7.5.2025 | 07:05
Enn fer karlmaður sem telur sig konu í mál- eitruð karlmennska
Nú er það þýsk kona sem á líkamsræktarstöð sem verður fyrir barðinu á slíkum kvengervli.
Laura sem upprunalega heitir Nicloas og er kvengervill kærir líkamsræktarstöð í Erlangen í Þýskalandi. Honum hefur ítrekað verið hafnað þar sem stöðin er eingöngu fyrir konur. Doris Lange eigandi líkamsræktarstöðinni vill hafa kynskipta líkamsræktarstöð. Kvengervillinn lætur sér ekki segjast.
Þetta er enn eitt dæmið um frekju og yfirgang þessara karlmanna sem telja sig konu. Konur fá ekki frið í einkarýmum. Allar Evrópu þjóðir eiga að horfa til dóms Hæstaréttar frá 16. apríl.
Kona er kvenkyns fullorðin einstaklingur og kvengervlar eru ekki konur. Búist er við að réttarhöldin fari fram í næstu viku.
Hefur komst í fréttirnar á síðasta ári. Hann fékk samþykki frá knattspyrnusambandi Bæjaralands til að spila í kvennadeild. Yfirmaður í sambandinu varði ákvörðunina með þeirri endemis þvælu að hormónameðferð hefði dregið úr vöðvamassa hans. Slíkt hefur verið rannsakað og sýnt frá á að vöðvamassi dregst afar lítið saman hafi karlmaðurinn tekið úr kynþroska áður en meðferð er hafin.
Auk málsóknarinnar í líkamsræktarstöðvunum hefur hann einnig höfðað mál gegn nokkrum þýskum fjölmiðlum. Með stuðningi frá opinberu góðgerðasamtökunum HateAid reynir hann að banna birtingu fyrra nafns síns, ljósmynda af honum og það sem hann lýsir sem ,,rangkynjun" í fjölmiðlaumfjöllun.
Ekki nóg með að honum var leyft að spila heldur voru stúlkurnar varaðar við, ef þær settu sig á móti þessu eða segðu eitthvað gæti þeim verið refsað fyrir ,,transfóbíu. Sem sagt; KVENNAKÚGUN!
Víða um heim verða menn að taka sig taki, líka hér á landi, AFNEMA LÖG UM KYNRÆNT SJÁLFRÆÐI.
Fólk sem kallar sig trans hefur sömu réttindi og aðrir. Að hleypa karlgervli inn í kvennarými eru forréttindi eitraðrar karlmennsku. Hér má sjá eina skilgreiningu á eitraðri karlmennsku og svei mér þá, hún á vel við þessa karla.
,,Eitruð karlmennska er hugtak sem á margan hátt er skylt ráðandi karlmennsku, en það sem greinir á milli er að eitruð karlmennska aðhyllist hamlandi og neikvæða eiginleika í fari karlmanna, sem dæmi má nefna öfgafullt keppnisskap, tillitsleysi í garð annarra, yfirvald yfir öðrum, og andúð gegn öllu því sem tengist kvenleika. Þetta er góð lýsing á kvengervli (karlmanni sem skilgreinir sig sem konu)." Þetta er góð lýsing á kvengervli (karlmanni sem skilgreinir sig sem konu).
Öfgafullt keppnisskap; karlmaður sem vill spila í kvennaliðum og sigra konur í einstaklingskeppnum.
Tillitsleysi í garð annarra; karlmaður sem vill í einkarými kvenna og yfirtaka orð þeirra.
Yfirvald yfir öðrum; Kæra þá sem eru honum ekki sammála.
Andúð gegn öllu því sem tengist hið kvenlega; Reyna að breyta raunveruleikanum með breytingum á orðum og staðhæfa, s.s að karlar geti fætt barn og gefið því brjóst, að karlmenn geti haft á klæðum, að karlmaður sé kona.
Hér má lesa um málið og öll afrek hans í kærumálum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2025 | 06:45
Svona fljúga falsfréttir og menn kokgleypa við þessu
Frétt birtist á forsíðu blaðs að trans- manneskja, kvengervill, ætar að flýja Skotland því hann telur sig í hættu. Falsfrétt, svo ekki sé dýpra í árina tekið.
Þetta er það sem falsfréttir gera. Koma ósannindum af stað. Engin manneskja með kynjavandamál hefur verið myrt í Skotlandi síðan mælingar hófust. Skotar geta verið virkilega stoltir af því segir Elaina Miller.
Í Bretlandi eru um þrjár konur myrtar af körlum í hverri viku í Bretlandi. Þú veist ekki einu sinni nöfn kvennanna sem dóu því það þótti ekki fréttnæmt.
Elaina bendir á að í Argentínu eru um átta trans-einstaklingar myrtir á ári en 308 konur.
Að sækja um hæli breytir engu, þeir sem búa í Skotlandi búa í ótrúlega öruggu landi en þegar þér er sagt ,,nei, þú getur ekki spilað fótbolta með stelpunum þá tekur þetta bull við.
Að halda fram að trans-fólk sé í hættu vegna þess að konur fengu réttindi sín til baka eru falsfréttir svo ekki sé meira sagt. Á þessu er klifað til að ná fram meðaumkun og samúð með hópi fólks sem hefur nákvæmlega sömu réttindi og allir aðrir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2025 | 07:00
Höldum áfram að ræða hve rangt það að er að ljúga að börnum
Tveir háskólakennarar, sem virðast ekki hafa lesið Cass skýrsluna sem er áfellisdómur yfir því sem kallast trans meðal barna, hafa áhyggjur af umræðu trans málefna innan veggja skólanna.
Þessir kennarar hafa ekki áhyggjur af lyginni sem borin er á borð fyrir börnin. Gott ef nemendur uppgötva sjálfir að kennarar ljúgi að þeim. Verra er, ef það er látið yfir börnin ganga sem líður illa í eigin skinni. Þau eru fórnarlömb hugmyndafræði sem engin vísindi standa að baki s.s. mörg kyn, kynskipti, úthluta kyni. Börnin eiga bágt og ættu að fá viðeigandi hjálp og sú hjálp er ekki trans-hugmyndafræðin.
Það er ekki við börnin að sakast, heldur fullorðið fólk og kennara sem ljúga að börnum og láta þau halda að líffræðin sé eitthvað annað en hún er. Byrjum á kennarastéttinni, frá leik- og upp í háskólann. Takið ykkur taki, segið börnunum sannleikann.
Höldum áfram að dreifa sannleikanum
Háskólakennararnir töluðu um samfélagsmiðla. Biðla má til fólks að gæta orða sinna þar, en halda í sannleikann. Fái nemendur og foreldrar þeirra réttar upplýsingar um hve rangt það er að telja börnum trú um að kynin séu mörg og öllu sem því fylgir, geta þeir betur varist þessum árásum sem á sér stað í skólakerfinu með aðstoð sveitarstjórnarmanna, Samfylkingarmannsins og formanns KÍ, sem hylla þessi ósannindi.
Ræðum eitraða karlmennsku- að karlar spili í kvennadeildum íþrótta. Að karlmenn séu vistaðir í kvennafangelsum, að karlmenn geti nýtt sér kvennaathvörf, allt vega lyginnar um að karlmaður geti verið kona.
Háskólakennararnir hafa ekki áhyggjur af réttindum kvenna þegar kemur að þessari eitruðu karlmennsku- að segjast vera kona.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2025 | 08:24
Biskup brýtur 9. boðorðið
Boðorðin tíu er listi yfir trúarlegar og siðferðilegar reglur sem samkvæmt Biblíu kristinna manna og Torah Gyðinga voru opinberuð af Guði fyrir Móses á fjallinu Sínaí og Móses hjó á tvær steintöflur. Þau eru grundvallaratriði í kristinni trú og gyðingdómi segir á einni upplýsingasíðu.
Íslendingar eru kristin þjóð. Þegar fermingarbörnin eru í undirbúningsfræðslu eru boðorðið kynnt til sögunar sem trúarlegar og siðferðilegar reglur til að hafa að leiðarljósi. Þau eru hvött til að fara eftir boðorðunum sem þykir góður siðferðilegur grundvöllur í lífinu.
Við skulum hafa það að jöfnu að ,,bera ljúgvitni er sama og að ,,ljúga að börnum og ungmennum.
Níunda boðorðið hljómar svo; ,, Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum. Þrátt fyrir þetta mikilvæga boðorð prédikar Biskup Íslands og nokkrir klerkar að kynin séu fleiri en tvö. Það er ekki sannleikurinn. Líffræðilegu kynin eru tvö og getur aldrei orðið öðruvísi.
Biskup Ísland er vond fyrirmynd barna og ungmenna
Biskupinn ber ljúgvitni fyrir örhóp sem í huga sínum er annað en líkami þeirra segir til um. Og ekkert rangt við að örhópur upplifi slíkt, en að hafa réttindi af öðrum í nafni fjölbreytileika er ekki viðunandi né heldur að fara fram á að allir viðurkenni hugaróra fólks.
Biskup Ísland vill að þjóðin trúi þeirri lygi sem hún ber á borð fyrir almenning, með orðum eins og við eigum að sýna lyginni umburðarlyndi. Nei, að ljúga að börnum á ekki að bera með umburðarlyndi eða meðaumkun. Sannleikurinn er sagna bestur.
Margir kennarar á öllum skólastigum gera slíkt hið sama, ljúga að börnum og vanvirða níunda boðorðið. Formaður KÍ og Samfylkingarmaðurinn, Magnús Þór Jónsson, hefur lagst á sveif með lygunum og ætlar sér að koma kynjafræði inn í öll fög í skólum landsins. Hann hundsar réttindi kvenna og stúlkna til að koma hugnaðarefnum Samfylkingarinnar inn í skólakerfið. Hann hundsar fræði- og vísindaleg vinnubrögð sem finnast í Cass-skýrslunni.
Sama með háskólakennarana tvö sem lýsa áhyggjum af niðrandi umtali innan veggja skólanna um kyngervla og Ruv þótti merkilegt að fjalla um.
Kynjafræðin ekki eins saklaus og menn halda
Í kynjafræðinni er því nefnilega haldið fram að menn úthluti kyni við fæðingu, að börn geti breytt um kyn, að kynin séu mörg og að börn geti verið kyngervlar. Ekkert af þessu er satt.
Getur bara ekki verið að börn innan veggja skólanna hafi fengið nóg af lyginni sem fullorðið fólk ber á borð fyrir þau. Börn eru ekki vitlaust og þau vita flest ef ekki öll að ekkert þriðja, fjórða eða tuttugasta kyn er til. Nemendur verða fyrir miklum áróðri innan veggja skólanna. Hafa þau bara ekki fengið nóg af þessu, háskólakennararnir ættu að spyrja sig að því.
Nemendur vita að börn fæðast annað tveggja strákur eða stelpa. Börn geta ekki skipt um líffræðilegt kyn. Við fæðingu er vitað hvort barið er strákur eða stelpa. Biskup Íslands á að segja börnum sannleikann, ekki ala á lygi og þvælu um mannslíkamann.
Andlega vanlíðan, áföll, sjálfsmyndarvandi og einhverfa veldur nánast alltaf að börnum líði illa í eigin skinni. Það ber að meðhöndla á réttan hátt, ekki ljúga að þeim, og öllum öðrum, að þau geti skipt um kyn. Það getur enginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í heimavistar- og menntaskólanum studdu kennarar gagnrýnislaust löngun dóttur okkar til að skipta um kyn. Í báðum skólunum varð ,,Daníel reyndar svolítið frægur.
Þetta er fimmta greinin af fimm í tengslum við árs afmæli Cass-skýrslunnar. Greinaskil og feitletrun er þýðanda.
Það var í heimavistarskólanum sem dóttir okkar ákvað að hún væri strákur, en skólinn hélt því leyndu fyrir okkur. Starfsfólkið studdi hana heilshugar í löngun hennar til að skipta um kyn og í kjölfarið hafa kennarar og nemendur framhaldsskólans stutt hafa. Barnið okkar, sem ég mun vísa til sem dulnefnið Daníel, varð í raun svolítið frægt barn í báðum skólunum.
Daníel hafði ekki fundið nein merki um ónot í eigin skinni en eitthvað gerðist á kynþroska aldrinum þegar einhverfu hegðun gerði vart við sig. Hann átti erfitt með að fóta sig félagslega. Við skynjuðum líka að hann gæti laðast að eigin kyni. Í gegnum spjall á netinu, í vinahópnum og heimavistarskólanum fann Daníel skýringu á tilfinningu sinni að vera út undan og hann varð hluti af hópi. Sem ,,Daníel passaði hann inn.
Vísað til kynstofu
Daníel var fyrst vísað til kynstofnunnar CKI í Álaborg þegar hann var 18 ára og því fullorðinn. Biðtími á stofuna er eitt ár. Við vonuðumst eftir viðhorfsbreytingu hjá honum á meðan beðið var, eða að meðferðaraðilar myndi meta það svo að ekki væri þörf á kynskiptum. En hann hélt áfram og fékk já.
Með samþykki Daníels fékk ég að vera þátttakandi í einu viðtali hjá CKI Álaborg. Framlag mitt þar virtist óæskilegt af hálfu geðlæknisins. Viðbrögðin voru niðurlægjandi kennsla og skömm.
Mér var einnig tilkynnt að ungmenni sem sækir um hormónameðferð fær bara ,,nei við henni ef það þolir ekki hormónana af líkamlegum ástæðum t.d. vegna yfir- og undirvigtar eða hættu á milli verkunum með geðlyfjum.
Þetta var ógnvekjandi reynsla sem skildi mig eftir með tilfinninguna að áhyggjusamir foreldrar, sem höfðu kynnt sér óvissuna í tengslum við meðferð, væru álitnir óvinir, bæði unga fólksins og kerfisins.
Erfitt og maður er ráðalaus
Þetta hefur verið fjölskyldunni erfitt. Allar tilraunir til að ræða við Daníel um kynskipti hafa verið erfiðar og að vissu leyti skapað átök. Hann hefur séð nokkur myndbönd með fólki sem hefur séð eftir kynskiptum en finnst þau ekki eiga við sig. Þegar á heildina er litið er ekkert annað að gera en bara að vera til staðar fyrir Daníel.
Hann er löngu byrjaður á hormónameðferð og við sjáum ekki betur en líðan hans og heilsa sé verri í dag en áður. Áhugi Daníels á lífinu fyrir utan kyn hefur minnkað til muna. En hann hefur ekki breytt afstöðu sinni.
Móðir stúlku sem hefur áhyggjur, lesa má greinina hér.
Hér má lesa góða grein um svipað efni, Kynröskun stúlkna. Hin nýja ,,móðursýki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2025 | 08:47
Kynröskun stúlkna. Hin nýja móðursýki, er góð grein frá 2020
Ég leyfi mér að birta grein sem birtist í Vísi árið 2020 eftir sálfræðing. Móðursýkinni hefur ekki linnt.
Kyn er fjórþætt; eðliskyn eða kynferði (biological sex, gender, sexuality), sem ákvarðast af gerð kynfæra, sem oftast eru annað tveggja karlkyns eða kvenkyns. Örsjaldan fæðast börn með kynfæri beggja eða vísi að þeim (intersex). Kynvitund eða kynsömun (sexual identity, sexual identification) felur í sér skilning hvers og eins á eigin kyni, þ.e. venjulega, hvort um sé að ræða karl- eða kvenkyn (eða hvorugkyn). Kynvitund stuðlar að mótun kynhlutverka (sexual role, gender role) í samræmi við algengar væntingar og reglur þar um. Kynhneigð snýr að kynhvötinni (sexual need, sexual urge), þ.e. hvernig hver og einn kýs að leysa girnd sína, njóta kynásta. Oftast er um gagnkynkynhneigð (heterosexual) að ræða, þ.e. kona kýs að ástunda kynlíf með karli og öndvert. Stundum er fólk samkynhneigt (homosexual) eða tvíkynhneigt (bisexual).
Kynhneigð hefur í sögunnar rás verið með ýmsu móti. T.d. var samkynhneigð stunduð í Grikklandi hinu forna og þekkt meðal fjölmargra þjóðflokka. Kynhneigð skýrist tæpast nægilega fyrr en á áliðnu gelgjuskeiði eða snemma á fullorðinsárum. Kynhvötin er jafnan óstýrilát. Austurríski læknirinn og sálkönnuðurinn, Sigmund Freud (1956-1939), sagði ung börn ekki vera við eina fjölina felld (polymorph perverse), hvað snerti munúð og unað. Hvort tveggja kynjanna nyti ásta með sama og gagnstæðu kyni. Hins vegar beindi uppeldi og siðboð kynnautninni í ákveðinn farveg. En þrátt fyrir þetta er kynhneigðin býsna óstöðug eins og sjá má, þegar kynin lifa einöngruð hvort frá öðru, t.d. í fangelsum. Þar er t.a.m. ekki óalgengt, að konur verði samkynhneigðar. Sumar taka meira að segja upp dæmigerða karlháttu og hlutverk. En þegar heim er komið verða þær aftur gagnkynhneigðar með karli sínum (eða körlum).
Þekkt er kynröskun, kynvitundarbrenglun eða kynhverfa (transgender, transsexual, sexual dysphoria, gender dysphoria, gender identity dissorder, genderqueer, cisgender), þ.e. efasemdir og óvissa um eigið kynferði, kynósætti. Um er að ræða nokkur tilbrigði. Vægara tilbrigði þessa er klæðnaðarskiptahneigð (cross-dressing), þ.e. sú þörf eða þrá að samsamast gagnstæðu kyni, að því marki að klæðast fötum þess og tileinka sér dæmigert látæði eða hátterni viðkomandi kyns. Oftast er um karlmenn að ræða, karldrottningar (drag queen), og stundum er röskunin hverful. Öllu afdrifaríkari og alvarlegri er sú vitund, tilfinning eða sannfæring, að kynið sé rangt og öfugsnúið.
Slík sannfæring getur stuðlað að ásetningi um kynbreytingu eða kynskipti (transsexualism). Kynröskun hefur bæði hjá ungum og öldnum stundum verið tengd sjúkdómum eins og Klinefelters heilkenni (Klinefelter´s syndrome), ýmsum tilbrigðum við geðveiki (psychosis) og geðklofa (schizophrenia). Kynröskun er skilgreind sem sjúkdómur í ICD (International Classification of Diseases). Kynþroskaröskun er vægari greining sömu grundvallarkynóvissu (sexual maturation disorder).
Kynskipti (sex reassignment surgery, sexual surgery, gender reassignment surgery, sex reassignment therapy, sex change) skyldi framkvæma að ítarlega athuguðu máli, því heilbrigð líffæri eru skemmd við aðgerðina og önnur gerð óstarfhæf, án þess að starfhæf kynfæri og kyntengd starfshæfni miðtaugakerfis hins óskaða kyns verði sköpuð. Kynvakagjöf veldur óafturkræfum breytingum. Karlkona verður ekki að eiginlegri konu, kvenkarl ekki að eiginlegum karli.
Þriðja kynið, samkyn, hvorugkyn eða hinsegin kyn, er þannig til orðið. Hugsanlega er endurskapað það kyn, sem getið er um í grískri goðafræði. Í Samdrykkju forngríska heimspekingsins, Platons, segir: Í fyrsta lagi voru þrjú kynferði manna, ekki tvö, karlkyn og kvenkyn, eins og nú. Auk þessara var til hið þriðja kyn sem var samsett af hinum tveimur. (Þýðing: Eyjólfur Kjalar Emilsson.)
Fram að þessu hafa drengir og karlar aðallega þjáðst af kynröskun jafnvel sex til níu sinnum oftar. En nú virðist hafa brotist út faraldur meðal unglingsstúlkna jafnvel snemma á gelgjuskeiði - sem eru ónógar sjálfum sér, angistarfullar og daprar í bragði. Faraldurinn er í eðli sínu svipaður öðrum sálsýkisfaraldri, t.d. sjálfsmeiðingum og lystarstoli. Þróunin er uggvænleg. Í bók sinni, Óafturkræft tjón: Dætur okkar eru dregnar á tálar í kynskiptabrjálæði, (Irreversible dammage: The transgender Craze Seducing Our Daughters) bendir norður-ameríski blaðamaðurinn, Abigail Shrier, m.a. á, að í Stóra-Bretlandi hafi slíkum aðferðum hafi fjölgað um rúm 4000% milli áranna 2016 og 2017. Svo virðist sem þróunin sé svipuð í heimalandi hennar. Abigail kallar fyrirbærið tímabundna móðursýki.
Ungu stúlkurnar gera sér í hugarlund, að kynskipti muni bæta heilsu þeirra og geð. Hvað veldur? Höfundur segir: Á líðandi stundu er fórnarlambsskilningur eftirsóknarverður meðal unglinga. Þetta er einasti valkostur hvítra unglingsstúlkna, svo margar þeirra velja hann. Abigail bendir einnig á, að það eigi sér stað markviss innræting kynjahugmyndafræði í skólum. Því sé stöðugt haldið að unglingunum, að kyn þeirra gæti verið rangt. ... Í stað þess að kenna börnunum eru þau endurgerð.
Höfundur er Arnar Sverrisson sálfræðingur. Ótilgreindar þýðingar eru höfundar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2025 | 13:27
Höfum það rétt, karlmenn mega ekki spila í kvennaflokki
Merkilegt hvað blaðamönnum er í mun að setja konur niður. Kvengervill er ekki kona og á ekkert erindi í kvennaboltann eða aðrar íþróttir kvenna.
Það væri óskandi að blaðamenn töluðu um að kvennaboltinn sé nú loksins verndaður gegn karlmönnum, sem skilgreina sig sem konur.
Blaðamenn, stjórnir íþróttasambanda og klúbba eiga að fagna allir sem einn. Loksins fá konur réttláta meðferð. Karlarnir, sem skilgreina sig sem konu, verða að spila með sínum líkum eða í karlaflokki. Einfalt, þeir eru ekki konur.
![]() |
Trans konur mega ekki spila í kvennaflokki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2025 | 08:54
Verið góð við konur
Kona ein sá svo marga pósta á samfélagsmiðlum á dögunum þar sem konur voru spurðar af hverju þær væru ekki góðar ,,just be kind við þá karlmenn sem hafa af konum réttindi.
Hún sagðist hafa svarað þessum póstum, en óska nafnleyndar, bað fólk að nota svarið hennar ef það vildi svara svona póstum. Hún varar við að svarið sé langt. Engu að síður mjög mikilvægt.
- Nei, Verið góð. Vertu góður við lesbíur sem hafa nýlega verið neyddar til að hittast á laun og þrýst hefur verið á þær að ,,viðurkenna typpi, ekki þá eru þær kallaðar þröngsýnar.
- Verið góð við konur og stúlkur sem hafa þrælað sér í mörg ár í íþróttum aðeins til að sjá sæti þeirra og verðlaun hverfa til karlmanna eða sem hafa slasast af völdum karlmanna sem spila í kvennaliðum.
- Verið góð við viðkvæma kvenfanga sem eru lokaðir inni með körlum sem hafa verið dæmdir fyrir ofbeldisglæpi og kynferðisofbeldi.
- Verið góð við alvarlega veikar og fatlaðar konur sem þurfa nána umönnun frá kvenkyns umönnunaraðila, en hafa þess í stað neyðst til að þola snertingu karlmanns.
- Verið góð við konur sem hafa verið rannsakaðar af karlkyns lögreglumönnum í stað kvenkyns.
- Verið góð við konur og stelpur sem geta ekki skipt um föt án þess að getnaðarlimur blasi við þeim.
- Verið góð við konur sem hafa upplifað áfall vegna mikilla tíðablæðinga eða fósturláts og hafa þurft að takast á við það á almenningssalernum á meðan karlar standa og horfa á.
- Verið góð við konur og stúlkur á sjúkrahúsdeildum sem þurfa næði, öryggi og reisn á meðan þær eru veikar.
- Verið góð við konur sem þurfa sárlega á kvennaathvarfi að halda eingöngu fyrir konur, eða hópa þolenda nauðgunar.
- Verið góð við konur sem hafa verið lagðar í einelti og hafa þurft að hverfa frá vinnu, sagt upp störfum á meðan stéttarfélög þeirra stóðu hjá og gerðu ekki neitt, eða tekið þátt í eineltinu.
- Verið góð við konur sem hafa verið reknar út úr eigin rými, út úr brjóstagjafahópum og stuðningshópum vegna legslímuflakks, brjóstnáms, meðgöngu og tíðahvörfum bara fyrir að tala um að karlmenn hafi gengið til liðs við okkur.
- Verið góð við þær mörgu, mörgu konur sem hafa fengið móðgandi, ógnandi, ofbeldisfull og kynferðisleg skilaboð fyrir að þora að segja að konur ættu að hafa einhver réttindi.
- Verið góð við þær konur sem hafa verið neyddar til að standa í dómssal og vísa opinberlega til karlkyns nauðgara síns sem ,,hún."
- Verið góð við þær konur sem hefur verið öskrað á og slaufað af fjölskyldumeðlimum eða svokölluðum vinum fyrir að hugsa um konur.
- Verið góð við konur, því guð veit, að við konur megum stundum eiga okkar eigið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)