3.2.2025 | 08:26
Maður getur alveg haft samúð
Maður getur haft samúð með afvegaleiddu fólki sem glímir við ónot í eigin skinni, en um leið að eyða sumum lygum sem því fólki hefur verið talin trú um.
Sem dæmi má nefna að með lögum um lagalega ,,kynleiðréttingu hafa stjórnmálamenn gefið fólki þá hugmynd að þeir gætu á einhverju stigi öðlast réttindi gagnstæða kynsins, segir Lotte Ingerslev
Og heilbrigðiskerfið hefur ekki- sem þeir ættu auðvitað- sagt við t.d. menn sem vilja ,,skipta um kyn:
,,Ertu klár á því að þú getur aldrei, aldrei nokkru sinni krafist að aðrar manneskjur meðhöndli þig eins og þú sért kona?
Og svo erum við með huglausa, mjög huglausa, flokksbundna fjölmiðla sem hafa fjallað um þennan málaflokk eins og það væri útgáfa 2.0 fyrir jafnrétti samkynhneigðra, segja okkur hverja öskubusku söguna á fætur annarri um hvernig þú gætir orðið þitt sanna sjálf, með því að skera eitthvað af líkamanum - sem er svívirðilegasta bullið, en mjög, mjög áhrifaríkt bull.
Svo eru það öll töfraorðin sem hafa hulið og snúið á hvolf það sem rætt hefur verið um - til dæmis: kynstaðfestingarmeðferð (hrollvekjandi, Scientology-legt Reverse Life er orð sem nær yfir mikla líkamslimlestingu sem mjög líklega leiðir til ófrjósemi og lífs sem tengist lyfjaiðnaðinum)
Og þar að auki hafa gagnrýnendur trans sértrúarsafnaðarins átt á hættu að verða afhjúpaðir á samfélagsmiðlum og vera merktir ævilangt með hugtakinu transfóbía, sem er litið á í samræmi við rasista (Ekki gleyma 266b kafla almennra hegningarlaga ), sem gerir það að verkum að fólk þegir, passar upp á starfsferilinn, að tapa áliti fólks og félagslega hringinn sinn.
Þetta hefur gert það að verkum að trans-sértrúarsöfnuðurinn hefur getað dreift handónýtum og eyðileggjandi, vitlausum slagorðum sínum að mestu óáreitt.
Ég gæti haldið áfram, haldið áfram að telja upp hvernig logið hefur verið að fólki og stýrt á þessu sviði.
Það þýðir ekki að þeir séu án ábyrgðar. Fólk getur vel borið einhverja ábyrgð á eigin lífi (þar á meðal lagalega ábyrgð sem fullorðnir bera) á sama tíma og hafa orðið fyrir miklum áhrifum utan frá.
Lotte lýkur máli sínu og segir; Við mennirnir erum bæði frjálsir og bundnir.
Sverðið er voldugra en orð. Því miður.
Það er misskilningur sögunnar að orðið vinni alltaf.
En mikið er það líkt þeim sem tapa að drepa hugmyndafræðilega óvini sína af því maður hefur ekki rökin á valdi sínu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2025 | 09:17
Hvað er þetta með jafnaðarmenn og lítilsvirðingu gagnvart konum
Magnus Heuincke jafnréttisráðherra var tekinn í bólinu í gær. Brotist var inn á síðuna hans SoMe og þá kom sitt hvað í ljós. Það sem þótti áhugaverðast var barátta hans gegn konu sem hefur varið börn, stúlkur og konur. Hann lagði fé til höfuðs henni.
Hann tók þátt í spili, sem trans-aðgerðasinnar bjuggu til og hefur það markmið að ráðast á og sverta konu sem er ekki sammála málaflokknum. Lesið hér.
Í desember 2024 sagði Magnus það sitt hlutverk, sem jafnréttisráðherra að verja trans-samfélagið. Hvað með börn, stúlkur og konur ágæti jafnréttisráðherra. Hvers konar jafnréttisráðherra er það leyfir einum hópi að ganga á réttindi annars til að ná fram réttindum sínum.
Hvers konar ráðherra og þingmaður er það sem vill að börn, stúlku og konur blæði fyrir karlmenn sem skilgreina sig sem konur?
Lélegir ráðherrar og þingmenn. Samfylkingarmaðurinn Sigmundur Ernir er einn þeirra og annar hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2025 | 08:21
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra styður ofbeldi karla í kvennafangelsum
Íslendingar eiga utanríkisráðherra sem hefur lýst því yfir opinberalega á snjáldursíðu sinni að hún ætli að setja ofan í við Trump vegna forsetatilskipana sem hann hefur gefið út. Af því má ráða að Þorgerður Katrín styður ekki þá framkvæmd hans að vernda konur í fangelsi.
Ein af þessum tilskipunum er þessi þar sem karlmönnum, sem skilgreina sig sem konur, verður gert að afplána í karlafangelsi ekki kvennafangelsi. Verið að vernda einkasvæði kvenna og minna á að kynin eru tvö. Konur í fangelsum er viðkvæmasti hópur kvenkynsins.
Þorgerður Katrín, með því að setja ofan í við forsetann, styður karlmenn í kvennafangelsum. Öðruvísi er ekki hægt að túlka orð hennar. Innan múranna hafa konur mátt þola kynferðislegt ofbeldi og nauðgun af hálfu karla sem fluttir voru í kvennafangelsi í nafni laga um kynrænt sjálfræði sem Þorgerður Katrín virðist svo hrifin af. Hún ætlar sér, með góðu eða illu, að breyta samfélagslegum rétti kvenna og hugmyndafræði með því að þröngva nýjum viðhorfum upp á fólk. Það er synd að Íslendingar sitji uppi með svona ráðherra, sem virðir ekki mannréttindi kvenna í fangelsum, og samflokksmann hennar. Hugur þeirra virðist vera hjá karlmönnunum, sem skilgreina sig sem konur og sitja í kvennafangelsum.
Trump hafnar að karlmönnunum séu gefin hormónalyf á kostnað almennings, líka að karlmenn geti farið í aðgerðir til að breyta lim í píku. Almannafé á ekki að kosta slíkt.
Þessi tilskipun hangir sama við fleiri, sem allar miða að því að kynin eru tvö. Þannig hefur það verið, þannig er það og þannig mun það vera. Kyni og upplifun einstaklings á ekki að rugla saman og enn síður að búa til lög um upplifanir eða skilgreiningar fólks.
Þorgerður Katrín ber ekki hag barna, stúlkna og kvenna fyrir brjósti, það má sjá á yfirlýsingu hennar.
Ráðherrann ætti að nota þessa sem fyrirmynd.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)