Öryrkjabandalagið vill koma dýrum og börnum í kjörklefana

Það er hjákátlegt að lesa og hlusta á auglýsingar Öryrkjabandalagsins. Tala um ,,öll“ sem hæfir þegar talað er um börn og dýr.

Þegar kjánalega auglýsingin í útvarpinu heyrðist ,,hvað þarf að vera til að öll geti kosið“ þá vill Öryrkjabandalagið ekki að menn kjósi. Börn hafa ekki kosningarétt og hvað þá öll dýrin!

Öll félagar, Öll félagsmenn, Öll maður, Öll konur, Öll Íslendingar, Öll börnin, Öll dýrin! Hvernig getur Öryrkjabandalagið lagst svona lágt? Hvernig verja þeir svona ljóta málfarsvillu í málflutningi sínum? Ef menn þar á bæ hafa ekki lært íslenska málfræði væri lag að þeir settu upp námskeið. Þetta er öryrkjum og bandalaginu til háborinnar skammar og á ekki að sjást eða heyrast.

Að bandalag öryrkja sé komið inn í ,,woke“ menninguna er þyngra en tárum taki. Rétt eins og menntastofnun á Akureyri, Háskólinn. Líffræðilegt og málfræðilegt kyn er tvennt ólíkt og á ekki að blanda saman.

Öryrkjabandalagið setur niður við þetta. Ættu að lesa þennan fróðleik frá Baldri Hafstað.

öll vildju Lilju


Í Ástralíu er ráðherra kvennamála fáfróður

Kvennamálaráðherra Verkamannaflokksins (Labor), Shannon Fentiman, í Ástralíu sem er kona segir trans-konur vera konur. Það vantar stórlega upp á þekkingu hennar í líffræði. Auðvitað getur þetta allt verið í kollinum á henni eins og þeim sem skilgreina sig hitt kynið.

J.K. Rowling hefur sagt, sem er hreinn sannleikur, þó karlmaður fari í kjól, látið hárið vaxa, máli sig og setur á sig varalit gerir það hann ekki að konu.

Færsla á snjáldursíðu hefst svo; ,,Tími til kominn að kjósa þessa konu úr embætti. Ráðherra kvenna sem talar fyrir hönd karla með krossklæðaburðablæti. Í október 2025 munt þú fá tækifæri til að segja þessari konu að við viljum ekki karla í viðkvæmum rýmum kvenna, við viljum ekki karla í kvennaíþróttum, við viljum ekki karla í kvennafangelsum og við viljum ekki að börn verði fyrir áróðri og þau rugluð af Queensland Education.“

Hér má sjá athugasemdir sem birtust í kjölfarið

,,I’m a Canadian so I can’t help vote her out of office but I certainly hope enough people there will make it happen!!“

Einn svarar ,,it is fine, just identify as an Australian!“

Ein athugasemdin hljómar svo, og mikið er bloggari sammála: ,, Konur hafa misst réttinn og öryggið til kvennaíþrótta, réttinn til búningsklefa af sama kyni, réttinn til stuðningshópa kvenna, samkynhneigð kvenna, réttinn til aðgreindra áfallamiðstöðva fyrir heimilisofbeldi, fangelsi og listinn heldur áfram að stækka. Hvaða réttindi hafa karlarnir sem þykjast vera konur glatað?“

,, Ástralía og allar aðrar enskumælandi þjóðir eru orðnar brjálaðar vegna kynjahugmyndafræði en Rússland og Kína hlæja að öllum enskumælandi þjóðum vegna þess að við höfum villst af leið.“

,, Ef sú fullyrðing er sönn, hvað eiga þá allar konur sameiginlegt? Vegna þess að það eru ekki fínir kjólar og varalitur.“


Svandís Svavarsdóttir stærir sig af að hafa réttindin af stúlkum og konum

Í spjallþættinum Ein pæling segir Svandís berjast fyrir réttindum kvenna. Bloggari hefur ekki séð það en fylgist þó alveg ágætlega með.

Svandís státar sig síðan af því að hafa komið lögum um kynrænt sjálfræði í gegn. Lögum sem ganga á réttindi kvenna og stúlkna. Réttindi sem heimila karlmönnum, sem skilgreina sig sem konur, til að nota sama búningsklefa og þær. Réttindi til karlanna, sem skilgreina sig sem konu, að nýta öll einkarými kvenna. Íþróttir og eins og í útlöndum verður sennilega ekki langt að bíða þar til fangelsin og kvennaathvörfin verða fyrir barðinu á þessum lögum.

Hún talar um intersex af mikill fáfræði. Ótrúlega mikilli fáfræði og augljóst að hún lætur trans hugmyndafræði mata sig á upplýsingum. Intersex er regnhlífaheiti af kvillum sem eru í litningum manna og 5-15 börn í Noregi fæðast með þennan kvilla. Noregi sem hefur um 9 milljónir íbúa.

Nei Svandís Svavarsdóttir berst ekki fyrir réttindum kvenna þó hún haldi það sjálf. Hún gerði grín að konum sem kæra sig ekki um þessa tegund af karlmönnum inn á salernin, sagði að hún hafi fengist við stærri mál en það.

Hennar flokkur, Vg, stuðlar líka að nauðgun íslenskrar tungu af því þau halda að líffræðilegt og málfræðilegt kyn séu eitt og hið sama. Held þau viti betur.


Baunabyssuverkfall kennara, afar eru klókir

Margt skemmtilegt kemur frá öfum. Ábyggilega líka ömmum ef þær láta í sér heyra. Las þessa grein eftir einn afa. Hann talar um baunabyssuverkfall kennara. Gat ekki annað en hlegið. Bloggari hafði ekki hugmyndaflug í nafngiftina. Kannski hefur afinn rétt fyrir sér. Máttleysi kennara í þessari baráttu er ótrúlega mikið. Einstaka skóli hér og þar um landið í verkfalli. Veldur óþægindum hjá þeim fáum sem verða fyrir barðinu á verkfallinu.

Kennarar virðast ekki hafa mikla samúð með baráttu sinni. Eftir að kennarar í Lundarskóla á Akureyri neituðu börnunum um að taka námsefni með sér heim reiddust margir, líka þeir sem hafa stutt kennara í verkfalli. Auðvitað eiga börnin að taka bækur með heim, bækurnar eru eign sveitarfélaganna. Kennarar eru ekki í baráttu við nemendur sína heldur sveitarfélögin og starfsstjórn ríkisvaldsins.

Hver grunnskólakennari ætti að gleðjast yfir að börnin vilji læra heima, halda áfram með námsefnið af sjálfsdáðum. Að dranga úr þrautseigju þeirra og áhuga er óþarfi. Það kemur ekki niður á baunabyssuverkfallinu.

Ef kennarar á öllum skólastigum ætla sér í verkfall gerið það þá almennilega eða sleppið því.


Endemis rugl er þetta

Það er ekki verkfallsbrot að foreldrar aðstoði börn sín við heimanámið. Kennarar í Lundarskóla á Akureyri fóru aðeins yfir strikið. Leyfa á nemendum að sækja skólabækurnar, sem eru í eigu skólanna, vilji þau læra í verkfallinu. 

Skólastjóri, húsvörður og ritari mega afhenda börnum bækur rétt eins og í leyfum kennara og jólafrí. 

Þessi ákvörðun kennara í Lundarskóla að hefna sín svona á nemendum sínum kann ekki góðri lukku að stýra, þeir eru í átökum við sveitarfélagið ekki nemendur sína.

Hver kennari ætti að fagna ef nemendur halda áfram með nám sitt í verkfalli þeirra, sýnir þrautseigju, vilja til náms og dugnað.

Foreldrafélagið á ekki að gefast upp. 


mbl.is Foreldrum sagt að heimanám væri verkfallsbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stendur hann við stóru orðin

Einn hópur manna vonaðist eftir sigri hans. Railey Ganes, sundkona, slóst í lið með honum. Ekki að ástæðulausu. Karlmenn sem skilgreina sig sem konur hafa tekið um 1000 titla sem tilheyra konum. 

Trump lofaði í kosningabaráttunni að loka fyrir þetta, banna karlmönnum sem skilgreina sig sem konu að taka þátt í kvennakeppni. Dásamlegt hljóta allar konur að hugsa. Þá vonandi lýkur þeirri kvennabaráttu.

Vonandi bannar hann tvöfalt brjóstnám á heilbrigða unglingslíkama líka og að þeir sem framkvæma slíkt eigi yfir höfðu sér fangelsinsvist. Þúsundir unglingsstúlkan hafa farið undir hníf læknanna undir því yfirskini að verið sé að hjálpa þeim. Öllu má nafn gefa.

Þá eru kosningar yfirstaðnar og menn geta hafið umfjöllun á verkum Trump.

Hér má hlusta á góðan fyrirlestur um málaflokkinn sem fluttur var á Barnamálaráðstefnunni sem haldið var í okt. s.l


mbl.is Segja Trump nýjan forseta Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varð formanni Félags grunnskólakennara á í messunni

Margir hafa undrast orð formanns Félags grunnskólakennara um kröfu kennara, milljón á mánuði. Menn velta fyrir sér hvort það hafi verið ásetningur hennar að segja þetta eða bara hrokkið upp úr henni. Mjöll er ekki vön að koma fram í fjölmiðlum og því gæti streitan haft áhrif.

Ekki bara að menn undrist, heldur spyrja líka af hverju ættu kennarar að fá milljón á mánuði. Hvar eiga sveitarfélögin að fá peninga? Ríkið, það á að hjálpa til. Skerðing lífeyrisréttinda var líka ríkisins. Og hvað gera sveitarfélögin þegar þeim vantar peninga, hækka skatta á íbúa. Nú nýverið var ákveðið að fæða öll börn sveitafélaganna og það kostar. Jafnvel sveitarfélög sem eru í taprekstri urðu að taka máltíðirnar á sig. Líka fyrir fólk sem hefur efni á að gefa börnum sínum að borða.

Eftir að Mjöll Matthíasdóttir lét þetta út úr sér með milljónina velta menn veikindarétti kennara og annarra opinberra starfsmanna fyrir sér. Sett í samhengi við almennan markaðinn en markmiðið var að jafna launin á milli markaða. Veikindaréttur opinberra starfsmanna er mun betri en fólks á almenna markaðnum. Á að jafna hann? Er það ekki réttlátt nú þegar krafan er að allt annað sé jafnað spyrja menn.

Verði kennari, sem kennt hefur í 18 ár, veikur á hann rétt á 12 mánaða launagreiðslum og 6 mánaða greiðslu úr sjúkrasjóði KÍ. Verði félagsmaður VR veikur, með sama starfsaldur, fær hann 6 mánuði á launum og 5 mánuði úr sjúkrasjóði stéttarfélagsins. Mismunun, já það finnst mörgum. Réttlátt segja ríkisstarfsmenn sem hafa sætt sig við lægri laun í áratugi.

KÍ skrifaði undir samkomulagið þrátt fyrir að ekkert hafi verið fast í hendi. Það er ljóst samninganefnd KÍ getur ekki bakkað með kröfuna um milljón á mánuði nema niðurlægja sig og stéttina með. Sennilega væri 100 þúsund til eða frá ekki tiltökumál, en að ganga frá samningaborði án þess að ná 80-85% af kröfunni, sem Mjöll talaði, yrði niðurlæging.

Rætt er um hvort kennarar eigi að grípa tækifærið og samþykkja breytingu á kjarasamningi og jafnframt að lengja skólaárið. Öllum er ljóst að fleiri og fleiri lenda í vandræðum með börn sín á meðan skólinn er lokaður yfir sumartímann. Kennarar geta selt sveitarfélögunum menntunarkaflann sem kveður á um að endurmenntun kennara skal vera 100 tímar á ári. Kennarar seldu kennsluafsláttinn, svo þeim er ekkert heilagt.

Vangaveltur manna eru margvíslegar, enda kjaramála kennara ekkert launungarmál.


Kvenkyns nemandi mótmælir

Stúlkan, Ahoo Daryaei, fór úr fötunum og gekk um í nærfötum. Það þarf mikið hugrekki til að gera þetta.

Það var í háskólanum þar sem hún nemur. Hvatning fyrir aðrar stúlkur.

Myndband er í dreifingu, auk þess hafa fjölmiðlar birt það. Gott fyrir alheim að sjá þessa fatakúgun.

Hún gekk um en eftir smá tíma var hún tekin höndum af siðferðislöggunni í Íran. Auðvitað, stúlkur mega ekki klæða sig eins og þær vilja.

Hún var sett inn í bíl og ekið á brott með hana. Hver eru afdrif hennar er ekki vitað.

Nemendahópar sem berjast fyrir frelsi segja að unga stúlkan hafi gert þetta til að mómæla ströngum kröfum klerkastjórnarannar. Munum Íslam. Stúlkan mótmælti ströngum kröfum þeirra um klæðnað kvenna.

Á myndbandinu má sjá margar konur, sem eru klæddar svörtu frá toppi til táar, Það er sá klæðaburður sem stúlkan mótmælir.

Hér er fjallað um málið.


Kennarar skrifa undir

Hér er slóð þar sem menn geta skrifað undir til að styðja baráttu stúlkna og kvenna. Það getur verið þú sjálf, dóttir þín, konan þín, móðir þín, frænka þín og allar hinar konurnar sem þér finnst vert að styðja.

Kennarastéttin og stór hluti heilbrigðisgeirans eru kvennastéttir og ættu að vera fremstar í baráttunni til að vernda réttindi stúlkna og kvenna. 

  1. Réttindi kvenna byggjast á kyni þeirra

Kyn eru líkamlegir og líffræðilegir eiginleikar sem aðgreina karla frá konum. Réttindi kvenna og stúlkna ættu að byggjast á kyni, ekki ,,kynvitund".

  1. Móðurhlutverkið er eingöngu kvenkyns staða

Mæðraréttindi og þjónusta byggjast á einstakri, kynbundinni getu kvenna til að ganga með og fæða börn. Þessi réttindi og þjónusta, og orðið ,,móðir" ætti að tilheyra einstaklingum af kvenkyni.

  1. Líkamleg og æxlunarleg heilindi

Konur eiga rétt á að stjórna frjósemi sinni. Halda ætti uppi rétti kvenna og stúlkna til frjósemi og aðgengi þeirra að frjósemisþjónustu. Útrýma á þvinguðum þungunum, staðgöngumæðrum og læknisfræðilegum rannsóknum sem miða að því að gera körlum kleift að eignast og fæða börn.

  1. Skoðana- og tjáningarfrelsi

Konur hafa rétt til að hafa skoðanir án afskipta. Þetta ætti að fela í sér réttinn til að hafa og tjá skoðanir um ,,kynvitund" án þess að sæta áreitni, lögsókn eða refsingu.

  1. Friðsamlegar samkomur og samtök

Konur eiga rétt á friðsamlegum fundum og félagafrelsi. Þetta ætti að fela í sér rétt til að koma saman og umgangast fólk af sama kyni. Lesbíur ættu að hafa rétt til að koma saman og umgangast á grundvelli kynhneigðar sinnar. Kvennaþing og samtök ættu ekki að þurfa að hafa karla sem segjast hafa kvenkyns ,,kynvitund."

  1. Pólitísk þátttaka

Búin voru til tækifæri og ákveðin vernd til að hjálpa konum að ná jafnri stöðu og karlar, svo sem þátttökukvóti. Þessi tækifæri og vernd ættu aðeins að gilda um kvenkyn einstaklinga og skulu ekki ná til karla sem segjast hafa kvenkyns ,,kynvitund."

  1. Þátttaka í íþróttum og íþróttakennslu

Konur og stúlkur eru líkamlega frábrugðnar körlum og drengjum, á annan hátt en æxlunargeta. Til að konur og stúlkur hafi jöfn tækifæri í íþróttum verður íþróttaiðkun að vera einkynja.

  1. Afnám ofbeldis gegn konum

Til að berjast gegn ofbeldi gegn konum og stúlkum ættu aðilar í stuðningsþjónustu að vera af sama kyni fórnarlambs, þar á meðal neyðarmiðstöðvar vegna nauðgunar og athvörf fyrir heimilisofbeldi. Til þess að búa til skilvirka stefnu til að útrýma kynferðislegu ofbeldi þurfum við nákvæm gögn og tölfræði um hver fórnarlömb og gerendur eru, þar á meðal kyn þeirra.


Stjórnmálaflokkarnir sjá um sig- almenningur borgar rekstur þeirra

Hlustaði á áhugavert viðtal við Skapta Harðarson formann félags skattgreiðenda. Þar segir hann, að flokkarnir sem sitji á þingi hafi samþykkt yfir 120% hækkun á fjárframlögum til flokkanna. Flokkarnir fengu 10 milljarða, já þú last rétt 10 milljarða af skattfé almennings undanfarin 15 ár. Hörður bendir á að þetta sé mesta spillingin í íslenskum stjórnmálum.

Flokkur fólksins og Píratar sátu hjá sem er aumingjakosning að mínu mati. Annað hvort ert þú hlynntur eða mótfallinn. Túlka það sem svo að þau vilji þessar greiðslur.

Engin umræða, hvað þá kosning er í samfélaginu um hvort almenningur vilji að stjórnmálaflokkar taki til sín svona mikið fé úr ríkiskassanum. Lítið fer fyrir vilja þeirra að lækka upphæðina.

Hvaða flokkur mun ganga fram fyrir skjöldu og lækka þetta rán sem ég kalla svo á almenningsfé.

Ástæða þess að Vinstri grænir vildu ekki kosningar fyrir áramót því fjárframlög til flokkana eru ákveðin 25. janúar og fer eftir gengi flokkana í síðustu kosninga. Miðað við allar spár mun Vg fá lítið fylgi og þá litla peninga. Eða ekki litla einhverjar milljónir fá þeir, deyjandi flokkur.

Svandís Svavarsdóttir reyndi með tveggja milljóna greiðslu til Kvenréttindafélagsins að kaupa atkvæði í komandi kosningum. Það félag hefur verið ,,vók“ megin í samfélaginu eins og Svandís sjálf. Á meðan fá félög sem aðstoða börn með geðrænan vanda fá ekki krónur frá formanni Vg meðan hún hafi ríkisfé til að deila út. Nei af öllum, atkvæðakaup Kvenréttindafélagsins.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband