Undarlegt

Gott að heyra að sjúkraliðinn hafði betur. Gjörsamlega óviðunandi að fólk missi starfsréttindi og kröfur um nám hafi ekki breyst.

Margir í samfélaginu hafa misst starfsréttindi samkvæmt landlækni sé þessi skoðun við líði. 


mbl.is Landlæknir braut á sjúkraliða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sami grautur í sömu skál

Þeir kunna að koma ár sinni fyrir borð. Óhætt að segja það. ,,Einnig var bent á að þrem­ur mánuðum fyr­ir fall WOW air hafi ráðninga­samn­ingi fjár­mála­stjór­ans verið breytt og upp­sagn­ar­frest­ur hans tvö­faldaður, upp í tólf mánuði." Reyndar féll hann frá þeirri kröfu. Viðbjóður hvernig forsvarsmenn fyrirtækja mala undir eigin rass...endalaust. Hvenær ætla stjórnir fyrirtækja að stoppa svona vitleysu, að menn geti án takmarkana krafist launa sem jafngilda tugum verkamannalaunum. Enginn er þess virði.


mbl.is Launakrafa fjármálastjóra WOW nýtur forgangs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óviðunandi

Fari svo að fæðingarorlof verði ekki merkt föður og móður þá vita flestir hvernig það fer. Feður fara í minna mæli í fæðingarorlof og missa af mikilvægum tíma í lífi barns. 

Ísland hefur skapað sér sér sérstöðu með skiptinu fæðingarorlofsins og því á ekki að kvika.

Hér ger góð grein sem útskýrir málið.


mbl.is Hvert barn fái tólf mánaða rétt til orlofs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má fækka þingmönnum

Bjarni Ben. talaði um bruðl í ríkisrekstri. Of margir þingmenn eru hluti af bruðlinu. Þingmenn eiga að mæta á sína fundi nema veikindi geri vart við sig. Mæta til vinnu eins og annað fólk. Ari Trausti reyndi á ómerkilegan hátt að bera í bætifláka fyrir þingmenn sem mæta of seint, ekki einu sinni heldur reglulega. 

Margar vinnustundir tapast þegar þingmenn haga sér svona.


mbl.is Samtals 14 klukkustundum of seinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halda óbreyttu skólastarfi sem lengst

Skólastarf á að vera með sem óbreyttustu sniði eins lengi og sóttvarnalæknir telur. Börnin þurfa á því að halda og ekki síður samfélagið.

Það væri agalegt að senda krabbameinslækni heim til að vera með ungum börnum sínum- krabbameinssjúkir settir í biðstöðu.

Það væri agalegt að senda sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga heim til að vera með ungum börnum sínum- öll hjúkrun og umönnun riðlast og veikir líða.

Svona er lengi hægt að telja. Leggjum okkur fram við að halda skólastarfi eins eðlilegu og frekast er unnt.


mbl.is Kennarar upplifa sig ekki alls staðar örugga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fæ velgju í hvert sinn sem Lilja Dögg tjáir sig

Til hamingju með daginn kennarar. Alþjóðadagur kennara í dag.

Ráðherra menntamála sá ástæðu til að tjá sig. Einhverra hluta vegna fæ ég velgju í hvert sinn sem hún tjáir sig.

Hún tjáir sig í læstri grein hér.

Ráðherra er yfirborðsleg og ég hef alltaf á tilfinningunni að hún tali aldrei frá hjartanu. Hún þylur upp rullu sem hún hefur lært utanbókar. Sjaldan svarar hún spurningum, fer í kringum þær eins og köttur í kringum heitan graut. 

 


Óþol kennara- vilja láta loka skólum

Óþol er farið að gæta innan kennarastéttarinnar vegna aukinna smita í samfélaginu. Telja sér fórnað fyrir samfélagið. Margir vilja láta loka skólunum. Hve lengi hefur hvergi komið fram. Hver á að borga slíka lokun, kemur heldur ekki fram? Efast um að sveitarfélögin standa straum af slíkri lokun í langan tíma. Kannski þarf að grípa til orlofsréttinda! Grein um málið má lesa á vísi.is
 
Við höfum heyrt af skólum sem loka vegna smitsóttkvíar og í langflestum tilfellum vegna starfsmanns. Oftar en ekki í skamman tíma, innan við viku. Sóttvarnayfirvöld hafa lengi sagt að minna sé um að börn smiti fullorðna. Gott og vel.
 
Loki skólar skapast mikill vandi í samfélaginu. Ég sá frétt um daginn þar sem móðir ákvað að vera með börnum sínum í smitrakningarsóttkví. Sá einstaklingur er krabbameinslæknir, einn af fáum, sem þýðir að á meðan hún er í sóttkví með börnunum sinnir hún ekki krabbameinssjúkum sjúklingum. Krabbameinssjúklingar settir í biðstöðu.
 
Sé foreldrið starfsmaður á öldrunarheimili mætir viðkomandi ekki til starfa til að sinna gamla fólkinu. Ímyndið ykkur ef 5 starfsmenn á einni deild séu sóttkví vegna lokunar skóla í langan tíma. Get ímyndað mér ástandið.
 
Heimilislæknar eiga líka börn, loki skóli þar sem enginn smit hafa greinst þarf að vera heima. Sjúklingarnir bíða o.s.frv. Síðan verður lýðurinn brjálaður yfir því að ná ekki á lækni. Munar um hvern þann sem dettur út.
 
Sálfræðingar eru sem betur fer ekki barnlausir, þeir þyrftu að aflýsa mörgum viðtölum við fólk sem er jafnvel illa haldið af sálsýki vegna lokunar leik- eða grunnskóla. Myndi ekki hjálpa nokkrum, nema kannski róa nokkra kennara.
 
Afgreiðslufólkið í búðum eiga líka börn og loki skólar komast þau ekki til vinnu. Starfsfólkið sem eftir er þarf að leggja á sig mikla vinnu til að allt gangi upp. Öll vitum við að vanti 2 af 6 eða 1 af þremur eykst álag á þá sem fyrir er.
 
Sjúkraliðar í heimahjúkrun eiga börn. Loki skólar verða þeir að vera heima með barni sínu. Hvaða afleiðingar hefur það, annað tveggja að skjólstæðingar fá minni þjónustu, jafnvel enga eða álag eykst á hina sjúkraliðana með skertri þjónustu til allra.
 
Skil mjög vel þau rök að loka ekki leik- og grunnskólum. Komi upp smit þá þarf auðvitað að loka en þá er það í skemmri tíma. Séu foreldrar tveir má skipta verunni heima, sumir eru heppnir að geta unnið að heiman en hjá mörgum stéttum er það ekki hægt.
 
Fer ekki í grafgötur með mína skoðun. Skólar eiga að vera opnir eins lengi og kostur er. Sem kennari passa ég mig utan skólans, fer ekki á staði þar sem fjölmenni er. Ég fer í búð þegar fáir eru og þannig sníð ég mér stakk eftir vexti. Ekkert óþarfa búðarráð! Mæti með andlitsmaska þar sem þarf o.s.frv. Held að þetta sé eina ráðið, hver og einn verður að passa sig.
Ég er líka þeirrar skoðunar að hafi kennari undirliggjandi sjúkdóm, og vera hans í skólanum eykur áhyggjur hans vegna þess og álag, á hann að taka veikindaleyfi í samráði við lækni. Kennarar hafa góðan veikindarétt og sjálfsagt að nýta hann í svona aðstæðum.

Fækka þingmönnum um 10-12

Eins sóun á fjármunum er greiðsla til of margra þingmanna. Fækka þeim um 10 eða 12. Nóg að hafa hafa þá sem eftir eru.

Mikil peningasóun í hundruð milljóna fjárframlagi til stjórnmálaflokka- má lækka.

Starfrænt Ísland- góð hugmynd, þarf að gilda um Sjúkratryggingar, TR og heilsugæsluna sem sendir engin vottorð eða skjöl rafrænt.

Sjávarútvegslindin á að gefa okkur meira, þjóðin á hana. 

Erfa- og fjármagnsskattur má vera óhreyfðu í einhver ár meðan við náum okkur út úr kreppunni.

Ofmönnun í stjórnunarstöðum hjá ríki og sveitarfélögum, líka inni á heilbrigðikerfinu.

Víða má skoða sóun á fjármunum.

 


mbl.is „Höfum séð blóðuga sóun úti um allt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjánalegar konur

Ekki ofsögum sagt að myndbirtingar margra kvennar eru hjákátlegar. Reyndar bráðfyndnar. Sumar af kynferðilegum toga, enda margar sem vilja sjást þannig. Hér má sjá skemmtilega útfærslu karla áá myndbirtinum kvenna. Hun.is birtir þessa skemmtilegu frétt. Alveg þess virði að skoða og brosa ef ekki hlægja.


Enn ósamið við kennara

Dreg ekki dul á að mér fannst rangt af forystu grunnskólakennara að hafna samningi í sumar, Lífskjarasamningum. Öðrum félögum innan KÍ var boðið það sama. Þeir tóku samningnum. Staða í samfélaginu hafði sitt að segja, rétt mat.

Forysta grunnskólakennara töldu, í ljósi covid, að þeir fengju meira en aðrar stéttir. Raunin er ekki sú. Kjarasamningur grunnskólakennara losnaði fyrir nærri hálfu öðru ári síðan. Staðan er erfið. Sáttasemjari innan seilingar. Málið getur velkst þar í nokkra mánuði. Staðan í samfélaginu er kennurum ekki hagstæð nú frekar en fyrr á árinu.

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband