21.7.2024 | 09:37
Hugrakkur ráðherra
Það þarf hugrekki heilbrigðisráðherra til að standa undir líflátshótunum frá móðursjúkum aðgerðarsinnum en hann hefur rétt fyrir sér, bann við kynþroskablokkurum fyrir börn ber að banna varanlega skrifar Maya Forstater formaður kvenréttindasamtakanna Sex Matters
Á síðustu dögum breska þingsins kynnti þáverandi heilbrigðisráðherra, Victoria Atkins, neyðarlög sem bönnuðu notkun kynþroskablokka fyrir unglinga sem telja sig vera trans eða ,,fæddir í röngum líkama.
Ákvörðun hennar vakti tryllt viðbrögð trans aðgerðasinna. Bráðabirgðalögin áttu að renna út þann 3. september. Aðgerðasinnar lifðu í þeirri von að eftirmaður hennar, Wes Streeting, myndi ekki gera neitt. Þeim varð ekki kápan úr því klæðinu því Streeting hyggst setja varanlegt bann á kynþroskablokkara fyrir börn og unglinga. Ráðherrann setur öryggi barna í öndvegi og bendir á Cass skýrsluna sem er óháð úttekt á málaflokknum. Heilbrigðisráðuneytið mun fylgja þeim ráðleggingum sem eru í skýrslunni. Þar stendur að ekki sé fullnægjandi sannanir fyrir að kynþroskablokkara sé örugg lyfjanotkun fyrir börn yngri en 18 ára.
Aðgerðasinnar halda fram að dauðsföllum barna sem líður illa í eigin skinni hafi fjölgað og eru á biðlista heilbrigðisstofnana. Einn mótmælandinn segir heilbrigðisyfirvöld hylma þær vísbendingar. Viðkomandi hefur engar heimildir fyrir orðum sínum. Hér má lesa óháða úttekt á málinu sem sannar að aðgerðasinnar fara með rangt mál.
Að saka stjórnendur NHS um að reyna að hylma yfir sjálfsvíg er svívirðilegt. Að gera það á grundvelli ótilgreindra ,,frekari sönnunargagna" er algjörlega ábyrgðarlaust. Trans-aðgerðasinninn spyr ráðherra hvort hann ætli að segja af sér vegna heimskulegrar tilraunar til að hundsa faglega ráðgjöf en friða þá ríku og fjölmiðla. Hann ávarpaði einnig ,,allar trans fjölskyldur" og hvatti þær: "Nú þegar Wes Streeting hefur gert afstöðu sína skýra held ég að það sé kominn tími, ef þið hafið þetta val, að yfirgefa Bretland."
Ofbeldi og hótanir
Lesa má hótanir frá trans-aðgerðasinnum. Einn segir ráðherrann eigi ekki að vera öruggann á almannafæri. Lagt er til ofbeldi og líflátshótanir í hans garð. Oft er um eina setningu að ræða ,,opinber aftaka ,,morð á Wes Streeting. ,,Wes Streeting á ekki skilið stundarfrið svo lengi sem hann lifir.
Eitt áberandi tíst kom frá Susie Green, fyrrverandi framkvæmdastjóra Mermaids, transgender samtakanna sem nú eru til rannsóknar hjá opinberum aðilum. Hún sakaði Streeting um að innleiða ,,morðbann" og endaði tíst sitt með orðunum: ,,Blóð. Á. Hendur. Hans."
Þrátt fyrir að trans-aðgerðasinnar haldi fram að blokkararnir sé pása, tími til að hugsa, með því að gera hlé á kynþroskanum þá er raunveruleikinn sá að flest börnin enda á krosshormóna lyfjum, testósteróni fyrir stúlkur og estrógeni fyrir stráka. Þetta getur haft skelfileg langtímaáhrif á heilsu barnanna, þar á meðal ófrjósemi.
Testósterón er öflugt hormón. Það getur breytt ytri merkjum stúlku verulega og skiptir þá engu hvort viðkomandi hafi fengið kynþroskablokkandi lyf áður. Bæði lyfin auka líkur á varanlegri ófrjósemi.
Með öðrum orðum, fyrir stúlkur hafa blokkarar engin áhrif á geðheilsu þeirra en auka hættuna á líkamlegum heilsufarsvandamálum síðar á ævinni. Auðvitað er rétt hjá ríkisstjórninni að banna þau.
Fólkið sem leiddi árásina á Streeting, þar á meðal lögfræðingar, blaðamenn og sjónvarpsmenn, ber siðferðileg skylda til að draga úr gífuryrðunum.
Eins og við höfum séð þýðir vaxandi stigmögnun í orðastríðinu um trans-pólitík að kallað sé eftir ofbeldi og jafnvel líflátshótunum. Það virðist eðlileg þróun í dag.
Maya segist vita hve átakanlegt það er að vera í miðjum stormi á samfélagsmiðlum hjá fólki sem sakar mann um að valda dauða barna. Það þarf hugrekki til að standa gegn grimmd kynjahugmyndafræðinnar.
Þessi ríkisstjórn verður að bregðast við af hugrekki til að horfast í augu við þessa öfgamenn og stofnanir sem eru í greipum heimskulegrar hugmyndafræði og foreldrana sem trúa því að þessi lyf séu besta leiðin fyrir sum börn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2024 | 09:45
Hefur Kennarasambandið innlimað Félag grunnskólakennara
Umræða um grunnskólamál hafa verið á síðum fjölmiðla og víðar undanfarið. Málefni sem kemur grunnskólakennurum við. Ekki heyrist orð frá Mjöll Matthíasdóttur formanni grunnskólakennara. Hún virðist hafa látið vald sitt og málfrelsi í hendur formanns KÍ, Magnús Þórs Jónssonar. Grunnskólakennarar líta ekki á hann sem leiðtoga sinn. Hann var skólastjóri og öll hans tjáning ber keim af því.
Fyrir um tveimur árum kusu grunnskólakennarar nýjan formann. Við fórum úr öskunni í eldinn. Bloggari studdi Mjöll Matthíasdóttur, hélt í einlægni að hún gæti haldið á keflinu. Annað hefur komið á daginn. Því miður er bloggari ekki einn um þá skoðun. Hins vegar er kennarastéttin meðvirk og lætur ekki í sér heyra frekar en fyrri daginn. Vona svo sannarlega að næstu formannskosningar snúist um hæfari einstakling en Mjöll sem hefur komið leiðinlega á óvart.
Kennarasamband Íslands er bákn. Um það er ekki hægt að deila. Margir í sambandinu eru haldnir utanlands þrá sagði einn kennari við mig. Á síðasta þingi var samþykkt að lækka félagsgjöldin. Báknið KÍ dregur lappirnar, ekkert gerist. Kennarar borga hátt félagsgjald og mætti lækka þó nokkuð. Formaður Félags grunnskólakennara virðist heldur ekki berjast fyrir sína stétt sem borgar meirihlutann í sambandinu. Heldur hinum félögunum uppi. Sameina á t.d. stjórnendafélögin innan sambandsins. Ekki heil brú í að það sé félag fyrir stjórnendur í grunn- og leikskólum. KÍ, eða Félag grunnskólakennara, heldur upp tveimur formönnum fyrir fámenna stétt.
Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands skrifar grein á Vísi.is sem birtist í vikunni. Eins og venjulega þegar hann kemur fram á ritvöllinn er innihaldið rýrt. Í greininni er ekki rætt um vandann sem skólakerfið á við að etja. Sé það gert er það öllum öðrum að kenna en kennarastéttinni. Hér má hlusta á brot úr þætti um skólamál.
Hér má lesa grein um verðbólgu einkunna grunnskólanema sem formaður KÍ hafnar og sakar annan um að hafa rangt fyrir sér.
Formenn Félags skólastjórnenda og Félags grunnskólakennarar þegja þunnu hljóði, virðast hafa framselt málfrelsi sitt til formanns KÍ.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2024 | 07:50
Sértrúasöfnuður, eins og þeir gerast bestir
Gefin var út heimildarmynd um trans-húmanisma, trans-hugmyndafræði og menningarlega hegðun. Og hver græðir á því?
Oft heyrir maður sagt, eltið peningana. Það er gert í þessari mynd.
Ungar stúlkur fara í brjóstnám og fagna því eins og hverjum öðrum titli á samfélagsmiðlum. Allt eftir ,,heilaþvott og þær halda að hamingjan felist í eyðileggingu líkamans. Heilaþvotturinn er í flestum tilfellum á samfélagsmiðlum og skólum.
Í kirkju eru orð sértrúarsafnaðar kyrjuð af presti.
Myndin er óhugnanleg í alla staði. Samt þess virði að horfa til að sjá hvað er í gangi.
Ósannindin um sjálfsvígshættuna blómstrar þarna.
Það er eftirtektarvert hve margir karlmenn eru á eftir börnunum. Samfélagsmiðlar leyfa þessum körlum að senda skilaboð til barna og ungmenna. Herja á þau á viðkæmum tímum á lífsskeiði þeirra. Sérstaklega er höfðað til barna sem líður illa.
Ekki það, við vitum að börn sem segjast vera ,,trans, eða glíma við ónot í eigin líkama, eiga við andleg veikindi að stríða í um 80% tilfella. Á miðlunum fá karlmenn sem skilgreina sig sem konur skotleyfi á börn. Hægt að sjá það í myndinni. Foreldrar leyfa börnum sínum að vera inni á þessum miðlum í stað þess að loka á þá.
Ég vil sérstaklega benda leik- grunn- og framhaldsskólakennurum að horfa á myndina. Kannski ætti að sýna myndina á starfsdegi kennarana og fá umræður um málaflokkinn. Ekki má gleyma formanni Kennarasambandsins, stjórn og öðrum starfsmönnum. Myndi á fullt erindi til þeirra.
Þessir kennarar, þessi hér og ekki síst þessi hér hafa þörf á að horfa á myndina. Síðan ættu 30 kennararnir í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ ásamt skólastjóra að horfa á myndina.
Hér má horfa á myndina en hana finnur þú aðeins neðar í innleggi Jennifer Bilek.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2024 | 06:11
Fjórar fylkingar, ásamt Hamas, stóðu að hryðjuverkunum 7. október segir Human Right Watch.
Fimm hreyfingar Palestínumanna gerðu óvæntar árásir á Ísrael að sögn mannréttindasamtakanna Human Rights Watch. Samtökin sameinuðust um árásina þann 7. október. Human Right Watch birti skýrslu um árásina.
Auk herskáru hreyfingarinnar Hamas tóku vopnaðar sveitir frá Islamic Jihad, Lýðræðisfylkingunni fyrir frelsun Palestínu, Alþýðufylkingunni fyrir frelsun Palestínu og al-Aqsa píslarvottasveitunum þátt í hryðjuverkunum. Sú síðastnefnda var talin vera hernaðarvængur stjórnmálaflokksins Fatah en Yasser Arafat leiddi flokkinn til ársins 2004. Fatah var - og er enn - við völd í palestínsku heimastjórninni á Vesturbakkanum.
Árið 2007 voru píslarvottasveitir al-Aqsa ásamt öðrum herskáum hreyfingum á Vesturbakkanum formlega leystar upp af palestínskum yfirvöldum. Þrátt fyrir það héldu samtökin áfram starfsemi sinni, hafa enn tengsl við Fatah og eru talin pólitískt tengd flokknum.
Samtökin sem tóku þátt í árásinni á Ísrael eru öll aðilar að sameiginlegum aðgerðavettvangi á Gaza, samkvæmt Human Rights Watch. Á þessum vettvangi vinna þeir saman að þjálfun, skipulagningu og framkvæmd vopnaðra aðgerða gegn Ísrael.
Þekkjast á myndum
Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafa fyrst og fremst bent á hreyfingarnar fimm og meðlimi þeirra út frá ljósmynda- og myndbandsefni. Efnið kemur úr eftirlitsmyndavélum og myndavélum sem vígamennirnir báru sjálfir. Hluti gerendanna báru ennisbönd í sérstökum litum, sem gáfu til kynna hvaða fylkingu þeir tilheyrðu.
Mannréttindasamtökin Human Rights Watch komast að þeirri niðurstöðu að hreyfingarnar fimm hafi beint spjótum sínum að óbreyttum borgurum í árásunum 7. október - óháð kyni og aldri óbreyttra borgara.
Hamas hefur áður haldið því fram að hreyfingin hafi reynt að hlífa konum, börnum og öldruðum. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafna þessu. Öll fimm Palestínsku samtökin frömdu stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni í árásinni, segir í skýrslunni.
Þeir skutu skotum á óbreytta borgara sem reyndu að flýja. Þeir köstuðu handsprengjum og skutu skotum inn í sprengjuskýli í ísraelskum borgum og kibbutzim (ákveðin tegund byggðar í Ísrael).
Þeir kveiktu í heimilum almennra borgara, brenndu og kyrktu íbúana. Þeir skutu þá sem sluppu úr eldinum eða tóku til fanga. Að auki frömdu vígamennirnir kynferðisbrot að sögn mannréttindasamtakanna Human Rights Watch.
Við gerð skýrslunnar tók Human Rights Watch viðtöl við 144 manns sem urðu vitni að árásinni, aðstandendur fórnarlambanna, björgunarmenn og heilbrigðisstarfsfólk. Að auki greindu samtökin yfir 280 myndir og myndbönd sem voru tekin upp meðan á árásinni stóð og síðan birt á samfélagsmiðlum eða deilt beint með Human Rights Watch.
Í árásinni 7. október létust um 1200 manns, þar af 260 ungmenni sem voru drepin á tónlistarhátíð. Að auki voru 250 manns teknir í gíslingu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2024 | 12:53
Leikskólastjóri á Múlaborg, Kristín Árnadóttir, notar íslenskuna rangt
Í Skólavörðunni sem gefin er út af Kennarasambandi Íslands segir skólastjóri Múlaborgar frá starfinu. Þyngra en tárum taki að sjá skólastjóra nota íslenskuna á rangan hátt og á að kallast faglegur leiðtogi og fyrirmynd barnanna. Verra er að starfsmenn útgáfusviðs Kennarasambandsins leiðrétta ekki ranga málnotkun. Breiðletrun er bloggara.
Greinin heitir Öll jöfn þá er hún væntanlega bara að tala um börnin í leikskólanum. Starfsmenn falla ekki undir orðið öll. Þannig myndi það hljóma, ,,öll leikskólakennararnir ,,öll starfsmennirnir eða ,,öll manneskjurnar, eða ,,öll einstaklingarnir.
Eins og sjá má á orðanotkuninni virðist skólastjórinn ekki beita íslenskunni rétt. Hún segir Það er samt alltaf smá hreyfing á starfshópnum, segir Kristín skólastjóri. Sum starfa bara við skólann í eitt eða tvö ár á meðan þau eru að fóta sig í lífinu, til dæmis undirbúa sig fyrir háskólanám, eða næstu skref, sem er líka gott, Kristín notar sum um starfsfólkið sitt sem hljómar eins og sum dýr, eða sum börn. Ekki er hægt að segja ,,sum starfsmenn ,,sum leikskólakennarar. Og foreldrar treysta svo leikskólastjórum fyrir börnunum sínum. Röng málnotkun. Hvernig eiga börn að læra rétta íslensku þegar þetta er fyrirmyndin?
Enn heldur Kristín að tala um dýrin sín, nema það séu börnin, ,, Þau koma gjarnan inn , ekki getur það verið ,,þau starfsmennirnir eða ,,þau leikskólakennararnir eða ,,þau starfsfólkið.
Síðar í greininni batnar málnotkunin ,, hver manneskja allir jákvæðir Dásamlegt að hún mundi eftir að nota íslenskuna rétt. Kannski er ekki öll von úti.
Hér má lesa greinina.
Læt fróðleik um íslenskuna fylgja með. Smella þarf á myndina. Vona að leikskólastjórar sem beita íslenskunni rangt lesi sér til fróðleiks.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2024 | 10:17
Þá fylgist Magnús Þór ekki nógu vel með
Dönskukennarar í framhaldsskólum hafa sagt þetta lengi. Einkunnarverðbólga. Börn sem koma úr grunnskólanum fá of háar einkunnir í dönsku í grunnskóla. Það eru nokkur ár síðan bloggari, sem dönskukennari, heyrði það á sameiginlegri ráðstefnu dönskukennara í grunn- og framhaldsskóla. Þetta veldur börnunum meiri vanda en kennurum, þarf að færa börnin niður á næsta þrep og stundum upprifjunaráganga þau kunna of lítið.
Nú síðast í vor fór þessi umræða aftur fram meðal dönskukennarana. Nemendur koma í allof mörgum tilfellum með einkunnina B þar sem næg kunnátta er ekki á bak við þá einkunn.
Bloggara kæmi ekki á óvart að svipað væri í öðrum greinum. Þess vegna á að taka upp landspróf í öllum skólum til að fá aðgöngumiða inn í framhaldsskólana þannig að kennarar þar vissu nákvæmlega hver þekking grunnskólabarna sem koma inn í skóla sé.
Í stað þess að taka ábyrga umræðu um málið þá sakar Magnús Þór málshafandi um aðdróttanir. Ekki það, kemur ekki á óvart þegar Magnús Þór er annars vegar. Hef sem félagsmaður ekki séð Magnús Þór axla ábyrgð eins og formaður kennarasamtaka ætti að gera ef hann á yfirleitt að skipta sér af svona málum. En frá mínum bæjardyrum séð hefur Magnús Þór yfirtekið alla umræðu, aðrir formenn virðast hafa misst málið.
Kennarasamtökin eiga að ræða um málaflokkinn. Viti Magnús Þór ekki af óánægju kennara með námsmatið og einkunnargjöf í bókstöfum þá fylgist hann einfaldlega ekki nógu vel með. Hann hefur formann Félags grunnskólakennara, Mjöll Matthíasdóttir, sér við hlið. Ef Magnús sem virkar frekar eins og skólastjóri vill ekki í málið er það hlutverk Mjallar formanns grunnskólakennara að taka málið upp. Helst í því skyni að fella núverandi námsmatsform úr gildi.
![]() |
Magnús um viðtalið: Alvarleg aðdróttun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2024 | 15:08
Þrír miðaldra karlmenn
Það er ekki ofsögum sagt, karlmenn gera sig gildandi á öllum sviðum. Af hverju ekki þeir eru helmingur mannskynsins. Hinn helmingurinn eru konur.
Breski verkamannaflokkurinn lét loksins eitthvað vitrænt úr úr sér. Bann við hormónablokkurum og lyfjagjafir fyrir börn í tilraunaskyni verða áfram bannaðar og sennilega um ókoman framtíð. Tilraunum á breskum börnum verður hætt, er það ekki fagnaðarefni hverrar mannveru? Hvað getur maður annað sagt en sem betur fer. Ekki eru allir á því. Börn skulu notuð í tilraunir.
En víkjum að þessum þremur miðaldra karlmönnum. Tveir af þeim segjast vera konur og einn tvíkynhneigður. Hann ruddi brautina. Veit svo ekki hvað braut en það er annað mál. Þessir þrír miðaldra karlmönnum finnst af og frá að banna eigi tilraunameðferðir á börnum. Einum finnst nú forkastanlegt að banna karla sem upplifa sig sem konu í kvennaklefa kvenna og stúlkna. Lesið skáskotin ykkur til fróðleiks.
Einn karlinn sem upplifir sig sem konu, og vill æstur karla inn í kvennaklefa, segir:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2024 | 09:53
Áhugaverð heimildarmynd
Bloggari horfði á heimildarmynd í gær, rétt rúmur klukkutími. Alveg þess virði að hlusta á þennan blaðamann, Tommy Robinson, sem fæddur er og alin upp í Luton. Honum líst ekki á hvernig Bretland er að verða eða orðið.
Hann hefur áhyggjur af frjálsri blaðamennsku því blaðamenn frávelja fréttir í fjölmiðlana. Þeir vega og meta hvað almenningur fær að hlusta á og það samrýmist oft því sem stjórnvöld vilja.
Hann hefur áhyggjur af tjáningarfrelsinu. Það hafa 3300 manns verið handteknir fyrir ummæli á samfélagsmiðlum á meðan 400 manns hafa verið handtekin fyrir það sama í Rússlandi.
Fjölgun múslíma veldur honum áhyggjum. Óþarfa handtökur af hálfu lögreglunnar koma við sögu. Afstað lögreglunnar til ákveðinna málaflokka. Mótmæli í London og víðar þar sem hann kemur við sögu. Hræðsluáróður yfirvalda vegna Covid er eitt umfjöllunarefnið.
Hvet lesendur til að horfa, Tommy Robinsons New Documentary #LawFare (youtube.com)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2024 | 09:10
Líður börnum vel í skólanum ef það er logið að þeim
Spjall við stjórnanda í skóla vakti bloggara til umhugsunar. Umfjöllunarefnið var trans-málaflokkurinn. Í samtalinu heyrði ég að hann hafði ekki aflað sér upplýsinga umfram það sem trans-Samtökin 78 boða. Þegar bloggari spurði út í eitt og annað sem gerist t.d. Norðurlöndunum og Bretlandi vissi hann ekkert. Eitt sagði stjórnandinn, ,,við viljum bara að börnunum líði vel í skólanum. Um það geta allir verið sammála. Allir vilja að börnum líði vel.
Líður börnum vel þegar logið er að þeim? Líður barni vel þegar logið er að því að kynin séu fleiri en tvö? Líður barni vel þegar því er sagt að pabbi og mamma hafi getið sér til um kyn þess? Líður barni vel þegar logið er að því að kona geti verið með typpi? Líður barni vel að logið sé til um að karlmaður geti átt barn? Líður barni vel þegar því er sagt að það eigi eftir að velja kyn sitt? Líður barni vel þegar því er sagt að mamma geti verið með yfirvaraskegg? Líður börnum vel þegar sagt er að þau séu það sem tilfinningin segir þeim? Líður börnum vel þegar þeim er sagt að þau séu kannski fædd í röngum líkama? Líður börnum vel með lygar trans hugmyndafræðinnar?
Til að skerpa á þekkingu um líffræðina sem á að kenna börnum má horfa á þetta.
Bloggari á ekki von á svörum enda myndi enginn faglegur leiðtogi fara út í slíkt. Við sjáum bæði í Smáraskóla í Kópavogi og Breiðholtsskóla hver takturinn er, lygin má blómstra í nafni fjölbreytilega hinsegin hugmyndafræðinnar.
Undanfarin áratug hefur andlegt ástand skólabarna versnað. Umhugsunarvert sem þessi rannsóknar blaðamaður segir (alvöru rannsóknarblaðamaður, ekki eins og þeir íslensku).
Danskur sveitastjórnarmaður
Ulf Baldrian segir það vera honum til ama að lygar og blekkingar, um að börn sem fá ekki meðferð til að stoppa kynþroskann og gera sig ófrjóa með kynhormónum, séu í aukinni sjálfsvígshættu. Það er ekki bara að kyn sé þurrkað út heldur einnig samkynhneigð og kynbundin réttindi kvenna, t.d. í íþróttum og fangelsum. Tek undir með honum.
En svona erum við ólík.
Ulf segir ,,Trans börn eru ekki til. Það eru bara til börn og ekkert barn er fætt í röngum líkama. Barni getur liðið illa með líkamann og glímt við sálræna erfiðleika sem veldur upplifun um að líkaminn og kynið sé rangt.
Sem betur fer komast langflestir sem eru greindir með röskun vegna líkamsímyndar og Kynvanlíðan yfir það eftir kynþroskann. Börnum ferst betur að samþykkja sig eins og þau eru, jafnvel þó að það sé eilíf áskorun sem við vinnum öll með í gegnum lífið segir hann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.7.2024 | 09:26
Áhugaverð grein eftir Atla Harðarson á Vísi.is í gær
Atli fjallar um bók sem gefin var út á þessu ári. Höfundur bókarinnar talar um breytingar á lífskjörum barna og ungmenna. Atli segir að meginefni bókarinnar séu sálfræðilegar útskýringar og hvernig breytingarnar spilli heilsu barna.
Atli segir; ,, Óheftur aðgangur að klámi veldur minni félagsfærni, einkum hjá piltum; Sífellt streymi mikið unninna glansmynda af grönnum líkömum ýtir undir átröskun og fleiri kvilla, einkum hjá stúlkum; Orsakir versnandi geðheilsu valda jafnframt versnandi námsárangri. Því miður nefnir Atli ekki kvillann ónot í eigin skinni, kynama, Því sprenging hefur orðið meðal stúlkna sem líður illa í eigin líkama.
Hér má hlusta á greinargóðan fyrirlestur um áhrifin og glansmyndina sem búin er til um málaflokkinn. Þeir vita sem vilja að áhrif samfélagsmiðlanna eru gífurleg þegar kemur að sálarkvillanum kynami.
Vitað er að átröskunarhópar eru víða til á miðlunum og ekki ýkja langt síðan einum slíkum hópi var eytt í Danaveldi. Þar þótti sannað að stúlkurnar lofsungu hvor aðra í sjúkdómsástandi. Sama gera stúlkur sem glíma við ónot í eigin líkama. Þær horfa á glansmyndir sem birtast á samfélagsmiðlunum um brjóstnám, trans-ferli og ,,kynskipti. Skammgóður vermir, því eftirköstin koma rétt eins og timburmenn eftir mikla áfengisdrykkju. Og það sem þekkt er sálræni kvillinn hverfur ekki.
Aukið þunglyndi og kvíði
Í greininni stendur; ,,Tölurnar sem reifaðar eru í fyrsta kafla bókarinnar sýna að á milli 2010 og 2015 jókst tíðni þunglyndis og kvíða meira hjá stúlkum en piltum. Hér má geta þess að vanlíðan stúlkna með ónot í eigin líkama jókst líka á þessum árum og hefur þúsund faldast í sumum löndum frá því sem var. Skyldi þetta ekki haldast í hendur? Margir sérfræðingar hafa bent á að það sé ekkert eðlilegt við fjölgun barna sem glíma við ónot í eigin líkama. Í kjölfarið samþykktu mörg lönd ólögin um kynrænt sjálfræði. Hlusta má góða fyrirlestur hér.
Áfram heldur Atli; ,, Könnun á tengslum netnotkunar og geðsjúkdóma bendir til að töluvert meira sé um að stúlkur verði fyrir miklum skaða þegar á aldrinum 11 til 13 ára en hjá strákum byrji þetta oftast að bíta nokkru seinna eða á aldrinum 14 til 15 ára. Þegar börn horfa á myndband eins og þetta án þess að foreldrar grípi inn í, og kannski fleiri af þessum toga, er voðinn vís. Eins og Atli segir, stelpur eru viðkvæmari fyrir þessu en drengir og kannski ekki tilviljun að maðurinn í myndbandinu klæðir sig eins og lítil stúlka. Hvern á að veiða?
Hér getur þú lesið þessa áhugaverðu grein.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)