31.8.2023 | 08:03
Unglingstúlkur á kynþroskaskeiði láta fjarlægja brjóstin
Í trans-umræðunni gleymist oft að ræða alvarlegu afleiðingarnar sem verða í kjölfar þess að unglingum finnst þeir vera hitt kynið. Í mörgum ef ekki flestum tilfellum er ákvörðunin tekin án þess að hugsa út í langtíma afleiðingar. Lyfjagjafirnar eru skaðræði eins og heyra má í þessu broti. Börn verða m.a. ófrjó.
Hér er mynd af tveimur útlenskum stúlkum sem auglýsa brjóstnám sitt. Margir gera þetta. Heyrst hefur að samfélagsmiðlar smiti ekki. Látið ekki blekkjast. Herferð á netinu sem fær ungt fólk víða um heim út í svona afdrifaríkar aðgerðir. Víða erlendis er þetta iðnaður, miklir peningar fyrir þá sem framkvæma brjóstnám á stúlkum sem telja sig vera stráka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2023 | 11:21
Tvöfalt siðgæði femínista
,,Berlinske skrifar um sænska femínistann Lindu Skugge sem er 49 ára gömul. Hún var afkastamikil í skrifum um kvenréttindi. Margir metrar í bókhillunum. Bækur hennar m.a. notaðar í kennslu. Auk þessa hefur mikið verið leitað til hennar sem álitsgjafa og í umræðum um málaflokkinn, skiptir þá engu hvers konar fjölmiðil er um ræða. Hún hefur verið skuggi kvenna í móral og talað til allra, hvort sem þeir vilja heyra álit hennar eða ekki.
Linda beitti nornaveiðum á 33 ára gamla söngkonu Pernilla Wahlgren sem lét mynda sig mjög léttklædd. Hún skrifaði m.a. um söngkonuna ,,Af hverju vill hún láta taka myndir af sér fyrir blað sem jaðrar við að séu klámmyndir. Það er synd að konur hafi svona lélega sjálfsmynd...Andskotinn, þú ert meira virði en þetta. Þú átt ekki að fara úr fötunum.
Svo bregðast krosstré sem önnur tré, téð Linda Kugge er komin á Onlyfans- greiðsluskylda síðu þar klámmyndir eru seldar og meira að segja hægt að selja notaðar nærbuxur til graðra karlmanna. Linda afsakar sig með að hún sé í peningaþörf. Hún var andvaka margar nætur og hugsaði þar sem hún hafði áhyggjur af að hún geta ekki búið í húnsæðinu. En nú, það eru svo margir karlkyns notendur á Onlyfans að hún þénar vel.
Linda ver ákvörðun sína með að hún berjist nú fyrir að konur geti gert það sem þær vilja með líkama sinni.
Hún á næstum met í tvöföldu siðgæði.
Sennilega hefur það verið henni mikilvægt að nota femínismann til að koma sér sjálfri á framfæri og gagnrýna aðra af krafti. Í raunveruleiknaum var hún ekki meiri femínisti en svo að hún þarf karlmenn til að nota sem tekjulind, þá gerir hún það."
Hér á landi sjáum við sama tvöfalda siðgæði femínista. Á einni síðu berjast þær gegn ofbeldi en þegar stúlkur eiga í hlut sem vilja ekki karlmann, sem skilgreinir sig sem konu (með allt undir sér enn), inn á einkasvæði sína þá skiptir það ofbeldi engu máli. Þegar konur berjast fyrir að orðum sem tengjast konu haldi sér í tungumálinu, þegja femínistar þunnu hljóði!
Hér má lesa færsluna á síðu Kønsdebat.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég var rétt svo sestur niður til að horfa á kvöldfréttirnar á föstudaginn í síðustu viku þegar mér barst neyðarkall. Í símanum var maður sem ég hafði aldrei hitt. Hann var í örvæntingu að leita að vettvangi fyrir samtök lesbía, homma og tvíkynhneigðra til að halda málþing sem fara átti fram daginn eftir.
Þetta var á hátindi hinsegindaga á Íslandi og höfðu samtökin leigt fundarsal Þjóðminjasafns Íslands undir málþingið. Nokkrum dögum fyrr hafði safnið skyndilega aflýst viðburðinum í kjölfar kvartana aðgerðasinna sem mótmæltu skoðunum samtakanna á réttindum transfólks.
Örvæntingarfull leit að nýjum stað skilaði árangri og skömmu áður en neyðarkallið barst hafði félagsfólk samtakanna verið önnum kafið við að koma búnaði sínum fyrir í reiðhöll í útjaðri Reykjavíkur. Rétt í þann mund sem allt var frágengið fengu þau skilaboð um að þau þyrftu að rýma húsnæðið og gætu ekki heldur haldið málþingið þar.
Erlendir fyrirlesarar voru komnir til landsins (þar á meðal prófessor í mannréttindarétti við Kings College í London), ný staðsetning hafði verið auglýst, veitingar undirbúnar. Nú voru samtökin í örvæntingu að leita að enn öðrum stað til að hittast morguninn eftir.
Stjórnmálaflokkurinn minn, Miðflokkurinn, er með sal sem hann leigir stundum út og þótt ég sinni yfirleitt ekki slíku sagði ég áhyggjufulla manninum í símanum að salurinn væri vissulega laus ef hægt væri að gera ráðstafanir með svo stuttum fyrirvara.
Seinna komst ég að því að um leið og staðsetningin hafði verið kynnt fékk flokkurinn okkar og margir flokksfélagar hrinu símtala frá aðgerðasinnum sem skipuðu okkur að hætta við viðburðinn (oft með litríku orðfæri). Þetta var ekki einu sinni okkar viðburður, við vorum bara að leigja út sal.
Hvað bjuggust þessir aðgerðarsinnar við að við gerðum? Meinuðum samtökum sem berjast fyrir réttindum samkynhneigðra að leigja húsnæðið? Slíkt hefði nánast örugglega verið ólöglegt og sennilega farið í bága við stjórnarskrá.
Hvernig komumst við á það stig að opinberum stofnunum og stjórnmálaflokkum er hótað fyrir að útvega aðstöðu til að halda fund til að ræða mannréttindamál? Hvers vegna töldu stærstu LGBTQIA+ samtök Íslands samtök sem þiggja umtalsverða ríkisstyrki og hafa fengið það hlutverk að fræða börn og veita ráðgjöf um stjórnarfrumvörp nauðsynlegt að reyna að koma í veg fyrir að samtök samkynhneigðra gætu fundað á Íslandi?
Ég var furðu lostinn og mér blöskraði óhróðurinn sem beint var að fólkinu sem hittist í fundarsal flokksins. Hvernig má það vera, að í viku ástar, umburðarlyndis og inngildingar sé hópur fólks sem fundar með mannréttindaprófessor kallaður haturshópur sem ætti hvergi að fá að koma saman?
Þegar ég spurði hvaða hatursorðræðu þessi hópur hefði ástundað, vildi enginn gefa mér nein sérstök dæmi. Sumir sögðu að þau væru andvíg transfólki, greinilega vegna þess að þessi hópur fólks hefur efasemdir um að rétt sé líffræðilegir karlar keppi í kvennaíþróttum, er andvígur því að ung börn séu frædd um kynlíf í smáatriðum og vill ekki kerfi þar sem foreldrar og læknar mega ekki spyrja spurninga um hvort barn eigi að skipta um kyn.
Þrátt fyrir undrun mína yfir þessari atburðarás var þetta ekki í fyrsta sinn sem ég varð ráðvilltur vegna þessara mála. Þegar stjórn Skoska þjóðarflokksins var að vinna að frumvörpum sínum um rétt fólks til að skilgreina eigið kyn eftir hentugleikum lögðu íslensk stjórnvöld fram frumvarp sem ætlað var að taka öllu öðru fram í þessum efnum. Þetta átti að gerast án nokkurrar umræðu um áhrifin á íþróttir kvenna, einkarými eða fangelsi.
Frumvarpið vakti mjög litla umræðu á Íslandi og það var einmitt það sem ríkisstjórnin vildi. Þingmenn hennar forðuðust að ræða málið fyrir utan stuttar yfirlýsingar til að minna fólk á að Ísland væri nú að verða heimsleiðtogi í mannréttindum.
Þegar ég og félagar í mínum flokki spurðum spurninga um leið og við lögðum áherslu á mikilvægi þess að vernda réttindi transfólks fengum við engin svör, aðeins óhróður.
En þetta var aðeins byrjunin. Síðan þá hafa stjórnvöld sett lög sem gera hefðbundnar skurðaðgerðir fyrir börn með fæðingargalla torveldari ef þeir gallar hafa eitthvað með æxlunarfæri að gera. Þetta er vegna þess að litið er á þessa galla sem framsetningu á kynvitund. Foreldrar á Íslandi eru farnir að fara með börn sín til annarra landa í aðgerðir sem áratugum saman töldust hefðbundnar og öruggar.
Við vorum ein um að gagnrýna þetta á þingi og aftur var okkur mætt með hæðni. En á sama tíma höfðu margir heilbrigðisstarfsmenn samband við okkur persónulega til að þakka okkur fyrir gagnrýnina, veita innsýn og útskýra hvers vegna þessar tillögur gengju ekki aðeins gegn heilbrigðri skynsemi heldur einnig gegn vísindum og læknisfræði. Enginn þeirra var þó tilbúinn að segja þetta opinberlega af ótta við að missa vinnuna eða skaða eigin framtíðarhorfur.
Rétt er þó að taka fram að fáeinir læknar sem tóku þátt í undirbúningi tillagnanna náðu að tryggja tímabundnar undanþágur. En þessar undanþágur á síðar að endurmeta og það á að fela aðgerðarsinnunum sem voru á móti þeim. Reyndar eru allar tillögur ríkisstjórnarinnar á þessu sviði nú í vinnslu og verkið er unnið af aðgerðasinnum.
Ríkisstjórnin hefur þegar tekið að eyða orðunum kona og móðir úr frumvörpum sínum. Í stað þeirra koma orðin leghafi og barnshafandi foreldri.
Hvernig komst ég í þessa stöðu, að þurfa að eyða tíma mínum í að biðjast afsökunar á hollustu minni við tjáningarfrelsið og vekja athygli á því sem ég býst við að við gætum nú kallað almennu raunveruleikakenninguna? Hvað sem öðru líður er ég ávallt tilbúinn til að hlusta. Góður vinur minn, sem er betur innvígður í þennan nútímaheim en ég, hefur boðist til að gefa mér frekari innsýn í þessi mál. Ég er þakklátur fyrir það, vegna þess að ef stjórnmálamaður á að hafa einhver gildi í heiðri hlýtur það að vera virðingin fyrir frelsinu til tjáningar og umræðu.
Ég er bara náungi sem hóf þátttöku í stjórnmálum til að vinna að skynsamlegri miðjupólitík, sem vill að allir séu jafnir fyrir lögunum og leggur áherslu á efnahagsmál, húsnæðismál og bætt lífskjör fólks. Í stjórnmálaumhverfi nútímans virðist skyndilega heimilt að ásaka fólk um ofstæki fyrir að orða eitthvað sem allir vissu þar til fyrir örfáum árum síðan.
Greinin birtist í The Spectator 26. ágúst 2023. Greinin birtist á íslensku í Krossgötum. Endurrituð á bloggsíðuna.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er höfundur greinarinnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2023 | 13:59
Trans aðgerðasinnar láta samkynhneigt fólk ekki í friði
Kemur ábyggilega mörgum á óvart að transfólki skuli uppsigað við samkynhneigt fólk en þannig er það. Hér á landi eru það meðlimir trans Samtakanna 78 sem gera allt sem í þeirra valdi stendur til að trufla, sverta og tala Samtökin 22 niður.
Hinsegin spjallið er upptekið af Samtökunum 22. Bendir til að þau samtök geri eitthvað rétt. Eitthvað sem transaðgerðasinnar eru á móti. Sigurður Júlíus Guðmundsson segist lítast vel á hugmyndina að yfirtaka Samtökin 22. Hafdís Erla stingur upp á því. Sigrún Ísleifsdóttir kemur svo með einhvern kjánaskap í sinni athugasemd. Áður hafði Ugla Kristjönudóttir svarað Sigurði um svipað málefni. Þetta liggur þungt á þeim að fólk sem telur sig ekki eiga samleið með þeim vilji vera á öðrum vettvangi.
Hvers vegna, af hverju mega samkynhneigðir ekki vera í eigin félagsskap án aðkomu trans-fólks.
Baráttumál Samtaka 22 skarast við Samtökin 78. Þau fyrrnefndu segja að líffræðileg kynin séu tvö. Vísindalega sannað og enginn þarf að efast um það. Félagsmenn Samtaka 22 segja líka að enginn geti fæðst í röngum líkama. Rétt enginn möguleiki á því. Banna eigi lyfjagjafir og skurðaaðgerðir í tengslum við að þau börn upplifa sig sem hitt kynið (gerist í heilanum, ekki líkamanum). Gáfulegt, það á enginn að leggja slíka tilraunastarfssemi á börn en því eru félagsmenn Samtaka 78 ekki sammála. Hugmyndafræði og lífsskoðun Samtaka 78 er ekki allra og það ber að virða.
Hormóalyfjagjöfum barna hefur að mestu verið hætt á Norðurlöndunum, það er vel.
Lengi hefur okkur verið talin trú um að transfólki líði illa og vilji bara falla inn í samfélagið. En öldin er önnur. Transfólk víða um heim og hér á landi hafa vaðið upp með dólg. Lesbíur í Þýskalandi gátu ekki fundað nema með lögregluvernd, trans-aðgerðasinnar sáu til þess. Hér á landi reyndi transgengið að koma í veg fyrir málþing samkynhneigðra. Konur geta ekki fundað án ofbeldis frá trans-aðgerðasinnum. Foreldrar sem hafna málflutningi trans-hreyfingarinnar verða fyrir ofbeldi.
Hvað gengur þessu fólki til?
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifaði grein í Spectator vegna ofbeldis trans-aðgerðasinna, í greininni stendur sem er á ensku:
"I later found out that as soon as our venue had been listed, our political party and many of our members had been bombarded with calls from activists telling us to cancel the event (often with colourful language). This wasn´t even our event, we were just renting out a venue.
What did these activists expect us to do, ban an organisation fighting for the rights of homosexuals from renting the premises? Such a course of action would almost certainly have been illegal and probably unconstitutional."
Já staðreyndin er að flokksfólk Miðflokksins fékk ekki að vera í friði af því SAMKYNHNEIGÐIR héldu málþing. Trans-gengið sem ég vel að kalla svo var önnum kafið, það er ljóst. Þeim líkar illa að samkynhneigt fólk haldi saman.
Bloggar | Breytt 29.8.2023 kl. 07:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2023 | 08:37
Börnin notuð í gleðigöngu
Í gleði transhreyfingarinnar í Kaupmannahöfn sem endar með gleðigöngu líkt og hér eru börn í sviðsljósinu.
Börnin eru sett fremst í gönguna sem er birtingarmynd þess hvernig woke menning virkar. Hún virkar eins og hver önnur alheimshugmyndafræðileg hreyfing, fyllir fjölda af hugmyndum og lætur sig dreyma um félagslegt umrót. Þetta skrifar Marie Høgh í Jótlandspóstinn. Lausleg þýðing er mín.
Jafnréttisráðherra Dana Marie Bjerra (V) finnst mjög jákvætt að fylkingin með börn í fararbroddi bakki upp svokölluð öðruvísi fjölskylduform. Að sjálfsögðu eiga börn sem búa í ólíkum fjölskylduformum að hafa góð uppeldisskilyrði þegar þau fæðast, en þetta fjallar ekki um þarfir barnanna.
Áður en fólk þrammar í gleðigöngu án þess að hugsa út í af hverju það er gert þarf hver heilvita maður að kanna af alvöru í út á hvað tans-hugmyndafræðin gengur.
Hér er ekki um að ræða lífleg hátíðarhöld kynferðislega minnihlutans eins og var og rétt þeirra til virðingar, heldur hefur undanfarin ár orðið hugmyndafræðileg og félagsleg bylting sem kallar fram rétta lífsskoðun og sérstaklega til að göfga sýn mannkynsins.
Eins og fram kemur á heimasíðu samtakana líta þau á kyn og skynjun á kynhneigð sem félagslega byggingu og játa að nýfemínistinn sé hluti af hugmyndafræðilegum gildum LGBT+, þaðan er hugmyndin um sjálfvalið kyn, kynskiptingu barna og hinsegin kynhneigð barna upprunnin.
Það er ekki hugmyndafræði að vera hommi, lesbía, trans eða tvíkynja en hugmyndafræðin er að það finnist ekki bara tvö kyn, heldur mörg og að kyn sé félagslegt. LGBT+ Danmörk berst ekki fyrir fullri viðurkenningu minnihlutahópanna heldur umbreytingu samfélagsins með breyttu tungumáli, nýrri skilgreiningu á sjálfinu og heiminum.
Við stöndum frammi fyrir hugmyndafræði sem með hugsjón að marxísku stéttlausu samfélagi vill eyðileggja siðmenninguna eins og við þekkjum hana. Hugmyndafræðin vill byggja upp samfélag sem leysir upp kyn og sjálfsmynd sem guðslaus sjálfsköpun ber með sér.
Kannski sá líftæknirisinn Chr. Hansen skrifin þeirra þegar fyrirtækið ákvað að hætta stuðningi til ,,Pride" gleðinnar í Kaupamannahöfn. Við ættum að taka fyrirtækið til fyrirmyndar og styðja í stað Danska Regnbogaráðið sem hugnast ekki þessi hugmyndafræði. Regnbogaráðið segir kynin tvö og að til séu ýmsar kynhneigðir, berjast fyrir að vísindaleg þekking og skynsemi ráði för. Þeir berjast líka gegn kynskiptingu barna. Ég dáist að hugrekki þeirra.
Allir samstarfsaðilar og velunnarar ,,Pride" í Kaupmannahöfn ættu að vega og meta í hvað stuðningur þeirra fer og fjölmiðlar ættu að endurskoða gagnrýnislaust nálgun og stolt LGBT+ Danmörk. Þegar öllu er á botninn hvolft eru stjórnendur hinsegin hugmyndafræðinnar ekki þeir fyrstu, í sögu heimsins, sem hafa farið í glæsilegar skrúðgöngur með börn til skrauts. Maður hlýtur að hafa lært að við eigum ekki bara þramma, án þess að hugsa okkur um.
Ísland
Rétt eins og í Danmörku hefur hinsegin samfélagið hér á landi beitt börnum og unglingum í baráttu sinni. Það má sjá í fjölmiðlum og sjónvarpi sem hoppa á hugmyndafræði trans-samfélagsins gagnrýnislaust. Það ljótasta sem nokkur hreyfing gerir er að beita börnum til að ná athygli fyrir hugmyndafræði sinni, nema markmiðið sé að ná í börn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2023 | 08:29
Greinin ógurlega sem segir sannleikann
Grein eftir mig birtist á vordögum. Olli miklu fjaðrafoki án þess að nokkur svarið henni efnislega. Nornaveiðar, m.a. meðal kennara. Greinin varð til þess að lögfræðingur skrifaði grein.
Í greininni ógurlegu segir m.a. ,,Hef lesið að Samtökin 78 bendi á að hormónablokkandi lyf séu nánast skaðlaus, þvert á vitneskju sérfræðinga sem hafa hver á fætur öðrum stigið fram. Framkvæmdastjóri Samtakanna 78 skrifaði það í grein sem Vísir.is birti. Hormónablokkandi lyf hafa verulegar afleiðingar fyrir börn, skemma þau til lífstíðar. Með málflutningi sínum finnst mér allt benda til að Samtökin gerist brotleg við ... stefnir heilsu barnsins og þroska í hættu boði þau þennan boðskap í fræðslu sinni til skólabarna." Fékk víða bágt fyrir þessi orð mín, m.a. frá stjórn Kennarasambands Íslands með forkólfinn Magnús Þór Jónsson í fararbroddi.
Í ljósi þess að læknar víða um heim hafa hætt notkun hormóna- og krosshormónalyfja á börn verða Samtökin 78 að senda frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Biðjast afsökunar á fáfræði sínu og rangfærslum. Skemmdir á börnum vegna lyfjagjafanna hefur lengi legið fyrir.
Danskir læknar hafa gefið út skýrslu um notkun lyfjanna en meðferðin er ekki gagnreynd og hefur aldrei verið. Lyfjameðferð veldur meiri skaða en hún gagnast. Enginn tilgangur með slíkri meðferð. Þessar tilraunameðferðir á börnum eru til skammar. Skoða má hér.
Allar norðurlandaþjóðirnar hafa tekið sig saman í andlitinu til að vernda börnin. Lögð er áhersla á gagnreyndar meðferðir, samtalsmeðferðir hjá sálfræðingum verði í boði. Við eigum langt í land með að ná því hér á landi. Í Noregi tóku yfirvöld lækningaleyfi af trans-lækninum Esben Esther Pirelli Benestad, hann virti ekki mörk og hann skaðaði börn án umhugsunar. Andstæðingar hormónalyfjagjafa og skurðaðgerða á börn fögnuðu, skiljanlega.
Þingmenn hér á landi samþykktu bælingarfrumvarp á vorþingi. Í frumvarpinu kemur skýrt fram að lyfjameðferð er bönnuð þar sem meðferðin er ekki gagnreynd. Lögin taka gildi 1. janúar 2024. Í lögunum segir að kæra megi þann sem beitir ógagnreyndum meðferðum. Ljóst að læknar hér á landi eiga yfir höfði sér kæru ef þeir nota hormóna-og krosshormóalyf á börn. Þeir sem vilja vernda börn frá því að skemma líkama sinn á unglingsárum, og gera sig ófrjóa, fögnum því.
Þingmenn tóku fram fyrir hendur foreldra sem halda að það sé barninu fyrir bestu að skemma líkama þeirra. Þetta foreldri fór flatt á því. Vill eitthvert foreldri að barnið sitt gangi í gegnum slíka meðferð, mér er spurn.
Nú þurfa þessar þjóðir að vinna markvisst að fella lögin um kynrænt sjálfræði úr gildi svo stúlkur og konur endurheimti réttindi sem þær hafa barist fyrir undanfarna áratugi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2023 | 08:59
Áróðurinn að trans-kona sé kona er lygi
Hreyfingin heldur fram að ,,trans-konur séu konur og hefur gert orðið kona að engu.
Það þykir mjög umdeilt að spyrja ,,Hvað er kona?" og það í fyrsta skipti í sögunni.
,,Þetta er hreyfing sem eyðileggur tilfinningu okkar fyrir raunveruleikanum, tungumálinu og getur til að segja sannleikann. Þetta kemur fram í skrifunum hér.
,,Konur eru fullorðnar konur. Karlmenn eru fullorðnir mennskir karlmenn."
,,Stelpa sem hefur gaman af íþróttum, er með stutt hár og finnst gaman að leika sér á vörubílum, hún er samt stelpa."
,,Strákur getur klæðst bleiku og verið með sítt hár og leikið sér með dúkkur, hann er samt strákur.
,,Láttu engan segja þér að þessi orð séu ,,hatursorðræða.
,,Láttu engan segja þér að konur sem tala opinberlega um rétt sinn og raunverulegar hættur séu ofbeldisfullar eða stundi hatursglæpi.
,,Við búum í lýðræðissamfélagi, frjálsu samfélagi. Við eigum rétt til málfrelsis. Við erum helmingur þjóðarinnar og munum ekki þurrkast út. Við munum ekki þegja þegar við vitum að við segjum sannleikann og að allt sem barist var fyrir glatist.
Færslan er þýdd frá snjáldurvinkonu minn Søs.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2023 | 09:56
Danir pynta enn börn í nafni hinsegin mennskunar
Snjáldurvinur minn Ulf skrifaði á vegginn sinn að ,,352 börnum væri vísað í meðferð vegna kynama árið 2022. Aðeins 22 voru send áfram á kynskiptistofu. Aðeins 7 fengu hormónameðferð.
Heilbrigðisráðherra finnst það jákvætt að aðeins 2% af þeim sem vísað var í hormónameðferð fá hana.
Mér finnst það enn of mörg ung börn.
Svo skil ég ekki að kynskiptistofan hefur upplýst að 22 börn fengu hormónameðferð þegar ráðherrann segir 7?
En það jákvæða er að kynstofan gefur ekki lengur 65% af þeim sem koma til þeirra hormóna eins og var í 2018, sem var toppurinn.
Í fréttaskoti sem Frosti Logason sýnir í spjallinu sínu hér, er frétt frá Ruv frá 2021 þar sem segir að 42 börn séu í meðferð hjá transteymi BUGL og tvö bæst við á þessu ári. Rúmlega 80 börn hafa farið í gegnum meðferð undanfarin 10 ár. Eins og í útlöndum, stelpur í meirihluta eða 75% af þeim sem fara í meðferð. Aðrir andlegir kvillar hrjá flest börnin sem fá meðferð á kynþroskaskeiðinu. Það segir í frétt Ruv og passar við það sem útlenskir sérfræðingar segja. Einhverfa er áberandi.
Danir hafa barist fyrir að börn fái greiningu og aðstoð við andlegum kvillunum sem hrjá þau áður en farið þau stökkva á trans-vagninn. Dropinn holar steininn og hefur umræðan þar í landi bjargað mörgum börnum frá skemmdum á líkama sínum. Vonum að sama þróun eiga sér stað hér á landi. Barn sem fer í hormónameðferð getur vænst þessa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2023 | 15:41
Hinsegin fólk bullar um blæðingar
Hafið þið heyrt að tunglið sé ferkantað? Hafið þið heyrt að Noregur tilheyri Afríku? Hafið þið heyrt að Katrín Jak. sé forsætisráðherra Sýrlands?
Ef ekki þá dettur engum manni í hug að fara með slíka þvælu. Það vita allir að þetta er ekki rétt.
Mönnum dettur hins vegar hug í nafni ,,hinsegin mennskunnar að karlmenn hafi á klæðum. Hverjum dettur í hug að ljúga að fólki. Karlmaður, þó hann skilgreini sig sem konu, fer ekki á túr. Af hverju er eftirsóknarvert að ljúga til um það!
Fólk verður að vakna. Fólk verður að reka svona þvælu ofan í þá sem segja hana. Sannleikanum verður ekki breytt þó hann særi fáeinar hræður.
Fari trans-karl á túr er það af því hann er líffræðileg kona, með XX litninga, eggjastokka og leg. Framleiðir egg. Þess vegna fer trans-karl á túr, ekki af því hann er karlmaður.
Konur hafa fengið nóg af þessu bulli og þvælu, að annað líffræðilegt kyn en þær hafi á klæðum og eignist börn.
Látið engann segja ykkur né börnum ykkar annað! Haldið ykkur við staðreyndir.
Hér má sjá hugleiðingu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2023 | 07:13
Konur eru bandamenn transkvenna sem virða réttindi kvenna
Í viðtali segir Kellie- Jay Keen hvað hún berst fyrir. Samantektina getur þú lesið hér segir Lotte Ingerslev sem bloggaði um málið. Lausleg þýðing er mín.
Konur mega ekki missa þau réttindi sem þær hafa barist fyrir- t.d. að rými sem eru eingöngu fyrir konur, og orð, sem maður notar um konur.
Það á ekki að gera börn ófrjó og við þurfum að íhuga hvort kynskiptimeðferð eigi að vera í boði.
Við eigum ekki að styðja ósannindi. Við höfum skyldu til að hjálpa fólki í vanda að skilja að það er í sínum líkama. Það er ekki val, við erum manneskjur. Við sleppum ekki frá líkama okkar. Við erum líkaminn. Þess vegna tel ég að það myndi gagnlegra og heilbrigðara að hjálpa fólki að viðurkenna líkama sinn.
Með öllum ráðum eigum við að gera þeim erfitt fyrir að taka svo afdrifaríkar ákvarðanir sem eru yngri en 25 ára, og valda skaða á líkamanum.
Svo myndi ég vilja taka út lög um kynrænt sjálfræði. Við eigum ekki að hafa lögfræðileg töfrabrögð.
Verulega umburðarlynt samfélag myndi segja ,,Ef John vill heita Janet og hann óskar að lifa friðsömu lífi þar sem hann angrar ekki aðra og fer ekki inn í rými sem ætluð eru konum og hann þvingar annað fólk ekki að viðurkenna að þeir sjái hann sem karlmann en sem konu, þá leyfum við það.
Við þurfum aftur á þann stað þar sem konur segja ,,Kona er fullorðin manneskja af kvenkyni án þess að óttast að vera refsað fyrir það á einn eða annan hátt.
Þetta frábæra viðtal getur þú hlustað á hér.
Skrif Lotte getur þú séð hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)