21.8.2023 | 07:12
Er Norræna húsið menningarhús eða klámbúlla fyrir börn
Þetta er fyrirsögn greinar sem Heidi M. Johansen skrifar og birtist í fjölmiðli í Færeyjum.
Þú sem foreldri veist að þú myndir gera hvað sem er til að bjarga börnunum þínum frá hörmungum. Þú myndir vaða eld fyrir börnin. Þú veist líka hvenær einhver vill börnunum eitthvað illt. Sem dæmi: Þú ert í afmælisveislu, inn kemur karlmaður, er ónærgætinn og nálgast dóttur þín á óviðeigandi hátt.
Andaðu rólega. Þú reiðist. Hvað ertu að gera segir þú og tekur dóttur þína frá honum og hringir í lögreglu. Þú verndar barnið og öll börnin í afmælinu. Það er í eðli foreldra að vilja vernda börn sín í öllum aðstæðum. Þannig líður mér ekki í augnablikinu og þess vegna skrifa ég greinina.
Enn einn áfalladagur. Norræna húsið auglýsti á vefsíðu sinni að þeir ætli að hafa ,,dragsögustund.
Höfum við í Færeyjum misst vitið? Sjáum við ekki mun á því sem er eðlilegt og óeðlilegt? Þetta er nákvæmlega það sem Bandaríkjamenn hafa gert.
Fullorðnir menn klæddir sem dragdrottningar, voru ekki í nærbuxum og flögguðu því framan í börn. Hvort sem þeir eru í nærbuxum eða ekki þá er þetta óboðlegt. Ekki nóg með þetta heldur hefur norræna húsið eytt heilli helgi í hinsegin hreyfinguna, sýna óviðeigandi myndir og tala fyrir kynskiptiaðgerðum. Mér dettur í hug hvort þau hafi verið frek og sent boðskort í skólana.
Af hverju ættum við að herma eftir öðrum og gera sömu mistökin. Norræna húsið hoppaði á sama vagn til að þóknast LGBT hreyfingunni. Þeir vildu ekki mótmæla, vilja ekki hanga í snörunni.
Þeir leyfa öllum að skipta um kyn. Allt niður í smábörn (sem geta ekki keyrt bíl, mega ekki kaupa alkahól en þau mega skipta um kyn...halló!!)
Þeim er vandi á höndum, nú eiga smástelpur og mæður að vera í einkarýmum með karlmönnum sem hafa ,,breytt kyni. Stelpur að keppa á móti körlum í íþróttum, þær munu alltaf tapa, karlar hlaupa hraðar og eru sterkari. Þannig er það, ekki til að gera lítið úr konum heldur er þetta eðlismunur á kynjunum.
Viltu virkilega búa í landi þar sem börn þín og barnabörn eru útsett fyrir slíkt. Við verðum að halda okkur við staðreyndir, dregur er drengur. Við megum ekki kasta börnum okkar í illsku kynlífsins. Við erum fullorðið fólk og vitum að táningsárin geta verið erfið og tilfinningar í rugli. Það á ekki að leyfa breytingar á kyni i Færeyjum.
Ef við sættum okkur við svona viðburði þá líkist norræna húsið klámbúllu fyrir börn ekki menningarhúsi.
Ég mótmæli harðlega þessari starfssemi sem er auglýst er fyrir börn þessa lands.
Greinina má sjá hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2023 | 09:58
Forboðni ávöxurinn samkvæmt trans-genginu
er aðgengilegur á netinu.
Formaður Samtaka 22 hélt erindið Samfélagsmiðlar. Hvað gerðist? Hvert eru við komin. Sjá hér.
Þetta er áhugaverður fyrirlestur um söguna, þróunina og hvað er gert í dag. Mjög upplýsandi. Hann talar um áhrif samfélagsmiðla og hvernig þeir hafa áhrif.
Tonje Gjevjons er norsk lesbía og listamaður. Hún fer yfir skoðun sína á í transmálaflokknum og sérstaklega í tengslum við lesbíur. Hún bendir á hótanir sem lesbíur hafa mátt þola, haturspósta og fleira. Tonje talar um að réttur lesbía til að hittast og njóta samvista hvor við aðra er nánast úr sögunni. Tonje sagði frá kærunni sem hún fékk á sig og hvernig vannst úr henni. Hlustið hér.
Átakanlegt að heyra hvernig maki hennar leið fyrir baráttu hennar, allt trans-gengjum að þakka.
Síðasti fyrirlesturinn kemur inn síðar. Hvet fólk til að hlusta og fræðast.
Einn úr trans- genginu rökstyður af hverju stöðva átti málþingið.
Logn Yndu:
Mér finnst mjög skrítið að leggja til að við eigum öll bara að samþykkja að hættulegir fasistar séu að koma til landsins og við eigum bara að leifa þeim að koma og gera sitt í friði. Ég skil að þú hefur áhyggjur vegna ástandinu í uk en það er ekki alveg hægt að bera saman samfélagsandan í UK og á Íslandi.
Afhverju hvetur þú fólk að hafa ekki samband við staðinn og setja pressu á þau að úhýsa þessa samkomu? Það er hættulegra að leifa þeim að hittast og gera sitt movement sterkara hér á landi heldur enn að stöðva viðburðinn frá því að gerast.
Þau eiga skilið að vera 5 í litlu húsasundi röflandi sín á milli. Þau eiga ekki að fá virðingu frá okkur.
Fjölmiðlar munu fjalla um þetta ef þau vilja, sama hvað við gerum.
Hvað er hættulegt við að fólk hittist til að fjalla um málefni samkynhneigðra, samfélagsmiðla og mannréttindi, svari hver fyrir sig. Trans-gengið hefur svarað, sjá hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2023 | 08:42
Felix Bergssyni finnst að ungar súlkur og konur eigi að afklæðast í klefa með karlmönnum
sem skilgreina sig sem konur. Að þeim forspurðum. Konur og stúlkur hafa ekki val eftir að lög um kynrænt sjálfræði var staðfest. Þingmenn sem samþykktu lögin eiga líka sök.
Ég túlka áróðursspjall Felix ekki á annan hátt. Felix er með áróðursspjall í gangi vegna bakslags hinsegin barátturnar sem ákveðið fólk talar um. Fyrir mér er þetta ekki bakslag. Ég sé lýðinn rumska og sér í alvöru hvað er í gangi.
Barátta XX-kvenna svaraði Felix það má sjá hér.
Bakslagsbaráttan tekur á sig ýmsar myndir. Sjáið hér.
Spjall við konu sem lýsir baráttu kvenna, hægt að sjá hér. Þetta kalla trans-aðgerðasinnar bakslag.
Spjall við trans-mann í Danaveldi segir allt sem segja þar. Sjá hér. Hann segir nkl. það sem margir vilja sagt hafa en þora ekki út af genginu sem er á myndinni hér að neðan, ásamt fleirum. Trans-gengi Íslendinga.
Að Felix Bergsson sé svona illa að sér um málaflokkinn er áhyggjuefni þar sem hann velur að tjá sig. Hann ætti að hlusta á blaðamanninn sem kafaði ofan í málið og skoðaði hvernig samfélagsmiðlar hafa áhrif og á hvern.
Sá áróður sem fer fram í leik- og grunnskólum fyrir trans-málefnum er áhrifavaldur. Margir kennarar hafa áróðursfánann í kennslustofu og leggja sitt á vogarskálarnar. Víða um land má sjá þennan einfalda en klárlega áróður í formi fána eða málaðar götur og gangstéttir. Fjölmiðlar hafa stundað áróður með einhliða málflutningi. Lygina má segja svo oft að hún verður að sannleik, lesið hér.
Felix Bergsson hefur á leikaraferli sínum höfðað til barna, nú rekur áróður. Fórnar stúlkum fyrir karla sem vilja vera kona og öfugt. Meira að segja hefur Felix sýnt andúð sína á samkynhneigðum sem fylgja honum ekki að máli.
Trans-gengið í allri sinni dýrð!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2023 | 10:58
Felix þú ert ekki svona vitlaus!
Það hefur sannast fyrir áratugum síðan að börn eru áhrifagjörn og börnum sem líður illa leita sérstaklega allra leiða til að láta sér líða betur og þegar þau sjá alla aðdáunina, stuðninginn og æðið í kringum aðra transmanneskjur þá að sjálfsögðu langar þeim líka í þetta, ekki styðjið þið börnin svona þegar þau eru bara þau sem þau eru þegar þau fæddust, fullt af börnum lögð í einelti, fullt af börnum sem passa ekki inn, börn sem eru misnotuð, beitt ofbeldi, eru þunglynd, kvíðin og hrædd þið mætið ekki svona í kringum þau og klappið allt upp sem þau gera svo að sjálfsögðu leita sum þeirra í þetta og halda að þetta sé málið, að þegar þau reyni að breyta um kyn þá muni allir styðja þau. Það þarf ekki annað en að skoða tiktok til að sjá stuðningin og aðdáunina sem einstaklingar fá sem kalla sig trans, eina sem gerir þau öðruvísi en hin börnin er að þau er er að fylgja tískubólunni sem er búið að heilaþvo börnin með að öll transbörn eigi skilið skilyrðislausan stuðning meðan hin sita enn ein útí horni þar sem öllum er sama um þau.
Þú hefur gott af því að horfa á reynslusögu þessarar stelpu.
Og þessarar hérna sem komst ekki að því fyrr en of seint að hún var í raun og veru lesbía ekki strákur.
Krakkar fæðast ekki öll með þá vitneskju að þau séu samkynhneigð, þau fara oft í gegnum mörg skeið áður en þau sættast við það að vera samkynhneigð nema núna eru þessi skeið meitluð í stein og þau sita uppi með varanlegan skaða!
Engar stelpur vildu breyta um kyn eða voru trans áður en þetta komst í tísku í dag hefur orðið 4000% prósenta aukning og út af fólki eins og þér er verið að bregðast þessum stúlkum sem eru í flestum tilfellum að díla við allt aðra fylgikvilla en halda að breyta sér í strák muni breyta öllu.
Farðu að vakna maður og hættu að mála þig svona fáfróðan, það er ekkert líkt með baráttu samkynhneigðra og trans.
Transfólk og sérstaklega trans-konur eru með yfirgang og eru að hirða réttindi af konum, þær eru búnar að fara fram á að konur mega ekki lengur skilgreina hvað konur eru, konur mega ekki kallast því sem þær eru heldur er búið að troða forljótum forskeyti við Cis- sem var bara fundið upp til að láta trans líða betur með sjálfa sig.
Konur eru konur og ekkert annað, þær þurfa ekki forskeyti og konur mega setja mörk, ég veit að það er þér sem karlmanni erfitt að skilja en þær mega það og þær mega segja NEI við alla sem eru með typpi sama hvaða nafni þeir kallast. Það sem þú ert núna að gera er að drulla yfir konur og gefa í skyn að þegar þær vilji setja mörk þá séu þær haturfullar, hver er það sem er með hatrið núna? Ert það ekki þú og hinir sem haga sér eins og þú?
Lesbíur eru EKKI með typpi og typpi geta ALDREI kallað sig lesbíur eða ertu búin að endurskilgreina hvað samkynhneigð er? Snérist það kannski aldrei um að laðast að sama kyni? Ert þú kannski til í að vera með píku í dag? Er það það sem þú ert að segja að hommar laðist líka að píkum?
Það er ótrúlegt hvað þú og fleiri getið gengið langt í þessu og út af ykkur er þetta bakslag í baráttu transfólks, það voru engin vandræði fyrr en farið var að krefjast alls konar af konum til að búa til pláss fyrir karla sem halda að þeir séu konur, og það er alltaf gengið lengra og lengra, fyrst áttum við bara að samþykkja trans-konur sem höfðu farið í aðgerð á alla staði sem við erum, svo bara kemur í ljós að fæstar af þeim ætla sér í þessa aðgerð og ætla bara að vera með sín karlmannskynfæri og þá eigum við bara að halda kjafti og samþykkja manneskjur með typpi þar sem við erum berskjaldaðar, skítt með alla þolendur kynferðisofbeldis af völdum karla, af völdum typpa þær konur þurfa bara að læra að þegja og sætta sig við að typpin ráða öllu.
Transsexual eru trans-konur heyrðist einu sinni, svo var það trans-konur eru konur, og konur eru cis-konur!
Þetta er svo manipulative. Sem betur fer finnast enn trans-konur af gamla skólanum sem hafa engan áhuga að yfirtaka allt sem konur standa fyrir, sem kalla sig ekki konur, sem kalla sig transsexuals og sem standa með konum í þeirra baráttu.
Þú ert partur af vandamálinu sem og Rúv sem virðist vera útibú fyrir samtökin 78 og fjalla bara um hlið þeirra, þau virðast hafa gleymt því að konur eru helmingur þjóðarinnar og helmingur þeirra sem borga fyrir Rúv.
Hér er flott grein fyrir að kynna þér til að sýna þér og hinum sem eru með stöðugan hatursáróður gagnvart konum um hvað er að þessari hugmyndafræði.
Þetta er svar hópsins Barátta XX-kvenna fyrir öryggi við orðum Felix Bergssonar. Birtist í athugasemdakerfi Ruv og á snjáldursíðu hópsins. Felix vill heimila andlegt ofbeldi á ungum stúlkum sem þurfa að afklæðast í einkarýmum kvenna með karlmönnum sem skilgreina sig sem konur og eru með karlkyns kynfæri. Pössum börnin okkar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.8.2023 | 08:10
Stúlkur eiga að fá sálfræðihjálp
Þær eiga að læra að afklæðast með karlmönnum
Það á að heilaþvo þær
Það á ekki að horfa né hlusta á vanlíðan þeirra
Já stúlkur líða- víða um heim
Stelpurnar er vandmálið
Karlmenn fá að gera það sem þeir vilja gagnvart stúlkum
Stjórnmálamenn hafa brugðist stúlkum
Horfið á þetta. Hér segir stúlka frá.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2023 | 07:26
Trans-fólk sem hatar samkynhneigða
Hatrið kom berlega í ljós þegar halda átti málþingi 12. ágúst s.l. Trans-fólkið, fæddir karlmenn, gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir að hommar og lesbíur ásamt öðru áhugafólki um réttindamál þeirra yrðu rædd. Af hverju trans-fólki er uppsigað við samkynhneigða er stór spurning. Það virðist líka óttist málflutning annarra en viðhlæjenda.
Fréttin sagði frá þessu og líka að Miðflokkurinn hefði skotið skjólshúsi yfir málþingið þegar ríkisstofnanir létu trans-fólkið kúga sig til hlýðni. Hinsegin samfélagið lagðist á eitt til að eyðileggja fyrir samkynhneigðu fólki.
Hvort þetta fólk sé skarpasti hnífurinn í skúffunni skal ósagt látið en annar þeirra skrifar:
Ugla Stefanía Kristjönudóttir skrifar:
Þið hafið eflaust mörg séð að ákveðin samtök hyggjast halda eitthvert anti-trans málþing á Hinsegin dögum í miðborg Reykjavíkur, og hafa boðið nokkrum vel þekktum anti-trans aktivístum, m.a. frá Bretlandi.
Ég mæli endregið með því að fólk hundsi þessa samkomu algjörlega, og hvet eindregið gegn því að fólk fari og mótmæli eða reyni að hafa samband við staðinn sem þetta er haldið á til að fá þau til að hætta við. Slíkt mun eingöngu verða vopn í þeirra höndum, og vekja frekari athygli á þeirra málstað.
Auðvitað eru svona samkomur í eðli sínu fordómafullar og skil ég því vel að fólk vilji mótmæla eða reyna að fá þeim til að vera aflýst - enda full ástæða til. Þetta er auðvitað óþolandi og á ekki að líðast.
Hinn lítt skárri segir:
Ormur Guðjóns skrifar:
Mér finnst merkilegt að þessi mannvitsbrekka sem Eldur er dettur ekki í hug að samkynhneigt trans fólk sé til.
Ég er hrifinn af karlmönnum, hef alltaf verið hrifinn af karlmönnum, og ég er sjálfur trans karlmaður. Er þá hér verið að bæla mína gagnkynhneigð?
Svo náttúrulega þekki ég fleira trans fólk en hann og ég myndi segja í grófu áliti að flest trans fólk sem ég þekki er tví eða pankynhneigt. Hvernig er verið að bæla þeirra kynhneigðir?
Það kemur mér ekki á óvart að Frosti bjóði þessu smámælta smáhuga smámenni í þáttinn hjá sér, enda er Frosti prinsipplaus grifter sem gerir bara það sem hann veit mun koma aur í vasa sína.
Samtökin 78 hafa ekki tekið afstöðu gegn verknaði þeirra og hvað þá að forsvarsmenn þeirra vildu svara hvaða hatursorðum væri verið að andmæla með þessum gjörningi. Blaðamaður Fréttarinnar heyrði í þeim.
Hér má sjá mynd af trans-fólkinu, fylgir fréttinni. Fæddir karlmenn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.8.2023 | 17:53
Engin prýði af þessu
eins og sjá má hér og ekki síður hér. Veit ekki alveg hvað er í gangi með fólk.
Ást, umburðarlyndi, virðing...hvert fór það allt saman.
![]() |
Skoluðu transfánann af götunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2023 | 07:37
Grunnskólakennari meðal þeirra sem börðust gegn málþingi
Detta allar dauðar lýs úr höfði mér. Grunnskólakennari sem boðar ást, umburðarlyndi og guð má vita hvað er meðal hatrömmustu andstæðinga samkynhneigðra. Fréttin segir frá. Mér sýnist þetta allt vera karlmenn sem skilgreina sig sem konu.
,,Arna Magnea Danks skrifar:
Þetta er núna í deilingu út um allt og grunnlaust fólk heldur að þetta tengist hinsegin vikunni okkar, en er í raun áróður gegn trans, kynsegin og Intersex fólki, þar sem það er sérstaklega tekið fram að þau leiti sér ekki "lækninga". En heilbrigðisþjónusta trans, kynsegin og Intersex fólks er mörgu okkar lífsnauðsynleg og án hennar myndum við ekki lifa af.
Berjumst gegn fáfræðinni og bendum fólki sem er tengt okkur að deila þessu ekki.
Gleðilega hinsegin viku.
Fleiri mannvitsbrekkur taka til máls eins og sjá má í fréttinni.
Hvergi er að finna hatursorð gagnvart hinsegin fólki í stefnuskrá samkynhneigðra og annarra sem vilja að varlega sé farið þegar börn eru annars vegar. Að fólki, samkynhneigðu, sé meinað að halda málþingi þar sem samkynhneigt fólk kemur saman og hlustar á erindi á hvergi heima.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2023 | 15:09
Staða baráttunnar gegn trúarbrögðum kynvitundar: Hve langt höfum við náð? Hvað vantar enn?
Bann við kynskiptum var ekki samþykkt á þinginu, segir Lotte Ingerslev, en það var á dagskrá, bæði í þinginu og í stærstu blöðum landsins, þó svo Politiken og Ríkissjónvarpið (DR 1)2 í Danmörku þögðu um þingmálið og var vissulega vert að fjalla um. (Minnir á RVU sem þegir þunnu hljóði nema til upphefja transmálaflokkinn).
Heilbrigðisráherra lofaði að stoppa kynskiptiaðgerðir á unglingum sem allt í einu glíma við kynama.
Þá vantar okkur ,,aðeins
- Að stoppa transvæðingu á ungum börnum með samþykki ríkisins (oftast drengi) beint (í heilbrigðiskerfinu) og óbeint ( í leikskólum og skólanum).
- Að stoppa innrætinguna í samfélaginu, t.d. í framhaldsskólum og frá góðgerðasamtökum (t.d. Børns Vilkårs) um að unglingar eigi að framkvæma drauminn um að ,,skipta um kyn þegar þau verða 18 ára.
,,Kynskipti er fölsk sjálfsmynd, sem er notuð til að taka á vandamálum sem eiga sér allt aðrar ástæður. Fölsk sjálfsmynd staðfestir og heldur því fram að upprunalega, fallvalta og ófullkomna sjálfsmynd manns sé ekki nógu góð.
- Síðan þarf að afnema úr dönsku lögunum ,,lagalegu kynskiptinguna og ,,kynvitund. Þetta eru skaðleg trans-hugtök sem eiga ekki heima í lagatextum þar sem þau viðhalda rangri hugmynd unga fólksins og foreldra þeirra að trúarbrögð kynvitundur sé byggð á staðreyndum.
Hér má lesa innlegg Lotte.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2023 | 08:54
,,Er kona eitthvað sem maður getur farið í og úr?
Er kona andlitsfarði?
Er kona ljóska?
Nei er það nokkuð!
Svona hefst bloggfærsla Ulfs. Hann er mikill baráttumaður, berst fyrir réttindum kvenna og barna. Að sjálfsögðu hefur hann fengið bágt fyrir eins og margir sem reyna að halda staðreyndum líffræðinnar til haga. Hann er ekki á móti trans-fólki frekar en aðrir baráttumenn fyrir réttindum kvenna og barna sem virðist hent upp á trans-vagn án tilefnis. Lausleg þýðing er mín og breiðletrun.
,,Trans-konur mega mín vegna fara í öll þau kvennmannsföt og setja andlitsmálingu á sig eins og þau vilja.
Það gerir þau ekki að konu, ,,aðeins trans-konur.
Þar sem trans-kona er karlmaður sem skilgreinir sig sem kona en hann er fullorðinn einstaklingur af karlkyni.
Því miður er trans-kona notað um alltof marga sem annað tveggja skilja ekki hvað það þýðir eða halda ranglega að það þýði einhvers konar alvöru kona því margir telja að félagsleg kynvitund, þ.v.s. að innri tilfinning og upplifun sé ofar líffræðilegu kyni.
Af því margir skilja ekki hvað trans-kona er og af því alltof margir reyna að breyta því hvað kona er með því að draga trans-konur og kynlausa karla í flokkinn kona, m.a. með heimskum rökum um að orðið kona er í orðinu trans-kona, tel ég að við eigum að bakka og kalla karlmenn sem vilja vera konur sem kynskiptinga eins og við gerðum í Danmörku til 2017.
Með öðrum orðum er ég sammála Marcus Dib Jensen formanni Dansk Regnbueråd og transfólki sem hafa lengi fært rök fyrir að trans-kona og trans-maður eru ekki hugtök sem lýsa kynvanlíðan einstaklingana. Þau vilja gjarna vera hitt kynið, er eru í auknu mæli notaðir sem samheiti kvenna og karla sem er villandi og ruglingslegt.
Þeir karlmenn sem líkar að ganga í kjólum og vera málaðir af því það trekkir þá og þeim þykir það skemmtilegt ásamt fleiru eigum við að kalla klæðskiptinga ekki trans.
Hægt að þéna vel á öllum þeim karlmönnum sem venjulega ganga ekki í konufötum og nota farða ef bara aðeins lítill hluti þeirra byrjaði á því.
Ég las skilgreinungu um klæðaskiptingi og rakst á orðabók LGBT+ sem sýnir eina ferðina enn hve langt þau eru frá veruleikanum með merkingalausu og misvísandi skilgreiningum á kyni, kynvitund og klæðskiptingum m.m.;
,, Klæðskiptingar er eins og gamalt úr, úrelt orð fyrir trans. Hins vegar táknar það enn ákveðna kynvitund eða hegðun hjá sumum sem er frábrugðið hvað við köllum trans í dag. Klæðskiptingur er sá sem sýnir í klæðaburði, hegðun og birtingamynd hitt kynið. Kynvitund einstklingsins aðgreinir sig meira og minna frá kyninu sem honum var úthlutað við fæðingu. Þannig tengist hugtakið kynvitund en hefur ekkert með kynhneigð að gera.
Ofangreint er, að mínu mati, kómískt, merkingarlaust, óskiljanlegt og mótsagnakennt í allri sinni ónákvæmni.
Og nei, ég er ekki afturhaldssamur og vill halda í staðalímyndir um kynhlutverk og það sjá allir á því hvernig ég klæði mig og greiði hárið. Þessi nýja trans hugmyndafræði eða kynjahugmyndafræði sem er mjög afturhaldssöm og styrkir staðalímyndirnar um kynhlutverk þannig að sífellt fleiri börn og aðrir áttavilltir einstaklingar halda að þeir séu trans þegar þau í reynd eru ,,bara kynlaus eða samkynhneitð. Af þeím sökum eiga þau á hættu að skaða sig að nauðsynjalausu af því þau halda að þau ákveði kynið og að það sé félagslegt að maður geti skipt um kyn.
Maður getur ekki skipt líffræðilegu kyni en maður getur líkst hinu kyninu og komið fram eins og það, en enginn er fæddur í röngum líkama.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)