hins vegar varð henni tíðrætt um jafnréttisbaráttu kvenna, mikilvægi hennar og að greiða þurfi götu kvenna. Forsetinn minntist ekki orð á stöðu drengja í skólakerfinu.
Hún minntist heldur ekki á sjálfstæði þjóðarinnar og að Íslendingar þurfi að standa vörð um það. Kom bersýnilega í ljós í fyrstu ræðu forsetans hvar hjarta hennar slær.
Árið 2019 birtist grein á Vísi sem á við í dag eins og þá. Brot úr greininni,
Óður til feðra
Fyrrnefndri Önnu þykir vel hafa tekist til hjá skaparanum. Hún hrósar feðrum í hástert: [F]eður eru dásamlegar og sveigjanlegar verur. Frá andartaki til andartaks haga þeir seglum eftir vindi til að tryggja líf og hagsæld fjölskyldu sinnar. ... [A]llir feður leitast einbeittir við að uppræta hverja þá ógn, sem stafa kynni að barni þeirra. (Anna Machin)
Tengsl feðra við börn sín, hvort heldur er á fósturskeiði eða eftir fæðingu, skiptir megin máli fyrir andlega heilsu föður og barns, vöxt þess, viðgang og þroska að öllu leyti. Tengsl meirihluta feðra við ófætt barn sitt styrkist, eftir því sem líður á meðgönguna. Í tengslum föður og barns býr sá styrkur sem hefur afgerandi áhrif á þroska þeirra; hátterni, tilfinningar og sál frábrugðin áhrifum móður. Þegar sambandið er traust, stuðla feður að góðri heilbrigði, sjálfstæði, þroska tungumáls og hegðunar. ... [S]amband föður og barns er ekki síður náið, afgerandi og blæbrigðaríkt og samband barns og móður. ... (Anna Machin) Við náin tengsl föður og barns verður meira að segja til samstilling bylgjulengdar sem nær til líkamlegra þátta, starfsemi vaka (hormóna) og tilfinninga (e. bio-behavioural synchrony). Þetta á vitaskuld fyrst og fremst við um feður, sem eru þess aðnjótandi að lifa og hrærast með afkvæminu í móðurkviði og á hvítvoðungsskeiði.
Reyndar er það svo, að fjöldi nýlegra rannsókna bendir til, að þátttaka föður í öllu því, er lýtur að aðhlynningu á meðgöngu og við fæðingu, stuðli að bættri heilsu móður, barns og hinnar nýju fjölskyldu til langframa.
Feður hafa sérstök, jákvæð áhrif á andlegan þroska barna og málþroska í frumbernsku og síðar á frammistöðu bæði sona og dætra í skóla á seinni hluta gelgjuskeiðs. Þetta á einnig við um hegðun og þroska almennt, sbr. börn einstæðra mæðra. Burtséð frá fræðslu hafa feður einnig sérstöku hlutverki að gegna á viðkvæmasta þroskasviði unglingsins, geðheilsunnar. Þetta er algild regla hvarvetna. Feður hafa sérstöku hlutverki að gegna við að skapa námshvetjandi aðstæður fyrir barnið; móta hegðun, miðla þekkingu og auka trú þess á sjálft sig. (Anna Machin)
Fræðandi samvera, leiðsögn, ærsl, hnoð og hamagangur er barninu mikilvægur. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á, að börn vilja heldur leika sér við pabba, heldur en mömmu. ... hlutverk leikfélagans skiptir sköpum fyrir barnið. Feður og atvinnuuppalendur af karlkyni uppskera oft og tíðum hnjóð fyrir slíkt hátterni. En Anna Machin huggar feður: Ef þið berið ykkur saman við móðurina sem hina gullnu viðmiðun, er viðbúið, að þið komið illa út, [v]egna þess, að feður eru ekki karlmæður.
Höfundur er Arnar Sverrisson, ellilífeyrisþegi. Þýðingar eru hans.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gleðilegt nýtt ár. Árið 2025 hafið og kennarar fá milljón á mánuði í laun fái Mjöll Matthíasdóttir einhverju um það ráðið. Hún sagði kennara berjast fyrir milljón krónum og varla gefur hún eftir, formaður grunnskólakennara.
Eitt af því sem forysta KÍ vill er skylda á leikskólastigið. Brjálæði. Ekkert barn sem þarf ekki inn á slíka stofnun á að fara þangað. Börn hafa það jafn gott heima hjá foreldrum sínum, jafnvel betra. Leikskóladvöl á aldrei að verða skylda, ALDREI! Mér er fyrirmunað að skilja að menntunarstéttir krefjist þess, að vistunarúrræði verði skylda.
Það er mikið álag fyrir börn að vera á slíkri stofnun í margar klukkustundir. Væri nær að rýmka dvalartímann þannig að hann henti vinnu foreldra. Leyfa börnum að vera hálfan daginn, tvo daga í viku eða þrjá. Leikskóli er stofnun sem tekur við börnum svo foreldrar komist til vinnu. Gleymum því ekki.
Næstu tilgangslausu verkföllin eru fram undan á nýju ári ef ekki næst að semja, janúar verður nýttur í samningaviðræður. Forystusauðir KÍ virðast lítið hafa lært af því sem gerðist fyrir áramót. Þeir hafa skapað kennurum mikla óvild í samfélaginu með þessu baunabyssuverkfalli. Sjáum hvað setur. Viðsemjendur hafa mánuð til að ljúka samningum áður en baunabyssan er ræst.
Ásta Lóa ráðherra menntamála á að sjálfsögðu ekki að skerast í kjarabaráttuna, ekki hennar verkefni. Ekki frekar en verkefni dómsmálaráðherra er að skerast í brottvísun fólks sem hefur verið vísa úr landi. Forsætisráðherra sendi skýran tón, þeir blanda sér ekki í kjaradeilur.
Hlakka til að sjá milljónina í launaumslaginu. Hvar fá sveitarfélögin peningana, jú frá skattgreiðendum.
Til áminningar fyrir allt skólafólk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2024 | 10:03
,,KONA" gerir konu ófríska í fangelsi og nauðgar fleirum Jón Sigurgeirsson aldraður lögfræðingur
Það vantar ekki að réttindi kvenna séu fótum troðin þegar karlmenn, sem segjast vera konur, fá réttindi sem konur. Þeir hafa aðgang að búnings- og baðklefum kvenna. Þeir mega nota sömu salerni því það þykir ekki við hæfi að þeir pissi með sínum líkum, karlmönnum. Færst hefur í vöxt að þeir breyti skilgreindu kyni sínu í fangelsi, til að komast í kvennabúrið. Mörgum hefur tekist það án þess að konur séu spurðar. Án þess að þær komi vörnum við. Án þess að þrýstihópur hafi áhrif að sporna við þessari þróun.
Einn gerði sér lítið fyrir og nauðgaði kvenföngum, einum viðkvæmasta hópi hvers samfélags. Ekki nóg með að hann nauðgaði konunum, með limi sínum, heldur gerði hann einn kvenfangann óléttan.
Blessuð konan hélt hún væri örugg frá karlmönnum en lenti í klóm aumingja sem nauðgar. Nú hafa konurnar kært og þá grípur aumur dómari til þess ráðs að banna þeim að kalla nauðgara sinn karlmann. Geti móðgað hann, hann sem er með typpi og pung. Augljóslega sæðisframleiðslu líka. Allt í nafni örhóps sem kvenfangar eiga að taka tillit til.
Páll Vilhjálmsson svarar grein Jóns Sigurgeirssonar lögfræðings vel. Maður undrast ef lögfræðingur, þó aldraður sé, hafi ekki einu sinni á hreinu hvaða réttindi stúlkur og konur hafa misst. Hefur maðurinn ekki fylgst með umræðunni í útlöndum? Skil vel að hann geti það ekki hér á landi, meginstraumsmiðlar fjalla ekki um málaflokkinn á gagnrýnin hátt. Miðill allra landsmanna RUV er þögull sem gröfin. Stöð 2 er engu betri. Blöðin leyfa einstaka grein sem bendir á réttindamissinn og greinar sem fara í mótsögn við trans-Samtökin 78. Enginn rannsóknarblaðamaður hefur skoðað áhrif laganna á stúlkur og konur hér á landi og í útlöndum.
Aldraði lögfræðingurinn hefur heldur ekki fylgst vel með, því nú vill ákveðin tegund karlmanna gefa börnum brjóst. Engin hatursorðræða að gagnrýna það, hvorki hér á landi né í útlöndum.
Lögmaðurinn kallar þetta jaðarhóp og því eigi bara allir að þegja og haga sér eins og örhópurinn vill, jafnvel þegar réttindi eru brotin á fullorðnum, börnum og ungabörnum. Sérhver er nú viskan.
Aldraði lögfræðingurinn ætti að lesa bloggið transkoen.dk, hann ætti að lesa um Danska knattspyrnusambandið. Hann ætti að lesa um karlboxarann sem vann kvennaflokk á OL, sem treysti því að enginn segði neitt, hann tilheyrir jaðarhópi samkvæmt lögfræðingnum. Gott fyrir lögfræðinginn að lesa um alla þá 1000 karla sem hafa tekið titla af konum og möguleikum til vinnings í kvennaíþróttum. Skólastyrknum sem þær hafa misst. Svona gæti bloggari haldið áfram.
Það er ekki hatursorðræða að fjalla um réttindamissi stúlkna og kvenna sem lög um kynrænt sjálfræði veldur. Það er ekki hatursorðræða að benda á hið augljósa, karlmaður getur ekki verið kona undir neinum kringumstæðum. Kyni er ekki hægt að breyta.
Þú getur upplifað þig hvað sem er. Staðreynd og upplifun eru tveir ólíkir þættir.
Gleðilegt ár kæri lesandi.
Vonum að á árinu 2025 munu fleiri stíga fram og ræða málaflokkinn sem tröllríður samfélaginu og því þarf að breyta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2024 | 09:50
Þarf að taka á því sem heyrir ekki til í skólakerfinu
Álag í skólakerfinu, rétt hjá Ástu Lóu. Vonandi tekur hún á því. Það sem ráðherra ætti að skoða eru allar þær stefnur og straumar sem faglegir leiðtogar taka inn í skólakerfið og almennir kennarar þurfa að koma fyrir í kennslunni. Má þarf nefna frá Barnaheill, UNICEF, Samtökum 78, Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, Réttindaskóli, o.s.frv.
Ásta Lóa þarf að leggja áherslu á náttúruvísindi sem eru að miklu leyti horfin úr mögum skólum. Í þeim skólum finnst ekki eðlis- og efnifræðistofur þar sem tilraunir eru gerðar með ýmsum tækjum og tólum. Hvað þá ólíkum efnum. Fer eftir kennara hvernig þessi kennsla fer fram.
Íslenskukennslu útlenskra barna þarf að endurskoða, kerfið í dag er óviðunandi. Svokallað ÍSAT kerfi fjallar meira um utanumhald en kennsluna sjálfa. Svo er annað, margir kennarar senda bréf á ensku til foreldra útlenskra barna. AF HVERJU? Auðvitað á að senda bréf um skólastarfið á íslensku og foreldrar geta notað hermigreindina til að þýða fyrir sig. Svo eru ákveðnir hópar sem tala ekki einu sinni ensku.
Uppistaða nýliðunar í grunnskólakennarastéttinni virðist vera fólk sem hefur tekið annað Bakkalárnám er kennarafræði. Síðan bæta þeir tveimur árum við, heitir meistaranám í menntunarfræði og þar með verður viðkomandi grunnskólakennari. Grunnstoðirnar farnar. Ljóst að þessi tegund kennara hefur ekki sama grunn og B.Ed-arnir. Þetta þótti forsvarsmönnum KÍ voða sniðugt til að fjölga í stéttinni. Hjúkrunarfræðingum bar gæfa til að stoppa þetta fyrirkomulag á sinni menntun. Skynsöm stétt.
Læsisvandinn er til staðar. Nemendur koma jafnvel ólæsir upp í fjórða bekk og spyrja má hvað gerist á yngri stigum. Börnum er kennd enska frá öðrum eða þriðja bekk, líka þeim ólæsu á íslensku. Þarf ekki að endurskoða málið, af hverju eiga ólæs börn að læra ensku?
Verðbólga í einkunn er áhugavert efni. Af hverju fá börn á yngri stigum vitnisburð sem kveður á um að þau geti eitt og annað sem þau svo ekki geta þegar komið er á miðstig. Samræmt námsmat er nauðsynlegt. Huglægar einkunnir kennara þarf að fjarlægja.
Allt sem viðkemur kynja költinu þarf að afnema úr Aðalnámskrá grunnskóla, á ekki heima þar. Ásta Lóa þarf hugrekki til að vinna í því og ég vona að hún fái til liðs við sig fólk sem hefur þor og dug til að taka á því. Það á ekki að vera skylda í skóla að ljúga börnin full um að þau geti skipt um kyn, að þau geti verið kynlaus, eða fædd í röngum líkama. Eitthvað verulega að í þeim skóla þar sem slíkt er leyft. Sama með skólabækur sem ljúga að börnum.
Fánalögum þarf líka að breyta til að fjarlægja áróðursfána trans-hreyfinga af fánastögum skóla, alveg sama á hvaða stigi skólarnir eru.
Ég vona að Ásta Lóa hreinsi til eftir Ásmund Daða með skynsömum hætti.
![]() |
Nýr ráðherra segir læsisvanda blasa við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2024 | 10:24
Kennarar safna fyrir brjóstbindum
Skóli í Glasgow hefur verið gagnrýndur eftir að hafa auglýst viðburðinn morgunkaffi í fjáröflunarskyni til að kaupa brjóstbindi fyrir kvenkyns nemendur sem líður illa í eigin skinni.
Starfsfólki Bannerman High School var boðið með tölvupósti að mæta, kostar tvö og hálft pund. Peninginn á að nota til að kaupa brjóstbindi fyrir stúlkur.
Brjóstbindin eru notuð til að fletja út og fela brjóst. Slíkt getur haft aukaverkanir, t.d. verki í bak og brjóstum, öndunarerfiðleika og rifbeinsbrot.
Baráttuhópurinn For Women Scotland kallar þetta ,,hættuleg vinnubrögð" og sögðu það ótrúlegt að skólinn efni til söfnunar til kaupa brjóstbindi sem eru skaðleg tæki.
Talsmaður hópsins kallaði eftir því að skólinn ráðist í ,,brýna endurskoðun á stefnu og öryggi" og bætti við: ,,Þetta er jafn hættulegt og brjóstnám sem, réttilega, er ólöglegt í Bretlandi."
Ekki hlutverk skóla né kennara
Litið er svo á að hugmyndin um að safna peningum fyrir brjóstbindi á þessum viðburði hafi komið frá eldri nemendum í jafnréttishópi skólans.
Tölvupósturinn var sendur frá starfsmanni og einn kennari sagði Daily Record að ekkert samráð hefði verið um málið. Kennarinn sagði við blaðið: ,,Starfsfólk myndi safna fé til að kaupa brjóstbindi fyrir ungar stúlkur og við höfum ekki hugmynd um hvort foreldrar séu sammála þessu."
,,Þetta er viðkvæmt mál og starfsfólkið sem tók að sér að skipuleggja viðburðinn eru ekki sérfræðingar á þessu sviði."
Tess White, jafnréttisráðherra skoska Íhaldsflokksins, sagði: ,,Við vitum að brjóstbindi hafa hættulegar aukaverkanir fyrir ungar konur og þess vegna er algjörlega óviðeigandi að skólar séu að safna fyrir þessum umdeildu tækjum.
,,Það er sérstaklega áhyggjuefni að foreldrar gætu hafa verið sniðgengnir vegna ákvörðunarinnar um að hefja fjáröflunina. Það er ekki hlutverk skóla að safna fyrir inngrip af þessu tagi, sérstaklega þegar þau geta haft alvarleg heilsufarsleg áhrif."
Lesið hér.
Hér er mynd af brjóstbindi sem stúlkur nota til að brjóst þeirra sjáist ekki. Stúlkur sem glíma við ónot í eigin skinni nota þau við vanlíðaninni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2024 | 08:06
Tíðarandinn hefur snúið harkaleg upp á almenna skynsemi
Sérstakt stjórnvald hefur undanfarin ár tekið sér æ meiri völd í dönsku samfélagi án nokkur lýðræðislegs leyfis, en hefur afgerandi afstöðu um hvað má segja og hvað ekki og hvað við megum hugsa, segir Ib Ulstrup lögfræðingur. Sama gildir á Íslandi.
Þetta stjórnvald heitir tíðarandinn, sem sendir skýrar hegðunarreglur til landans. Gott dæmi er orðið ,,negri, þar sem tíðarandinn hefur bannað fólki að nota orðið og í staðinn skyldað okkur til að segja ,,n-orðið þegar við lýsum með andstyggð orðinu sem nú er bannað.
Það má segja að það sé svolítið kómískt, þar sem við vitum öll hvað litla ,,n" þýðir, en það sem skiptir máli hér er ekki hvað við vitum, heldur hvað við segjum og helst líka hvað við hugsum (þó að þetta síðasta geti verið svolítið erfitt að stjórna og refsa fyrir). Því er við að bæta að íslenski ríkissaksóknarinn ætlar að reyna það!
Annað orð sem tíðarandinn lítur hýru auga til er orðið ,,konur. Tíðarandinn hefur ákveðið með tilskipun að notkun þessara áður algjörlega saklausa kynheitis sé einnig mjög móðgandi og verði að forðast með ofbeldi og valdi. Og við verðum að fylgja tilskipunum tíðarandans, að minnsta kosti ef við viljum forðast alvarlegar munnlegar hótanir eða refsiaðgerðir frá fylgisveinum tíðarandans.
Þessi krafa um að hætt verði að nota orðið ,,konur" hefur fyrir löngu verið dregið inn í löggjafarstarfið á þinginu. Þannig var orðið ,,kona" allt aftur til ársins 2014 algjörlega fjarlægt úr tæplega 300 köflum heilbrigðislaga sem óásættanlegt og móðgandi orð og það þrátt fyrir að heilbrigðislögin innihaldi ákvæði um rétt kvenna til fóstureyðinga, brjóstaskoðunar og ófrjósemisaðgerða.
Þess í stað hefur lagatextinn þurft að skýra hvað átt er við þannig að fram kemur, til dæmis í 85. gr. ,,einstaklingar á aldrinum 50 til 69 ára sem eru með kvenkyns brjóstvef eiga rétt á brjóstaskoðun".
Auðvitað hefði verið auðveldara að skrifa ,,konur" í staðinn fyrir ,,fólk sem er með kvenkyns brjóstvef", en það er ekki hægt, tíðarandinn ræður og skynsamir smiðir heilbrigðislaganna hafa þurft að fara eftir tíðarandanum og virða hann.
Annað dæmi eru reglur um ófrjósemisaðgerðir kvenna þar sem ekki er kveðið á um ,,konur" í 106. gr. laganna, heldur að ,,einstaklingur með leg" megi fara í ófrjósemisaðgerð ef tilgreind skilyrði eru uppfyllt.
Næsta krafa tíðarandans hlýtur að mínu mati að vera að orðið ,,leg", sem er einnig kynbundið og þar með móðgandi, verði eytt úr danskri tungu og úr löggjöfinni og sett í staðinn kynhlutlausa orðið ,,lífsforeldri" og aðeins þegar við komumst að þeim tímapunkti er tíðarandanum fullnægt.
Að sjálfsögðu lítur tíðarandinn einnig skarpt og gagnrýnið á fjölda annarra mjög óheppilegra orða eins og sorphirðumaður, strætóbílstjóri, útfararstjóri og manndráp af gáleysi, sem annað hvort er eða er búist við að verði breytt í sorphirðupersóna, strætópersóna, bænapersóna og persónudráp, nöfn sem danska málnefndin hefur að einhverju leyti þegar tekið upp sem hluta af danskri tungu.
Stjórn tíðarandans er aðeins hægt að beita með góðum árangri vegna þess að heilbrigð skynsemi er fótum troðin af tungumálalögreglu, pólitískri rétthugsun og upplausn sjálfrar aðgreiningarinnar milli sannleika og ósanninda.
Greinina má lesa hér.
Myndin sem fylgir greinini er nokkuð skondin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2024 | 09:02
Átta dæmdir fyrir morðið á franska kennaranum
Sögukennarinn, Samuel Paty, var hálshöggvinn úti á götu af múslímskum manni um hábjartan dag í úthverfi Parísar árið 2020. Hvað vann hann sér til saka? Hann sýndi Múhameð teiknimyndir í kennslu sinni.
Í frétt á B.T. segir; ,,Fyrir fjölskyldu Paty, samstarfsmenn og skólann sem stofnun er þetta mjög mikilvægt. Vegna þess að það er mikilvægt að þeir fái refsingu, jafnvel þeir sem beittu ekki hnífnum beint."
Hinn 47 ára gamli kennari var drepinn af 18 ára flóttamanni eftir að hafa sýnt nemendum sínum Charlie Hebdo teiknimyndir af Múhameð spámanni. Gerandinn, Abdoullakh Anzorov, var skotinn til bana af lögreglu á vettvangi glæpsins.
Átta voru dæmdir þrátt fyrir að þeir hefðu ekki allir komið að aftökunni. Sjö karlmenn og ein kona, allt múslímar. Samkvæmt BBC hafa verjendur málsins haldið því fram að enginn þeirra hafi vitað af fyrirætlunum um að drepa Paty. Dómarinn sagði hins vegar að skortur á þekkingu eða innsæi teljist ekki til varnar, vegna þess að gjörðir þeirra á þeim tíma hefðu virst hvetjandi óháð ásetningi.
,,Við höfum séð sambærileg keðjuverkun gegn fólki í menntageiranum í Danmörku. Skítastormi er komið af stað og það getur orðið of alvarlegt þegar það tengist íslam. Við ættum að vera meðvituð um að herferðirnar geta fangað athygli öfgaskoðana."
Til að skjóta því inn þá þekkjum við öfgaherferðir gegn kennurum hér á landi hér á landi þegar trans-málaflokkurinn er annars vegar. Menn eru eltir, með undirskriftasöfnun samkennara og til atvinnumissis.
Samkvæmt Maria Bjørn leiða ,,hatursherferðir" gegn kennurum til ritskoðunar á kennsluefni einnig í Danmörku.
,,Það síðasta sem þú vilt vera sakaður um í menntageiranum er íslamsfóbía eða kynþáttafordómar. Þannig að til dæmis nota ekki fleiri Múhameðsteiknimyndirnar í kennslu, eins og Samuel Paty gerði," segir hún.
,,Stærsta og mikilvægasta verkefni skólanna í hinum vestræna heimi er að tryggja að næstu kynslóðir verði lýðræðissinnar," segir Maria Bjørn og heldur áfram: "Það er kjarninn, og ef þú lætur sjálfsritskoðun og ótta við ákveðin efni ráða kennslu, þá erum við ekki aðeins að bregðast næstu kynslóð, heldur einnig lífsviðurværi menntageirans í heild."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.12.2024 | 10:57
Fjölmiðlar tala um Danska knattspyrnusambandið
Loksins, húrra! Berlinske tidende talar um kvennaboltann og þá vegferð sem DBU er á varðandi hann. Þeir ætla að hleypa karlmönnum inn í kvennaboltann, en umræða hefur skapast um málið. Fyrirsögn þeirra er; ,,DBU er svo ákaft í vað vera ,,woke að þeir hafa gleymt skynseminni.
Lotte Ingerslev hefur verið óþrjótandi þegar kemur að umræðunni um karlmenn í kvennaboltanum á og síðunni hennar má lesa; .. Húrra - Ritstjórnargrein frá Berlingske: ,,DBU teflir bæði af sanngirni og tillitssemi við mikinn meirihluta kvenna þegar sambandið vill opna kvennamót fyrir karla". ---Já, ég veit að Berlingske hefur bætt við ,,sem skilgreina sig sem konur." En lítum bara á töfra trans-aðgerðasinna í þeim orðum sem Berlingske hefur ekki enn alveg yfirgefið - þó þeir séu á leiðinni - og með Gallup-könnunum sínum víkka veginn fyrir þá sem vilja feta hann, en halda að þeir séu algjörlega og algjörlega einir með efasemdir sínar, en blaðið á skilið þakkir.
Og já, ég er sammála því að orð trans aðgerðasinna hafa leitt til svo mikils ruglings að stundum er engin leið framhjá stjórnsemi þeirra.
Á skjáskotunum hér að neðan hef ég valið að sýna hvernig raunveruleikinn lítur út þegar hann er ekki meðhöndlaður af trans aðgerðasinnum.
En því er lokið. Karlar eru ekki konur. Ekki af neinu tagi. Sama hvað maður reynir að kalla þá til að koma því inn í hjá okkur.
Við erum hluti af þeim sem segjum það hátt. Svo aðrir þori."
Lotte hefur strikað yfir það með rauðu sem á ekki við.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2024 | 09:57
Gleðileg jól
Þá er aðfangadagur jóla runnin upp. Vonandi tekst flestum að njóta jólanna þó sumum finnist jólin ekki gæðahátíð. Jólin eru ekki allra og hefur ávallt verið þannig.
Jólin eru meira en að borða ákveðinn mat eða fá fjölda pakka. Aðalatriði jólanna er að finna frið með sjálfum sér og vera í návist fólks sé þess kostur. Messur eru víða um land fyrir þá sem þess óska. Friðsæl stund.
Kvennaríkið á stjórnarheimilinu sýnir okkur svo eftir áramót hvers við megum vænta. Byrjunin, þar sem Flokkur fólksins fer þvert á yfirlýsingar Eyjólfs um að Bókun 35 stangist á við stjórnarskránna byrjar ekki vel. Eyjólfur gaf út að hann muni samþykkja Bókun 35, sýnir okkur hve óútreiknanlegir stjórnmálamenn eru þegar ráðherrasæti og seta í ríkisstjórn er annars vegar. Fyrsta afsal þjóðarinnar til ESB. Allt selt þegar völdin eru annars vegar!
Kæru karlar og konur, piltar og stúlkur, sveinar og meyjar, snótir og drengir, langafar og langömmur, afar og ömmur, pabbar og mömmur, systur og bræður, gleðilega hátíð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.12.2024 | 09:47
Einelti, hér og þar!
Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu
segir í fyrirsögn á Vísi.is og er mál vararíkissaksóknara til umræðu. Það er þetta með löglega stjórnsýslu! Í skólakerfinu heitir það fagleg forysta. Þegar yfirmenn nota þetta viðgengst oft einelti af því menn horfa fram hjá hegðuninni en kalla það fagleg forysta.
Hversu margir kennarar haldið þið að hafi lent í einelti af hálfu skólastjórnenda, sem kallast fagleg forysta. Nokkuð margir að mati bloggara.
Þegar Helgi mætti til vinnu gerðist þetta ,,Honum var hins vegar ekki úthlutað neinum verkefnum..." Ef kennari lendir í einelti fær hann vissulega verkefni, þau sem hann hafði ekki óskað eftir. Kennari er settur í verkefni sem hann hvorki menntaði sig til eða er hæfastur til að gegna, þannig er faglegri forystur innan skólakerfisins beitt. Möguleiki á yfirvinnu tekin frá kennara og síðan hundsun. Oft taka kennarar skóla þátt í slíku og þá magnast vandinn. Reynt að gera kennaranum ómönuglegt fyrir.
Helgi er maður að meiri að opinbera eineltið sem Sigríður virðist leggja hann í. Kennarar aftur á móti, hrökklast úr starfi, annað hvort með starfslokasamning, veikindarétt eða bara sálar sinnar vegna.
Hér má lesa fréttina á Vísi. Hér má hlusta á Frosta, hann fjallar um málefni ríkissaksóknara.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)