Jótlandsdeild Danska knattspyrnusambandsins ber virðingu fyrir konum. Það sýndu þeir og sönnuðu þegar kosning fór fram í gær. Stjórn sambandsins (DBU) lagði fram tillögu að karlmenn, sem skilgreina sig sem konur, fái að velja hvort þeir spili með kvenna-eða karlaliði. Að sjálfsögðu á hinn veginn líka. Aðrar deildir eiga eftir að taka tillöguna fyrir.
Það þurfti 2/3 til að samþykkja tillöguna svo hún yrði að lögum innan sambandsins. Já atkvæðin urðu aðeins 34 af þeim 250 sem höfðu atkvæðisrétt. Hjarta fótboltamanna slær með stelpunum, ekki dyntum karlmanna, sem skilgreina sig sem konur.
Einn af stjórnarmeðlimum sem talaði fyrir þessari tillögu fannst meira virði að leyfa karlmönnum þetta val en að virða kvenkynið, sem vill fá að spila með og á móti eigin kyni. Ekki hinu kyninu.
Mikil barátta var í gangi í Danmörku um tillöguna og ekkert launungarmál að karlmaður, sem skilgreinir sig sem konu, var ráðgjafi fyrir nefndina. Nefndin þurfti sem betur fer, og þessi umræddi maður, að kokgleypa þvæluna. Nú er bara að vona að önnur svæðafélög fari eins að.
Margir hafa stigið fram og bent á hættuna við að hafa hafa karlmenn í kvennaliðum. Það þarf enga doktorsgráðu til að sjá ójafnvægið, karl á móti konu. Það er ástæða fyrir að félögin kynjaskipta.
Til hamingju konur, við eigum þetta skilið. Eins og áður hefur komið fram, konur tapa kannski smáorrustum, en stríðið vinnst. Enn merkilegra er, að konur eru enn og aftur komnar í baráttu fyrir íþróttum og nú að halda karlmönnum frá kvennaliðum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.1.2025 | 09:09
Er þessi þvæla komin í skólana á Íslandi?
Það ríður ekki við einteyming þvælan sem menn setja frá sér þegar trans-málaflokkurinn er annars vegar. Nú myndar fólk sig með rauða málningu í klofinu til að segja okkur að ,,fólk fari á blæðingar. Sjá mynd neðst í færslunni. Hvílíkt og annað eins bull. Konur hafa á klæðum ekki fólk og alls ekki trans-konur sé það hugmyndin að koma því til skila.
Skólakerfið hefur verið um langan tíma sýkt af hugmyndafræðinni. Vísindum kastað fyrir róða og hugmyndafræði tekin inn.
Foreldrar þurfa að vera vakandi yfir kennslu í þessum fræðum því mörgu sem haldið er fram stenst enga skoðun. Ekkert frekar en hjá sértrúarsöfnuðum sem reyna að telja mönnum trú um eitthvað sem stenst ekki, eilífi eða betri heimur handan við hornið.
Þeir kennarar sem hafa tekið þessa kennsluhætti upp eru annars flokks að mínu mati. Þeir hafa ekki lært mikið í námi sínu ef vísindi og staðreyndir fjúka út í veður og vind fyrir skoðunum og upplifun fólks. Allt í góðu að hafa skoðun og upplifun, en að troða því inn í kennslu og telja skólabörnum trú um það sem ekki stenst er léleg kennsla. Mjög léleg.
Nóg er um að skólastjórar haldi upp áróðri með flöggun trans-fána við skólana og bloggari er nokkuð viss, að fæstir þeirra vita hvað litir fánans þýði í raun. Held að þeir hafi ekki hugmynd um hvaða hópar eigi aðild að fánanum. Segja eins og kjánar ,,þetta er til að fagna fjölbreytileikanum. Já, kjánar!
Bloggara býður við mynd og rangfærslum af þessu tagi. Allir sem einn, við þurfa að útrýma svona þvælu. Látið engan telja ykkur trú um að aðrir en konur hafi á klæðum. Leiðréttið þvæluna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.1.2025 | 09:05
Munu heilbrigðisstarfsmenn stíga fram (á aldrei von á kennurum, sem sýnir aumingjagang stéttarinnar)
Nú þegar eigandi Fasbókarinnar hefur aflétt banni við sannleikanum og málfrelsi velti bloggari vöngum, munu heilbrigðisstarfsmenn stígi fram og segi sannleikann um málflutning trans- hreyfinga.
Hingað til hafa menn þurft að gæta orða sinni þegar transið er annars vegar. Allt fjarlægt, allur sannleikur sem fólk segir um málflutning hreyfinganna. Tjái menn sig geta þeir búist við hundsun og útlokun, vegna umræðu um sannleikann.
Hins vegar birtast orð trans-hreyfinga óáreitt, bloggari kallar það áróður á stundum. Þegar karlmenn birtast börnum til að segja þeim að koma til sín ef foreldrar eru vandamál. Að börn eigi bara að stökkva út sem trans ef þau eru ekki viss um kynhneigð sína, o.s.frv.
Snorri Másson segir í grein á Vísi; ,, Athyglisvert er að þar nefnir forstjórinn sérstaklega að ritskoðun hafi verið mikil í málaflokkum á borð við innflytjendamál og kynjamál. Satt og rétt, sérstaklega ef sannleikurinn er skrifaður. Vonandi verður breytinga þar á.
Mun heilbrigðisstarfsfólk nú geta sagt; það er ekki hægt að skipta um kyn, karlmenn geta ekki haft barn á brjósti, samkynhneigður karlmaður er ekki með leg, kynin eru tvö, karlmenn eiga ekki að leita til kvensjúkdómalæknis þó þeir skilgreini sig sem konu, karlmenn eiga ekki heima í kvennafangelsi eða athvörfum kvenna, þó þeir skilgreini sig sem konu.
Mun fólk innan menntageirans nú segja; Málfræðilegt kyn og líffræðilegt eiga ekkert sameiginlegt, lýsingarorð (af því orðin lýsa upplifun einstaklings) trans-hreyfinga eru ekki ,,fornöfn sem tilheyra tungumáli.
Mun íþróttahreyfingin nú segja; Karlmenn eiga ekkert erindi í kvennaíþróttir, þó þeir skilgreini sig sem konu. Karlmenn sem skilgreina sig sem konu, eiga ekkert erindi í baðklefa stúlkna.
Munu skátarnir stíga fram og segja; Nei takk við blöndum ekki kynjunum sama, þó einhver skilgreini sig sem annað en hann fæddist (engum er úthlutað kyni). Við fórnum ekki fjölda skáta fyrir fáa. Skátar gista bara í tjaldi með sínu kyni, ekki skáta af gagnstæða kyninu.
Breytingar á fasbókinni
Á Krossgötum er grein og í henni stendur m.a., feitletrun er bloggara
,,Skaðinn gekk upp allan pýramída samfélagsins. Á einstaklingsstiginu var fólk svipt störfum sínum fyrir það eitt að deila raunverulegri reynslu sinni. Vísindamenn og læknar, sem drógu í efa hinar viðteknu kenningar, voru útilokaðir úr hópi fagmanna. Margir fengu á tilfinninguna að þeir væru einangraðir eða upplifun þeirra fölsk þegar samfélagsmiðlar merktu raunverulegar frásagnir þeirra sem rangar.
En eyðilegging fjölskyldutengsla gæti reynst það sem lengst varir. Matarboð á helgidögum urðu fámennari. Afi og amma misstu ómetanleg tækifæri til samvista með barnabörnum. Systkini, sem höfðu haldið tengslum í áratugi, hættu að tala saman. Margra ára fjölskyldutengsl rofnuðu ekki af því að fólk var ósammála um staðreyndir, heldur vegna þess að sjálfur rétturinn til að ræða þær var dreginn í efa.
Í greininni er klausa, sem er sérsniðin fyrir kennarastéttina, ,, Spurningin er ekki sú hvort við getum endurheimt það sem tapaðist það getum við ekki. Spurningin er sú hvort við munum loksins læra að virða þessi réttindi sem óafsalanleg, eða halda áfram að meðhöndla þau sem óþægilegar hindranir sem má sópa til hliðar um leið og ótti eða óvæntir atburðir krefjast þess. Benjamin Franklin varaði við því að þeir sem eru reiðubúnir að afsala sér nauðsynlegu frelsi fyrir skammvinnt öryggi, eigi hvorki frelsi né öryggi skilið. Viðbrögð okkar munu ráða því hvort við arfleiðum börn okkar að samfélagi sem verndar nauðsynlegt frelsi eða hvort við vörpum því án umhugsunar fyrir róða í nafni öryggis.
Hvað með kennara?
Minni á þessi viðbrögð við grein sem átti rétt á sér og á enn og ekki síður þessi viðbrögð. Afstaða stjórnarmenn kennara á Norðausturlandi sýndi að sannleikurinn og umræða um hann á heima undir teppi rétt eins og fasbókin fannst, en lætur nú af. Ætla nú ekki að tala um hlut stjórnenda sveitarfélaga og skóla.
Kennara ættu að hafa orð Mark Zuckerbergs ,, en það er líka margt raunverulega slæmt þarna úti; eiturlyf, hryðjuverkastarfsemi, misnotkun á börnum. Þetta er eitthvað sem við tökum alvarlega og viljum leysa með ábyrgum hætti. Við byggðum því upp mjög flókin kerfi til að ritskoða efni, en vandinn við flókin kerfi er að þau gera mistök.
Bloggara er sérstakleg umhugað um misnotkun á börnum, það hefur sýnt sig að mörg börn hoppa á trans-vagninn í gegnum samfélagsmiðlana. Láta heillast. En samkvæmt Kennarasambandi Íslands og stjórnarmönnum Bandalags kennara á Norðurlandi eystra ber að sópa því undir teppi. Eins og frægt er orðið; ,,Þegja frekar en segja sagði formaður Kennarasamtakanna, Magnús Þór Jónsson.
Áfram segir Mark; ,, En nú höfum við tækifæri til að endurreisa tjáningarfrelsið, og ég er spenntur að takast á við það. Það mun taka tíma að gera þetta rétt. Skyldi kennarastéttin gera það sama, endurreisa tjáningarfrelsið án dóms og laga yfir þeim sem tjá sig?
Verður fróðlegt að sjá hvort breyting verði í raun og veru eða hvort Mark raupi bara.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2025 | 08:51
Búið að ræna grænu skátastelpunum- höldum þessu leyndu
Breska skátahreyfingin hefur ekki látið sitt eftir liggja til að boða trans-hugmyndafræðina. Nú hoppar sú danska upp á trans-vagninn.
Danska skátahreyfingin hefur gefið út leiðbeinandi hefti fyrir foringja sína. Í heftinu ,,kyn í hreyfingunni geta skátaforingjar m.a. lesið, að önnur börn eða foreldrar þurfi að vita ef ,,trans- stúlka (það er að segja drengur) sofi í tjaldi með stúlkunum og baði sig með þeim. Og kynskilgreining skátabarns getur verið eitthvað sem skátaforingi á að halda leyndu fyrir foreldri.
Í heftinu má finna orðabók trans-hreyfinga. Orð sem þær hafa búið til og eiga að lýsa hugarástandi og tilfinningum einstaklings.
Það er baráttukonan, fyrir börnin, Lotte Ingerselv sem hefur tekið þetta saman um dönsku skátana. Hún segir áfram; Það vil segja að unglingsdrengur, sem hefur ekki farið í gegnum eða óskar ekki að fara í gegnum hormónameðferð eða skurðaaðgerð, getur sagt að hann sé stúlka og þá er hann það- hjá grænu stelpuskátunum.
En, hvað svo með gistingu í tjaldi? Þar er lögð áhersla á ,,umhyggju fá skátaforingjarnir að vita. Takið eftir umhyggja fyrir ,,transinu. Það stendur ekkert um umhyggju fyrir aðra í flokknum.
Lögð er áhersla á að skátaforinginn eigi að vera meðvitaður um að kynskilgreining skátans þurfi jafnvel að halda leyndu fyrir foreldrum barnsins, hafi barnið ekki sagt foreldrum sínum frá því.
Bloggari spyr, á hvaða vegferð er skátahreyfingin? Væri ég foreldri myndi ég ekki sætta mig við svona vinnubrögð og ofbeldi á öðrum börnum sem reikna með að sofa í tjaldi með eigin kyni, ekki gagnstæða kyninu. Danska skátahreyfingin er komin á sama stað og Danska knattspyrnusambandið sem gerir drengjum, sem skilgreina sig sem stelpur, hærra undir höfði en stelpunum. Slík skilgreining getur aldrei leitt til breytingar á líffræðilegu kyni.
Í heftinu heldur hið leyndardómsfulla vegferð milli skátans og skátaforingjans áfram, aðrir foreldrar eiga ekki rétt á að vita ef dóttir þeirra gistir í tjaldi eða baðar sig með strák sem skilgreinir sig sem stelpu.
Hvað er verið að leggja á börn í þessari skátahreyfingu. Af hverju er flokksforingjum kennt að ljúga og halda mikilvægum upplýsingum frá foreldrum. Skyldi íslenska skátahreyfingin vera komin á sama stað?
Brot úr heftinu má sjá í færslu Lotte á transkoen.dk
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.1.2025 | 07:40
Blaðamaður eða áhrifamaður? Blaðamaður vinnur meiðyrðamál
Í vor höfðaði fréttaritari Ísraels í Danmörku, Jotam Confino, meiðyrðamál gegn Asmaa Abdol-Hamid, fyrrverandi stjórnmálamanni Enhedslisten.
Hún fór yfir strikið þegar hún gaf í skyn á samfélagsmiðlum að fréttaritarinn gæti verið áhrifavaldur Ísraelsríki.
Héraðsdómur Kaupmannahafnar kvað upp dóm í máli Jotam gegn Asmaa Abdol, skýr dómur. Dagsektir eru lagðar á hana, 1000 dk. krónur á dag. Hún var líka dæmd til að borga honum 35.000 kr. og málskostnað hans upp á 39.000 krónur. Jotam fór fram á 200 þúsund dk. kr.
Nokkrar færslur
Það voru nokkrar færslur á Facebook sem urðu til þess að Jotam Confino höfðaði mál gegn fyrrverandi stjórnmálamanninum fyrir ærumeiðingar og rógburð.
Málið var höfðað með kröfu um að hún leiðrétti málflutning sinn og greiddi Jotam Confino 200.000 dk. krónur.
Í röð færslna á Facebook lýsti Asmaa Abdol-Hamid efasemdum um hvort Jotam Confino starfaði sem blaðamaður fyrir TV 2 eða sem áhrifamaður fyrir Ísraelsríki.
,,Er framlag Confino á skjánum afar lélegt handverk blaðamanns eða er hann áhrifavaldur með samning við stjórnendur TV 2?," skrifaði hún meðal annars í færslu 23. desember 2023.
Sú færsla var ein af löngum færslum þar sem fyrrverandi stjórnmálamaðurinn réðst á Jotam Confino, sem starfaði hjá TV 2 frá 7. Október 2023 til vors 2024.
Persónumorð
Færslurnar upplifði Jotam Confino sem beinlínis persónumorð.
,,Sérstaklega á tímabilinu frá 7. október 2023 fram í janúar, þegar við vorum rökræddum. Á tímabilinu setti hún fram fjölda ásakana sem eru ákaflega ærumeiðandi. Þetta er ekki spurning um að hún kalli mig fífl eða hálfvita, heldur mjög sérstakar ásakanir um hver ég er og hvað ég geri," sagði Jotam Confino í maí 2024 við Weekendavisen.
Asmaa Abdol-Hamid hefur áður lýst því yfir að hún líti á stefnuna sem tilraun til að höggva í málfrelsi hennar.
,,Sem borgarar ættum við að geta tjáð gagnrýni á fjölmiðla án þess að þurfa að óttast að vera sótt til saka. Þú verður að geta þolað það sem blaðamaður og það á líka við um Confino," sagði hún við Politiken og útskýrði að hún teldi að Jotam Confino, með gjörðum sínum á samfélagsmiðlum, bjóði sjálfur upp á dans.
Munur á gagnrýni og ásökunum
Eftir dóminn í dag segist formaður danska blaðamannasambandsins, Tine Johansen, vera sammála Asma Andol.Hamid um að blaðamenn verði að geta þolað gagnrýni á störf sín.
,,En í þessu tilfelli er þetta ekki spurning um gagnrýni. Þetta er ásökun sem ekki er hægt að skjalfesta og miðar að því að draga trúverðugleika hans og vinnuveitanda hans í efa," segir stjórnarformaður DJ.
Hún er því sátt við niðurstöðu dómsins.
,,Á heildina litið er ég sátt við að þessi lína sé dregin og undirstrikar að það er munur á gagnrýni á það sem þú gerir sem blaðamaður og ásökunum um að þú sért tengdur og háður öðrum," segir Tine Johansen.
Lesa má fréttina hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2025 | 09:30
Aumingjar sem þora ekki í umræðuna
Börn í heiminum eiga góðan baráttumann. Mér finnst hann betri en Umboðsmaður barna, Samtökin Barnaheill og Geðhjálp hér á landi. Þessi samtök hafa sýnt vók hlið sína og tekið afstöðu með innrætingu, eða hugstuld, á börnum.
Baráttumaðurinn hefur ekki látið deigan síga, hann hefur gert baráttuna fyrir börnin að aðalmáli sínu. Hann hefur ferðast um heiminn til að vekja athygli á baráttu sinni fyrir börnin.
Lögreglan tekur misvel á málunum. Þegar ráðist var á hann í Ástralíu sést lögreglukona brosa. Hver og einn getur túlkað það eins og hann vill. Að mati bloggara er það ógeðfellt, af lögreglu, að brosa þegar ráðist er á mann.
Af hverju allt þetta ofbeldi? Ég segi bara; aumingjar á ferð sem styðja veikan mástað. Þeir geta ekki réttlætt hann munnlega, enn síður með hnefunum. Baráttumaðurinn heldur áfram.
Hér getið þið hlustað á fréttaflutning af málinu og lesið um það hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2025 | 09:14
Kennara dæmdar bætur, hún var látin fara því hún vildi ekki nota ,,persónufornöfn" trans-hreyfinga
Trans-hreyfingar víða um heim bjuggu til ,,persónufornöfn svo fólk sem telur sig hafa mátt til að breyta kyni mannsins, geti notað til að lýsa sér betur. Þetta er frekar lýsingarorð en persónufornöfn. Orðin lýsa upplifun einstaklings sem notar orðið. Þessum hreyfingum virðist líka illa við kven- og karlkyn, sem er skrýtið því allir eru annað tveggja.Því verður ekki breytt og hefur aldrei verið hægt. Og, ef það eru málfræði kynin sem fer svona í taugarnar á hreyfingunum má benda á að málfræðilegt kyn og líffræðilegt kyn hafa ekkert með hvort annað að gera.
,,Kynin þrjú í íslenskri málfræði kallast karlkyn, kvenkyn og hvorugkyn. Þessi heiti gætu vakið þá hugmynd að karlkyn væri eingöngu notað um karla og aðrar karlkyns verur, kvenkyn um konur og aðrar kvenkyns verur og hvorugkyn um annað, það er dauða hluti og hugtök. Það á þó ekki við um íslensku nú á tímum og hefur ekki heldur átt við á fyrri öldum íslenskrar málsögu eða þeim forsögulegu tímum sem málfræðingar hafa yfirsýn yfir. Karlkynsorð og kvenkynsorð eru iðulega notuð um fyrirbæri sem eru ekki gædd líffræðilegu kyni (kk. veggurinn, sannleikurinn, kvk. hurðin, gleðin), og hvorugkynsorð um karlkyns og kvenkyns verur (barnið, skáldið)." Heimild.
Kennari í USA, trúuð kona, neitaði að nota ,,persónufornöfn trans-hreyfinga á börn sem hún kenndi. Skólinn stuðlaði að brottrekstri hennar og nú hafa þeir tapað dómsmáli. Sem betur fer. Þetta er viðurkenning á að engum ber skylda til að nota ,,persónufornöfn (lýsingarorð um einstakling) trans-hreyfinga.
- Það eru þrjú persónufornöfn í íslenskri tungu Kyn: Karlkyn, kvenkyn, hvorugkyn
Breytingar á tungumáli gerist ekki með að trans-hreyfingar búi til eitthvað orð sem hentar þeim. Vissulega bannar þeim enginn að nota það um sig og sína líka, en ekki er hægt að skylda aðra til að nota þessi tilbúnu orð. Það er t.a.m. enginn maður kynlaus í heiminum. Enn síður að draga eigi þessi orð inn í skólakerfið.
Það fór hrollur um mig að lesa grein um ofbeldi eftir starfsmann Kennarasambands Íslands (KÍ), menntaðan íslenskukennara, Sigrúnu Birnu Björnsdóttur Kaaber. Í greininni notaði hún orð trans-hreyfinga, en greinin fjallaði um ofbeldi gegn kvenkyninu. Þegar kennarasamtök ganga svo langt að leyfa starfsmönnum sínum að afbaka íslenska tungu (og íslenskukennara að auki) þá er eitthvað verulega mikið að hjá þeim.
Hér má lesa um mál kennaranssem fékk bætur, myndband í fyrstu athugasemd þar sem rætt er við hana.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er áhugavert að hlusta á Norræna karlmennsku þegar sem hann tekur fyrir nauðgunarmálin í Bretlandi. Skjölin sem opnuð voru sýna hvers konar hryllingur var í gangi. Talið er að um 250 þúsund breskar, hvítar, stúlkur hafa orðið fyrir kynferðisofbeldinu. Stúlkunum var hóp og raðanauðgað af Pakistönum, sem hleypt var inn í landið, og það eru til skýrslur um það.
Einari Karli finnst þetta lítill hluti af öllu kynferðisofbeldi í heiminum. Maður hristir hausinn, getur manninum verið alvara!
Einari finnst að menn eigi frekar að taka fyrir áróður Musk gegn innflytjendum, en sannað er að þetta voru hópar manna frá Pakistan. Honum finnst tölurnar um stúlkurnar á reiki. Hann talar ekki um viðbjóðinn að fullorðnir karlmenn standi í röðum og nauðga breskum börnum, takið eftir þær voru börn á þessum tíma. Hann talar ekki um allar þær stúlkur sem þora ekki að stíga fram, sem vilja þegja frekar en segja. Kannski eru það nákvæmlega þessi viðbrögð, sem Einar Karl sýnir, sem þær óttast. Lítið mál þegar á heildina er litið. Við trúum ykkur ekki.
Fréttamiðlar hér á landi hafa ekki fjallað um málið nema Nútíminn, lesið hér. Í fréttinni er viðtal við stúlku sem lenti í klóm Pakistananna. Hún var lítið barn þegar óhugnaðurinn hófst. Hér má horfa á viðtalið við stúlkuna.
Norræn karlmennska sýnir myndbrot þar sem þingmaður ræðir við lögreglustjóra og vegna viðbjóðsins beygir hann af. Skiljanlega. Hlustið hér.
Fyrir nokkrum árum sá bloggari heimildarmynd um málið í Rochdale, hana má sjá hér.
Tommy Robinson hefur fengið bágt fyrir og meira að segja setið í fangelsi fyrir að vekja athygli á stöðu mála í Bretlandi. Hann hefur m.a. fjallað um þessar nauðganir sem fyrirmenn í samfélaginu og lögreglunni breiddu yfir. En nokkur undra að Bretlandi sé á suðumarki.
Ef Viðreisn, með sína stefnu um opin landamæri, ætlar að verja menn af erlendum uppruna á þennan hátt, sama hvar þeir búa, held ég að menn þar á bæ ættu að endurskoða málaflokkinn hjá sér. Svona menn eiga sér engar málsbætur frekar en franski eiginmaðurinn sem var dæmdur á dögunum fyrir að hóp- og raðnauðgað eiginkonu sinni.
Það er ekki Elon Musk sem stendur fyrir ófriði í Bretlandi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.1.2025 | 10:46
Intersex er ekki sérstakt kyn
Samt er það sett þannig inn í skólabækur grunnskólabarna. Visku sína fá höfundar frá hugmyndafræði ekki staðreyndum eða vísindum. Talið er að um 1.7% einstaklinga í heiminum fæðist með ódæmigerð kyneinkenni Höfundar skólabókanna hafa brugðist skyldu sína, og kennarar ekki síður, þekki þeir ekki inntak hugtaksins intersex. Endurskoða þarf skólabækur sem halda þessu fram því það er ekki rétt samkvæmt líffræðinni.
Sameinuðu þjóðirnar og Evrópuráðið: ,,Talið er að allt að 1.7% af heimsbyggðinni fæðist með afbrigði af intersex: Intersex er regnhlífahugtak sem hefur um 40 ólík intersex afbrigði, með ýmsum undirflokkum, í danska heilbrigðikerfinu eru skráðir 185 ólíkir greiningarkóðar. Þetta kemur fram hér.
Doktor Colin Wright er líffræðingur sem hefur haldið fyrirlestra um kyn, litninga og galla í kerfinu. Hann segir réttilega að því sé haldið fram að kyn sé eitthvað fljótandi fyrirbæri. Auðvitað er það ekki. Hver heilvita maður veit það. Hvet lesendur til að hlusta á þennan fyrirlestur. Colin er með margar góðar myndir þegar hann útskýrir mál sitt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2025 | 10:45
Konur þurfa að stofan baráttuhóp til að vernda réttindi sín
Engir þingmenn virðast hafa réttindi kvenna í hug þegar kemur að lögum um kynrænt sjálfræði. Konur og stúlkur misstu þar mikilvæg réttindi, afnota af kyngreindum rýmum. Nú mega konur vænta þess að mæta karlmanni í baðklefa, og hann með allt djásnið undir sér. Engir fyrirvarar voru settir í lögin sem pössuðu um á stúlkur og konur.
Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra montar sig af þessu. Hún montar sig af að hafa tekið réttindi af konum. Hversu vitlaus getur maður verið. Allir hennar fylgisveinar sömuleiðis.
Það er ljóst að konur verða að grípa til einhverra ráða. Eitthvað sem heitir Kveinréttindafélag Íslands gerir ekki baun fyrir réttindi kvenna enda eru það ,,vók samtök ásamt UNICEF, Geðhjálp, Rauða krossinum, Barnaheill, Kvennaathvarfinu, Stígamótum og fleirum. Þau sýna það með yfirlýsingum og ranri notkun íslenskunnar. Það var sorglega talað inn á auglýsingu frá Rauða krossinum. Allt félög sem gefa sig úr fyrir að verja réttindi m.a. kvenna og barna, hafa brugðist þeim.
Mikið væri gaman ef framtakasamar konur létu af því verða að stofan baráttuhóp. Í útlöndum hafa konur sama djöful að draga, meira að segja þyngri, því karlarnir eru komnir inn í íþróttirnar, kvennaathvörfin og kvennafangelsin. Einn karlmaður hefur unnið kvennaíþrótt hér á landi. Stúlkum er sagt að vera kurteisar og undirgefnar, aumingja örhópurinn verður að fá sínu framgengt, annars verður hann undir í samfélaginu. Nei konur og stúlkur, við eigum ekki að láta bjóða okkur þetta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)