7.8.2023 | 10:14
Gervivísindin, var flett ofan af þeim?
Hér er rætt um gervivísindin sem kynjafræðin er samkvæmt þessum þremur einstaklingum sem prófuðu. Þeir hafa sendt margar vísindagreinar sem eiga ekki við rök að styðjast.
Klæða bullið í nýjan búning segir viðmælandinn.
Verkefni fræðafólksins voru 10 mánuðir. Sendu í virt tímarit, allt ritrýnt. Því meiri þvæla því flottari var þetta.
Hvet fólk til að hlusta, áhugavert.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.8.2023 | 10:01
Önnur þekkt kona kemur til landsins
ekki í brúðkaupsferð heldur til að segja okkur frá lífsreynslu sinni.
Konan er Tonje Gjevjon listamaður m.m. Tonje hefur háð baráttu fyrir kvennamálum og átti yfir sér höfði ákæru vegna staðreynda. Minnir á framferði Rússa í máli stjórnarandstæðinga sinna.
Tonje þurfti ekki í fangelsi. Lögreglan sá ekki ástæðu til að ákæra hana. Laugardaginn 12. ágúst mun Tonje ræða málið í víðu samhengi.
Ég vona að blaðamenn sýni Tonje áhuga því mál hennar er í alla staði áhugaver.
Áhugasömum er bent á sal Þjóðminjasafnsins kl. 10:30, laugardaginn 12. ágúst.
![]() |
Kom til Íslands í brúðkaupsferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.8.2023 | 15:37
Málþing um málefnið
í sal Þjóðminjasafnsins laugardaginn 12. ágúst. Áhugaverðir fyrirlesarar. Hefst kl. 10:30.
![]() |
Upplifði að ég væri í röngum líkama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 6.8.2023 kl. 12:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.8.2023 | 09:21
Við vorum þrælarnir
og hlýddum í einu og öllu. Virkilega sárt til þess að hugsa að ættingjar hafi ekki mátt kveðja sína nánustu. Um sig greip ákveðin klikkun í samfélaginu. Margir bíða þess aldrei bætur að hafa tekið sprauturnar sem fagfólkið mælti með við okkur. Fáir virtust hafa val, hópþrýstingurinn var mikill og áróðurinn.
Hvað um það. Við erum vonandi skynsamari eftir þessa faraldra, kóvíð og innilokunarfaraldurinn sem beitt var á okkur.
Mörg börn fóru illa út úr þessum ákvörðunum fagmanna sem stilltu sér upp fyrir framan sjónvarpsvélarnar á degi hverjum til að brýna þjóðina til bólusetninga og einveru. Vonandi hafa menn aðstoðað öll kvíða-og óróleikabörnin sem urðu til á tímum kóvíd. Efast samt um það!
Auðvitað er gott að vera vitur eftir á. Vonandi á að það um fleiri málaflokka áður en fleirum börnum er kastað í gin samtaka.
![]() |
Auðvelt að vera klár eftir á |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2023 | 10:15
Þegar hugmyndafræði trans-heimsins mætir raunveruleikanum
er ekki von á góðu. Það hafa trans-konur sem taka til máls á síðum og skrifa í blöðin sýnt og ekki síður í hinum stóra heimi. Nokkur myndbönd hafa birst og sýnir hve rökþrota trans-aðgerðasinnar verða þegar þeir eiga að svara vitrænum spurningum.
Því miður er þessari vitleysu, að kynin séu fleiri en tvö, að maður geti verið fæddur í röngum líkama og að heilbrigðisstarfsfólk, mamma og pabbi geti sér til um kyn barns við fæðingu verið haldið að börnum. Bæði á leik og grunnskólum.
Dragdrottningar sem svo eru kallaðar og eru karlmenn, eru fengnir til að lesa fyrir börn með kynferðislegu ívafi. Þeir sem senda börn sín á slíkan upplestur ætti að kæra fyrir barnavernd, gengið á siðferðiskennd barna. Sama með þá sem halda þessa viðburði.
Hér má sjá rökþrota ungan mann.
Hér svarar prófessor kvörtunum manns vegna fornafna.
Hér ræðir faðir við aðgerðasinna, sem lendir í rökþroti.
Hér neitar trans-aðgerðasinni fyrir litninga mannkynsins, XX og XY.
Í öllum þessum myndbrotum sést hve veik hugmyndafræðin er og í reynd ógnvekjandi að kennarar víða um heim skuli leyfa sér að halda þessum ósannindum að börnum. Eina virka úrræðið til að sporna við slíku eru foreldrar.
Hér má sjá spjall um transvæðingu í skólakerfinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sem hylla trans-málaflokkinn. Nú síðast í grein á Vísi.is frá 24. Júlí. Sá sem veitir henni andsvar hefur ekki sama aðgang að fjölmiðlum og þá setur niður við það. Ein grein hefur birst, mörgum hafnað.
Arna Magnea Danks hefur sömu réttindi og allir menn á þessu skeri. Arna hefur aðgang að heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu, sundlaugum, ríkisstofnunum, samgögnutækjum, getur kosið og svo framvegis. Arna getur ekki bent á nein réttindi sem aðrir hafa umfram eigin réttindi.
Konur eru bandamenn trans-kvenna sem virða réttindi kvenna. Það gerir Arna ekki og hefur skrifað það í athugasemdarkerfum. Arna ber ekki virðingu fyrir öðrum sem hafa annars konar skoðun. Það sést bæði í ræðu og riti. Fólk sem er ekki sömu skoðunar á transhugmyndafræðinni og Arna Magnea eru fordómafullir, óhæfir til ýmissa starfa og stunda haturrorðræðu.
Örnu finnst sjálfsagt að orð kvenna séu skrumskæld. Örnu finnst sjálfsagt að niðurlægja konur og segja sís um gagnkynhneigðar konur. Örnu finnst sjálfsagt að karlmenn sem skilgreina sig sem konu taki þátt í íþróttum. Örnu finnst sjálfsagt að karlmenn sem skilgreinir sig sem konu hafi aðgang að búningsklefum kvenna, þar sem ungar stúlkur eru.
Örnu finnst sjálfsagt að karlmenn sem skilgreina sig sem konu hafi aðgang að öllum kvennarýmum, fangelsi, stofnunum eins og Stígamót, sjúkrahúsum. Sem betur fer eru trans-konur ekki lagðar inn á kvennadeild eða fæðingardeild því allt sem kemur að líffræði kvenna hafa trans-konur ekki. Hér má sjá vel valin orð um þetta ástand.
Það bera allir virðingu fyrir Örnu þó þeir séu ekki sammála málflutningi hennar. Fólk ber ekki virðingu fyrir lífsskoðun hennar að karlmenn sem skilgreina sig sem konur hafi aðgang að kvennarýmum. Arna ber hins vegar ekki virðingu fyrir þeim konum sem kæra sig ekki um slíkt. Örnu finnst í lagi að fórna réttindum kvenna til að örhópurinn sé sáttur við lífið og tilveruna. Á kostnað kvenna. Það er öll virðingin sem konur fá frá Örnu Magneu Danks.
Hvað aðgerðir barna varðar þá hafa Íslendingar vonandi vit á að halda skurðhnífnum í slíðrinu, beita honum ekki á börn. Hvað lyfjagjafir varðar þá hafa íslensk börn verið á hormóna og krosshormónalyfjum. En heimurinn er stærri en Ísland og víða orðið viðsnúningur til hins betra.
Á þingi Kennarasambandsins lét ég í ljós skoðun mína. Hlaut bágt fyrir. Hefur ekki áhrif á mig því barátta mín fyrir börnin er meira virði en skoðun nokkurra kennara. Á þinginu kom kennari að orði við mig og staðhæfði að lyfjagjafir hafi ekki aukaverkanir á börn, því hún ætti ömmubarn sem hún vildi endilega að færi í lyfjagjöf. Guð minn góður, segi ekki meir. Sé þetta hugsun fólks án þess að kynna sér málið þá er ekkert annað hægt að segja. Hér má sjá sænskan þátt, á ensku, skelfilegar afleiðingar lyfjagjafar á börn. Ekki einsdæmi.
Kona er fullorðin kvenkyns einstaklingur með XX- litninga og enginn getur breytt því. Líffræðin er þannig. Hins vegar það sem fer fram í kolli fólks er kannski allt annað. Þegar þær væringar byrja hjá börnum á að aðstoða þau hjá sálfræðingi. Þar stendur samfélagið sig illa. Þessum börnum og ungmennum er kastað í gin Samtaka 78.
Lýk þessu með orðum J.K. Rowling en hún hefur mætt fordómum og hatri frá fólki eins og Örnu Magneu Danks.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2023 | 13:08
Þjóðin rumskar rétt eins og eldfjöllin
Við höfum sofið á verðinum gagnvart málefnum sem skekur samfélagið. Dvali hefur einkennt okkur. Hluti þjóðarinnar vaknaði, vonandi ekki of seint. Hinir koma kannski síðar. Málaflokkar sem ganga út á að skerða réttindi kvenna og stúlkna, í orði og á borði er staðreynd. Hér er ég að tala um trans-væðingu og breytingu tungumálsins með handafli. Blaðamenn sofa enn og hafa ekki dug í sér að ræða trans-málaflokkinn nema sem glansmynd. Hvort þessi stétt rumski verður fróðlegt að fylgjast með. Fréttamenn ættu að taka Litla-Hrút sér til fyrirmyndar.
Þeir sem hafa sig frammi um málaflokkinn á lýðræðislegan hátt mæta ótrúlegri framkomu fólks. Það má sjá hér, hún hefur fengið að finna fyrir því. Sem betur fer hafa þeir ekki náð að þagga niður í konunni. Tjáningarfrelsi þeirra sem tjá sig er skert. Stjórnmálamenn eru þar fremstir í flokki. Líka hér á landi. Þeir setja lög. Nú á að múlbinda fólk sem vill tjá skoðanir sínar sem fara ekki saman við trans-væðingarhópa heimsins.
Fólkið sem vill ekki lýðræðislega umræðu svarar sjaldan ef nokkurn tímann spurningum eða rökum annarra. Hér má sjá gott dæmi um það.
Stjórnmálamenn hafa skrumskælt kvennaorðin. Leghafi er orð sem á við um konur sem eru ófrískar í frumvarpi um fóstureyðingar. Fæðandi einstaklingur, er kona í fæðingu. Karlmenn fæða ekki börn svo breyting af þessu tagi er óskiljanleg og niðurlægjandi. Orðið einstaklingur er notað um konu sem gefur barni sínu brjóst. Karlmaður getur ekki gefið barni brjóst svo þessi orðskrípaleikur er óskiljanlegur.
Ráðherra heilbrigðismála stóð í pontu og niðurlægði konur, enginn kona á þingi tók til máls konum til varnar. Hann talaði um leghafa í stað þessa að nota orðið kona eða konur. Þingkonur eiga hver og ein að skammast sín fyrir að bregðast konum landsins.
Íþróttir kvenna eru í hættu. Af einhverjum ástæðum var ákveðið að hafa kvenna- og karlaflokka. Engum dytti í hug að láta 9 ára stráka spila fótbolta við 14 ára stráka og kalla það keppni á jafnréttisgrundvelli. Líkamsstyrkur karlmanna er annar og meiri en kvenna. Engri konu dytti í hug að skilgreina sig sem karl og skrá sig í handboltalið karla. Líkamsburðir ólíkir og styrkur.
Þegar fólk er spurt út í þetta galar það eins og vitleysingar, mannréttindi. Mannréttindi eins hóps (kvenna) má brjóta á bak aftur til að þóknast trans-konum og trans-aðgerðasinnum sem vilja stunda kvennaíþróttir. Eitthvað skrýtið við þá afstöðu.
Fjöllin rumska hvert af öðru. Skjálftarnir bera þess merki. Nú vona ég að mannfólkið vakni hvert af öðru og ræði málaflokka sem skipta máli í samfélaginu. Tjáningarfrelsið er mikilvægt, nýtum það.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2023 | 18:53
Kastar bensíni á transumræðuna
Í Noregi eins og víðar er mikil umræða um transmálaflokkinn. Auk þess er talað um baráttu kvenna sem á undir högg að sækja. Umræður hafa farið fram í fjölmiðlum, annað en hér á landi. Við líkjumst Rússum og Kínverjum þegar kemur að málfrelsi og til fá greinar birtar sem andmæla stefnu transhreyfinga. Fjölmiðlar hafa eins og ég hef oft bent á staðið sig mjög illa í umræðunni um transmálaflokkinn. Ég þýddi, lauslega, grein úr norsku blaði, okkur kemur nefnilega við hvað stendur þar. Margt á við um ástandið hér á landi. Orð fólks er afbökuð. Því gert upp skoðanir og hugsanir.
Jens Kihl kastar bensíni á transumræðuna er fyrirsögn greinarinnar.
,,Ef menningarritstjórinn vill gera eitthvað við andrúmslofti umræðunnar getur hann litið í spegil.
Í athugasemd í BT 1. júní sakar menningarritstjórinn Jens Kihl Miðflokkinn og sérstaklega þingfulltrúann Jenny Klinge, um að bera transfólk saman við dýr. Þetta er gróf afbökun á yfirlýsingu Klinge sem stuðlar ekki að öðru en að eitra og skauta umræðuna um kynferði.
Kihl hvetur alla til að ,,gera eitthvað við gríðarlegri harðri umræðu" um kyn. Hann bendir sérstaklega á að þeir sem hafi ,,leiðandi stöðu í samfélaginu hafi meiri ábyrgð" á því að tryggja að umræðan sé virt.
Það er góður punktur en sem menningarritstjóri eins stærsta dagblaðs Noregs getur hann byrjað á því að líta í spegil.
Klinge hefur ekki borið transfólk saman við dýr. Hún hefur aðeins bent á að við mennirnir séum eins og öll önnur spendýr, að því leyti að við höfum aðeins tvö kyn og að við getum ekki skipt um kyn.
Hún hefur undirstrikað staðreyndir að nálgun á kyni og umburðarlyndi fyrir upplifun fólks af eigin kyn geti haldist í hendur.
Maðurinn er um margt öðruvísi en dýr en að það sé hatursfullt að segja að við séum hluti af dýraríkinu veldur að allir líffræðingar þurfa að búa sig undir að vera sakaðir um hatursglæpi. Þó við séum frábrugðin öðrum dýrum að mörgu leyti þá eru ekki kynin fleiri í náttúrunni.
Að halda fram að slík yfirlýsing sé hatursfull og ómannúðleg er að gera hófsama yfirlýsingu sem róttæka. Það hjálpar bara þeim sem vilja átök í umræðuna.
Það er ekki róttækt að halda fram að líffræðilega kona geti fætt barn. Ef eitthvað er ómannúðleg er það að kalla konur ,,fæðingarfólk eins og lagt er til í skýrsla nýju barnalaganna.
Það er þversagnakennt að samfélagsskýrendur eins og Kihl leggi áherslu á umburðarlyndi sem eina af fremstu dyggðum mannsins en komi fram á sama tíma með óþolandi hegðun gagnvart þeim sem hafa aðrar skoðanir.
Eitt af því sem aðgreinir menn frá öðrum dýrum, óháð því hvort maður skilgreinir sig sem kynið sem maður fæðist með eða eitthvað annað, er hæfileiki okkar til gagnrýninnar hugsunar.
Ég skora hér með á Jens Kihl til að beita hæfileikum sínum til gagnrýnnar hugsunar næst þegar hann langar að kasta bensíni á eldinn í umræðunni um kynferði, svo að hann geti forðast að brengla stöðu andstæðinga sinna.
Hér er krækja að greininni sem ég þýddi lauslega.
Hér er krækja að grein menningarstjórans.
Þetta kveikti bálið. ,,Det er ingen grunn til å rote det til: Vi menneske har to kjønn, kar og kvinnfolk, på same måte som høns består av hane og høne. Det er ikkje uforskamma å understreke dette. Men det er visst nødvendig."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2023 | 19:50
Jú það kemur málinu við
því trans-kona er ekki kona og verður aldrei. Hefur ekki líffræðilega litninga til þess. Trans-kona er tegund af karlmanni (xy-litninga) og verði falli dómur yfir Þórhildi Sunnu ber að skrá brotið sem trans-kona eða karlmaður, ekki kona.
Álfur velur að vega að fólki, sérstaklega þeim sem hafa bent á að trans-kona er ekki kona, og það er miður. Þegar maður er dæmdur fyrir brot er talað um karlmann, þegar kona er dæmd er talað um konu og því er sjálfsagt að tala um trans-einstakling þegar hann brýtur af sér, því hann skilgreinir sig sem slíkan.
Því miður er vegið að réttindum kvenna í nafni örhóps og alltof margar konur þegja yfir því.
Úti í hinum stóra heimi eru það einkarými kvenna, búningsklefar, íþróttir og nú síðast háskólar í Noregi. Vitundarvakning er meðal kvenna um vandann. Konur verða að berjast til að halda réttindum sínum og þegar þær koma saman á opnum svæðum til að ræða málin mæta trans-aðgerðarsinnar, stundum með ofbeldi í huga, og ráðast gegn konum. Réttindum kvenna til að tala. Meira að segja lesbíur fá ekki að halda opna fundi án truflunar trans-aðgerðasinna.
Nei Álfur...það er ekki verið að rægja ykkur á nokkurn hátt. Því miður leyfa fjölmiðlar ykkur endalaust að setja ofan í við fólk sem deildir ekki lífsskoðunum ykkar í trans-hreyfingunum og það um allan heim. Hins vegar er reynt að þagga niður í því fólki og fjölmiðlar tala aldrei um þá hlið sem ég hef talað um, réttindi kvenna. Sem betur fer sjáum við örlitla breytingu á því, en ekki hér á landi.
Konur eru bandamenn trans-kvenna sem virða réttindi kvenna.
![]() |
Látin fara samdægurs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.7.2023 | 14:29
Blóraböggull- í hættu vegna transandstæðinga sinna
Í langan tíma hafa transaðgerðasinnar reynt að ata mig auri og ráðist að mér persónulega með ásakanir um trans-fóbíu, hatursorðræðu og ég er meðsekur um bæði morð og sjálfsmorð segir Ulf á snjáldursíðu sinni. Hann heldur áfram.
Nú er undarskriftasöfnun í gangi til að henda mér út úr stjórnmálaflokknum. Dæmigert um það sem maður kalla útilokun og þöggun eins og Kathleen Stock og J K Rowling urðu fyrir.
Dæmigerð fasísk hegðun sem transaðgerðasinnar hafa í áraraðir notað með góðum árangri til að loka munninum á öðrum og skapa hræðslu við að segja skoðun sína á; ,,Kona er fullorðin manneskja af kvenkyni eða að börn eiga ekki að fá læknisfræðilega hjálp til að stoppa kynþroskann og gera þau ófrjó með hormónum gagnstæða kynsins.
Ég þekki ekki aðra karlmenn sem hafa verið útilokaðir í sama mæli og ég, en ég er heldur ekki alveg í lagi, en virðist svo hættulegur að fleiri og fleiri vilja ráðast á mig persónulega og líf mitt.
Ég hefði frekar séð undirskriftarlista til að stoppa tilraunalyfjameðferðir á börnum sem skemmir þau fyrir lífstíð og sem vitað er að 90% af þessum börnum myndu sætta sig við kyn sitt þegar kynþroskinn hefur unnið vinnuna sína?
Í Danmörku hafa 341 börn, frá 2016, meira og minna eyðilagt líkama sinn með stopp- og krosshorómum sem hefur alvarlega afleiðingar fyrir líkamann sem getur leitt til lífsvarandi hormónameðferða og ófrjósemi.
Eigum við ekki að gera eitthvað við því og þeim lygum að maður getur verið fæddur í röngum líkama og að börn niður í 2ja ára aldurinn séu látin staðfesta kynvitund sína, bæði leik- og grunnskóla og í fjölskyldum, ef heilbrigðisyfirvöld mættu ráða. Yfirvöld létu búa til leiðbeiningar fyrir 1.2 milljón, danskra króna, sem er ekkert annað en öfgafull transhugmyndafræði.
Baráttan fyrir verndun barna er náttúrleg þróun og við sjáum sem betur fer mikla andstöðu í löndunum í kringum okkur, líka í Danmörku, en baráttan fjallar ekki um hve mörg börn skemma líkama sinni í heilbrigðiskerfinu heldur líka hvað við segjum börnum okkar eins og grunnskólakennarar, leikskólakennarar, foreldrar og barnabækur, svo leyfið mér að tjá mig skýrt og skilmerkilega.
Lítil börn niður í 2 ja ára sem hafa ekki hugtak um það að vera fullorðin kynvera getur ekki verið trans og á þess vegna ekki að staðfesta að þau geti verið af öðru kyni af því þau séu fædd í röngum líkama eru lokaorð Ulf.
Ásakanir um trans-fóbíu, hatursorðræðu, útilokun og atvinnumissi. Við sjáum nákvæmlega sömu takta í transhreyfingunni hér á landi.
Transhreyfingar bera út rangan boðskap eins og t.d. að ,,viltu frekar sjá látið barn en transbarn. Þeirri þvælu deilir fólk án þess að hugsa sig um. Hvaða skilboð sendir fólk til barna og ungmenna. Hugsið ykkur um.
Svo mörg voru þau orð frá Ulf.
Hvet fólk til að lesa sér til gagns um málaflokkinn, látið ekki mata ykkur á upplýsingum frá transhreyfingum sem passa ekki.
Trans-aðgerðasinnar er víða um heim skríll og á hegðun þeirra ekki heim nokkurs staðar. Aðgerðasinnarnir vilja skerða réttindi kvenna og því er þeim illa við að þeir komi saman rétt eins og þeir vilja ekki að menn eins og Ulf tjái sig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)