7.10.2024 | 07:25
Opið bréf til móður trans-drengs
Í fyrradag steig dönsk móðir fram til að segja sögu sína og stúlkunnar sem breytti kennitölunni sinni í því skyni að verða karlmaður. Móðirin óskaði líka eftir að fólk talaði beint við hana. Karen M. Larsen tók áskorun móðurinnar og sendi henni opið bréf. Millifyrirsögnum er bætt við.
,,Kæra Hannelouise Kissow,
Ég las greinina þína frá 5.10.2024 nokkrum sinnum, þar sem þú, eins og sannkölluð ljónynja, kastar þér út í baráttuna fyrir réttindum trans-fólks út frá því að þú ert móðir ungs trans-drengs. Þú skrifar í greininni að þú vildir að einhver myndi raunverulega tala við þig sem foreldri trans-barns, og mig langar að taka þeirri áskorun.
Ég vil byrja á því að leggja áherslu á að mér finnst virkilega sorglegt, já svívirðilegt, að heyra að það sé til fólk sem áreitir barnið þitt á almannafæri með hrópum og þaðan af verra. Sem manneskja sem var lögð í einelti í gegnum grunnskólaárin, og hefur einnig sem fullorðinn einstaklingur upplifað hrekki í opinberu rými, get ég aðeins sagt að slík hegðun gagnvart barninu þínu er auðvitað algjörlega óásættanleg. Við verðum öll að geta verið ótrufluð í almenningsrými, óháð því hvernig við lítum út.
Skiptir sköpum
Ég skil grein þína svo að þú telur það skipta sköpum fyrir líf barnsins að við viðurkennum öll að barnið þitt sé karlmaður, jafnvel þótt það hafi fæðst með líkama stúlku/konu. Mér sýnist þú trúa því að ef barnið þitt fær ekki þessa viðurkenningu algjörlega skilyrðislaust, þá muni aðrir meiða það eða barnið þitt muni skaða sig.
Þú segir okkur hins vegar ekki hvers vegna þú sjálf ert svona sannfærð um raunverulegt kyn barnsins. Ég veit ekki hvort þú hefur átt alvarlegar samræður við barnið um hvað það þýðir að vera karl eða kona. Ég veit ekki hvernig barnið hefur réttlætt fyrir þér að það sé strákur/karl en ekki stelpa/kona. Ég veit heldur ekki hvernig þú myndir skilgreina ,,karl" og ,,konu. Mér sýnist að þér finnist það ekki viðeigandi. Barnið þitt heldur að það sé karlmaður þess vegna trúir þú því og þess vegna ættu allir aðrir að trúa því líka. Við ættum öll að trúa því vegna þess að samkvæmt þínu mati hefur barninu batnað andlega eftir að hafa breytt kennitölunni og byrjað að taka testósterón.
Mín túlkun
Ég túlka grein þína þannig að þú sért mjög reið yfir því að sumir trúi því bara ekki þegar þú segist eiga son en ekki dóttur. Þú þarft trú okkar (eða að minnsta kosti að aðrir þykist trúa?) og hvers vegna ekki bara að trúa, af því að trúin skaðar engan að þínu mati! Tilhugsunin um að það særi einhvern að viðurkenna barnið þitt sem karlmann virðist koma þér beint upp í rjáfur. Hver vogar sér að gefa slíkt í skyn?
Ég trúi ekki persónulega að barnið þitt sé hættulegt öðrum en ég hef í raun áhyggjur af því að barnið þitt hafi farið inn á braut sem gæti skaðað það alvarlega.
Að mínu mati er kyn eingöngu spurning um hvers konar líkama þú fæddist með. Hið meðfædda líkamskyn er hlutlægur veruleiki, það er grundvallar staðreynd þess hver við erum. Líkaminn er ekki bara handahófskenndur hjúpur af holdi hann er hluti af okkur, já við erum líkamar okkar, þeir gera okkur að því sem við erum. Sama hvað þér og barninu kann að finnast, barnið þitt er líkamleg kona. Þetta mun alltaf setja ramma um líf barnsins. Ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvort þér finnist virkilega að barnið þitt ætti að skipta um föt meðal karlmanna? Ef slys yrði og barnið þitt þyrfti að gista á farfuglaheimili eða væri fangelsað, myndir þú halda að það ætti að gista eða afplána með karlmönnum nú þegar þú ert svo sannfærð um að barnið þitt SÉ karlmaður?
Ég veit ekki hvort þið hafið talað um afleiðingar þess að taka testósterón þegar þú ert með kvenmannslíkama. Kannski hefur þú talað um við barnið eftir hverju það vonist ná með þessu, eins og dýpri rödd og skeggvöxt - eiginleikar sem gætu gert barninu þínu kleift að ,,líða" eins og karlmanni. Og þú hefur greinilega tekið eftir vellíðaninni sem þetta hormón getur kallað fram tímabundið, en endist ekki endilega. En hefur þú líka talað um aukaverkanirnar? Barnið þitt er 20 ára, skrifar þú. Hefur þú talað um að þetta þýði að barnið þitt geti farið í gervitíðahvörf áður en það verður 25 ára? Hefur þú talað um hvernig testósterón, þegar það er tekið af líffræðilegum konum, getur valdið alvarlegum kynfæravandamálum sem geta eyðilagt möguleikann á góðu kynlífi? Hefur þú talað um aukaverkanir sem geta verið lífshættulegar eins og lifrarskemmd og blóðtappa? Þú skrifar að testósterón meðferð hafi bjargað lífi barnsins en veistu að í versta falli getur það kostað barnið þitt lífið?
Ekki hægt að skipta um kyn
Hefur þú talað við barnið um þá staðreynd að þú getur í raun ekki skipt um kyn? Þú getur breytt kennitölunni þinni, þú getur breytt útliti líkamans en þú getur aldrei fengið líkama hins kynsins. Svo hefur þú talað við barnið um að það geti ekki haft líkama sem samsvarar líffræðilegum manni?
Og síðast en ekki síst get ég ekki annað en velt því fyrir mér hvort þú hafir íhugað að barnið þitt og þar með líka þú gætir haft rangt fyrir þér. Barnið þitt er ung manneskja. Að vera ungur þýðir líka að kynnast sjálfum sér og finna sína leið í lífinu. Og í þessu sambandi getur þú týnst á ferðalagi lífs þíns og lagt af stað á braut sem reynist vera blindgata. Að finna réttu leiðina er sérstaklega erfitt þegar barnið þitt glímir við alvarlegar geðrænar áskoranir.
Svo hvað ef barnið þitt, þegar það er 25-30 ára, kemst að því að það er ekki karl, heldur kona eftir allt saman? Hvað ef hann sér eftir óafturkræfum afleiðingum testósterónsins sem hann hefur tekið og hugsanlegum skurðaðgerðum sem þið íhugið sennilega? Hvað myndir þú segja við barnið þitt? Myndir þú hafna barninu af því hann er ekki sá sem þú varst sannfærð um að hann væri? Myndir þú kenna barninu þínu um að hafa rangt fyrir sér? Verður þú reið út í alla þá sem studdu sjálfsmynd barnsins sem trans? Eða myndir þú axla ábyrgð ef í ljós kemur að þú og barnið hafið rangt fyrir ykkur um hver það er og barnið situr uppi með óafturkræfar líkamlegar breytingar sem það sér sárlega eftir? Hvað ætlar þú þá að gera? Skrifa nýja grein?
Lokaorð
Að lokum get ég aðeins sagt, ég vona allt það besta fyrir barnið þitt. Ég vona að það rati í gegnum lífið vonandi gott og hamingjusamt líf. En ég verð að viðurkenna að ég hef verulegar áhyggjur af því að af einskærri ást gætir þú endað með því að meiða barnið þitt. Stundum er ekki nóg að elska bara barnið og samþykkja skilyrðislaust allt sem það vill og gerir. Stundum getur ,,nei" líka verið kærleiksríkt svar.
Karen M. Larsen skrifaði pistilinn og kynnir sig á þennan hátt: Ég er dósent í sögu og trúarbrögðum og kennari við VoksenuddannelsesCenter Frederiksberg. Ég er kristin og samkynhneigð.
Pistilinn má lesa hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2024 | 08:24
Barnamálaráðstefna laugardaginn 19. október
Nokkrir einstaklingar hafa tekið sig saman og standa fyrir ráðstefnu 19. október. Eiga góðar þakkir skildar. Ráðstefnan hefst kl. 13:00. Staðsetning kemur síðar en hún er á höfuðborgarsvæðinu.
Skráning á ráðstefnuna er á netfangið Barnavernd.islands@gmail.com
Sætapláss er takmarkað, þess vegna er skráning æskileg. Þeir sem skrá sig frá upplýsingar um hvar ráðstefnan er þegar nær dregur. Ekki er komið á hreint hvort ráðstefnunni verður streymt. Ekkert kostar á ráðstefnuna en tekið á móti frjálsum framlögum. Kaffi selt á staðnum.
Þessi ráðstefna er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Frummælendur koma víða að með ólík málefni. Reiknað er með að hvert erindi taki um 20 mínútur og ráðstefnunni lýkur með pallborðsumræðum þar sem fundargestir geta spurt spurninga.
Meðal þess sem rætt verður um er; Tjáningarfrelsið og þöggun, sveitarfélög og samtök, Menntakerfið, Samfélagsmiðlar, Heilbrigðismál, Menning og trú, Lög og reglur og Cass-skýrslan.
Hér er auglýsingin. Hvet áhugasama til að mæta, 13 dagar þangað til.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2024 | 08:06
Íþróttastúlku hótað eftir að hún sagði frá trans-konu, karlmanni sem skilgreinir sig sem konu
Háskólastelpur koma nú hver á eftir annarri til mótmæla þátttöku karlmanna, sem skilgreina sig sem konur, í kvennaíþróttum. Þó fyrr hefði verið segir bloggari.
Ein blakkvennanna slóst í hóp Riley Ganes sem er með dómsmál í gangi gegn NCCA, íþróttasamtökum í Bandaríkjunum. Stelpurnar kæra samtökin fyrir að leyfa karlmönnum að spila með og gegn stúlkum, þeir leggja þær í hættu. Þær kæra líka fyrir að þeim sé gert að keppa við ofjarla sína, karla sem skilgreina sig sem konur. Um það er ekki deilt, líffræðilegur karlmaður hefur mun meiri styrk, þol og krafta en kona.
Slusser fyrirliði San Jose liðsins var sú sem slóst í málsóknarhópinn en liðsfélagi hennar reyndi að leyna líffræðilegu kyni sínu. Það var afhjúpað. Nokkur lið hafa nú neitað að spila við liðið þar sem karlmaðurinn er, skiljanlega.
Nokkur kvennalið neita að spila við San Jose State University liðið þar sem karlmaður er liðsmaður segir Irena BritUSA fjallaði um málið. Þegar menn segja ekki sannleikann, blanda kynjum saman í íþróttum gerist þetta segir Irena. Verður aldrei sanngjarnt að strákur keppi í kvennaliðið.
Hér fjallar ung koma um lögin og börn eru hvergi undanskilin.
Víðar er barist fyrir réttinum kvenna, eða réttara sagt að viðhalda þeim. Það er synd og skömm að baráttan um réttindi kvenna sem formæður okkar börðust fyrir hverfa nú eitt af öðru til að þóknast karlmönnum sem skilgreina sig sem konu. Frekjan og yfirgangurinn er þvílíkur. Þeir sætta sig ekki við sömu mannréttindi og aðrir heldur vilja þeir hafa réttindi af konum, s.s. einkarýmum og íþróttum.
Andspyrnuhreyfing kvenna
Í Þýskalandi hóft ráðstefna kvenna hófst í gær og verður til morguns. Ráðstefnan ber nafnið Heroica. Konurnar sem þar eru mótmæla þýskum lögum sem taka gildi 1. nóvember. Þrengt er að réttindum kvenna, foreldra og tjáningarfrelsinu.
Lesbíur verða illa úti vegna trans-hugmyndafræðinnar. Karlar sem skilgreina sig sem konu vilja vera lesbíur. Í huga bloggara og margra annarra eru þeir gagnkynhneigðir, einhvern veginn liggur það í augum upp. Eru með lim og pung, vilja konur. Lesbíupar eru tvær konur, ekki karl og kona.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2024 | 19:32
Velja kennarar í grunnskólanum allsherjar verkfall eða skæruhernað?
Ekkert gengur í kjaraviðræðum grunnskólakennara. Það dylst engum sem fylgist eitthvað með. Formaður Félags grunnskóla hefur falið formanni Kennarasambandsins samningsumboð grunnskólakennara.
Nú þegar kjaradeildan er hjá ríkissáttasemjara má hugsa tvennt í stöðunni. Félagið er við það að semja eða íhugar verkfallsboðun.
Verði blásið til verkfalls eru tveir möguleikar.
Allsherjarverkfall þar sem allir grunnskólakennarar fara í verkfall. Góður kostur? Fer eftir því hvernig á það er litið.
Hinn kosturinn er skæruverkföll en bloggari kynntist þeim fyrst hjá Sjúkraliðafélagi Íslands. Skæruverkföll eru þannig að ákveðið stig fer í verkfall og helst þar sem það bítur mest. Í grunnskólanum er það yngsta stigið. Síðan væri hægt að hafa daga á stigunum.
Hvort grunnskólakennarar séu tilbúnir í verkfallsaðgerðir er fyrst vitað þegar kosning fer fram. Fari kennarar í verkfall þá er það röskun á námi nemenda en þannig eru verkföll. Markmiðið er að valda sem mestri röskun.
Fyrir nokkrum árum þótti kennarastéttinni óhugsandi að fara í verkfall, byggt á reynslu fyrri áratuga. Nýliðun í stéttinni er mikil, yngra fólk komið í grunnskólann og leiðbeinendur fleiri. Þessi samsetning gæti gefið annars konar niðurstöðu en fyrir fáeinum árum.
Hvað sem öllu líður, þá verður fróðlegt að fylgjast með á komandi vikum. Bloggari vonar að hann hafi rangt fyrir sér hvað verkfallsboðun varðar og að kjarasamningur sé handan við hornið.
Bloggar | Breytt 4.10.2024 kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2024 | 08:05
Hafa karlmenn skilning og upplifun af verkjum kvenna
Ríkisstjórn Viktoríuríkis tekur karlmenn með í heilsufarsrannsókn á verkjum kvenna.
Jacinta Allan forsætisráðherra Viktoríuríkis og ríkisstjórn hennar vita ekki hvað kona er. Þrátt fyrir að hafa ekki getað skilgreint helming íbúanna hefur hún pantað rannsóknina ,,The Inquiry into Women's Pain" sem er hluti af 153 milljón dollara kostnaði vegna heilsubreytingu kvenna segir Kirralie Smith.
Rannsóknin tekur við svörum frá ,,hverjum þeim sem skilgreinir sig sem konu, þó að hann kunni að hafa annað kyn við fæðingu." Það sem þeir vísa til hér eru karlmenn.
Ríkisstjórn Viktoríuríkis tekur því að svörum um sársauka kvenna, frá körlum, sem hafa allt annan lífeðlisfræðilega uppbyggingu og munu aldrei upplifa kventengda sársauka.
Fatnaður, lyf og skurðaðgerðir sem hylja karlmennsku mannsins breyta ekki æxlunarfærum hans frá karli til konu og hann mun aldrei skilja eða upplifa hvað það er að hafa kvenkyns æxlunarfæri.
Karlmaður mun aldrei þola breytingarskeið kvenna, legslímuflakk eða leghálskrabbamein, en samt vill ríkisstjórn Viktoríuríkis láta undan fantasíum sumra karla, um að þeir geti verið konur, með því að taka þá með í heilsufarsrannsókn kvenna.
Það er móðgandi og fáránlegt!
Þekktur skurðlæknir í Viktoríu, vildi ekki láta nafngreina sig af ótta við útilokun, talaði gegn þessu og sagði ,,kynstaðfestingar þjónustu eyðileggingu í heilbrigðisþjónustunni. Það verður að setja líffræðina framar sjálfsmynd. Hann segir ,,sjúklingar kynna fyrir læknum hið ,,nýja kyn og gefa ekki upp líffræðilega kyn sitt. Þetta hefur gífurleg áhrif á alla þjónustu.
,,Ef læknar segja eitthvað neikvætt er hægt að tilkynna það til eftirlitsaðila. Áfram heldur læknirinn ,,Yngri læknar eyða tíma í að læra hvernig á að tala við þetta fólk og einblína ekki á grunnatriðin eins og sykursýki, astma eða brjóstakrabbamein.
Læknar geta ekki gagnrýnt brjálæði stjórnvalda af ótta við útilokun eða sviptingu leyfis.
Hvernig er hægt að ætlast til þess að nokkur treysti ríkisstjórn eða lækni sem afneitar raunveruleikanum, hafnar vísindum og gaslýsir konur með þeirri lygi að karlmaður geti verið kona?
Greinina má lesa hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2024 | 07:20
Enn sýna trans aðgerðasinnar ofbeldisfulla hegðun
Eitthvað er það í fari kvenna sem trans aðgerðasinnum líkar ekki. Þær mega ekki koma saman til að ræða sín mál, réttindi sem tekin voru af þeim með lögum um kynrænt sjálfræði. Bakslag hefur orðið í kvennabaráttunni og það er stjórnmálamönnum að þakka. Engum öðrum. Þeir hafa með heigulshætti sínum látið undan þrýstingi fárra einstaklinga og gengið á rétt milljóna.
Kellie-Jay Keen varð enn og aftur fyrir ofbeldi
Stofnandi og skipuleggjandi ,,Let Women Speak viðburðanna varð skotmark á Nýja Sjálandi eftir að John Pesutto, leiðtogi frjálslyndra í Viktoríuríkinu, stimplaði hana sem nasista. Það gerðist eftir Melbourne mótmælin í mars 2023.
Um síðustu helgi greip trans aðgerðasinni til ofbeldis gagnvart henni. Hann notaði sömu aðferð og ofbeldisseggurinn á Nýja Sjálandi, hellti súpu yfir hana. Allt í nafni transins!
Hinn 34 ára gamli maður reyndi að flýja vettvang en var eltur uppi af konu og síðan handtók lögreglan hann.
Ofbeldismaðurinn er Lindsay, útskrifaður nemandi sem stærir sig af því á netinu að vera fyrsti starfsmaður Southampton Solent í jafnrétti og fjölbreytileika - þrátt fyrir að hafa ekki starfað þar síðan 2018.
Lögreglan í Suður-Yorkshire hefur staðfest að Lindsay, frá Barnsley, hafi verið ákærður fyrir tvær líkamsárásir og mun mæta fyrir Sheffield Magistrates Court þann 25. nóvember.
Kellie-Jay Keen segir réttilega um ofbeldi mannanna, ,,Þeir hafa sannað mál mitt og við verðum að halda áfram og leyfa konum að tala."
Leyfum konum að tala
Viðburðurinn ,,Let Women Speak er haldinn á opinberum stöðum með opinn hljóðnema. Allar konur sem vilja tala mega það, deila reynslu sinni eða hugsun um samfélag sem vill þagga niður í konum, sérstaklega konum sem berjast fyrir kynbundnum réttinum, einkarýmum kvenna, þjónustu og íþróttum
Frú Kellie-Jay Keen laðar að sér mikinn mannfjölda. Stór mótmælendahópur mæti og eru það yfirleitt trans-konur (karlmenn) og aðgerðasinnar. Hún hræðist ekki þessa karla og viðkvæði hennar ,,ég tapa aldrei virðist fara fyrir brjóstið á þeim.
Atvikin er tvö
Kellie-Jay Keen ber saman atvikin og segir að síðast þegar þetta kom fyrir hana hafi hún verið hrædd um að detta í jörðin því þá gæti hún sennilega ekki staðið upp aftur. Henni fannst lífi sínu ógnað.
Tilgangurinn með síðara atvikinu var til að hræða konur til þöggunar. Konum líður eins og þær geti ekki talað opinberlega. Baráttufólkið hélt mótmælunum áfram en Kellie gagnrýndi lögregluna fyrir að passa ekki upp á öryggi kvenna. Hún sagði: ,,Mér finnst bara að ógnin við öryggi okkar sé ekki tekið mjög alvarlega. Ógn trans aðgerðasinna er ekki tekin mjög alvarlega."
Kellie-Jay Keen telur að trans aðgerðasinnar sé ,,útbreiddir í háskólunum" og bætir við: ,,Mér finnst mjög ógnvekjandi hversu mikil völd þessi sértrúarsöfnuður virðist hafa."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2024 | 07:11
Eiga strákar að baða sig með stelpum og karlmenn með konum?
Auðvitað er það í þágu almennings að upplýst sé að einstaklingur sem hefur ráðlagt íþróttafélögum að leyfa karlmönnum, sem segjast vera konur, aðgang að búningsklefum stúlkna og kvenna sé sjálfur karlmaður sem skilgreinir sig sem konu. Þetta segir Katrine Brøgger
Bloggið sem Lotte Ingerslev skrifaði fjallaði um trans-aðgerðasinnann Nadia Jacobsen, karlmaður sem skilgreinir sig sem konu, sem hefur ráðlagt Danska knattspyrnusambandinu til að breyta viðmiðum þar sem strákar og karlmenn sem skilgreina sig sem stúlkur eða konur fái aðgang að búningsklefum stúlkna og kvenna. Bloggið undirstrikar markmið Lotte, að upplýsa almenning um málið, hún eltist ekki við einstakling.
Löggjafar okkar hafa á hinn bóginn, með útvíkkun kafla 266b um hatursorðræðu um kynvitund ásamt jafnréttisnefnd okkar, heft málfrelsi borgara í þágu ímyndaðs góðs málefnis með því að ákveða að dómskerfi og fjölmiðlar gaslýsa íbúa með fölskum fornöfnum og gera menn að glæpamönnum fyrir að segja sannleikann; að karlmaður sem skilgreinir sig sem konu sé karlmaður.
Það er ljóst að stefnan á hendur Lotte Ingerslev og annarra sem berjast fyrir réttindum kvenna er liður í að þagga niður í þeim. Því má bæta við að sama gerist hér á landi, þagga á niður í þeim sem lofsyngja ekki trans-málaflokkinn eins og hann birtist þjóðinni.
Til viðbótar við stefnuna, samkvæmt kafla 266b í dönskum hegningarlögum, hefur trans-aðgerðasinninn Jacobsen höfðað einkamál gegn Lotte Ingerslev sem tengdi myndbönd Jacobsen á youtube við upphaflegu grein sína sem hún hefur nú breytt.
Frænka mín er 4 ára og fer í fótbolta. Þetta er fyrir hana og allar aðrar stelpur segir Katrine.
Hér má finna færsluna.
Til að svara spurningunni sem er fyrirsögnin er svarið einfalt í huga flestra, NEI. Kynskipta á einkarýmum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2024 | 07:15
Íþróttakonur kæra þátttöku karla í íþróttum
Nú má taka hatt sitt ofan fyrir ungum stúlkum. Íþróttakonum sem láta sig varða félaga og andstæðinga sína og það sem mikilvægasta, íþróttakonur framtíðarinnar.
Í mars kærðu sextán íþróttakonur (fulltrúar hóp íþróttamanna) National Collegiate Athletic Association (NCAA) og Georgia Tech (auk nokkurra einstaklinga) fyrir mismunun samkvæmt titli IX og jafnréttisákvæði 14. viðaukans. Georgia Tech stóð fyrir NCAA landsmeistaramótinu í sundi 2022 þegar Lia (Will) Thomas, karlkyns sundmaður sem var ekki samkeppnishæfur í karlaliðinu, fékk að keppa í kvennaflokki og nota búningsklefa kvenna. Thomas sigraði í 500 skriðsundi kvenna og afklæddist nakinn fyrir framan naktar konur í búningsklefanum.
Málsóknin er fjármögnuð og leidd af hópnum ,Independent Council on Women's Sports (ICONS) og fulltrúi íþróttamannanna er Bill Bock, fyrrverandi lögfræðingur bandarísku lyfjaeftirlitsins (USADA) sem sagði sig úr NCAA nefndinni. Ástæðan var reglugerð sem leyfði karlmönnum, sem skilgreina sig sem konur, að keppa í kvennaíþróttum.
Blakkona bætist við
Brooke Slusser hefur nú bætt nafni sínu við þá málsókn og segir að hún hafi verið neydd bæði til að keppa og deila búsetu með Fleming án þess að tilkynna fyrirfram að hann væri karlmaður.
Slusser flutti til San Jose State árið 2023 og gekk til liðs við kvennaliðið í blaki. Hinn umdeildi leikmaður, heitir Flemming, og hann bjó meðal stúlknanna líka, þar á meðal Slusser. Á ferðlögum var henni gert að vera í herbergi með honum. Hún uppgötvaði síðar að það var hans ósk.
Samkvæmt kvörtuninni gat Slusser sagt að Fleming ,,spilaði blak með stökkgetu og krafti sem engin stúlka hafði." Hún heyrði síðan samtal meðal nemenda sem vísuðu til hans sem stráks og áttaði sig á hvers vegna geta hans var svona mikil.
Slusser óskar ekki eftir að Flemming sé lagður í einelti, en henni finnst ekki sanngjarnt að stúlkur spili á móti strákur. Það er hvorki öruggt sé sanngjarnt fyrir konurnar í liðinu né andstæðingana. Flemming slær boltann af meiri krafti og hraðar en nokkur kona sem hún hefur spilað á móti.
Þegar kyn hans varð opinber sögðu forsvarsmenn blakhreyfingarinnar að þær ættu ekki að tala um það við neinn utan liðsins. Það færi illa fyrir liðsmönnum ef þeir sögðu frá að hann væri karlkyns. Þetta kemur fram í kvörtuninni.
Slusser gerði hið rétt, lagði nafn sitt við málsókn þar sem NCAA er fordæmt fyrir andstyggilega stefnu sína að leyfa karlmönnum að keppa í kvennaflokki.
Lesið hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.9.2024 | 08:50
Trans inngrip skaða börn
Engar vísbendingar eru um að inngrip trans-fólks séu örugg fyrir börn
Það er ekki ein einasta langtímarannsókn sem sýnir fram á öryggi eða virkni kynþroskablokka, krosshormóna og skurðaðgerða fyrir trans-trúuð ungmenni. Þetta þýðir að umskipti ungmenna eru tilraunakennd og því geta foreldrar ekki veitt upplýst samþykki, né geta ólögráða börn veitt samþykki fyrir þessum inngripum. Þar að auki sýna bestu langtímavísbendingar sem við höfum meðal fullorðinna að læknisfræðileg íhlutun dregur ekki úr sjálfsvígum.
Kynþroskablokkar geta valdið geðsjúkdómum
Kynþroskablokkar geta í raun valdið þunglyndi og öðrum tilfinningalegum truflunum sem tengjast sjálfsvígum. Reyndar telur fylgiseðillinn fyrir Lupron, kynþroskablokka númer eitt í Ameríku, ,,tilfinningalegan óstöðugleika" sem aukaverkun og varar ávísendur við að ,,fylgjast með þróun eða versnun geðrænna einkenna meðan á meðferð stendur." Á svipaðan hátt skrifaði Michael Biggs, prófessor við Oxford háskóla, um tilraunarannsókn á kynþroskablokkum í Bretlandi: ,,Það var enginn tölfræðilega marktækur munur á sálfélagslegri virkni milli hópsins sem fékk blokkara og hópsins sem fékk aðeins sálfræðilegan stuðning. Að auki eru óbirtar vísbendingar um að eftir ár á [kynþroskablokkum] hafi börn greint frá meiri sjálfsskaða og stúlkurnar upplifðu einnig meiri hegðunar- og tilfinningaleg vandamál og lýstu meiri óánægju með líkama sinn - þannig að kynþroskablokkar juku kynama."
Kynþroskablokkar geta valdið varanlegum líkamlegum skaða
Tímabundin notkun Lupron hefur einnig verið tengd og getur verið orsök margra alvarlegra varanlegra aukaverkana, þar á meðal beinþynningar, geðraskana, krampa, vitsmunalegrar skerðingar og, þegar það er notað með krosshormónum, ófrjósemi.
Krosshormón (testósterón fyrir konur; estrógen fyrir karla) geta truflað geðheilsu
Konur sem skilgreina sig sem karla fá nóg testósterón til að hækka gildi þeirra 10-40 sinnum yfir viðmiðunarmörk kvenna. Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á mörg geðræn vandamál með svipuðum stórum skömmtum af vefaukandi sterum eins og testósteróni þannig að 23% þátttakenda uppfylltu DSM skilyrði fyrir alvarlegt geðheilkenni eins og oflæti, oflæti og alvarlegt þunglyndi og 3.4-12% fengu geðrofseinkenni. Estrógen hefur einnig áhrif á skap en á flókinn hátt. Konur eftir tíðahvörf sem meðhöndlaðar eru með estrógeni upplifa oft mikinn kvíða þrátt fyrir að vera settar á lífeðlisfræðilega skammta af hormóninu. Karlar sem skilgreina sig sem konur fá oflífeðlisfræðileka skammta af estrógeni; Fræðilega séð hefur þetta tilhneigingu til bæta í bæði þunglyndi og kvíða.
Önnur heilsufarsáhætta tengist kynþroskablokkum og kynhormónum
Tímabundin notkun kynþroskablokka Lupron hefur einnig verið tengd við og getur verið orsök margra alvarlegra varanlegra aukaverkana, þar á meðal beinþynningar, geðraskana, krampa, vitsmunalegrar skerðingar og, þegar það er notað með kynhormónum, ófrjósemi. Til viðbótar við skaðann af Lupron, setja krosskynhormón ungmenni í aukna hættu á hjartaáföllum, heilablóðfalli, sykursýki, blóðtappa og krabbameini yfir ævina. Við þetta bætist sú staðreynd að líkamlega heilbrigðar trans stúlkur fá tvöfalt brjóstnám við 13 ára aldur og legnám við 16 ára aldur, á meðan karlkyns einstaklingi er vísað til geldingar með skurðaðgerð og skurðaðgerða við 16 og 17 ára, í sömu röð. Það er ljóst að staðfesting á umskiptum hjá börnum snýst um að limlesta og dauðhreinsa ungmenni í tilfinningalegum vandræðum.
Trans inngrip fyrir börn eru tilraunakennd og hættuleg
Mörg læknasamtök um allan heim, þar á meðal Australian College of Physicians, Royal College of General Practitioners í Bretlandi og sænska siðfræðiráðið hafa lýst þessum inngripum hjá börnum sem tilraunakenndum og hættulegum. Hinn heimsþekkti sænski geðlæknir Dr. Christopher Gillberg hefur sagt að umskipti barna séu ,,hugsanlega eitt mesta hneykslismál í sögu læknisfræðinnar" og kallað eftir ,,tafarlausri stöðvun á notkun kynþroskablokkandi lyfjum vegna óþekktra langtímaáhrifa þeirra."
Hér má lesa bábiljuna um sjálfsvígin og þeir sem vilja lesa Cass-skrýrsluna smella hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2024 | 08:42
Hver mun fá það betra eftir inngrip?
Áhugaverð grein eftir Mats Reimer (barnalækni í Gautaborg) fjallar um lagalegar og siðferðilegar áskoranir í kringum trans heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar.
Við vitum einfaldlega ekki hvers vegna kynáttunarvandi, eða transsexualismi eins og það er líka kallað, fór á áratug frá því að vera afar sjaldgæfur sjúkdómur yfir í að nálgast algengan sjúkdóm í hinum vestræna heimi.
,,Fyrirsjáanlega munu það ekki vera rannsakendur eða stjórnmálamenn, heldur dómstólar og tryggingafélög, sem ákveða framtíðarumönnun ungs trans-fólks í Bandaríkjunum. Undanfarin tvö ár hefur meira en tugur ungra trans-einstaklingar kært fyrrverandi umönnunaraðila sína fyrir misferli og krafist hára skaðabóta."
Biðin eftir öruggari upplýsingum um hvaða sjúklingar gætu hugsanlega fengið betra líf eftir læknisfræðilega breytingu er löng. Það ætti í staðinn að bjóða börnum og ungmennum sálfræðimeðferð til að sætta sig við heilbrigðan líkama ef mögulegt er. Viðeigandi aldurstakmark fyrir læknismeðferð væri 25 ár, þannig að heilinn hafi haft tíma til að þroskast.
Við vitum ekki hvers vegna kynáttunarvandi eykst og við vitum ekki hvers vegna kynjahlutfallið hefur breyst þannig að þeir sjúklingar sem greinast nú eru flestir (líffræðilegar) stúlkur/konur í stað stráka/karla eins og áður.
Hins vegar vitum við að yngstu sjúklingarnir með kynáttunarvanda munu almennt skipta um skoðun og sætta sig við líkama sinn eftir kynþroska. Við höfum enga aðferð til að ákvarða fyrirfram hvaða kynáttunarvandi verður viðvarandi. Við vitum að þeir sem upplifa kynáttunarvanda eiga yfirleitt líka við ýmis önnur geðræn vandamál að stríða en við vitum ekki hvort hormónar og skurðaðgerðir leiða til betri geðheilsu til lengri tíma litið segir hann.
Greinina í heild sinni má lesa hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)