Fri á að fara út úr skólakerfinu (systursamtök trans Samtakana 78)

Fleiri og fleiri eru á þeirri skoðun að Fri (systursamtök Samtaka 78) eigi að hverfa með námsefni sitt úr skólum í Noregi sem fjallar um kynjamál. Hinir sömu vilja sjálfstæða sérfræðinga til að sjá um fræðsluna.

Ósjálfbærar starfsvenjur

Rosa Kompetanse er fræðsludeild FRI sem notuðu er í nokkrum skólum víðs vegar um landið. En Rosa Kompetanse er frekar eins og róttæk pólitísk aðgerðasinna og hagsmunasamtök. Helst fyrirmynd þeirra undanfarna áratugi er læknir sem missti starfleyfi sitt, Esben Esther Pirelli Benestad, sjá hér.  

Faglegt?

Í Noregi hafa bæði norska lýðheilsustofnunin, Rannsóknarnefnd heilbrigðismála (UKOM) og allir yfirlæknar í fjórum heilbrigðisumdæmum okkar talað í aðalatriðum gegn FRI. Sama hefur National Treatment Service for Gender Incongruence á Ríkisspítalanum.

Viðbrögð aðgerðasinna og fréttaskýrenda FRI er að þeir eru ekki sammála fagfólkinu. FRI hefur hafnað skýrslum og faglegum yfirlýsingum. Segja engan þeirra hafa faglegan grundvöll!

FRI segir að fræðslan byggist á að ,,kennari vinni með kennara.“ (Trans-Samtökin 78 eru með sömu stefnu, þjálfa fólk í að vera hinsegin þjálfari). Eru þessir kennarar menntaðir sálfræðingar eða læknar?

Sjúklingasamtök um kynbundið ósamræmi (PKI) hafa mótmælt sérfræðingum á sviðinu og saka þá um að nota börnin. Að hafa áhyggjur af börnum og nota þau í málflutningi sínum. Kalla það and trans hreyfingu. Þeir hafa ráðið sér lögfræðing til að fara í málið.

Eru faglegir stjórnendur okkar hluti af and-trans hreyfingunni?

Anne Wæhre, yfirráðgjafi hjá Ríkisspítalanum gefur okkur vísbendingu um hvar vandamálið liggur. Þegar sagt er við hana að FRI telji að það séu ,,faglegar sannanir fyrir því að hormónameðferð sé örugg", svarar hún: ,,Þá hafa þeir ekki skilið hvað það er að rýna í fræðirit og gögn og hvernig á að gefa rannsóknargreinum einkunn."

Alþjóðavettvangurinn

Á alþjóðavettvangi líta hlutirnir ekki mikið betur út. Í mörgum nágrannalöndum okkar hafa ítarlegar faglegar úttektir fagyfirvalda á heilbrigðismálum komist að þeirri niðurstöðu – á faglegum grunni – að takmarka eða leggja eigi niður þau meðferðarform sem FRI hefur þrjóskast við að nota um nokkurra ára skeið verði að takmarka eða leggja niður.

Fyrir nokkru kom út faglegasta úttekt á meðferð ungs fólks með kynósamræmi, nefnilega Cass-skýrslan í Bretlandi. Hún var í stórum dráttum skipuð fagfólki úr ólíkum áttum.

Ég hef lesið og skrifað um skýrsluna, segir Espen Goffeng, og það eru fáir snerti punktar milli þessa faglega risa og hugmynda FRI um meðferð. Eina sem þessir aðilar eru sammála um er að ungt fólk sem glímir við ónot í eigin líkama eigi að fá góða meðferð í heilbrigðiskerfinu. Þar með skilja leiðir.

Það sem eftir stendur, alþjóðleg tilvísun, eru bandarísku samtökin WPATH. Í Cass skýrslunni getur þú lesið ítarlega umfjöllun um rannsóknirnar sem þessi stofnun byggir á. Og það er,  til að segja það mildilega , ekki sérstaklega fræðilega áhrifamikið ef þú veist eitthvað um hvernig fræðilegar rannsóknir eru mældar.

Af hverju skólarnir?

Hvers vegna hafa norskir stjórnmálamenn gefið FRI tækifæri til að vera einu samtökin sem fara um landið og hafa áhrif á norska kennara, starfsfólk leikskóla og nemendur? (Hér má spyrja þess sama varðandi trans Samtökin 78).

Vegna þess að slík ákvörðun er pólitísk, ekki fagleg. Reyndar er það eina skýringin sem ég get nú fundið.

Allar skýrslur benda til margföldunar á unglingum sem glíma við ónot í eigin skinni. Hér er um félagsleg áhrif að ræða. Helst til of mikil. Áhrifin koma frá jafnöldrum, meðferðaraðilum og fullorðnum. En fyrst og fremst í gegnum samfélagsmiðla.

Cass skýrslan bendir á að ,,félagsleg umskipti", þ.e. breyting á félagslegu kyni en ekki læknisfræðilegu, geti einnig leitt til læknismeðferðar, jafnvel þótt það sé rangt.

Hvers vegna er börnum niður í leikskólaaldur sagt að þau geti verið fædd í röngum líkama?

Hvaða áhrif hefur það á kennara og grunnskólanemendur þegar ,,fagfólk" kemur og ræðir við það um málefni sem mikill ágreiningur er um meðal leikna og lærðra? Og hvað með þær fjölmörgu faglegu skýrslur sem telja að ungt fólk fái greiningu sem hentar því ekki?

Og hvað gerir það þessum nemendum að raunverulegt fagfólk tali ekki við það?

Þetta ójafnvægi ætti nú að vera nokkuð augljóst. Og við þessu verða stjórnmálamenn að bregðast, ef þeir bera einhverja virðingu fyrir faglegum vinnubrögðum.

Þó það geti verið erfitt þá þarf að gera eitthvað í málinu. Hér má lesa greinina.

,,Anyone who thinks it's okay to chemically castrate children, should never be allowed anywhere near a child.” Lena Clevenger


Heilar kynjanna eru ólíkir

Vísindaniðurstöður á heilum kvenna og karla breytast stöðugt. Þeir eru ólíkir. Þegar ég (Kåre Fog) skrifaði textann um ,,Staðreyndir og goðsagnir um konur og karla“ árið 2022 mátti sjá skörun á milli heila kvenna og karla. En skörunin var lítil. Um 94% heilanna sem voru skannaðir var hægt að flokka rétt eftir kyni út frá mismunandi stefnu taugaþráðanna.

Í dag aðeins tveimur árum síðar hefur þróun átt sér stað. Skannaðir voru 1500 heilar ungmenna og ungs fólks og nýtt reiknirit fengið til að greina niðurstöðurnar sem gefa til kynna að ekki sé lengur skörun á milli kynjanna. Í 100% tilfella var hægt að flokka sneiðmyndirnar rétt eftir kyni. Engin skörun.

Enn fremur kom í ljós að taugabrautirnar mjög greindar karlmanna eru ekki sérstaklega mikilvægar fyrir konur. Aftur á móti hafa taugaleiðirnar mjög greindra kvenna hefur enga sérstaka þýðingu fyrir karla, segir Kåre Fog líffræðingur um rannsóknina.

Fram kemur í greininni að annað hvort er ekki betra en hitt, bara öðruvísi. Heilar kvenna og karla eru ólíkir segir höfundur greinarinnar. Hann bendir líka á að rannsakendur hafi ítrekað komist að því að konur þjást frekar af þunglyndi og kvíða en karlar sem hins vegar glíma oftar við einhverfu, athyglisbrest og geðklofa.

Rannsóknin var framkvæmd af vísindamönnum við Stanford háskóla. Höfundur greinarinnar sagði niðurstöðurnar koma sér á óvart, en hann hefur skrifað um efnið í rúm 20 ár. Hann vonast eftir framhaldsrannsókn og þá sé kynlaust fólk (hvernig sem það er hægt) og þeir sem glíma við kynvanlíðan rannsakað. Hér má lesa greinina og í henni eru krækjur að ýmsum fróðleik.

Ekki deilir bloggari við dómarann, en allir menn sem fæðast hér á jörð eru annað hvort, karlmaður eða kvenmaður. Heilinn hlýtur alltaf að taka mið af því. Ef bloggari mætir í rannsókn og segist kynlaus, skyldu aðrar niðurstöður fást úr heilarannsókninni en ef ég segist vera kona? Efast.


Sex barna faðir og maður sem lokkar börn

Á vordögum skrifaði grunnskólakennari og faðir varnaðarorð á vegginn sinn. Maður reyndi að lokka dóttur hans inn í bíl. Vildi vara aðra við sem er gott. Bregðast við þegar hætta steðjar að. Til allra hamingju vissi stúlkan hvað gera skyldi, koma sér í burtu. Lét foreldra sína vita sem gátu varað aðra foreldra við.

Samfélagið líður ekki svona framferði og nauðsynlegt að koma í veg fyrir að aðrir lendi í hinu sama. Best væri að ná þessum manni eða mönnum. Það er m.a. gert með því að benda öðrum foreldrum á hættuna, lýsa eins og kostur er bíl viðkomandi og útliti sé það hægt. Hér má sjá frétt um málið.

Í Danaveldi reynir sex barna faðir sem skilgreinir sig sem konu að komast í kvennafangelsi. Vill afplána þar. Hann skilgreindi sig sem konu árið 2015, klæðir sig karlmannlega, er með tólin sem fylgja karlmanni og segist vera með lesbískar tilhneigingar. Hans upplifun og tilfinningar. Ibi - Pippi Overgaard var dæmdur fyrir skemmdarverk á listaverki og á að sitja inni. Nú berst hann, af því hann hefur skipt um kennitölu, fyrir að afplána í kvennafangelsi. Þetta er afleiðing af lögum um kynrænt sjálfræði sem danska þingið samþykkti. Sama hafa íslenskir þingmenn gert.

Nú spyr bloggari, er einhver munur á þessum tveimur mönnum, manninum sem reynir að lokka börn og manni sem vill í kvennafangelsi en hefur kynfæri og líkama karlmanns? Nei því stúlkum og konum getur stafað hætta frá þeim báðum. Kvenfangar er einn af viðkvæmustu hópum samfélagsins. Á að hleypa úlfi inn í hænsnakofa? Fá konur ekkert að tjá sig? Hvar eru baráttuhópar kvenna?

Í þessu viðtali, ýttu hér, segir danskur þingmaður að lög um kynrænt sjálfræði átti ekki að gefa mönnum möguleika á að valsa um í einkarýmum kvenna, fangelsum og kvennaíþróttum. Það hafi aldrei verið ætlunin. Hann segir, og bloggari sammála honum, fólk má skilgreina sig hvað sem það vill en þegar réttindi annarra eru skert af þeirra völdum er mál að linni. Þetta er angi af baráttu trans hreyfinga víða um heim. Réttindi kvenna og stúlkna skert.

Þingmaðurinn sagði að þingið hefði hlustað á þá sem líður illa yfir að hafa kennitölu þess kyn sem það fæddist og því var komið á móts við tilfinningar þeirra. Spyrill spyr, er það hlutverk ríkisins að koma á móts við tilfinningar fólks? Hann segir eins og satt er, í mínum huga eru líffræðilegu kynin tvö en fólk getur skilgreint sig hvað sem er. Eins og talað úr munni bloggara.

Í spjallinu benti spyrillinn á að Ibi-Pippi hafa verið dregin út í rannsókn um breytingarskeið kvenna af því hann hefur kennitölu kvenmanns. Er eitthvað að marka slíka rannsókn þegar karlmaður eða karlmenn taka þátt í rannsókn um kvennamál? Þingmaðurinn sagðist vona að Ibi noti skynsemi sína og tæki ekki þátt. Karlmaður getur að sjálfsögðu ekkert lagt til málanna um breytingarskeið kvenna.

Það þarf að finna aðrar leiðir til að mæta þessu fólki, búa til sér kennitölur fyrir trans fólk og réttindi þeirra eiga að fylgja líffræðilegu kyni.


Formaður Félags grunnskólakennara vill verkfall í haust

ef marka má skrif hans til félagsmanna á dögunum. Grunnskólakennarar eru með lausan kjarasamning. Ekkert gerist fyrr en í haust. Mjöll Matthíasdóttir kallaði eftir hjálp kennara á haustdögum í pistli sínum. Getur varla þýtt annað en verkfallsboðun. Fram að þessu hefur Mjöll fetað í fótspor annarra formanna og heldur spilum kjarasamninganna þétt að sér. Kennarar eru ekki vel upplýstir um gang mála.

Bjarni Ben. þáverandi fjármálaráðherra notaði pennastrik til að skerða lífeyristréttindi opinberra starfsmanna. Hét jöfnun milli markaða. Bæturnar áttu að koma á 10 árum og nú eru þau brátt liðin.

Eina kjarabót grunnskólakennara í þessum samningi verður þessi skerðing. Í mínum huga verða kennarar af kjarabót í einum samningum ef það er raunin. Eins og fyrr segir, það heyrist ekkert frá Mjöll Matthíasdóttur formanni sem er þvert á það sem hún boðaði í eigin kosningabaráttu.

Einn vandinn við gerð kjarasamningsins, bætingu, er að grunnskólakennarar þurfa að finna viðmiðunarstétt á almenna markaðnum. Það er þrautin þyngri. Höfum vitað það lengi. Bloggari hefur margspurt forystuna hvaða viðmiðunarstétt grunnskólakennarar beri sig saman við. Enn…takið eftir, enn liggur ekki fyrir í höfuðstöðvum KÍ hver viðmiðunarstéttin er, því þangað hef ég beint fyrirspurnum mínum í nokkur ár. Ágreiningur er  á milli samningsaðila um þetta.

Taka þarf tillit til margra þátta þegar viðmiðunarstéttin er fundin, svipuð ábyrgð og starfssvið.

Kíkjum á starf gunnskólakennara, hvað hann gerir ekki:

  • Ber ekki ábyrgð á peningum
  • Ber ekki ábyrgð á starfsfólki
  • Hefur ekki mannaforráð
  • Ber ekki ábyrgð á árangri nemenda
  • Ber ekki ábyrgð á húsnæði eða munum
  • Ber ekki ábyrgð á gerð námsefnis
  • Engar árangurstengdar mælingar á vinnu kennara
  • Bannað að segja upp þrátt fyrir lélegan árangur
  • Heldur stöðu sinni þar til hann brýtur af sér í starfi (þá áminning, ef brotið er ekki alvarlegt)
  • Ber ekki ábyrgð á mætingu nemenda

Það sem grunnskólakennarinn gerir:

  • Hefur umsjón með börnum, venjulega einum bekk
  • Stuðlar að vellíðan nemenda, eins og sjúkraliði gerir gagnvart skjólstæðingum sínum
  • Sinnir samskiptum milli heimilis og skóla, oft sem vikulegur tölvupóstur
  • Tekur á vægum ágreiningsefnum milli nemenda
  • Vísar flóknum málum, s.s. eineltismálum, skemmdum á eigum skólans til teymis eða stjórnenda
  • Vísar erfiðum samskiptum við foreldra til stjórnenda
  • Skipuleggur nemenda og foreldraviðtöl
  • Sér um að búa nemendur undir árshátíð og aðrar uppákomur í skólanum
  • Situr fundi sem stjórnendur boða, s.s. kennarafundi, stigsfundi, starfsmannafundi, skilafundi með sérfræðingum og foreldrum
  • Situr teymisfundi og með sérkennurum ef á þarf að halda
  • Fyllir út lista fyrir sérfræðinga sem sjá um greiningar á börnum
  • Heldur stofunni sinni í skikkanlegu horfi
  • Kennir margar greinar, s.s. íslensku, stærðfræði, náttúrufræði.
  • Kennir hugmyndafræði, s.s. loftslagsmál, trans hugmyndafræði, ranga íslensku (sumir eru komnir þangað), markmið Sameinuðu þjóðanna, hugmyndir UNESCO svo fátt eitt sé nefnt.
  • Sérgreinakennarar kenna oftast eina grein án umsjónar með nemendum, s.s. íþróttir og smíðar
  • Leggur fyrir kannanir, próf og sér um símat
  • Gengur frá vitnisburði í Mentor skráningarkerfið
  • Skipuleggur ferðir fyrir nemendur t.d. á vordögum
  • Undirbýr þemadaga og tekur þátt í þeim
  • Undirbýr skólabyrjun og gengur frá námsgögnum í lok skólaárs

Listinn er ekki tæmandi. Hversu þungt hver einstaka þáttur vegur þegar meta á laun skal ósagt látið. Eitt er víst það verður forvitnilegt að sjá niðurstöðuna. Ekki síður verður forvitnilegt að sjá hvort Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags grunnskólakennara leggi boðun verkfalls í hendur kennara þegar þeir mæta til starfa. Skyldi það vera hjálpin sem hún kallar eftir.

Talandi um skóla, kennara og ábyrgð, hvet fólk til að hlusta á viðtalið við Jón Pétur Zímsen hér.


Grunnskólakennari skrifaði tilfinningaríkan pistil

Það var áhugavert að lesa pistil kennara um grein sem birtist í Morgunblaðinu fyrir rúmu ári. Þar veltir greinarhöfundur upp námsefni trans Samtakanna 78 og hvort það eigi erindi inn í grunnskólann. Tilfinningar kennarans fóru á fullt. Að mati bloggara lét hann skynsemi ekki ráða för heldur tilfinningar.

Hefði skynsemin ráðið för myndi kennarinn brjóta greinina niður og svara efnislega. Hann hefði tekið hverja efnisgrein fyrir sig og rökstutt af hverju fræðsluefnið eigi fullt erindi til barna niður í leikskóla. Hann hefði átt að benda á hvað það gerir börnum gott, og af hverju, að heyra um trans- málaflokkinn. Hann hefði getað rökstutt af hverju fámennur hópur fólks eigi að hafa svona mikil áhrif í grunnskólann. Kennarinn hefði getað rakið inntak greinarinnar, eða ekki!

Kennarinn ætti í rökstuðningi sínum, að mati bloggara, að benda á hvernig börn skipta um kyn. Hvernig hægt er að verja að börn séu ekki nógu góð eins og þau eru heldur þurfi að ,,skipta um kyn" (sem er að sjálfsögðu ekki hægt) og félagslegt kyn. Kennarinn gæti bent hvernig það brjóti ekki í bága við lög eða sáttmála þegar því er haldið fram að börn séu í meiri sjálfsvígshættu ef þau breyta ekki félagslegu kyni sínu eða fá læknisfræðilega aðstoð við að eyðileggja líkama sinn og gera sig ófrjó af hormóna blokkurum. Kannski gæti kennarinn líka bent á rannsóknir máli sínu til stuðnings. Cass skýrslan er tilvalin til að auka þekkingu sína á málaflokknum. Hvet stjórnendur skóla og allt skólafólk til að kynna sér innihald skýrslunnar, hér. Barna- og unglingageðlæknir fer vel yfir málið hér, en umræddum kennara finnst ábyggilega læknirinn fordómafullur og spjallið fullt af fordómum.

Greining texta er lykilatriði í hvernig maður les texta. Menn eru misgóðir í því eins og hefur komið á daginn. Kennarinn sakar greinarhöfund um fordóma án þess að benda hvar í textanum þeir koma fyrir. Efast ekki, þetta er hans tilfinning og hugsun. Ekki staðreynd. Með þessum orðum var ýtt undir heitingar sem m.a. þessi kennari tók þátt í.

Það væri áhugavert að heyra skoðanir kennarans á afleiðingum trans málaflokksins á konur, hlustið.

Góður kostur í fari kennara, að mati bloggara, er að geta skoðað mál frá ólíkum hliðum, líka þau umdeildu, rétt eins og rithöfundur gerir, hlustið hér. Kennararnir misstu sjónar á aðalatriðunum í tilfinningalegum rússíbana að mati bloggara. Þau eltu manninn ekki málefnið.

Þetta er pistill grunnskólakennarans á eigin snjáldursíðu.

                                       

óli


Breskir hjúkrunarfræðingar kvörtuðu undan trans-konu í búningsklefa þeirra

Bylgjan ,,Metoo“ er ekki yfirstaðin. Fyrir stuttu létu danskar konur í tónlistarbransanum í sér heyra. Mikið gekk á þegar bylgjan náði hæstu hæðum víða um heim. Bylgjan átti að vekja athygli heimsins á rétti kvenna til eigin líkama og einkarýma. Líkaminn væri þeirra og ekki ætlaður karlmönnum sem tækju sér valdið.

Nú er öldin önnur. Líka meðal ,,metoo“ kvenna sem allt í einu hafa vent sínu kvæði í kross. Nú skiptir konulíkami ekki miklu máli, einkarýmin eða kvennaorð.

Trans-æðið tekur á sig nýjar myndir. Breskur hjúkrunarfræðingur sem segist vera kona, með kynfæri karlmanns, afklæðist með kvenhjúkrunarfræðingum, þær eru ósáttar.

Hópur kvenna kvörtuðu til yfirdeildar spítalans en fengu þau svör að þær þyrftu að ,,mennta sig“ og víkka hugann.

Að heilbrigðisstarfsmönnum sé sagt að hundsa líffræðilega staðreynd, að kona sé kona og karlmaður sé karlmaður er í meira lagi undarlegt.

Bethany Hutchison, 34 ára, skurðhjúkrunarfræðingur, sagði m.a.: ,,Ég held að konur þurfi að hætta að óttast þetta og nota rödd sína. Við höfum barist svo lengi fyrir réttindum kvenna en það hefur orðið bakslag og ég er ekki tilbúin að viðurkenna það."

Konur verða að hafa leyfi til að tala fyrir kynbundnum réttindum, rými og þjónustu án þess að vera hótað, lagðar í einelti eða hótað til að fylgja hugmyndafræði sem hafnar raunveruleikanum og hafnar gagnreyndum vísindum.

Lesa má um málið hér.

Hlustið á hjúkrunarfræðinga hér.

Bloggari fagnar því að konur sjái í raun hvað sé í gangi. Vonandi er þetta bara byrjunin á vakningu kvenna í heiminum á gjörð þingmanna að samþykkja lög um kynrænt sjálfræði. Bloggari notar orð transhreyfinga, BAKSLAG hefur orðið í kvennabaráttunni með tilkomu laganna.

Sundkonur í Bandaríkjunum sýndu að þær standa saman gegn trans konum-með kynfæri karlmanns- í sundi. Breskir hjúkrunarfræðingar gera það vonandi líka, burt með trans-konu úr búningsklefa kvenna. Lesið hér um sundkonuna sem sannaði máltækið, oft lítil þúfa veltir þungu hlassi.


Lög um kynrænt sjálfræði ber að afnema

Trans hugmyndafræðin um kynrænt sjálfræði var sett í lög. Þessi lög ber að afnema. Þetta er lögfræðilegur skáldskapur segir Lotte Ingerslev. Lygi er færð í lög.

Við heyrum endalaust sagt ,,en þessi lög skipta engu máli“ og ,,að vandamálin verði leyst þegar þau koma upp“ á sundstöðum og í fangelsunum svo eitthvað sé nefnt.

En að við höfum viðtekið lög í Danmörku (og á Íslandi) sem senda sterk skilaboð. Við getum átt á hættu að dæmdir karlmenn segjast vera konur og þess vegna eigi þeir að afplána í kvennafangelsi, svo dæmi sé tekið. Karlinn getur kært synjun danskra dómstóla um ósk sína og alþjóðlegra stofnana sem telja að leysa eigi vandamálið í ,,vinsemd“ og ,,á einstaklingsgrundvelli.“

Áfrýjunarnefndir munu geta byggt úrskurði sína á því að við höfum innleitt ,,kynrænt sjálfræði" í Danmörku. Hér má lesa um málið í Berlingske.

Á Íslandi voru þessi ólög samþykkt. Við höfum enn ekki lent í að karlmaður segist vera kona og vill afplána í kvennafangelsi. Spurningin er hvenær ekki hvort. Á grundvelli laga um kynrænt sjálfræði, sem er að setja lygi í lög, hafa karlmenn aðgang að einkarýmum kvenna.

Alþingismenn hafa gengið svo langt að útrýma orðum sem eiga við um konur til að þóknast þessum fáum sem falla utan hefðbundinnar kynskráningar. Fæðandi einstaklingur er sagt um fæðandi konu, leghafi, átt við um konu, manneskja með barn á brjósti um móður með barn á brjósti o.s.frv. Lesið hér.

Hvað er kona?

,,Þó hlutirnir séu öðruvísi þýðir það ekki að eitthvað hafi breyst“- Irena Peter


Lög um kynrænt sjálfræði ber að afnema

Trans hugmyndafræðin um kynrænt sjálfræði var sett í lög. Þessi lög ber að afnema. Þetta er lögfræðilegur skáldskapur segir Lotte Ingerslev. Lygi er færð í lög.

Við heyrum endalaust sagt ,,en þessi lög skipta engu máli“ og ,,að vandamálin verði leyst þegar þau koma upp“ á sundstöðum og í fangelsunum svo eitthvað sé nefnt.

En að við höfum viðtekið lög í Danmörku (og á Íslandi) sendir sterk skilaboð. Við getum átt á hættu að dæmdir karlmenn segjast vera konur og þess vegna eigi þeir að afplána í kvennafangelsi, svo dæmi sé tekið. Karlinn getur kært synjun danskra dómstóla á ósk sinni og alþjóðlegra stofnana sem telja að leysa eigi vandamálið í ,,vinsemd“ og ,,á einstaklingsgrundvelli.“

Áfrýjunarnefndir munu geta byggt úrskurði sína á því að við höfum innleitt ,,kynrænt sjálfræði" í Danmörku. Hér má lesa um málið í Berlingske.

Á Íslandi voru þessi ólög samþykkt. Við höfum enn ekki lent í að karlmaður segist vera kona og afplána í kvennafangelsi. Spurningin er hvenær ekki hvort. Á grundvelli laga um kynrænt sjálfræði, sem er að setja lygi í lög, hafa karlmenn aðgang að einkarýmum kvenna.

Alþingismenn hafa gengið svo langt að útrýma orðum sem eiga við um konur til að þóknast þessum fáum sem falla utan hefðbundinnar kynskráningar. Fæðandi einstaklingur- er sagt um konu í fæðingu, leghafi- átt við um konu, manneskja með barn á brjósti- um móður með barn á brjósti o.s.frv.

Hvað er kona?


Kennarar í Garðabæ og kennarinn á Akureyri gengu lengst allra kennara á Norðurlöndum

í því að fá lífsviðurværi kennara tekið frá honum vegna ágreinings á skoðunum. Víða á Norðurlöndunum hafa kennarar haft uppi efasemdir um innreið trans málefna inn í skólana. Menn hafa skipst á skoðunum í blaðagreinum og sjónvarpsþáttum. Notuð eru rök fyrir málflutningi.

Kennararnir í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ og kennarinn á Akureyri gerðu það ekki. Hvergi á Norðurlöndunum, svo bloggari viti, hefur kennari farið fram á að annar kennari missi atvinnuna vegna málaflokksins. Heiða Björg, kennarinn á Akureyri og kennarar í Garðabæ hafa gengið lengst í þeim efnum svo vitað sé. Gott eða slæmt. Veit ekki, en heimskan ríður ekki við einteyming að mati bloggara þegar fólk hagar sér svona. Að auki setja þessir kennarar stéttina niður með þessu háttarlagi sínu. Stétt sem á að kenna umburðarlyndi, víðsýni, hlustun, gagnrýni o.fl. sem þeir ættu sjálfir að beita í þessum málaflokki.

Lesið um málið í Garðabæ hér og hér á Akureyri. Hinsegin fræðin er sálfræðilegur hernaður og í honum taka þessir kennarar þátt með háttarlagi sínu, lesið hér.

Nokkrir trans aðgerðasinnar hafa sent stjórnendum kennara ábendingar um hatursorðræðu og trans fóbíu og skal það tekið fram að um þeirra skoðun er að ræða. Stjórnendur í útlöndum hafa gefið lítið fyrir slíkar kvartanir en ekki íslenskir stjórnendur. Þeir hafa hoppað á ,,woke“ vagninn.

Sænskur kennari vildi ekki nota trans fornafn um barn í bekk sem hún var umsjónarkennari í. Foreldrar héldu fram að barnið væri trans og kennaranum bæri að nota fornafnið. Vegna lífsgilda Selmu sagðist hún ekki geta það en hún myndi nota nafn barnsins. Foreldrar létu ekki laust við fast, sviptu rúmlega tuttugu 7 ára gömul börn umsjónarkennara sinn til að þóknast eigi duttlungum. Hinir foreldrarnir létu hræða sig til hlýðni. Skólastjórinn varð nauðbeygður að gefa eftir frekju trans aðgerðasinnanna, foreldra barnsins og sagði Selmu upp.

Norskur kennari lét í veðri vaka að hann óttaðist atvinnumissi vegna andstöðu sinnar við hinsegin daga í skólum. Gerðist ekki þess í stað stóðu 56 kennarar með honum. Vel gert. Hér má lesa um málið.

Skrif kennarans á Akureyri, Heiðu Bjargar Guðjónsdóttur, til vinnuveitenda um brottrekstur greinarhöfundar, má rekja til birtingar á greinarinnai ógurlegu og pistil grunnskólakennara í kjölfarið, sjá neðar. Sá pistill lýsir skoðun kennarans sem hann skrifar, en er að mati bloggara er hann ómálefnalegur. Þar ákveður kennarinn að ráðast að einstaklingi en ekki málefni. Pistilinn er yfirfullur af fullyrðingum sem eiga hvernig heima að mati bloggara þegar málefni eru gagnrýn og menn ekki sömu skoðunar. En færslan lýsir hans skoðun sem kennara er frjálst að hafa.

Klikkið á myndina og þá skýrist textinn. 

óli


Lífeyrissjóðir kaupa í Blá lóninu

Fréttin á Mannlíf var áhugaverð en Frosti Logasyni les hana upp. Ljóst er að hætta er á að Bláa lónið fari undir hraun því enginn vissi hvernig móðir náttúra muni haga sér. Þegar kaupin áttu sér stað vissi enginn hvernig hver þróunin yrði og því áhættan mikil. 

Lífeyrissjóðir kaupa fyrir 4 milljarða, til að losa einkaaðila undan skuldbindingum. Keypt á yfirverði. Hvað er í gangi? 

Hvernig voga stjórnir lífreynissjóðanna sem fara með peningavöldin að fara í svona áhættukaup.

Spilling? Vissulega í augum almennings. 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband