frekar en að segja vegna viðbragða fólks og blaðamanna eins og Kristins Guðnasonar. Höggin látin dynja á fólki fyrir skoðanir sem fela hvorki í sér fordóma eða hatur. Bara sannleik. Velti fyrir mér af hverju blaðamaðurinn þekki ekki sannleikann í trans- málaflokknum. Skyldi afbökun á sannleikanum vera honum mikilvægari en staðreyndir. Hallast að því.
Hópurinn Barátta XX-kvenna fyrir öryggi varð til af nauðsyn. Kristinn hefur ekki fjallað um réttindi kvenna sem hafa glatast eftir að lög um kynrænt sjálfræði varð að veruleika, heldur ekki í allri trans-umræðunni. Kristinn stundar einhliða fréttaflutning. Blaðamaðurinn ætti að kynna sér hvað þessar konur hafa að segja, gæti búið til áhugaverða frétt. Þá er Bleik brugðið.
Hér má hlusta á umræðu fréttamanns um sameiginlega klósettnotkun kynjanna sem mjög margar konur kæra sig ekki um Kristinn Guðnason.
Með því að hlusta á þetta gætir þú búið til alvöru frétt ekki síbylju.
Blaðamaður Dv ætti að hlusta á þetta viðtal, áhugavert.
Einn snjáldurvinur minn sagði um síðasta innlegg vegna fréttamanns Dv, ,, Ég veit ekki hvort sé við hæfi að gera kröfur til DV og meintra blaðamanna þar á bæ. Oft ratast kjöftugum satt orð á munn!
Ég stilli kröfur mína í hóf gagnvart liðleskjum, eða gerir reyndar engar kröfur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2023 | 18:38
Hyskinn Kristinn Guðnason blaðamaður Dv lifir á gúrkutímum fjölmiðla
ef marka má fréttaflutning hans í blaðinu. Kristinn Guðnason leggur ekki mikið á sig, að mínu mati, til að flytja gagnrýnar fréttir. Hann virðist ekki setja sig í spor rannsakanda og skoðar mál sem hann skrifar um. Hann virðist hallur að því sem ég kalla lélega blaðamennsku, afrita frá öðrum og líma á skjalið sitt.
Kristinn Guðnason blaðamanni finnst í lagi að fólk með typpi mæti í búningsklefa stúlkna og kvenna. Annað get ég ekki lesið út úr skrifum hans um trans-málaflokkinn. Hann ýjar að hatursorðræðu annarra ef þeir vilja ekki typpin inn í kvennaklefana. Hvað býr undir hjá blaðamanninum, af hverju er honum í mun að ungar stúlkur séu hrelldar með typpum ókunnugra á meðan þær afklæðast og eru naktar?
Hvað með að blaðamaðurinn færi í rannsóknarvinnu í kjölfar þessara skrifa. Hann er kannski lydda og því lætur hann ekki vaða.
Blaðamaður í gúrkutíð eins og Kristinn Guðnason hjá Dv ætti að taka sig taki, læra og fræðast. Ástæða til að skrifa alvöru fréttir í stað þeirra innhaldslausu. Á mig virkar hann eins og margir aðrir blaðamenn, værukær.
Þar sem ég hlusta og les þó nokkuð um transmálaflokkinn, úr ólíkum áttum, í þeim tilgangi að fræðast bendi ég Kristni Guðnasyni á fróðleik. Eftir áhorf, lestur og smá rannsóknarvinnu gæti Kristinn haft hæfni, færni og þekkingu til að skrifa alvörufréttir og eitthvað af viti um trans-málaflokkinn sem honum virðist umhugað um. Frá mínum bæjardyrum séð virðist honum hugleikið að skrifa bara á einn veg, með gaspri og góli annarra manna. Kannski breytist það nenni hann í rannsóknarvinnu.
Kristinn, gott efni, hér, hér, hér og hér. Mál til komið að hysja upp um sig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)