22.9.2023 | 20:33
Felix Bergsson glottir og segir af og frá að netið hafi áhrif
Auðvitað hefur netið áhrif á trans-væðingu barna eins og klámáhorf.
Skil ekki af hverju fólk áttar sig ekki á því, þarf ekki að leita lengi til að sjá það og heyra. Víða á netinu má horfa á kolruglaða einstaklinga fagna fjölbreytileikanum og hvetja börn og unglinga til að vera annar en hann er sjálfur.
Sum myndbönd og netsíður ganga svo langt að segja börnunum að foreldrar þurfi ekkert að vita. Sum myndbönd og netsíður koma með ráð til að þrýsta á foreldra til að samþykkja að þau séu hitt kynið. Jafnvel hóta með sjálfsmorði. Sagt að foreldrar séu risaeðlur og skilji ekki börnin sín sem vilja vera hitt kynið. Mannvonska af hálfu foreldra. Svona má lengi telja. En vissulega má gera eins og Felix Bergsson, loka augunum fyrir þessu, glotta í kynningarmyndbandi og hafna áhrifum samfélagsmiðlum.
Unglingsstúlkur deila myndum af sér þar sem ljót ör eru í stað brjósta. Látið fjarlægja þau. Kannski þarf einhver að taka ábyrgð næstu áratugina.
Því fyrr sem fullorðið fólk viðurkennir vandan, því þetta er vandi, því fleiri börnum verður hægt að bjarga frá að taka afdrifaríkar ákvarðanir.
Felix Bergsson er einn þeirra sem telur óhugsandi að netið og vefsíðu hafir áhrif á börn. Glottandi á myndskeiði talar hann um að fólk haldi þessu fram, eins og þetta sé smitandi. Já það er nefnilega þannig. Samfélagsmiðlar smita frá sér og börnum sem líður illa halda allt í einu að þetta sé rétta hillan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2023 | 22:31
Breytingar á námskrá er það sem koma skal eða!
Í Noregi eru miklar umræður um fjölbreytileikann og hvernig þeir sem aðhyllast hinsegin fræðin vilja kyn út og setja fjölbreytileika inn í staðinn. Sjálf sé ég ekki ástæðu til þess, ekki hægt að snuða líffræðina. Hvað þá breyta henni í þágu örfrárra einstaklinga sem glíma við kynama.
Skólinn tekur stöðugt ný skref í átt að nýjum skilningi á kyni. Á sama tíma vilja aðgerðasinnar ekki spyrja hvers vegna sumir sjái eftir kynskiptum, skrifar Øyvind Børven. Þýðing er mín en stiklað er á stóru um innihald greinarinnar. Þeir sem vilja lesa hana geta gert það hér.
Í greininni segir hann kjarnann í umræðunni snúast um hvort breytingar á námskrárlýsingum sé rétt eða röng. Hann segir að viðurkenna eigi líffræðilegt kyn sem veruleika og það sé nauðsynlegt fyrir æxlun mannsins en jafngildi ekki mismunun eða útilokun.
Hann bendir jafnframt á að starfrænt ofbeldi hefur aukist gífurlega, það sýnir nemendakönnum frá því í fyrra. Margir benda á að skýr viðmið þurfi til að vinna bug á einelti auk góðra tengsla við fjölskyldu og vini.
Fredwall, sem er í systursamtökum Samtaka 78 í Noregi, talar fyrir breytingum úr kyni í fjölbreytileika en rökræðir ekki málið í umræðudálki í blaðinu en skilur eftir sig gjá í umræðunni. Forvitnilegt að vita hvaða skoðun þeir hafa sem stjórna skólum og reglum skóla.
Hápunkturinn var þegar Fredwall reyndi að hrekja rannsókn Lisu Littman sem fjallar um kynama sem gerist skyndilega vegna utanaðkomandi áhrifa. Mikil umræða hefur átt sér stað í vísindasamfélaginu um aðferðafræðina og niðurstöðurnar, m.a. vegna þess að foreldrar voru efist um breytingu á kynskilningi barna sinna.
Sænska heimildaþáttaröðin ,,Transkriget kom út á dögunum. Þekkt trans-kona, Aleksa Lundberg, stígur fram í þáttunum og segir það ómögulegt fyrir unglinga að skilja afleiðingar af læknisfræðilegum inngripum. Hún veltir upp eigin þögn en segist hafa upplifa hana eins og að vera í sértúrasöfnuði.
Samtök aðgerðasinna sem hafa óbein áhrif á börn verða að umbera gagnrýni og vera opin fyrir gagnrýnni umfjöllun. Við stöndum fyrir miklum breytingum í menntakerfinu og samfélaginu og þá er lágmark að mánefnanleg og gagnrýnin umræða fari fram.
Sé það gert getum við tryggt að ákvarðanir séu teknar af umhyggju sem börn okkar og ungmenni eiga skilið. Hver tekur raunverulega ábyrgð ef eitthvað fer úrskeiðis? Á þessum orðum lýkur Øyvind Børven grein sinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2023 | 22:47
Hæstiréttur staðfesti lög í Texas sem banna aðgerðir
sem kallast kynstaðfestingaraðgerðir. Lesa má um það hér. Held að öllum sem er umhuga um börn fagni þessu. Veitum börnum sem glíma við kynama góða sálfræðimeðferð og undirbúum þau undir breytingar á líkamanum ef þau eru ákveðin í að fara í læknisfræðilegar aðgerðir á fullorðinsaldri.
Barn sem geri sér ekki grein fyrir skemmdunum sem verða á líkamanum eftir læknisfræðileg inngrip eiga ekkert með að taka ákvörðun um slíkt. Foreldrar eiga að vera fullorðni einstaklingurinn og taka réttar ákvarðanir, vernda börnin fyrir inngripum á tilraunastigi.
Á undaförnum árum hefur komið í ljós hvað fullorðnir hafa gengið langt í tilraunastarfsemi á börnum. Hormónalyfjagjafir hafa skelfilegar afleiðingar á líkamann. Börn sem glíma við kynama eiga oftar en ekki við andleg veikindi að stríða, einhverfu, átröskun, þunglyndi o.fl. Að skella andlega veikum börnum á hinsegin hilluna er ekki rétt, það á ekki að ýta undir þá hugsun heldur leyfa þeim að vera eins og þau án þess að skilgreinina þau. Þreytist ekki á að deila þessum pistli sem segir allt sem segja þarf.
Góð vísa er aldrei of oft kveðin. Leyfum börnum að vera börn, hvernig sem þau klæða sig, klippa og lita hárið eða hegða sér í leik. Hættum að skilgreina þau og ýta þeim út í eitthvað sem fullorðnum finnst sjálfsagt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þegar ég les blogg Arnars Þór lögmanns. Það skiptir ekki máli hver segir hvað. Mestu skiptir að það komi fram. Barnavernd!
Skoða þarf fræðslu hinsegin mála í skólakerfinu af meiri gagnrýni en verið hefur. Málaflokknum hefur verið laumað undir kyn, kynlíf og allt hitt. Áróðursfánum plantað á víð og dreif til að minna börn á, allt undir nafninu fjölbreytileiki, þó annað og meira liggi undir.
Arnar Þór bendir á að Magnús Þór formaður KÍ reyni að þagga niður í félagsmönnum. Hann hefur ekki bara gert það í greinum og yfirlýsingu (kúguð fram af Samtökum 78 o,fl.) heldur á þingi KÍ líka. Hann sýnir í hnotskurn að hann er ekki maður lýðræðis og tjáningarfrelsis. Á slíkur einstaklingur að vera í forystu kennarasamtaka?
Arnar Sverrisson sálfræðingur benti á í greininni, Kynami, kynjavitfirring kennara og lögreglumenn, á kúgunina sem Magnús var beittur fyrir nokkrum mánuðum. Hann vitnar til trans-konu. En það kom samt ekki af neinu, svo því sé haldið til haga. Ég og aðrir kennarar hafa kvartað og skrifað KÍ í marga mánuði og bent á hegðun viðkomandi kennara og önnur transfóbísk skrif. Það var ekki fyrr en framkvæmdastjóri S78 og sérstök verkefnastýra fóru einnig að beita sér af þunga að KÍ gaf frá sér tilkynningu. En orð eru ódýr ef ekkert fylgir þeim og ef KÍ fer ekki að ýta á eftir því að farið sé eftir siðareglum kennara um Skóla án aðgreiningar, þar sem kennara ber að nálgast öll börn af sömu virðingu og þjónustu öll börn án fordóma, þá heldur viðkomandi kennari bara áfram á sömu braut og aðrir sem fylgja henni að málum.
Sálfræðingurinn heldur áfram og segir ,,Arna Magnea er herská og beitir sömu lágkúruaðferðum og kvenfrelsararnir, sem sífellt eru kúgaðir og ofsóttir. Þegar málefnið er óskýrt (hegðun og tansfóbísk skrif) má alltaf grípa til rógs og útskúfunar. Það er engu líkara, en að heilagt stríð sé í undirbúningi, svipað því og kvenfrelsararnir heyja gegn körlum.
Það skal tekið fram að aldrei hefur verið bent á umrædd transfóbísk skrif, bara gasprað. Ekkert mánefnanlegt, bara skoðun eða tilfinning einstaklinga. Á því tekur Magnús Þór mark og leggur mannorð KÍ undir.
Fleiri hafa réttilega gagnrýnt formann KÍ. Páll skrifar, feitletrun mín ,,Formaður Kennarasambands Íslands skrifar blaðagrein þar sem hann biður fólk að þegja og andmæla ekki nýmælum í velferð barna. Undirgefni formaðurinn er B-ið í BDSM.
Arnar Þór lögfræðingur segir ,,Með yfirlýsingum og greinum reyna yfirvöld og talsmenn kennara að berja niður gagnrýni.
Ýmsar stjórnsýslustofnanir, Heimili og skóli og Barnaheill reyndu líka að þagga niður í fólki sem andmæltu umræddri kennslubók og veggspjöldum, en allir lýstu yfir stuðningi sínum við kynfræðslubókina og veggspjöld af hvers kyns toga. Forsætisráðherra í broddi fylkingar.
Sorglegra var þegar íþróttasambönd tóku undir, gagnrýnislaust. Sýnir hver hjarðhegðunin getur leitt fólk út af sporinu.
Arnar Þór bendir á að nýútkomið kynfræðsluefni fyrir börn sé vafasamt í meira lagi. Færslu hans má lesa hér. Hvet fólk til að tjá sig um málefni barna og ungmenna. Taktu slaginn, börn eru í húfi sem taka ákvarðanir sem ekkert barn á að taka.
Unga konan á myndinni hér að neðan tók afdrifaríka ákvörðun þegar hún var unglingur. Slæm ákvörðun sem hefur fylgt henni síðan. Í þessum þáttum segir hún m.a. sögu sína.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2023 | 21:48
Magnús Þór Jónsson formaður KÍ ætti að fara eftir eigin orðum
og þegja frekar en segja. Magnús varð sér aftur til skammar með grein á Vísi.is. Hann er formaður félags þar sem ólíkar skoðanir á hinsegin-hugmyndafræði ríkir en getur ekki setið á sér að sýna mátt sinn og megin. Tilgangur- hulin ráðgáta. Góð lesning.
Hann veit eins og stór hluti þjóðarinnar að kennarar eiga erfitt með að stíga fram og tjá skoðun sína í umdeildum málum, nákvæmlega vegna viðbragða eins og hann sýnir. Það þola ekki allir svona árásir.
Kannski hafa Samtökin 78 legið á herðum hans eins þegar hann varð sér til skammar.
Formaður KÍ hefur eina ferðina enn farið yfir strikið þegar hinsegin-málaflokkurinn er til umræðu. Lætur eigin skoðanir í ljós, ekki KÍ. Innan sambandsins eru rúmlega 11 þúsund manns og ljóst má vera að hann talar ekki fyrir hópinn í umdeildum málum.
Formaðurinn hefur ekki sagt orð um hið umdeilda námsefni, Kyn, kynlíf og allt hitt, þar sem börnum er kennt margt misjafnt og fleiri hundruð foreldra mótmæla um þessar mundir. Bókin brýtur gegn blygðunarsemi nemenda. Af hverju hefur formaður kennara ekki áhyggjur af því og lætur heyra í sér. Nú verður hver að spyrja sig.
Formaðurinn hefur ekki sagt orð um orðsendingu skólastjóra Jafnréttisskólans þar sem hún þaggar niður í skólastjórum í trássi við skyldur þeirra gagnvart foreldrum.
Í skólastefnu KÍ segir ,,Nám á að styðja nemendur í að afla sér þekkingar og beita henni með gagnrýnum hætti. Hvernig eiga nemendur að afla sér þekkingar um hinsegin-málaflokkinn þegar fræðslan er einhliða og meira að segja formaður KÍ setur pottlok á aðrar skoðanir en Samtökin 78 og Jafnréttisskóli Reykjavíkur boðar.
Skólastefna KÍ segir líka ,,Þeir skulu hafa tillögu- og umsagnarrétt um námsskipulag, námsefni, kennslutilhögun og önnur hagsmunamál sín. Er það svo í skólum hér á landi að nemendur hafi áhrif á kennsluefni um hinsegin-fræðin. Held ekki.
Magnús er ekki lýðræðislegur sem formaður KÍ. Hann leyfir ekki ólíkum sjónarmiðum og skoðunum að heyrast. Nei hann vill að ákveðnar raddir þagni, sennilega því fyrr því betra. Þess óskar hann þrátt fyrir að í skólastefnu KÍ standi ,, Mikilvægt er að kennarar taki þátt í opinberri umræðu um menntamál. Er hinsegin-málaflokkurinn og bókin Kyn, kynlíf og allt hitt ekki menntamál?
Nemendur þora ekki annað en sætta sig við fræðslu sem er þeim kannski þvert um geð. Ungir nemendur hafa ekki þann skráp sem þarf til að verjast árásum eins og við höfum séð t.d. á kennara sem vilja skynsama umræðu um hinsegin-málaflokkinn. Ekki einhliða fræðslu og fréttaflutning. Magnús Þór tekur þátt í því með orðhengilshætti.
Mér er til efs að Magnús Þór njóti virðingar eftir svona upphlaup. Betra að þegja en segja á svo sannarlega við formann KÍ svo ég noti hans eigin orð.
Faðir minn á gamaldsaldri kallar svona menn ,,froðusnakkara. Hvaðan hann hefur þetta orð veit ég ekki en ég veit hvað það þýðir og sennilega margir aðrir.
Bloggar | Breytt 19.9.2023 kl. 22:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2023 | 20:03
Eru skólastjórnendur verkfæri í höndum Kolbrúar Hrundar Sigureirsdóttur
stýru Jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar. Kolbrún sendi út fjölpóst á stjórnendur um hvernig þeir eigi að bera sig að varðandi foreldra, spyrji þeir of mikið. Ljóst er að Kolbrún er og hefur verið virk í baráttunni um kynferðisofbeldi og hinsegin málefni. Hún aðhyllist trans-stefnunni eins og hún er kynnt í dag.
Kolbrún Hrund ber hag og öryggi stúlkna fyrir brjósti upp að vissu marki. Stúlkur eiga að sætta sig við að karlmenn sem skilgreina sig sem konur, með kynfæri karlmanns, mæti í búningsklefa kvenna. Í þeim tilfellum virðast stelpur ekki skipta máli í hennar huga. Karlmennirnir, með skilgreininguna að vopni, hafa réttinn.
Kolbrúnar er getið og henni þakkað fyrir framlag sitt til í hinni umtöluðu bók Kyn, kynlíf og allt hitt.
Hér má sjá höfund bókarinnar ræða við kennara fyrir nokkrum árum. Ógnvekjandi. Kolbrún virðist heillast af þessu ef marka má málflutning hennar og dálæti á bókinni. Hún berst fyrir að menn fjalli ekki um bókina og nú síðast með orðsendingu til stjórnenda innan fræðslusviðs Reykjavíkurborgar. Hún ætlar að stjórna umræðunni.
Pútin og Kim Jong Un...hvað gera þeir?
Nei við skulum ekki opna umræðuna um hvað foreldrar vilja og vilja ekki í fræðslumálum barna um kyn, kynhneigð og kynlíf. Kolbrún veit sínu viti, vill ráða og stjórna. Hinir skulu þegja og hlýða. Sjá mynd af póstinum neðar.
Velkomin til Rússlands og Norður- Kóreu Reykvíkingar undir stjórn stýru Jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar.
Verð að hafa meira álit á skólastjórnendum en svo að þeir láti Kolbrúnu Hrund Sigurgeirsdóttur segja sér fyrir verkum þegar kemur að foreldrum barna sem ganga í skólann sem þeir stjórna. Foreldrar eiga rétt á samkvæmt lögum að vita hvað er kennt og hvaða efnið er notað. Feitletrun er mín.
,,18. gr. Foreldrar og meðferð upplýsinga.
Foreldrar skulu gæta hagsmuna barna sinna á skólaskyldualdri. Foreldrar eiga rétt á að velja grunnskóla innan sveitarfélags fyrir börn sín samkvæmt reglum sveitarfélagsins. Jafnframt skulu þeir eiga rétt á upplýsingum um skólastarfið og skólagöngu barna sinna...Þeir skulu fá tækifæri til að taka þátt í námi barnsins, svo og í skólastarfinu almennt.
,, 19. gr. Ábyrgð foreldra.
Foreldrar bera ábyrgð á námi barna sinna og ber þeim að fylgjast með námsframvindu þeirra í samvinnu við þau og kennara þeirra.
Í mínum augum er þessi kona algerlega vanhæf en er þarna undir verndarvæg Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata í borginni.
Lög um grunnskólann frá Alþingi.
Hér má hlusta á gagnrýni á fjölpóstinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2023 | 20:10
Ungt fólk sem sér eftir kynsiptiaðgerð má ekki
halda erindi í menningarhúsinu í Osló nema með skilyrðum. Skyldi það vera gin úlfsins sem stendur fyrir því.
Hér má lesa um málið en í greininni segir að skipuleggjendur Menningarhúss Óslóar kröfðust að hafa líka fyrirlestur frá einhverjum sem er ánægður með kynskiptiaðgerð. Unga fólkið sætti sig ekki við það og aflýstu vegna afskipta stjórnenda. Fóru á annan stað. Minnir á málþing Samtaka 22.
Væri þetta viðburður þar sem jákvæð reynsla af kynskiptiaðgerð er umtalsefnið hefðu þeir ekki óskað eftir neikvæðu reynslunni sem mótvægi segir annað ungmennið.
Annar fyrirlesarinn bendir á að hópurinn stækkar ört sem sér eftir kynskiptiaðgerðunum. Menn segjast heyra lítið um það í samfélaginu. Hann bendir á að þessi gjörningur sé lifandi dæmi um af hverju heyrist svona lítið um málin í samfélaginu, reynt að þagga niður í okkur. Þeir sem hafa slæma reynslu af kynskiptiaðgerðum upplifa að þau megi ekki tala opinskátt um það.
Hann stækkar sífellt hópurinn. Einstaklingar sem sjá eftir að hafa hoppað á transvanginn, þar sem enginn veit hver endastöðin er, segja í auknu mæli frá. Vítin eru til að varast þau og því gott að einhver hefur þor og getu til að segja frá.
Hér á landi er aldrei sagt frá þessum ungmennum, fréttamiðlar láta eins og hópurinn sé ekki til. Gin úlfsins er stórhættulegt og því þora menn ekki að vera hlutlausir í fréttaflutningi sínum. Hér má sjá dæmi um eftirsjá. Þessi móðir bjargaði stúlkunni sinni, stefndi í óefni. Hún var ósátt við framgöngu skólans sem fór á bak við foreldrana.
Hér má sjá þrjá fræðsluþætti frá sænska sjónvarpinu þar sem trans-konan á myndinni hér að neðan segir frá sinni sögu. Sértrúarsöfnuður.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2023 | 19:37
Kvensjúkdómalæknir sinnir bara konum
ekki karlmönnum sem skilgreina sig sem konu. Hér má lesa um málið.
Fyrir flesta menn er þetta augljóst. Til að leita til kvensjúkdómalæknis þarftu að hafa kvenmannslíffæri. Þar liggur sérhæfingin segir franski læknirinn í greininni.
Trans-samtök una ekki við þetta. Svei mér þá er fólk svona heimskt eða? Hvernig á kvensjúkdómalæknir að skoða og hjálpa trans-konu með líffæri karlmanns. Reynið að ímynda ykkur það
Trans-fólk gerði það sem það gerir. Ráðast að skynsömu fólki, kallar það trans-fóbískt fyrir að segja sannleikann. Læknirinn svaraði.
"Ég er kvensjúkdómalæknir og hugsa um alvöru konur. Ég hef enga hæfileika til að sjá um KARLMENN, jafnvel þótt þeir hafi rakað af sér skeggið og sagt ritaranum mínum að þeir séu orðnir konur. Kvensjúkdómafræðileg skoðun hentar ekki karlmanni. Það eru sérhæfðari og mjög hæf þjónusta til að sjá um menn eins og þig," skrifaði Acharian og lagði áherslu á texta sinn með hástöfum. "Takk fyrir að upplýsa trans-fólk um að koma aldrei til mín."
Tek hatt mitt ofan fyrir þessum lækni að standa með læknisfræðilegri þekkingu sinni. Enda er tíma hans mjög illa varið að ræða og skoða trans-konu sem hefur ekkert í líkamanum sem hann getur fjallað um fagleg séð. Fleiri þurfa að stíga fram og segja sannleikann um líkamana karlmanns og kvenmanns. Þessi lenti í gini úlfsins sem margir dásama.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.9.2023 | 19:51
Fréttaflutningur Ruv fyrir neðan allar hellur
Fréttamenn níða skóinn af fólki í Samtökunum 22 og fá forsvarsmann trans Samtakana 78 í lið með sér. Fólkið er nýtt niður í aðalfréttatíma sjónvarpsins með hjálp forsvarsmanns trans Samtakanna 78 án þess að fréttamenn gefi öðrum kost á að tjá sig.
Hvað gengur Hauki Hólm til og fréttastofunni? Af hverju fjalla þeir ekki hlutlaust um trans- málaflokkinn og ræða við báða aðila. Að þjóðin skuli sitja uppi með fréttamenn, á ríkismiðli, sem eru svona hlutdrægir er til háborinnar skammar.
Nokkuð skýr einstaklingur getur séð á stefnuskrá Samtaka 22 að ekkert hatur, fordómar eða annað einkennilegt er í gangi. Markmiðin eru skýr. Börnin og heilsa þeirra hafa forgang. Hins vegar hefur enginn frá trans Samtökunum 78 sagt hvaða falsfréttir eru sagðar, þeir segja ekki hvaða hatursorðræða er í gangi, þeir gaspra bara.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hoppar á vagninn. Hún hefur að mér vitandi ekki boðið forsvarsmönnum Samtaka 22 í spjall til að heyra hvað samtökin hafa fram að færa. Hún varði óviðeigandi fræðslu skólabarna á að sonur hennar hefði lært um túrverki og börnin hefðu gott af að vita af því. Mikil ósköp! Auðvitað verður strákur að vita að stelpur kveljist, sumar hverjar, þegar þær hafa á klæðum. En Katrín vill líka að þessar stelpur, sem strákurinn hennar á að hafa samhygð með, mæti trans- konu með kynfæri karlmanns í búningsklefa sundlauga. Katrínu finnst ekkert að því að leggja það á ungar stúlkur og konur. Henni finnst heldur ekkert athugavert að karlmaður sem skilgreinir sig sem konu keppi við þær í kvennaflokki, og vinnur vegna karlmennsku sinnar.
Við hljótum að gera meiri kröfur til fréttastofu Ruv, og annarra miðla, en að apa upp gagnrýnislaust öskur trans Samtakana 78. Komið með rök og bendið á hvar skóinn kreppir.
Samtökin 22 og þeir sem styðja málstað þeirra bera virðingu fyrir öllum einstaklingum, burt séð frá atgervi þess.
Mannréttindadómstóllinn dæmdi börnum í hag gagnvart hinsegin foreldrum. Engar fréttir fluttar af því hjá Rvu, samt er um tímamótadóm að ræða, tvo frekar en einn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2023 | 21:07
Hann er karlmaður, skilgreinir sig hán, er kynjafræðingur
og höfundur bókarinnar Kyn, kynlíf og allt hitt. Menntamálastofnun ákvað að þýða bókina og nota sem kennsluefni fyrir 7-10 ára börn.
Höfundurinn er frá Kanada og þar eru menn ekki á eitt sáttir við það sem borið er á borð fyrir börn og foreldra í hinsegin fræðum. Margir foreldrar berjast nú gegn þeirri transvæðingu sem á sér stað í skólakerfinu þar. Menn eins Chris er eitt dæmi. Mikil og hljóðlát barátta en honum verður ágengt. Þekktur víða um hinn vestræna heim.
Chris boðar það sem margir boða hér á landi. ,,Látið börnin vera en fullorðnir geta gert það sem þeir vilja. Víða má sjá mótmæli í Kanada enda þar eins og hér hefur vitundarvakning orðið meðal foreldra og margra annarra. Ekkert bakslag- heldur vitundarvakning!
Miðað við hve trans-hópurinn er fámennur er vægi örhópsins mikið í samfélaginu, stjórnsýslunni, skólum og áhrif þeirra gífurleg. Svo má deila um hvort það sé æskilegt eður ei.
Það má sjá á skrifum í bókinni, Kyn, kynlíf og allt hitt, að höfundurinn er ekki eins og fólk er flest. Held að fæstir myndu skrifa um endaþarmsuppgötvun fyrir börn í þessu samhengi.
Hann telur líka að kynin séu fleiri en tvö, sem er ekki hægt líffræðilega séð. Þess konar málflutningur eða kennsla í skólum á ekki að heyrast né sjást. Atgervi manna getur svo verið ólíkt. Það gerist í kollinum ekki litningunum.
Hugmyndir höfundar bókarinnar, Kyn, kynlíf og allt hitt, eru verulega brenglaðar á köflum. Sumt gott má finna í bókinni en ósannindi á ekki að bera á borð fyrir neinn eins og gert er í henni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)